24 stundir - 01.03.2008, Blaðsíða 24
24 LAUGARDAGUR 1. MARS 2008 24stundir
Björgólfur Guðmundsson og
Landsbankinn hafa höfðað mál á
hendur manni sem fór hörðum
orðum um framferði Björgólfs í
bankanum í blaðagrein í lok októ-
ber. Þess er krafist að tiltekin um-
mæli séu dæmd dauð og ómerk en
engin krafa gerð um bætur.
Út af fyrir sig veit ég ekkert um
þetta mál. Ég þekki ekki manninn
sem nú skal lögsóttur, las ekki
greinina hans á sínum tíma og
þekki málsatvik aðeins af frétt í
Fréttablaðinu á miðvikudag. Hvort
eitthvað er hæft í þeirri atvikalýs-
ingu sem bersýnilega hefur verið að
finna í blaðagreininni, það veit ég
ekki. Ég sé þó að manninum sem
skrifaði greinina hefur verið mikið
niðri fyrir og get ósköp vel skilið að
Björgólfi hafi ekki verið skemmt.
Eigi að síður hlýt ég að biðja
Björgólf um að endurskoða hug
sinn varðandi þessa málshöfðun.
Ég hef haft öll mín bankavið-
skipti við Landsbankann síðan
gamli Tröllasparibaukurinn minn
úr Útvegsbankanum rann sitt skeið
á enda fyrir margt löngu. Yfirleitt
hefur farið vel á með mér og bank-
anum. Ég ber líka virðingu fyrir
Björgólfi Guðmundssyni og hvern-
ig hann kom aftur undir sig fót-
unum eftir það andstreymi sem
hann lenti í um miðja ævina. Og
mér hafa þótt ýmis uppátæki Björg-
ólfs í íslensku samfélagi að undan-
förnu vera honum til prýðilegs
sóma.
En ekki gera þetta, Björgólfur.
Komið alveg nóg
Ekki fara að leggja þitt þunga lóð
á vogarskálarnar til þess að auka við
þá hrinu meiðyrðamála allskonar
sem dunið hefur yfir undanfarin
misseri.
Því þar er komið alveg nóg.
Nú síðast fór einn alræmdasti
orðhákur internetsins í mál við
Gauk Úlfarsson og fékk hann
dæmdan til greiðslu hárra bóta af
því Gaukur hafði sakað hann um að
vera rasisti. Dómurinn reyndi ekki
á nokkurn hátt að komast á snoðir
um hvort fyrrnefndur orðhákur,
Ómar R. Valdimarsson, væri í raun-
inni rasisti. Hann tók það bara gott
og gilt að Ómar hefði orðið harmi
lostinn og sár við þessa ásökun, og
svo virðist sem sú staðreynd að
Ómar mun vera ræðismaður El
Salvador á Íslandi hafi haft einhver
áhrif á niðurstöðuna!
Gaukur var dæmdur sekur. Það
þótti mér vond tíðindi.
Nú hef ég að sjálfsögðu enga
skoðun á því hvort Ómar R. Valdi-
marsson sé rasisti. Ég reikna fast-
lega með því að hann sé það ekki,
enda þótt ummæli hans á netinu
um erlenda verkamenn við Kára-
hnjúka séu ekki sérlega kurteisleg.
Ég nefni sérstaklega illa heppnaða
fyndni hans þegar alvarleg maga-
kveisa stakk sér niður meðal verka-
manna Impregilo (vinnuveitanda
Ómars) og hann gerði grín að því
að þeir sem ekki kynnu að þvo sér
um hendurnar mundu lenda í
djúpum skít.
Í lófa lagið að svara
En það skiptir raunar engu máli
hvort Ómar R. Valdimarsson er ras-
isti eða ekki. Ef honum sárnuðu
ummælin var honum í lófa lagið að
svara þeim – honum hefur hingað
til ekki verið orða vant á internet-
inu. En þetta virðist vera nýjasta
tíska í samfélaginu – að fara í mál.
Ég hef þegar á þessum vettvangi lýst
furðu minni á dómi sem kveðinn
var upp í héraði yfir Fréttablaðinu
að ósk Magnúsar Ragnarssonar hjá
Skjá einum, en sá dómur var svo
fráleitur að æðri dómstóll bókstaf-
lega verður að hrinda honum.
„Fallinn-dómurinn“ frægi er líka
flestum í fersku minni; ég held að
það sé smátt og smátt að renna upp
fyrir æ fleirum hve fráleitur sá
dómur var og hættulegt fordæmi.
Dómurinn yfir Gauki
Úlfarssyni er ekki mikið skárri.
Vissulega gerði Gaukur sig sekan
um dónaleg orð. En menn sem taka
þátt í orðræðu í samfélaginu – og
tala nú ekki af þvílíku offorsi sem
Ómar R. Valdimarsson hefur oft
gert – þeir eiga ekki og mega ekki
hlaupa undir pilsfald ríkisins eftir
sínum hentugleika.
Sér í lagi ekki úr því dómstólar
virðast líta svo á að það skipti ná-
kvæmlega engu máli hvort sann-
leikur leynist í „meiðyrðunum“ eða
ekki. Öllu skipti hvort einhver verði
eða þykist verða voða móðgaður og
sár.
Minni maður
Ómar R. Valdimarsson er mun
minni maður eftir málshöfðun sína
gegn Gauki Úlfarssyni en hann var
áður. Hann getur kannski veitt sér
eitthvað óvænt fyrir hundrað þús-
und kallana frá Gauki – ef Hæsti-
réttur staðfestir þennan dóm – og
hann getur hrósað happi yfir því að
fá hærri bætur en flest fórnarlömb
nauðgana. Það er væntanlega eitt-
hvað til að fagna þegar hann heldur
upp á dóminn.
En þetta er hættuleg þróun. Þetta
er hindrun í vegi tjáningarfrelsis –
einn og einn dónaskap verðum við
að þola í nafni þess að allir fái að tjá
sig. Dómstólarnir mega ekki taka
þátt í þessu.
Og heldur ekki Björgólfur og
Landsbankinn. Vissulega er ekki
farið fram á bætur af manninum
sem skrifaði blaðagreinina, en þetta
er samt vont fordæmi.
Björgólfur og Landsbankinn hafa
ótal tækifæri og betri til að svara
blaðagreininni heldur en í dómsal.
Einkum með verkum sínum.
Ekki meir, ekki meir!
aIllugi Jökulsson skrifar um meiðyrðamál
Ómar R. Valdi-
marsson er
mun minni
maður eftir
málshöfðun
sína gegn
Gauki Úlfars-
syni en hann var áður.
Hann getur kannski veitt
sér eitthvað óvænt fyrir
hundrað þúsund kallana
frá Gauki – ef Hæstiréttur
staðfestir þennan dóm –
og hann getur hrósað
happi yfir því að fá hærri
bætur en flest fórn-
arlömb nauðgana.
24stundir/Þorkell
Útfararþjónustan ehf.
Stofnað 1990
Símar: 567 9110 & 893 8638
www.utfarir.is • runar@utfarir.is
Alhliða útfararþjónusta
Rúnar
Geirmundsson
Sigurður
Rúnarsson
Elís
Rúnarsson
Þorbergur
Þórðarson
Upplýsingar veita Gísli í síma 894-2865 og Svavar í síma 896-7085
KKR, SVFR og SVH
STANGAVEIÐIMENN ATHUGIÐ
Nýtt námskeið í fluguköstum í T.B.R húsinu
Gnoðavogi 1 hefst 2. mars kl 20:00.
kennt verður 2, 9, 16 og 30 mars.
Við leggjum til stangir.
Skráning á staðnum gegn greiðslu (ekki kort).
Verð kr 9.000 en kr 8.000 til félagsmanna,
gegn framvísun gilds félagsskírteinis.
Mætið tímanlega. Munið eftir inniskóm.
Sýningarnar eru opnar virka daga frá 11-17 og um helgar frá 13-16.
Sími 575 7700 • gerduberg@reykjavik.is
GERÐUBERG
www.gerduberg.is
Gerðuberg 25 ára
Þriðjudaginn 4. mars kl. 20-22 verður öllum
velunnurum, samstarfsaðilum og fyrrverandi
starfsfólki Gerðubergs boðið til veislu.
Í tilefni dagsins verða opnaðar tvær sýningar:
Stefnumót við safnara III
Hljómfagurt stefnumót við
tónlistarmenn og hljóðfærasafnara!
Sýningarstjórn: Anik Todd og Una Stígsdóttir
Sjö landa sýn
María Loftsdóttir, alþýðulistakona, sýnir
vatnslitastemmningar frá ferðalögum sínum
um Argentínu, Bólivíu, Brasilíu, Ísland, Japan,
Perú og Skotland.
Hið breiða holt
Ljósmyndasýning þar sem unglingar
eiga stefnumót við afa sína eða ömmur!
Sýningarstjóri: Berglind Jóna Hlynsdóttir.
Styrktaraðili: Beco
Vissir þú..
..að í Gerðubergi er frábær aðstaða
fyrir ráðstefnur, námskeið, fundi og veislur?
Salir og fundarherbergi fyrir 8 - 120 manns.