24 stundir - 23.05.2008, Page 27
24stundir FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 2008 27
Eftir Kristjönu Guðbrandsdóttur
dista@24stundir.is
„Ég var að klára stúdentsprófin frá
MH,“ segir Úlfur Hansson fremur
glaður í bragði. „Í sumar ætla ég að
sleikja sólina og hafa það gott. Ég
verð að vinna í Þingholtsbúðinni
yfir sumarið og í haust fer ég svo í
nám í tónsmíðum við Listaháskóla
Íslands.“ Úlfur hefur nýverið gefið
út diskinn Klive – Sweaty Psalms
og segist væntanlega eitthvað ætla
að fylgja honum eftir. „Mig langar
til Berlínar í sumar ef ég á nóga
aura til þess, fara þar á markaði og
fá mér súkkulaðiespressó,“ segir
hann og hlær. Aðspurður hvað
hann geri ef aurana vantar segist
hann vel geta sætt sig við rólegt
sumar í Reykjavík. „Það kostar lít-
ið að fara á Austurvöll í hakkísakk,
svo er hægt að fara ókeypis í bíó ef
þú laumast bakdyramegin!“
Ekki mikið fyrir útilegur
„Ég fer annaðhvort að vinna
með þroskaheftum eða í skóla-
garðana,“ segir Una Björg Bjarna-
dóttir, nemi á þriðja ári í Mennta-
skólanum í Reykjavík. „Í ágúst fer
ég í útskriftarferð til Rhodos, en
annars ætla ég að fara í útilegur
með vinum mínum. Ég er reyndar
ekki mikil útilegumanneskja, en
get alveg orðið það,“ bætir hún
við.
„Það er síðan alltaf hægt að líta
á Austurvöll, hann er vinsæll og
þar hittast allir og hafa það gott.
Svo finnst mér ágætt að fara í sund
og rölta á kaffihús.“
Langþráð sumar
Þorleifur Örn Gunnarsson hef-
ur nýlokið prófum í sálfræði við
Háskóla Íslands. Veturinn hefur að
hans sögn verið annasamur en
Þorleifur Örn situr einnig í stúd-
entaráði fyrir hönd Röskvu. „Sum-
arið er langþráð,“ segir Þorleifur.
„Það er gott þegar hlýnar. Í sumar
verð ég að vinna á leikjanám-
skeiðum á Seltjarnarnesi, svo ætla
ég að fara til Kaupmannahafnar.
Ég mun líklega ferðast eitthvað
innanlands líka en það er ekkert
ákveðið í þeim efnum.“
Aðspurður hvað sé hægt að hafa
fyrir stafni annars segir Þorleifur
að sér detti helst í hug að það sé
hægt að líta á Austurvöll. „Þá má
taka frisbídiskinn með,“ bætir
hann við.
Úrræðagóður Úlfur í
Klive segist laumast í bíó
vanti hann aura.
Hvað á að gera í sumar?
Allir fara á
Austurvöll
„Mér finnst ágætt að fara
í sund og rölta á kaffi-
hús,“ segir Una Björg
Bjarnadóttir, einn við-
mælenda um hvernig
hún geti hugsað sér að
eyða íslensku sumri.
Langþráð
sumar
Prófin búin í
Háskól-
anum. Þor-
leifur ætlar
til Kaup-
manna-
hafnar í
sumar.
Austurvöllur er vinsæll
Una Björg ætlar til Rho-
dos í sumar.
Hakkísakk við Aust-
urvöll Torgið lifnar við á
sumrin og þar safnast
ungt fólk saman.
Nýju sumarlitirnir frá Clinique
Nýtt sólarpúður: Frábær litasamsetning, má nota sem augnskugga líka.
Nýtt gloss: Gefur góða fyllingu, þykkir varir og gefur góðan gljáa, Long last með SPF 15 vörn
Nýtt body lotion: Með sjálfsbrúnku, formar og gefur góðan raka og lit.
Kynning í Lyfju Laugavegi, kaupauki fylgir 2 keyptum vörum.
Föstudaginn 23.maí 11.00 til 16.00
ÞÓR HF | REYKJAVÍK: Ármúla 11 | Sími 568-1500 | AKUREYRI: Lónsbakka | Sími 461-1070 | www.thor. is
Nú er rétti tíminn til að kaupa garðsláttuvélar
4 ha Briggs & Stratton mótor
51,5 cm sláttubreidd,
5 hæðarstillingar,
5 ha Briggs & Stratton mótor
51,5 cm sláttubreidd,
5 hæðarstillingar,
Grassasfnari.
6 ha Briggs & Stratton mótor
51,5 cm sláttubreidd,
5 hæðarstillingar,
Grassasfnari, drif.