24 stundir - 23.05.2008, Síða 20
20 FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 2008 24stundir
Eftir Kristjönu Guðbrandsdóttur
dista@24stundir.is
„Við ætlum að vera með forsýn-
ingu í Hallargarðinum hinn 5.
júní, klukkan tvö. Síðan frum-
sýnum við að góðri venju á Árbæj-
arsafninu daginn eftir,“ segir Helga
frá og segir lítillega frá sýningum í
sumar. „Sýninguna köllum við Hó-
kus Pókus og þá er einmitt hann
Dúskur með galdra og þykist voða-
lega klár en það gengur svona upp
og niður hjá greyinu.“
Laddi og Pálmi í vorverkin sín
Ýmsir brúðustjórnendur hafa
starfað með henni Helgu í gegnum
árin. Lengst af Sigríður Hann-
esdóttir leikkona, Sigrún Erla Sig-
urðardóttir dagskrárgerðarkona,
Vigdís Másdóttir leiklistarnemi
o.fl. „Nú er ég með Sigríði Eiri
Zophoníasdóttur með mér,“ segir
Helga. „Hún er afskaplega flink og
skemmtileg. Búin að nema lát-
bragðslistir í skóla í Danmörku.
Svo verða auðvitað Laddi og Pálmi
Gestsson með mér eins og alltaf.
Það geta engir aðrir leikið Dúsk og
Bláref og úlfinn. Þeir segjast ganga
í þetta eins og vorverkin og hafa
gaman af. Þetta eru fastir liðir í líf-
inu.“
Helga Steffensen leikur Lilla sjálf
og segir hann auðvitað vera ómiss-
andi. „Lilli er alltaf með, krakk-
arnir spyrja alltaf eftir honum.
Hann er orðinn 25 ára apaskottið
en auðvitað er hann alltaf bara
fimm ára. Já, það vildu sennilega
fleiri halda sér eins vel og Lilli!“
Sýningar Brúðubílsins hafa stað-
ið síðan 1980 og því starfar leik-
húsið nú sitt 28. ár. Helga segir for-
eldrana sem fylgja börnum sínum
á sýningar þekkja Brúðubílinn.
„Nú er ég komin með aðra kyn-
slóð. Foreldrar barnanna sem
koma á leiksýningar eru að endur-
upplifa bernskuminningar sínar og
hafa gaman af. Þeim finnst góð til-
finning að kynna börn sín fyrir
einhverju sem þau upplifðu sjálf
sem lítil börn. Ég ætla að halda
áfram eins lengi og ég mögulega
get og ná þriðju kynslóðinni.“
Verður að vera spenna líka!
Undirbúningurinn fyrir sum-
arið hefst upp úr áramótum, að
sögn Helgu.
„Þá byrja ég að skrifa leikrit og
búa til leikarana. Ég sé alfarið um
brúðugerðina og bý til brúður úr
öllu mögulegu, á því eru engin tak-
mörk,“ segir Helga og hlær að.
„Ég vil að börnum líði vel og
skemmti sér með Brúðubílnum. Ég
blanda saman skemmtun, fræðslu
og spennu. Það verður að vera
smáspenna,“ leggur Helga áherslu
á og á auðvitað við ýmsa grallara
sem koma við sögu í Brúðuleik-
húsinu.
Framfarir í leikhúsinu
„Mér finnst miklar framfarir í
leikhúsinu á framboði á afþreyingu
fyrir börn. Mikið af þróttmiklum
sýningum fyrir börn og gróska í
öllu. Það má tempra aðeins sjón-
varpsglápið og sérstaklega hjá þess-
um pínulitlu. Börnin læra að fara í
leikhús í brúðubílnum. Þau raða
sér upp, eru svo prúð og finnst svo
gaman og það finnst okkur líka
sem stöndum að þessu,“ bætir
Helga við að lokum og er með
þeim orðum rokin á æfingu á
sumarsýningunni.
24stundir/Ásdís
Helga Steffensen hefur séð um Brúðubílinn í 28 ár
Sumarið kemur
með Brúðubílnum
Óbrigðult merki þess að
sumarið sé gengið í garð
er þegar brúðubíllinn
hefur starfsemi sína.
Helga Steffensen hefur
séð um Brúðubílinn frá
1980. Brúðubíllinn sýnir á
gæsluvöllum og öðrum
útivistarsvæðum í
Reykjavík í júní og júlí á
sumri hverju og ferðast
um landsbyggðina í
ágúst og september.
28 ár af fjöri Helga og Lilli api
eru óborganlegt teymi sem for-
eldrar og börn hafa gaman af.
KYNNING
„Konurnar sem koma til okkar eru
ánægðar með þjónustuna,“ segir
Stella Leifsdóttir hjá versluninni
Belladonna í Skeifunni. „Við bjóð-
um upp á afar fjölbreytt úrval af
fatnaði í stærðum 48-60. Við leggj-
um ríka áherslu á persónulega
þjónustu og ráðgjöf og við-
skiptavinir okkar eru ánægðir með
að við erum með mikið úrval en
pöntum lítið magn í hverri gerð.
Belladonna er ítalska og þýðir fal-
leg kona. Og því trúum við. Allar
konur eru fallegar að einhverju
leyti og við vinnum með það í
huga að ekki erum við allar steypt-
ar í sama mót,“ segir Stella.
Allt fyrir sumarið
Stella segir sumarið komið í
Belladonna. „Við erum með allt
sem þarf til sumarsins; pils og
blússur, sundföt og kjóla. Ég er
hrifnust af léttum efnum eins og
höri á sumrin,“ bætir Stella við.
Hörið er gætt þeim eiginleika að
manni hitnar ekki um of eða svitn-
ar í klæðnaðinum í miklum hita,
þá er líka þægilegt hvernig liggur í
efninu og maður þarf ekki að hafa
of miklar áhyggjur af krumpum og
þvíumlíku enda á efnið að vera
svolítið krumpað. Annars er fjöl-
breytnin í fyrirrúmi hér og því er
bara um að gera að líta til okkar og
sjá hvað er í boði fyrir sumarið.“
Við erum til húsa í Skeifunni 11
í Reykjavík, í sömu lengju og Griff-
ill og Örninn og í næsta húsi við
Kentucky Fried Chicken-veitinga-
staðinn. Staðsetningin er góð, það
er þægilegt að heimsækja okkur.“
Sumarið komið í Belladonna
Fallegar konur í sumar
ÁRMÚLA 11 | Sími 568-1500 | Lónsbakka | Sími 461-1070 | www.thor.is
Rafstöðvar
Bensín- og díselrafstöðvar
í stærðum 2,5 kW -4,2 kW.
HAGSTÆTT VERÐ
Smiðjuvegi 36, 200 Kóp.i j i , .
LÍFRÆNIR SAFAR
Fæst í heilsubúðum og helstu
matvöruverslunum landsins
Sumarnámskeið
fyrir börn 6-12 ára
Skemmtileg teikni- og
keramikmálunar námskeið
Vikunámskeið
frá kl. 9-12 eða kl. 13-16.
Skráning: 552 2882 / 822 6433
keramik@keramik.is
Sjá nánar: www.keramik.is
www.xena.is
SÉRVERSLUN
GLÆSIBÆ S: 553 7060