24 stundir - 01.03.2008, Qupperneq 16
16 LAUGARDAGUR 1. MARS 2008 24stundir
Samkvæmt upplýsingum frá
Orkustofnun um notkun eldsneyt-
is hér á landi, notaði fiskiskipafloti
Íslendinga tæplega 212 þúsund
tonn af olíu árið 2006.
Tölur fyrir síðasta ár liggja ekki
fyrir að svo stöddu en samkvæmt
þessu losuðu íslensk fiskiskip um
770 þúsund tonn af gróðurhúsa-
lofttegundum út í andrúmsloftið
úti á hafi árið 2006.
Olíunotkun fer minnkandi
Olíunotkun fiskiskipaflotans
virðist þó fara minnkandi ár frá ári.
Árið 2005 notaði flotinn tæplega
233 þúsund tonn af eldsneyti, en
eldsneytisnotkunin var mest árið
1996, þá notaði fiskiskipaflotinn
rúmlega 295 þúsund tonn af elds-
neyti. Síðan fór eldsneytisnotkun
flotans minnkandi eða allt til ársins
2002 en þá jókst magnið um rúm
þrjátíu þúsund tonn.
Minna var notað af eldsneyti ár-
ið eftir, en árið 2004 jókst eldsneyt-
isnotkunin aftur um tæp sjö þús-
und tonn. Síðan þá hefur
olíunotkun fiskiskipaflotans
minnkað um tæp átján prósent.
Þess ber að geta að stærri fiskiskip-
um á Íslandi hefur fækkað und-
anfarin ár.
Hvati til olíusparnaðar mikill
„Eldsneytiskostnaður er næst
stærsti kostnaðarliðurinn hjá út-
gerðunum á eftir launakostnaði og
því skiptir góð orkunýting verulega
miklu máli fjárhagslega fyrir þær.
Þeir hagsmunir fara svo auðvitað
vel saman við umhverfisáhrifin
þannig að hvatinn til að spara olíu
er mjög mikill.“ Þetta segir Friðrik
J. Arngrímsson framkvæmdastjóri
Landssambands íslenskra útvegs-
manna.
„Við höfum um langa hríð velt
fyrir okkur hvað sé hægt að gera til
að draga úr umhverfisáhrifum fisk-
veiðiflotans og þar er margt sem
kemur til.“ Friðrik segir að minnka
megi eldsneytisnotkun og þar með
útblástur meðal annars með því að
breyta hönnun skipa og létta veið-
arfæri.
Öflugt kynningarátak í bígerð
Landssamband íslenskra útvegs-
manna og stéttarfélög íslenskra sjó-
manna eiga sæti í nefnd ásamt
fulltrúum frá umhverfis- og sjáv-
arútvegsráðuneytinu, sem var skip-
uð á haustdögum 2006, en hlut-
verk hennar er að huga sérstaklega
að umhverfisáhrifum vegna út-
blásturs íslenska fiskveiðiflotans.
„Stjórn LÍÚ hefur ákveðið að
fara í rækilegt upplýsinga- og
kynningarátak um hvernig sé hægt
að spara olíu með ýmsum hætti og
mun ráðstafa í það umtalsverðum
fjármunum. Þetta verður gert í
samstarfi við Fjöltækniskóla Ís-
lands þar sem skipstjórnarmönn-
um og vélstjórum verður sérstak-
lega kynnt hvað hægt sé að gera til
að draga úr orkunotkun.“
Þróun nýrra veiðiaðferða
Friðrik segir LÍÚ eiga í samstarfi
við Hafrannsóknastofnun Íslands
vegna rannsókna á þróun svokall-
aðra gildruveiða til að spara orku.
„Gildruveiðar eru auðvitað þekkt-
ar, en við ætlum að kanna hvort
það sé hægt að beita þeirri veiði-
aðferð í stórum mæli úti á rúmsjó,
en það hefur ekki áður verið gert í
heiminum.“Aukin orkunýting og
þar af leiðandi minni umhverfis-
áhrif verður eitt meginverkefni
okkar í framtíðinni.“
Minnsta olíu-
notkun í 18 ár
Fiskiskipafloti landsins hefur ekki notað minna eldsneyti síðan
1990 Unnið er að því að draga enn frekar úr eldsneytisnotkun
➤ Íslenski fiskveiðiflotinn telurum 1600 skip af öllum stærð-
um og gerðum.
➤ Togurum hefur fækkað umhelming í flotanum und-
anfarin ár, úr rúmlega 120 í
um sextíu.
FISKISKIPAFLOTINN
Fiskiskip Eldsneytisnotkun
skipa hefur minnkað undanfarin
ár og sömuleiðis losun þeirra á
gróðurhúsalofttegundum.
24 stundir/Alfons
Ægir Þór Eysteinsson
aegir@24stundir.is
FRÉTTASKÝRING
„Ég tel að olíunotkun fiskveiði-
flotans hafi ekki verið meiri í fyrra
heldur en árið 2006,“ segir Guð-
bergur Rúnarsson formaður lofts-
lagsnefndar sjávarútvegsins.
„Það verður áhugavert að skoða
tölur um olíunotkun fyrir árið
2007 þegar þar að kemur, því þrátt
fyrir niðurskurðinn í kvóta fylgir
því ákveðinn fórnarkostnaður,“
segir Guðbergur.
„Nú þurfa skipin að forðast
þorskinn og sigla í burtu ef fisksins
verður vart. En á móti kemur að
einhverjir hafa ákveðið að leggja
árar í bát og hætta veiðum. Þess
vegna held ég að olíunotkun flot-
ans verði ekki meiri árið 2007.“
aegir@24stundir.is
Formaður loftslagsnefndar sjávarútvegsins
Býst ekki við meiri
olíunotkun 2007
„Til að minnka olíunotkun og
þar með útblástur skipanna á gróð-
urhúsalofttegundum geta útgerðir
tekið upp veiðarfæri sem krefjast
minni orku.“
Þetta segir Jón Bernódusson,
staðgengill forstöðumanns rann-
sókna- og þróunarsviðs Siglinga-
stofnunar Íslands.
„Þetta eru veiðarfæri þar sem þú
þarft ekki að beita skipsvélinni af
miklu afli við veiðarnar. Línu-, net-
og nótaveiðar þarfnast mun minni
orku en botn- og flotvörpuveiðar
eru orkufrekastar.“
Siglingastofnun hefur undanfar-
ið unnið að verkefni til að stuðla að
minni útblæstri gróðurhúsaloftteg-
unda, án þess að draga endilega úr
olíunotkun.
„Til þess að draga úr loftmengun
við óbreytta olíunotkun þurfum
við að hreinsa útblásturinn frá
skipsvélunum. Það er verkefni sem
Siglingastofnun vinnur að og verð-
ur kynnt seinna, en rannsóknir á
sérstökum hreinsunarbúnaði eru
fyrihugaðar á næstu vikum.“
Jón segir að útgerðir geti komið
upp sérstökum orkusparnaðarkerfum
um borð sem fylgist náið með olíu-
eyðslunni, en með kerfunum er hægt
að koma í veg fyrir óþarfa olíunotkun.
„Það er nauðsynlegt að finna
lausnir til að hreinsa útblástur frá
skipsvélum svo að útgerðirnar geti
sjálfar ákveðið hvaða veiðiaðferðir
þær vilja nota.Við eigum að halda
áfram að nota skipin okkar en
finna lausnir til að koma í veg fyrir
að þau mengi eins mikið.“
aegir@24stundir.is
Sérfræðingur Siglingastofnunar um losun gróðurhúsalofttegunda
Útblásturinn verði hreinsaður
ÚTBLÁSTUR ÍSLENSKRA FISKISKIPA
Gildin eru þúsundir tonna af gróðurhúsalofttegundum.
1996 1997 1998 1999 2000 2001 2002 2003 2004 2005 2006
932.576 919.120
904.518
886.714 882.022
727.687
824.156
791.706
813.033
734.876
669.799
Club Paradise Park & Glarus íbúðahótelin
Frábærar íbúðir
Frá kr. 49.995
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2 börn, 2-11 ára í
íbúð á Paradise Park í viku, 26. maí eða 25. ágúst. Gisting
á Glarus íbúðahótelinu kr. 3.000 aukalega.
Hotel Kristal
m/allt innifalið
Frá kr. 55.195
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2 börn í fjölskyldu-
herbergi með allt innifalið á Hotel Kristal í viku, 25. ágúst.
Búlgaría
MasterCard
Mundu
ferðaávísunina!
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
/
N
M
3
24
46
Skógarhlíð 18 · 105 Reykjavík · Sími: 591 9000
www.terranova.is · Akureyri, sími: 461 1099
B
irt
m
eð
fy
rir
va
ra
u
m
p
re
nt
vi
llu
r.
T
er
ra
N
o
va
á
sk
ilu
r
sé
r
ré
tt
t
il
le
ið
ré
tt
in
g
a
á
sl
ík
u.
A
th
. a
ð
v
er
ð
g
et
ur
b
re
ys
t
án
fy
rir
va
ra
.
BEINT MORGUNFLUG
Golden Sands – Perla Svartahafsins
Terra Nova býður frábærar sumarleyfisferðir til perlu Svartahafsins, Golden Sands
í Búlgaríu. Þú fær hvergi meira frí fyrir peninginn en í ferð til Golden Sands. Stað-
urinn ber svo sannarlega nafn með rentu því ströndin er ein sú allra besta í Evrópu,
4 km. löng og allt að 100 metra breið með gullnum sandi, hlýjum og tærum sjó.
frá 49.995 kr.
Frábært verðlag í Búlgaríu!
• Veisla í mat og drykk
• Endalausir afþreyingarmöguleikar
• Frábært næturlíf
• Gott að versla
• Spennandi kynnisferðir
• Frábært verðlag
• o.fl., o.fl.
Bókaðu núna!
www.terranova.is
Þú færð hvergi meira frí fyrir peninginn!