24 stundir - 01.03.2008, Side 54

24 stundir - 01.03.2008, Side 54
54 LAUGARDAGUR 1. MARS 2008 24stundir ÍÞRÓTTIR ithrottir@24stundir.is a Veitt verður úr sérstökum ferðasjóði í næstu viku og þótt upphæðin sé aðeins dropi í hafið er þetta byrjun og enn einn ísinn sem hefur verið brotinn á síðustu árum. Eftir Albert Örn Eyþórsson albert@24stundir.is „Það er alveg nóg að gera,“ segir Ólafur, enda er auðvitað hægt að færa rök fyrir því að starf forseta Íþróttasambands Íslands eitt og sér sé full vinna og Ólafur viðurkennir að svo geti verið. „Að standa í stafni íþróttahreyfingarinnar er í raun full vinna og ég er þannig séð ávallt í þeirri vinnu enda hliðra ég mikið til vegna anna í því embætti og þá hjálpar mikið til að vera sjálfs sín herra á lögfræðistofunni. En á móti því álagi þá er vinnan öll af- skaplega skemmtileg og ótrúleg lífsreynsla að kynnast öllum þeim öngum og einstaklingum innan hreyfingarinnar sem mér hefur gef- ist færi á að kynnast hingað til. Ótrúlega margir leggja mikla hönd á þann plóg á hverjum einasta degi og það að mestu leyti í hreinu sjálf- boðastarfi.“ Hálfnað verk þá hafið er Einn helsti akkilesarhæll afreks- manna íslenskra gegnum árin hef- ur verið fjárskortur og hefur sá skortur oft staðið íþróttagreinum og fólki fyrir þrifum. Íþróttafólk okkar flest, ef frá er talið knatt- spyrnu- og handknattleiksfólk, þarf oftar en ekki sjálft að greiða fyrir þátttöku sína en kostnaður við að komast í fremstu röð hleyp- ur á milljónum króna og fáir ein- staklingar hafa efni á því að hætta keppni áður en takmarkinu er náð. Það er mögulega ein ástæða þess að eins og staðan er í dag eru líkur á að mun færri íslenskir keppendur komist á Ólympíuleikana í Kína í sumar en komust á síðustu leika í Aþenu. Ólafur segir áhyggjuefni að hugsanlega fækki í þeim hóp en vill almennt meina að stór skref til batnaðar hafi verið tekin. „Á síð- ustu tveimur árum hefur orðið bylting í þessum málum á sveit- arstjórnarstiginu. Þá hefur tekist að brjóta þann ís að koma sérsam- böndunum innan ÍSÍ á föst fjárlög og veita árlega fé til þeirra. Meiri ís verður brotinn í næstu viku þegar í fyrsta sinn verður úthlutað úr ferðasjóði en kostnaður við slíkt hefur lagst þungt á ýmsar greinar og sambönd. Fyrir þetta tvennt er- um við mjög þakklátir og mennta- málaráðherra hefur verið okkur af- ar vel innan handar hvað þetta varðar. Þarna er um algjöra bylt- ingu að ræða frá því sem áður var.“ Engin töfratala Þrátt fyrir að stjórnvöld hafi með vaxandi hætti komið að fjár- mögnun íþróttahreyfingarinnar í landinu segir Ólafur þó ljóst að margt megi gera í viðbót. „Það hef- Ólafur Rafnsson Hann fer létt með að vinna tvö störf sem forseti ÍSÍ og lögmaður hjá Viðskiptastof- unni í Hafnarfirði. Þess utan er hann stjórnarmaður hjá Körfubolta- sambandi Evrópu og er sífellt að finna sig betur í tímafreku golfi. Ísinn brotinn  Eftir tveggja ára setu á forsetastóli Íþrótta- og ólympíusambands Íslands er Ólafur Rafnsson sáttur við þá framþróun sem orðið hefur innan íþróttahreyfingarinnar  Ísinn hafi verið brotinn á veigamiklum stöðum og bjart sé framundan Ólaf Rafnsson þekkja flestir sem á annað borð koma nálægt íþróttum með einum eða öðrum hætti. Fyrir utan störf sem forseti ÍSÍ var hann formaður Körfuknatt- leikssambandsins um árabil auk þess sem hann lék lengi körfubolta og vann alla helstu titla þar. Þrátt fyrir miklar annir við lögfræðistörf og sem forseti íþróttahreyfing- arinnar situr hann einnig sem stjórnarmaður í Körfuknattleikssambandi Evrópu. Ekkert hefst með hrópum og köllum Vænlegra er að vinna að framgangi íþrótta eins og annars með góðri samvinnu. a Okkur hefur tekist að brjóta mikinn ís frá því sem var fyrir nokkrum árum og fyrir það erum við þakklát en betur má ef duga skal. 24stundir/Ómar Þá er það afgreitt! Hafiáhugamenn vilja til aðsjá Kaká í leik verður að heimsækja San Siro en kapp- inn hefur nú skrifað undir nýjan samning við Ítalina til ársins 2013. Kraftaverk eða fá- ránlegt tilboð mun því verða nauðsynlegt ætli önnur fé- lagslið að freista hans í framtíð- inni. Annar Brassi, Ronaldinhohjá Barcelona, sér eftirýmsu á þessari leiktíð og segir nú mikilvægast að klára 90 mín- útur með liði sínu, en form- leysi hans hefur komið í veg fyrir slíkt um drjúgan tíma. Barca mætir Atletico í kvöld. Tæp 70 prósent aðspurðraí einu helsta íþrótta-blaði Katalóníu, Sport, telja að Frank Rijka- ard verði áfram við stjórn hjá liði Börsunga á næstu leiktíð. Aðeins tíu prósent telja að hann taki við liði Chelsea eins og sögusagnir hafa verið um. Evrópumeistaratitillinn ár-ið 2004 var hvorki meirané minna en gjöf frá guði að sögn Theo Zagorak- is, fyrirliða þess liðs. Hafði sem sagt lítið með færni grísku knattspyrnu- mannanna að gera. Kalt vatn rennur núreglulega milli skins oghör- unds á þjálfara Reading, Steve Coppell, en liðið er í tómu tjóni og bull- andi fallhættu eftir átta tap- leiki í röð. Coppell sem jafnan er bjartsýnismaður viðurkennir að staðan hafi aldrei verið verri og kraftaverk þurfti til að breyta stöðunni nú. Krísufundur var einnighaldinn hjá öðru enskuliði í vikunni en á öðrum nótum samt en hjá Reading. Þjálf- ari Chelsea, Avram Grant, kallaði saman fund eftir tap Chelsea fyrir Tottenham í deildarbik- arkeppninni. Fóru þjálfarar og leikmenn þar yfir stöðuna sem ekki er ásættanleg að mati eig- anda liðsins, Roman Abramo- vich, enda ekki verið að eyða ósköpum í leikmenn ár hvert til að standa uppi með tóma bik- arskápa á Brúnni. Grant þjálfari veit líka að hans dagar eru tald- ir nái Chelsea ekki árangri í neinni keppni og deildarbik- arinn var hvað auðveldasta tak- markið. SKEYTIN INN

x

24 stundir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.