24 stundir - 01.03.2008, Blaðsíða 59
24stundir LAUGARDAGUR 1. MARS 2008 59
Gítarleikari Rolling Stones,
Keith Richards, gerir lítið úr end-
urkomu sveitarinnar Led Zeppelin
og heldur því fram að hann hafi
ekki einu sinni vitað um hana.
Hann segist ekki hafa nokkurn
áhuga á rokksveitinni sem kom
saman á ný á eftirminnilegum tón-
leikum í O2 Arena í London í des-
ember síðastliðnum.
Þegar Keith var spurður hvað
sér fyndist um framtakið svaraði
hann: „Komu þeir saman aftur?
Nú, til hamingju Jimmy og Robert.
Stairway To Heaven hefur samt
aldrei gert neitt fyrir mig.“
Í viðtali við tímaritið Uncut, til
að kynna væntanlega mynd Mart-
ins Scorsese um Rolling Stones
sem nefnist „Shine A Light“, segir
Keith svo að Mick Jagger sé brjál-
aður: „Mick er alveg klikk. Hann
getur ekki vaknað á morgnana án
þess að vita strax í hvern hann á að
hringja. Ég, hins vegar, þakka guði
fyrir að vera vaknaður og bíð svo í
3-4 tíma áður en ég geri nokkuð.“
heida@24studir.is
Ekki aðdáandi
Keith Richards Segist
ekki vera mikill Led Zep-
pelin-aðdáandi og alls ekki
fíla Stairway To Heaven.
Keith Richards hunsaði Zeppelin
Eftir Halldóru Þorsteinsdóttur
halldora@24stundir.is
Tónlistarverðlaunin Shockwaves
NME voru afhent með pompi og
prakt í London í fyrrakvöld. Margt
var um manninn á hátíðinni og að
sjálfsögðu mikið um dýrðir þegar
helstu rokkarar Bretlandseyja voru
samankomnir í níðþröngum galla-
buxum og sínu fínasta pússi.
Arctic Monkeys var ótvíræður
sigurvegari hátíðarinnar, en sveit-
in sópaði að sér tilnefningum og
var talin sú sigurstranglegasta áð-
ur en sigurvegarar voru kunn-
gjörðir. Fór sveitin með sigur af
hólmi sem besta breska hljóm-
sveitin og fyrir besta lag og mynd-
band. Verðlaun fyrir bestu al-
þjóðlegu sveitina féllu í skaut The
Killers og Muse þótti best á tón-
leikum. Besta sólósöngkonan var
valin Kate Nash, en þar skaut hún
ekki ómerkari stjörnu en Amy
Winehouse ref fyrir rass. Sú síð-
arnefnda fór hins vegar með sigur
af hólmi í flokknum verst klædda
söngkonan …
Tónlistarverðlaun NME voru afhent í London í fyrradag
Rokkararnir mætast
Það var mikið um dýrðir á
tónlistarverðlaunahátíð
NME í fyrradag. Arctic
Monkeys var ótvíræður
sigurvegari, en sveitin fór
með sigur af hólmi í
þremur flokkum.
Besta sólósöngkonan Kate Nash vann
í flokknum besta sólósöngkonan.
Sigursælir Matt Helders og Alex Turner
úr Arctic Monkeys fögnuðu sigri.
Rokkaraleg Kelly Osbourne lét sig að
sjálfsögðu ekki vanta á hátíðina.
Bestir á sviði Strákarnir í Muse þykja
skara fram úr á tónleikum.
Mike Smith, söngari hljómsveit-
arinnar Dave Clark Five, lést í
fyrradag úr lungnabólgu, 64 ára
gamall. Tvær vikur eru þar til
sveitin verður tekin í heið-
urssamfélagið US Rock and Roll
Hall of Fame. Smith dó á spítala
fyrir utan Lundúnaborg en hann
var lagður inn á miðvikudag með
sýkingu.
Lasleikann er hægt að rekja til
meiðsla sem söngvarinn varð fyr-
ir er hann féll af grindverki árið
2003 og lamaðist neðan brjóst-
kassa. „Síðustu fimm ár hafa ver-
ið erfið fyrir Mike. Ég er döpur að
missa hann en fegin að vita að
hann gat eytt síðustu mán-
uðunum heima hjá sinni ástkæru
eiginkonu Charlie,“ sagði Margot
Lewis, umboðsmaður hans.
Dave Clark Five var mikilvæg
hljómsveit í bresku tónlistarsen-
unni á sjöunda áratugnum. Hún
var ein af samkeppnissveitum
Bítlanna og átti smelli beggja
vegna Atlantshafsins. re
Mike Smith látinn
Dave Clark Five Náði Bítlalagi úr fyrsta
sæti með lagi sínu Glad all over.
Playboy-kóngurinn Hugh Hefner
hefur farið þess á leit við leikkon-
una Lindsay Lohan að hún sitji
léttklædd fyrir í myndaþætti
Playboy-tímaritsins. Segist Hefn-
er hafa heillast af nýjum myndum
Lindsay sem birtust í New York
Magazine og sýna leikkonuna í
stellingum Marilyn Monroe.
„Lindsay var virkilega ánægð
með viðtökur fólks við Marilyn-
myndunum sínum og hún mun
alveg örugglega skoða tilboð
Hugh,“ sagði kunningi Lindsay á
dögunum. hþ
Lindsay Lohan
í Playboy?
Fæðing tvíbura Jennifer Lopez
kostaði ófáa skildingana ef marka
má heimildir vestanhafs. Mun
hún hafa eytt 1,4 milljónum
Bandaríkjadala vegna fæðing-
arinnar, en meðal útgjaldanna
var sérstök lúxussvíta á spít-
alanum sem kostar litla 175 þús-
und dollara fyrir vikuna. Í svít-
unni voru plasmasjónvörp,
einkaeldhús, stórir leðursófar og
fleira. Þá fór leikkonan fram á
einkalækna og hjúkrunarfólk auk
öryggisvarða. Heimildir herma
að tvíburarnir hafi verið skírðir
Emelina og Maximiano. hþ
Rándýr fæðing
tvíburanna
Pete Doherty, söngvari sveit-
arinnar Babyshambles, var kos-
inn hetja ársins af lesendum
tímaritsins NME á árlegum tón-
listarverðlaunum blaðsins. Do-
herty var kallaður svöl fyrirmynd
og honum hrósað fyrir að hafa
tekist á við krakk- og heróínfíkn
sína á árinu, ásamt því að hafa
verið duglegur að hjálpa Amy
Winehouse með eiturlyfjavanda-
mál sín, og hafa verið duglegur að
gefa henni góð ráð. re
Pete Doherty
svöl fyrirmynd
Söngvari hljómsveitarinnar Cult-
ure Club, Boy George, kom fyrir
rétt og neitaði ásökunum um að
hafa ráðist á og lokað inni Audun
Carlsen í apríl á síðasta ári. Boy
George kom fram undir sínu
rétta nafni, George O’Dowd, og
dvaldi um 20 mínútur í rétt-
arsalnum. Á þeim tíma sagði
hann ekkert utan að staðfesta
nafn sitt, segjast vera saklaus og
samþykja skilyrði tryggingar. re
Boy George
neitar sök
Amy Winehouse hefur fengið til-
boð upp á 500 þúsund pund fyrir
að spila á einum tónleikum. Til-
boðið kemur frá franska tískuhús-
inu Louis Vuitton, sem frægt er
fyrir töskur sínar. Hún á að koma
fram á sýningu hönnuðanna í
tískuvikunni í París sem nú stend-
ur yfir. „Allir hjá Louis Vuitton eru
miklir aðdáendur Amy og telja
hana vera fullkomna á tískusýn-
ingu sína,“ sagði heimildamaður.
„Þetta eru miklir peningar en þeir
vita að hún er alveg þess virði.“
Ekki eru allir eins hrifnir af Amy,
en hún hreppti titilinn Verst
klædda stjarnan á tónlist-
arverðlaunum NME í fyrrakvöld.
Amy mun svo senda frá sér sína
eigin tískuvörulínu með vorinu, en
flaggskip tískuvarnings hennar
verður svört fljótandi augnmálning
sem hún notar sjálf óspart.
heida@24stundir.is
Umdeild
Amy Wine-
house
Amy Málar sig mikið og
sparar ekki augnlínurnar.