24 stundir - 23.05.2008, Síða 6
6 FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 2008 24stundir
GARÐARSHÓLMI
EFTIR HUGLEIK
DAGSSON KEMUR
ÚT EFTIR FIMM
DAGA
FIMM DAGAR
ERU 432 ÞÚSUND
SEKÚNDUR,
BELJAN ÞÍN
Sameiginlegur ferðakostnaður
borgarfulltrúa Reykjavíkur og vara-
manna þeirra var 26,8 milljónir
króna á árunum 2005 til 2008. Þetta
kom fram í svari fjármálastjóra
borgarinnar við fyrirspurn Ólafs F.
Magnússonar borgarstjóra sem var
lagt fyrir borgarráð í gær. Dagur B.
Eggertsson, borgarfulltrúi Samfylk-
ingarinnar, er með hæsta kostnað-
inn, um 3,3 milljónir.
Dagur segir Ólaf hafa verið í leit
að skandal sem hann fann ekki.
„Ólafur neyddist til að lýsa því yfir á
fundinum að þarna væri ekkert
óeðlilegt að finna. Ég hugsa að
margir í bönkum, hjá ríkinu og á Al-
þingi reki upp stór augu þegar þeir
sjá hvað borgarstjórn tekst að sinna
ríkum skyldum með lágum ferða-
kostnaði.“ Dagur segir skýra ástæðu
fyrir því að hann er með hæsta
ferðakostnaðinn. „Ég hef verið í því
sérstaka hlutverki að leiða alþjóðlegt
forvarnarverkefni gegn fíkniefnum.
Það sem greinir mig frá öðrum
borgarfulltrúum er fyrst og fremst
það að þegar borgir hafa gengið til
liðs við verkefnið þá hefur það oft
komið í minn hlut að hitta viðkom-
andi borgarstjóra og ganga frá form-
legum samningum.“
Næsthæstur var Gísli Marteinn
Baldursson með 2,4 milljónir. Borg-
arstjóri var eini borgarfulltrúinn sem
var ekki með neinn ferðakostnað.
Hann vildi ekki tjá sig um málið í
gær en vísaði í bókun sína á borg-
arráðsfundi. Þar segist hann vilja að
„launamál og ferðakostnaður hjá
borginni og fyrirtækjum hennar sé
uppi á borðinu og gegnsær“.
thordur@24stundir.is
Ferðakostnaður borgarfulltrúa og varamanna þeirra á árunum 2005 til 2008 var samtals tæpar 27 milljónir króna
Borgarstjóri í leit að skandal sem hann fann ekki
➤ Dagur B. Eggertsson er meðhæstan ferðakostnað á tíma-
bilinu, um 3,3 milljónir króna.
➤ Níu manns eru með ferða-kostnað yfir einni milljón,
fimm sjálfstæðismenn og
fjórir fulltrúar minnihlutans.
FERÐAKOSTNAÐUR
Víðförull Dagur var með
hæsta ferðakostnaðinn á
því tímabili sem borg-
arstjórinn lét fjár-
málastjóra skoða.
„Það er ekki verið að reyna að
blekkja neinn,“ segir Kjartan Már
Friðsteinsson, framkvæmdastjóri
Banana ehf., en Árni Johnsen sagði
á Alþingi í vikunni að brögð væru
að því að grænmeti væri flutt inn
til landsins, skolað upp úr íslensku
vatni og selt sem íslenskt.
Kjartan segir þetta fjarri lagi.
Bananar flytji inn salat sem ekki er
ræktað hérlendis, selji það salat-
vinnslum sem skola það, skera nið-
ur og pakka í neytendapakkningar.
„Þetta er náttúrlega íslensk
framleiðsla en það kemur hvergi
fram að þetta sé íslensk uppskera
eða afurð,“ segir hann en bætir við
að ekki sé verið að reyna að blekkja
neinn, krafa hafi komið frá neyt-
endum um merkingar á íslensku.
„Það getur verið að það rugli ein-
hverja,“ segir hann. „Coca cola er
íslensk framleiðsla þó að ekkert sé
íslenskt í því nema vatnið.“
Í tilkynningu frá Sambandi garð-
yrkjubænda segir að íslenskt græn-
meti sé auðþekkjanlegt á rönd í
fánalitunum, auk þess að vera merkt
framleiðanda. freyr@24stundir.is
Innflutt salat skolað, skorið og pakkað hérlendis
„Ekki reynt að blekkja neinn“
Íslensk framleiðsla
Kristján segir fráleitt að
innflytjendur reyni að
blekkja neytendur.
Framkvæmdir standa nú yfir í
botni Hrútafjarðar. Er verið
að leggja nýjan veg sem færir
hringveginn nær Borðeyri og
styttir leiðina milli Stranda og
Norðurlands um 8,5 km.
Einnig er unnið að smíð brúar
sem leysir af hólmi brýrnar yf-
ir Hrútafjarðará og Síká. Þá er
unnið að því að reisa sölu-
skála N1 við ný vegamót í
fjarðarbotninum, sem kemur í
staðinn fyrir Staðarskála og
Brú. þkþ
Nýr vegur í Hrútafirði
Styttir leiðina
um 8,5 km
Hæstiréttur dæmdi í gær 19
ára karlmann í 3 mánaða skil-
orðsbundið fangelsi fyrir lík-
amsárás á fyrrum unnustu
hans. Maðurinn veittist að
konunni í bíl sínum fyrir
tveimur árum, reif í hár henn-
ar og sló hana og kýldi. Hæsti-
réttur tók mið af því hversu
ungur maðurinn var þegar
hann braut af sér. Hins vegar
yrði að líta til þess að líkams-
árásin stóð yfir í langan tíma
og hafði talsverðar afleiðingar
í för með sér fyrir stúlkuna.
Hæstiréttur
Skilorð fyrir
líkamsárás
Eftir Frey Rögnvaldsson
freyr@24stundir.is
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi
í gær Þórarin Gíslason í sextán
ára fangelsi fyrir manndráp.
Þórarinn réðst að Borgþóri
Gústafssyni 7. október í fyrra í
íbúð við Hringbraut, barði hann
ítrekað í höfuðið með slökkvitæki
sem leiddi til dauða Borgþórs.
Íbúðin mettuð ljósum reyk
Lögreglan var kölluð til í íbúð
á Hringbraut 121 í Reykjavík um
hálftvö og tók Þórarinn þar á
móti lögreglumönnum. Þórarinn
tjáði lögreglumönnum að hann
hefði komið að Borgþóri liggjandi
í blóði sínu í rúmi í íbúð sinni.
Þegar lögreglumenn komu inn í
íbúðina var loftið mettað af ljós-
um reyk og lá Borgþór þar í rúmi
með kodda yfir höfði sér. Þegar
koddanum var lyft komu í ljós
miklir höfuðáverkar. Var Borgþór
fluttur í skyndingu á sjúkrahús og
þrátt fyrir að allt hafi verið gert til
að bjarga lífi hans lést Borgþór
seint um kvöldið.
Ósætti náðist á eftirlitsmyndir
Þórarinn neitaði að hafa orðið
Borgþóri að bana. Hefðu þeir set-
ið að drykkju kvöldið áður og um
morguninn í mesta bróðerni. Alls
ekkert ósætti hefði verið milli
þeirra. Myndir úr eftirlitsmynda-
vélum í verslun Nóatúns þar sem
Borgþór og Þórarinn komu laust
fyrir hádegi og einnig myndir úr
eftirlitsmyndavél í húsinu á
Hringbraut 121 bentu hins vegar
eindregið til að eitthvert ósætti
hefði verið milli þeirra.
Þórarinn bar fyrir dómi að
hinn látni hefði sofnað um tólf-
leytið og hann þá haldið í íbúð
sína. Eftir tæpa klukkustund kom
Þórarinn aftur í íbúð Borgþórs og
hafi hann þá komið að Þórarni í
blóði sínu. Hann hafi þá kallað
lögreglu til.
Barinn ítrekað í höfuðið
Í íbúð Borgþórs fannst slökkvi-
tæki sem sannað þótti að notað
hefði verið til að greiða honum
að minnsta kosti þrjú högg í höf-
uðið. Hvert og eitt þeirra hefði
getað ráðið honum bana að mati
réttarmeinafræðings. Við rann-
sókn fundust á höndum Þórarins
leifar af slökkvidufti og áverkar
sem tengdu hann við málið. Þór-
arinn nefndi hins vegar annan
íbúa hússins sem mögulegan
gjörningsmann en ekkert benti
hins vegar til að neitt tengdi við-
komandi við málið.
Við tæknirannsókn komu í ljós
blóðslettur á fatnaði Þórarins.
Jafnframt var Þórarinn í annar-
legu ástandi og verulega ölvaður
og þótti framburður hans alls
ekki trúlegur. Að mati héraðs-
dóms var Þórarinn sá eini sem til
greina kom sem banamaður
Borgþórs og var hann því dæmd-
ur.
Lést eftir barsmíðar
með slökkvitæki
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi Þórarin Gíslason í 16 ára fangelsi fyrir manndráp
Barði hinn látna ítrekað í höfuðið með slökkvitæki Hvert högg gat leitt til dauða
➤ Þórarinn hefur setið í gæslu-varðhaldi óslitið frá 8. októ-
ber síðastliðnum.
➤ Hann var dæmdur í sextánára fangelsi og jafnframt gert
að greiða ættingjum hins
látna rúma hálfa milljón
króna.
DÓMURINN
Vettvangur Rannsókn-
ardeild lögreglunnar að
störfum á vettvangi 7.
október 2007.
24stundir/Júlíus