24 stundir - 01.03.2008, Side 15
þjóna eða netfyrirtæki sem hýsa síðurnar til ábyrgðar.
Ragnar telur erfitt að draga til ábyrgðar þá sem gera
dreifingu efnisins mögulega. „Ritstjóra- eða útgef-
endaábyrgð á netinu verður varla sett nema með al-
þjóðlegum lögum,“ segir Ragnar. „Full ástæða er til að
gera alþjóðasamninga um netábyrgð. Á netinu telja
menn að þeir þurfi ekki að virða höfundarrétt og þar
haga menn sér á annan veg en ella. „Anarkí án laga-
reglna á einu sviði gengur ekki. Ef menn vilja hafa eitt
stjórnlaust samfélagssvið þarf að setja lög um að svo sé,
“ segir Ragnar Aðalsteinsson.
Birgir Guðmundsson, fjölmiðlalektor á Akureyri,
telur að standi meiðyrðadómurinn boði það vatnaskil í
pólitískri umræðu. „Þröskuldurinn í pólitískri orð-
ræðu hefur verið miklu hærri en í almennri umræðu.
Standi dómurinn verða nýir tímar, þar sem stjórn-
málamenn þurfa að hugsa sinn gang. En ég leyfi mér
að spá því að dómnum verði snúið við í Hæstarétti, “
segir Birgir. Honum finnst bitamunur en ekki fjár á
ummælunum sem dæmd voru ómerk og mörgum
pólitískum upphrópunum, þar á meðal skrifum ráð-
herrans.
Línudansararnir á netinu
Dofri Hermannsson, bloggari og varaborgarfulltrúi
Samfylkingar, telur að þeir sem temja sér óvandað orð-
færi á netinu verði sjálfkrafa dæmdir ómerkingar af
lesendum. Um Össur segir Dofri að hann sé línudans-
ari. „Ég sé ekki að hann hafi dansað fram af.“ Dofri tel-
ur meiðyrðadóma ekki líklega til að efla réttlætið sér-
staklega. Til dæmis hafi Guðmundur Gunnarsson
verið dæmdur fyrir sönn ummæli um starfsmanna-
leigu sem níddist á útlendingum. „Það má semsagt fara
illa með Pólverja en það er lögbrot að segja frá því.“
beva@24stundir.is
aBjörg Eva Erlendsdóttir
Nú hefur fallið meið-
yrðadómur og pólitísk stór-
yrði á bloggi verið dæmd
dauð og ómerk. Hvorki
voru þau sérstaklega flott
né orðahunang. En þau
voru pólitísk gífuryrði og
þar kemur líkingin við orð-
færi ráðherrans.
24stundir LAUGARDAGUR 1. MARS 2008 15
Það er að bera í bakkafullan læk-
inn að skrifa meira um grein sem
Bjarni Benediktsson skrifaði ásamt
Illuga Gunnarssyni í Morgunblað-
ið í síðustu viku. Daginn sem
greinin birtist var efni hennar sleg-
ið upp á forsíðu og næstu daga síða
eftir síðu lögð undir greinina í um-
fjöllun allra helstu fjölmiðla Sjálf-
stæðisflokksins. Má mál þetta því
réttilega kallast stóra greinamálið
og af því verða dregnar eftirtaldar
niðurstöður sem hér eru af lítillæti
birtar með lágstöfum og smáu letri
og ég bið lesendur um að lesa þetta
alls ekki upphátt:
- halda mætti að ekki hafi áður
verið skrifuð grein um pólitík eða
þá að illugi sé kim il sung og bjarni
sjálfur saparmurat niyazov endur-
borinn …
- fjölmiðlar í landinu eru komn-
ir í sama far flokkapólitíkur og var
fyrir 30 árum – og aðeins þeir sem
eiga málgagn eru taldir með …
- sannaðist í moggaleiðara þar
sem stóð að loksins skrifaði ein-
hver þingmaður um það að í land-
inu væri efnahagsvandi,- les: þing-
maður er sá einn sem er
annaðhvort í samfylkingu eða sjálf-
stæðisflokki …
- greinin þeirra félaga er góð en
vantaði samt alveg útfærðar lausnir
aðra en þá að leggja niður íbúða-
lánasjóð sem er nú heimsku-
græðgi …
- og hverjum á að gefa ríkis-
ábyrgðir þeirra lána sem nú eru
útistandandi …
- hvorugur þeirra félaga þorir að
tala um gjaldmiðilsvandann í land-
inu af ótta við að styðja með því
trúarsöfnuð ESB-sinna …
- athyglisvert samt að í greininni
er hvergi mælt með því að krónan
verði áfram gjaldmiðill hagkerfis-
ins heldur stjáklað um viðfangsefn-
ið eins og köttur um heitan
graut …
- það er þó greinilega ekki ótti
við fráfarandi formann sjálfstæð-
isflokksins sem hrekur þá félaga
lengur frá umræðunni því í grein-
inni er í reynd hörð og óvægin
gagnrýni á hávaxta- og verðbólgu-
stefnu seðlabankans og niðurstaða
þeirra félaga er náskyld niðurstöðu
hrafns bragasonar sem sagði í vik-
unni að vandi dómaraskipana væri
dómsmálaráðherrann en ekki regl-
urnar …
- vandi viðskiptalífsins er að
mati þeirra illuga og bjarna seðla-
bankastjórinn en ekki sú stefna eða
lög sem stjórnvöld setja bankan-
um …
- stjórnarandstaðan og við-
skiptalíf gladdist með mogganum
yfir greininni enda loksins lífsmark
og einhverjir fóru að vonast eftir
vitlegum umræðum innan stjórn-
arliðsins …
- en samfylkingin sá fyrir því og
tók að sér það hlutverk að rakka
allt í greininni niður þannig að
þjóðin og viðskiptalífið gátu þegar
gleymt því að skrif þessi væru upp-
haf að einhverri efnahagsstefnu
ríkisstjórnarinnar …
- ekkert í aðfinnslum samfylk-
ingarinnar sneri að pólitískum
áherslumun þessara flokka í efna-
hagsmálum, – þeir eru einfaldlega
á móti því að liðsmenn úr sjálf-
stæðisflokki komi með ábending-
ar …
- sjálfstæðismenn launuðu fyrir
sig daginn eftir í umræðu um
orkufrumvarp össurar …
- ergó; samfylkingin og sjálf-
stæðisflokkur ætla að deila með sér
ráðherrastólunum og mynda þing-
meirihluta gegn vantrausti á rík-
isstjórnina en að öðru leyti leika
bæði hlutverk stjórnar og stjórn-
arandstöðu.
- þetta er máske skynsamlegt ef
stjórnmál ganga út á það eitt að
halda fylgi – og skiptir engu þó að
það sé fjandsamlegt þjóðarhag á
viðsjártímum. fylgið fyrst, flokkur-
inn svo og stóllinn ofar öllu …
- en aðallega er þetta merki um
kjarkleysi þess sem er með svo stór-
an meirihluta þjóðarinnar bakvið
sig að hann óttast að minnsta
hreyfing geti hrist einn eða tvo út
af gullvagninum …
- fyrr en seinna opinberast þetta
þjóðinni í þeim þrengingum sem
framundan eru og þá verður spurt,
– af hverju gerði enginn neitt …
og meðan ég ber hér í bakka-
fullan lækinn er verk starfsbræðra
minna líkast vinnu bakkabræðra
sem báru sól í trogum inn í glugga-
lausan bæ – þar sem allir sofa …
Höfundur er alþingismaður
Að bera ljós í trogum
VIÐHORF aBjarni Harðarson
vandi við-
skiptalífsins
er að mati
þeirra illuga
og bjarna
seðlabanka-
stjórinn en
ekki sú stefna eða lög
sem stjórnvöld setja
bankanum.
Nýr Bæklingur
LAURA ASHLEY
Faxafeni 14 108 Reykjavík sími 5516646
Opið virka daga 10-18 og Laugardaga 10-14
!
" #
$ % &
!
"
#