24 stundir - 23.05.2008, Qupperneq 4
4 FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 2008 24stundir
Viðskiptavinir í Stofni fá fjölbreytt úrval
af hjólahjálmum á 30% afslætti í Markinu,
Ármúla 40, 108 Reykjavík.
ENN EINN KOSTUR ÞESS AÐ VERA Í STOFNI
30% AFSLÁTTUR AF HJÁLMUM
Bíll valt á Vesturlandsvegi
skammt ofan við Ártúnsbrekku
um ellefuleytið í gær. Tvennt var í
bílnum og voru meiðsli þeirra ekki
talin alvarleg. Þegar lögreglan kom
að hafði fólkið komið sér út úr
bílnum af sjálfsdáðum en kallað
var á sjúkrabíl til að gæta fyllsta ör-
yggis.
Að sögn Kristjáns Óla Guðna-
sonar, varðstjóra í umferðardeild
lögreglunnar á höfuðborgarsvæð-
inu, leikur grunur á um að öku-
maður bílsins hafi verið undir
áhrifum ávanabindandi lyfja. Það
hafi þó ekki verið staðfest en málið
sé til rannsóknar. Bíllinn var um-
talsvert skemmdur og þurfti að
fjarlægja hann með kranabíl af
vettvangi. fr
Bílvelta varð á Vesturlandsvegi í gærmorgun
Grunur um akstur
undir áhrifum lyfja
Eftir Hlyn Orra Stefánsson
hlynur@24stundir.is
„Glitnir, sem hefur verið áskrif-
andi að fjármögnunarverkefnum
sveitarfélaga sem eiga aðild að
Fasteign, hefur engar skyldur þeg-
ar á reynir. Þeir geta bara hlaupist
undan ábyrgð og skilið sveitar-
félögin eftir með sárt ennið.“ Þetta
segir Guðbrandur Einarsson, bæj-
arfulltrúi A-lista í Reykjanesbæ.
Eins og sagt var frá í 24 stund-
um í gær hefur eignarhaldsfélagið
Fasteign hf. átt í erfiðleikum með
að fá fjármagn fyrir nýfram-
kvæmdum, en félagið er meðal
annars í eigu tíu sveitarfélaga og
Glitnis banka. Hefur því verið
lögð fram sú tillaga á fundi bæj-
arstjórnar Sandgerðis að bærinn
taki lán og framláni það Fasteign,
til að félagið geti hafið stækkun
grunnskóla bæjarins en leigt bæn-
um húsnæðið.
Svipuð hugmynd hefur verið
rædd á fundi bæjarráðs Reykja-
nesbæjar, en í fundargerð frá 14.
febrúar sl. er bæjarstjóra falið að
vinna að stofnun „nýs félags í eigu
nokkurra sveitarfélaga, sem hefur
þann tilgang að opna möguleika
eignarhaldsfélagsins Fasteignar hf.
á lánsfé hjá Lánasjóði sveitarfé-
laga.“
Rökin fokin út í veður og vind
Fasteign var stofnað af Reykja-
nesbæ og Glitni árið 2003 og
keypti þá allar opinberar bygging-
ar í bænum, en bærinn leigir þær
af félaginu. „Rökin fyrir stofnun
félagsins voru þau að Fasteign ætti
auðveldara með að fá lán og gæti
fengið þau á betri kjörum en
Reykjanesbær,“ segir Guðbrandur.
„Nú eru þau rök fokin út í veður
og vind.“
Árni Sigfússon, bæjarstjóri
Reykjanesbæjar og varaformaður í
stjórn Fasteignar, segir þá sem
þekkja til reksturs félagsins hafa
trú á því. „Félagið var stofnað til
að sérþekking á þessu sviði fengi
notið sín.“ Hann segir það hafa
margborgað sig fyrir bæinn að
taka þátt í félaginu; það hafi klár-
að framkvæmdir með hagstæðari
hætti en annars væri mögulegt og
staðist tímaáætlanir mun betur en
gengur og gerist við opinberar
framkvæmdir.
Boðist hagstæð lánskjör
Þá hafi stærðarhagkvæmnin
valdið því að Fasteign hafi fengið
hagstæðari lánskjör en Reykja-
nesbæ hefði einum og sér boðist.
„Hins vegar hefur þetta félag, rétt
eins og önnur fyrirtæki á Íslandi,
fundið fyrir því að bankakerfið er
næstum því lokað.“
Hann bendir á að Lánasjóður
sveitarfélaga hafi ekki síður en
aðrir átt erfitt með að fá lánsfé er-
lendis frá og nái því ekki að lána
fyrir öllum þeim umsóknum sem
liggja fyrir.
Árni segir að Reykjanesbær hafi
enn sem komið er ekki sótt lánsfé
fyrir hönd Fasteignar til Lánasjóðs
sveitarfélaga. „En það er sjálfsagt
að gera ef þörf verður á því. Það
er ekkert óeðlilegt, heldur bara út-
færsluatriði.“
Bankinn laus
við alla ábyrgð
Glitnir verið áskrifandi að fjármögnun fyrir sveitarfélög gegnum
Fasteign, segir bæjarfulltrúi Sveitarfélögin sitja eftir með sárt ennið
➤ Fasteign keypti allar opinber-ar byggingar í Reykjanesbæ.
Þá á félagið m.a. barnaskóla
Vestmannaeyja, og höf-
uðstöðvar Glitnis.
➤ Félagið er í meirihlutaeigu tíusveitarfélaga.
EIGNARHALDSFÉLAGIÐ
24stundir/ÞÖK
Eign Fasteignar Höf-
uðstöðvar Glitnis eru
meðal eigna Fasteignar.
Skriðuklaustur í Fljótsdal,
sem Gunnar Gunnarsson
skáld lét reisa árið 1939,
og Dyngjuvegur 8, heimili
Gunnars og fjölskyldu
hans, eru meðal þeirra sjö
húsa sem Þorgerður Katr-
ín Gunnarsdóttir mennta-
málaráðherra hefur
ákveðið að friða, að feng-
inni tillögu húsafrið-
unarnefndar.
Öll eru húsin reist á sein-
ustu öld og er það yngsta
frá árinu 1966 en það er
Menntaskólinn við Hamrahlíð. Elsta húsið er Franski spítalinn, sem
reistur var 1902 og var eitt þriggja sjúkrahúsa franska spítalafélagsins
á Íslandi. Þá er Sjómannaskólinn gamli, sem byggður var á árunum
1942-1945, meðal húsanna en það sem gerir hann óvenjulegan er að
innsiglingarviti Reykjavíkurhafnar er felldur inn í form hússins sem
turn. Þá er það Sólheimar 5, reist á árunum 1957-1959 af Gunnari
Hanssyni húsateiknara sem bjó sjálfur í húsinu með fjölskyldunni en
húsið þykir gott dæmi fyrir byggingarlist hans. Að lokum er Tóm-
asarhagi 31 nú orðinn friðaður, en húsið var reist á árunum 1953-1954
og talið eitt merkasta verk Gísla Halldórssonar arkitekts. þkþ
Sjö 20. aldar hús friðuð
Borgarráð samþykkti í gær kaup á
Lækjargötu 2 af fasteignafélaginu
Eik. Kaupverðið er 321 milljón
króna.
Fulltrúar meirihlutans í borgarráði
létu bóka á fundinum að kaupin
væru nauðsynleg til að hægt væri
að vinna að uppbyggingu á reitnum
þar sem húsið stóð, en það brann
til kaldra kola fyrir rúmu ári.
Fulltrúar minnihlutans í borgarráði gagnrýndu hins vegar kaupin og
sögðu húsið of dýru verði keypt. Jafnframt sögðu fulltrúar minnihlut-
ans kaupin undirstrika það hversu hátt verð borgin greiddi fyrir Aust-
urstræti 22 fyrir örfáum mánuðum og einnig fyrir Laugaveg fjögur og
sex. Í janúar samþykkti borgin að kaupa húsin við Laugaveg á 580
milljónir en á síðasta ári keypti borgin Austurstræti 22 á 263 milljónir.
Samtals hefur borgin því keypt hús í miðborginni fyrir 1.164 milljónir.
Tekið er fram í bókun fulltrúa meirihlutans að nú sé í auglýsingu deili-
skipulag fyrir miðborgina sem gerir ráð fyrir mikilli andlitslyftingu
bæjarhlutans. mh
Kaup á Lækjargötu 2 staðfest
Neytendasamtökin eru frjáls félagasamtök: stofnuð árið 1953. Þau
verja hag félagsmanna og berjast fyrir hagsmunum neytenda.
Sjá www.ns.is - netfang:ns@ns.is
Neytendasamtökin gerðu könnun á hvað það kostaði
að hreinsa karlmannsjakkaföt. Verðmunur er nokkur
eða 25% sem er 500 króna munur á lægsta og hæsta
verði, þar sem Fatahreinsunin Grímsbæ kom ódýrast
út. Vert er að taka það fram að könnunin er ekki tæm-
andi.
Ekki er heimilt að vitna í þessa könnun í auglýsingum.
25% munur á fatahreinsun
Ingibjörg
Magnúsdóttir
NEYTENDAVAKTIN
Hreinsun karlmannsjakkafata
Efnalaug Verð Verðmunur
Fatahreinsunin Grímsbæ 2.000
Svanhvít efnalaug 2.180 9,0 %
Fönn 2.196 9,8 %
Hreinn Hólagarði 2.200 10,0 %
Efnalaugin Björg 2.500 25,0 %
Efnalaugin Hreint Út 2.500 25,0 %
Efnalaug Suðurlands 2.500 25,0 %
Fyrsta skemmtiferðaskip sumars-
ins lagðist að Miðbakka í Reykja-
víkurhöfn í gær.
Skipið heitir MS
Fram og er
norskt. Það er
nýjasta skipið
sem er sérútbúið
fyrir siglingar á
norðurslóðum og
í hafinu við suð-
urskautið.
Skipsskrokkurinn er stærri en á
venjulegum skemmtiferðaskipum
og því er hægt að fara nær ísnum.
Það kostar rúmlega 300 þúsund
krónur að fara í vikusiglingu á
venjulegu farrými. Mest tekur
skipið 318 farþega og núna eru
230 farþegar um borð sem halda
til Grænlands.
Skemmtiferðaskipin komin
Búist við 79
skipum í sumar