24 stundir - 23.05.2008, Síða 2
2 FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 2008 24stundir
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
S
F
G
4
20
40
0
4.
20
08
VÍÐA UM HEIM
Algarve 20
Amsterdam 19
Alicante 26
Barcelona 20
Berlín 20
Las Palmas 23
Dublin 11
Frankfurt 19
Glasgow 18
Brussel 18
Hamborg 18
Helsinki 15
Kaupmannahöfn 16
London 21
Madrid 23
Mílanó 19
Montreal 9
Lúxemborg 15
New York 11
Nuuk 0
Orlando 25
Osló 17
Genf 17
París 19
Mallorca 23
Stokkhólmur 14
Þórshöfn 9
Suðaustan 5 -15 m/s og dálítil rigning norð-
vestantil síðdegis. Hiti 5 til 15 stig, hlýjast á
Norðausturlandi.
VEÐRIÐ Í DAG
7
8
8
7 8
Hlýjast á Norðausturlandi
Suðlæg átt og bjart veður austantil á landinu,
en hætt við þoku á annesjum fyrir norðan.
Skýjað og súld með köflum á vestanverðu
landinu. Hiti 10 til 16 stig, hlýjast norðaust-
anlands.
VEÐRIÐ Á MORGUN
8
9
13
7 11
Suðlæg átt
Skýrslutökur af börnum í Barna-
húsi vegna meintra kynferðisbrota
eru orðnar álíka margar það sem af
er árinu og á öllu síðasta ári.
Fréttastofa RÚV greindi frá.
Ólöf Ásta Farestveit, forstöðu-
maður Barnahúss, segir að málum
hafi fjölgað mikið á undanförnum
mánuðum. Hugsanleg skýring sé
að nokkur stór kynferðisbrotamál
hafi komið upp hér, þar sem mörg
börn eru fórnarlömb sama gerand-
ans.
Það sem af er þessu ári hafa 104
rannsóknarviðtöl farið fram í
Barnahúsi. Þar af eru 50 skýrslu-
tökur að beiðni dómara. Á síðasta
ári komu 189 börn í rannsóknar-
viðtöl í Barnahús. Í 133 tilfellum
var um að ræða könnunarviðtal að
beiðni barnaverndarnefndar og 56
viðtöl fóru fram að beiðni dómara.
Barnaverndarnefndir bera ábyrgð á
vinnslu slíkra mála og geta óskað
eftir þjónustu Barnahúss. Sæti mál
lögreglurannsókn fer staðsetning
skýrslutöku eftir ákvörðun dómara
en barnaverndarnefndir geta óskað
eftir annarri þjónustu Barnahúss
t.d. læknisrannsókn á börnum eða
könnunarviðtölum.
Barnaverndarnefndir geta einnig
leitað til Barnahúss vegna gruns um
annars konar ofbeldi gegn börnum.
Skýrslutökum af börnum í Barnahúsi snarfjölgar
Kynferðisbrotamálin stærri
og fórnarlömbin fleiri
„Við héldum alltaf að þetta yrði
einhver bráðabirgðalausn. Við viss-
um ekki um þessi áform og ég held
að það sé óhætt að segja að það séu
allir íbúarnir í húsinu ósáttir við
þetta,“ segir Ása Ásgrímsdóttir,
íbúi í fjölbýlishúsinu við Lund 1 í
Fossvogsdal, um lagningu Nýbýla-
vegar, sem nú er kominn mun nær
húsinu en áður.
Eins og greint hefur verið frá í 24
stundum hefur Nýbýlavegur verið
færður nær fjölbýlishúsinu sem
byggt hefur verið við Lund 1. Gylfi
Óskar Héðinsson, annar eigandi
BYGG, sem reisti húsið, segir fyr-
irtækið ekki hafa verið upplýst um
hvernig vegurinn yrði lagður.
Óljóst er hvað verður gert í málinu
en unnið er að lausn þess. mh
Íbúar í Lundi 1 upp við Nýbýlaveg
Íbúarnir ósáttir
við Nýbýlaveginn
Undanfarna daga hafa starfsmenn
bensínstöðva orðið varir við að á
bílum sem ekið er á brott án þess
að greitt hafi verið fyrir bensín eru
númer sem tilheyra ekki viðkom-
andi bílum. Þegar starfsmenn
Skeljungs hringdu í eiganda eins
bílnúmersins brá honum í brún,
samkvæmt heimildum 24 stunda.
Hann fór og kannaði ástandið á bíl
sínum sem var í geymslu á vöktuðu svæði og komst þá að því að búið
var að stela númeraplötunum af bílnum.
Brynjar Pétursson, sem sér um tjónamál hjá Olís, segir alltaf eitthvað
um það að ökumenn stingi af án þess að greiða fyrir bensín. ,,Það hef-
ur nýlega komið tvisvar fyrir að menn hafi verið á bílum með núm-
eraplötur sem passa ekki við bílana. Við sáum einnig sama númers-
lausa bílinn koma þrisvar sinnum fyrr í vetur og stinga af.“
Ómar Jóhannsson, rekstrarstjóri þjónustustöðva hjá N1, segir menn
koma með stolnar númeraplötur til að stela eldsneyti en þó ekki í
miklum mæli.
ibs
Stela númerum og bensíni
Sprengjusérfræðingar Landhelg-
isgæslunnar vinna að því að
rannsaka sprengjuna sem fannst í
húsgrunni í Furugrund í Kópa-
vogi í fyrradag. Líklegt þykir að
sprengjan sé bandarísk og frá
tímum seinni heimsstyrjaldar.
Unnið að rann-
sókn á sprengju
Rannsóknastofnun um lyfjamál
hvetur landsmenn til að skila inn
lyfjum sem þeir eru hættir að
nota þannig að hægt verði að
leggja mat á hvað það kostar
þjóðarbúið þegar lyf eru ekki
notuð. „Átakið hefst á mánudag-
inn og við höfum fengið öll apó-
tek til liðs við okkur,“ segir Árni
Gunnar Ásgeirsson verkefn-
isstjóri hjá stofnuninni. Hann
segir að almenningur verði jafn-
framt beðinn um að greina frá
aldri eigenda lyfjanna og ástæð-
um þess að lyfin hafi dagað uppi í
baðherbergishillum og skápum.
ibs
Ónotuðum lyfjum verði skilað
Eftir Hlyn Orra Stefánsson
hlynur@24stundir.is
Jakob Frímann Magnússon, nýráð-
inn verkefnastjóri miðborgar
Reykjavíkur, skuldar rúmar 4,5
milljónir króna í skatt. Hefur af
þeim sökum verið krafist fjárnáms
í húsi hans að Bjarkargötu, sem var
í gær auglýst á nauðungaruppboði
að beiðni Tollstjóraembættisins.
Gleymdist í atganginum
„Þetta var slys,“ segir Jakob Frí-
mann. „Ég hélt að síðasti mögu-
leiki til að greiða skuldina væri í
dag [í gær], en þá var það dagurinn
sem auglýsingin um uppboð birt-
ist. Ég viðurkenni að hvirfilvindur
undanfarinna vikna hefur tekið
tíma minn og athygli frá þessu,“
segir Jakob sem greiddi 800 þús-
und inn á skuldina í gær.
Um er að ræða tvær skuldir, aðra
upp á 2.953.407 krónur og hina
upp á 1.594.927 krónur. Útgáfu-
dagur veðbanda vegna þeirra er 12.
desember á síðasta ári.
Jakob segir þetta vera vegna
skatts af tekjum hans frá því í fyrra.
„Ég var með miklar tekjur á þeim
tíma eins og fjallað hefur verið um.
Ég borga mánaðarlega skatta af
mínum föstu tekjum, en svo eru
uppsöfnuð óregluleg laun svo sem
laun vegna auglýsinga og hljóm-
sveitaútgerðar sem ég greiði skatt
af einu sinni á ári.“
Jakob bendir á að margir séu í
þeim aðstæðum að vera með
óregluleg laun og semji því við
skattayfirvöld um að greiða gjöld
sín til þeirra í þrepum.
Greiðir á næstu tveimur árum
Jakob segist hafa náð samkomu-
lagi við skattayfirvöld um að greiða
skuldina á næstu tveimur árum.
„Ég borga 20% af skuldinni á
þriggja mánaða fresti. Ég ræð alveg
fullkomlega við það. Ef ég hins veg-
ar get greitt hana fyrr geri ég það.“
Hann segir óheppilegt að málið
hafi endað með fjárnámi. „Ég var
staddur í útlöndum þegar þetta
kom upp og áttaði mig ekki á því
hvað ég hefði lítinn tíma til að
bregðast við. Það er ofboðslega lít-
ið umburðarlyndi hjá tollinum og
lítill tími gefinn.“
Miðborgarstjóri
skuldar skatt
Jakob Frímann Magnússon skuldar 4,5 milljónir krónur í skatt
Fjárnáms krafist í heimili hans og það auglýst á uppboði
Upptekinn „Hvirfilvindur
undanfarinna vikna hefur
tekið tíma minn og athygli
frá þessu.“
➤ Jakob Frímann Mangússon ernýráðinn verkefnastjóri mið-
borgar Reykjavíkur.
➤ Hann er jafnframt starfanditónlistarmaður og situr með-
al annars stjórn Samtóns og
Stefs.
➤ Þá hefur hann tekið þátt íprófkjörum fyrir Samfylkingu
og Íslandshreyfinguna.
FJÖLHÆFUR
Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir þingaði
í gær með Urmas
Paet, utanrík-
isráðherra Eist-
lands, en hún er
þar í opinberri
heimsókn. Þau ræddu ýmis sam-
eiginleg mál, meðal annars sam-
starf innan NATO og um svæð-
isbundna samvinnu og samstarf
milli landa á grundvelli EES-
samningsins.
Ingibjörg Sólrún flutti opn-
unarræðu sem fulltrúi Norður-
landanna á ráðstefnu í Tallinn
sem helguð var auknum við-
skiptatækifærum á Balkanskaga.
Ingibjörg Sólrún í Eistlandi
Ræddi um NATO
Leiðrétt
Ritstjórn 24 stunda vill leiðrétta hvaðeina,
sem kann að vera missagt í blaðinu.
Leiðréttingar birtast að jafnaði á síðu 2.