24 stundir


24 stundir - 23.05.2008, Qupperneq 22

24 stundir - 23.05.2008, Qupperneq 22
22 FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 2008 24stundir Eftir Maríu Ólafsdóttur maria@24stundir.is Carrie, Samantha, Miranda og Charlotte snúa brátt aftur í kvikmynd sem er framhald á Sex and the City þáttunum og aðdáendur vafalaust orðnir spenntir. Hér gefur að líta föt og fylgihluti fyrir sumarið í dæmigerðum Carrie stíl. Sannkölluð tískudrottning Hún Carrie Bradshaw. Vertu með Sex and the City dressið á hreinu í sumar Smart eins og Carrie Beyglur að hætti New York skvísa Múffur með glassúr Enginn nema Cosmopolitan Opnunartími - Mán–fös 11-18 - Lau 11-14 Hamraborg 7 Kópavogi Sími 544 4088 www.ynja.is Útsölustaðir: Snyrtivöruverslunin Nana Hólagarði, Heimahornið Stykkishólmi, Esar Húsavík, Efnalaugin Vopnafirði, Pex Reyðarfirði, Smart Vestmannaeyjum Verð kr. 4.990.- Glæsilegur sport haldari sem veitir góðan stuðning                                      Skvísurnar í Sex and the City hitt- ast ósjaldan í dögurði eða hádeg- isverði. Á þeim tíma dags gerist það varla miklu New York-legra en að fá sér góða beyglu með girni- legu áleggi. Ýmiss konar álegg má nota og um að gera að leyfa hug- myndafluginu að njóta sín. Góður brie-ostur og jarðarberja- eða hindberjasulta eru klassísk sam- setning en parmaskinka, rúkóla og brie passa líka mjög vel saman. Carrie og vinkonur áttu það til að koma við í Magnolia-bakaríinu í New York til að fá sér eina góða múffu með glassúr ofan á. Múffur er ekki erfitt að baka sjálfur og of- an á þær má setja allt frá Smarties til sykurskrauts. Til að búa til mjög fljótlegt glassúr setur maður saman flórsykur og vatn og hrærir saman þannig að úr verði miðlungsþykk hræra, síðan má setja kókosmjöl út í til að lífga upp á glassúrið. Einkennisdrykkur Sex and the City er enginn annar en Cosmopolitan. Blandaður með vodka, Cointreau, trönuberjasafa og lime þannig að hann sé frekar sterkur en ekki um of og borinn fram í fallegu glasi. Gerist ekki betra til að lifa sig inn í stemninguna áður en farið er í bíó eða til að byrja kvöldið í fallegu sumarveðri með góðum fordrykk. Berið fram á látlausan hátt með lime á kantinum ef vill.

x

24 stundir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.