24 stundir - 23.05.2008, Page 29
24stundir FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 2008 29
KYNNING
Keramiknámskeið fyrir krakka á
aldrinum 6 til 12 ára verða haldin í
sumar í Keramik fyrir alla. Hvert
námskeið er vikulangt og mun það
fyrsta hefjast 2. júní og síðan koll af
kolli fram í miðjan ágúst, en fyrstu
vikuna í ágúst verður þó lokað.
Krökkunum verður skipt í tvo
hópa og verða ekki fleiri en tíu í
hóp en leiðbeinendur eru eigendur
Keramik fyrir alla, þau Sigurbjörg
Marteinsdóttir, hjúkrunarfræð-
ingur og nemandi í keramikhönn-
un, og Hallgrímur Georgsson.
„Þetta er áttunda námskeiðið sem
við höldum og þeir krakkar sem
hafa komið hefur þótt skemmtilegt
og koma gjarnan aftur. Það er
ákveðið þema á hverju námskeiði,
á fyrsta námskeiðinu eru tekin fyr-
ir sléttudýr í Afríku, síðan íslensku
húsdýrin og loks fuglar og blóm en
efnisvalið fer allt eftir aldri
barnanna og getu. Við kennum
krökkunum undirstöðuatriði í
teikningu og málun og myndirnar
þeirra eru síðan yfirfærðar á auð-
veldan hátt á tilbúna keramikhluti
þannig að við notum í raun ker-
amikið eins og striga,“ segir Sig-
urbjörg.
Aðstoð innan handar
Keramik fyrir alla er rekið á
Laugavegi 48b og verður opið sex
daga vikunnar í sumar en þá er
hægt að líta inn til að mála. Litir og
penslar eru á staðnum og er
brennsla innifalin í verði, en hún
tekur yfirleitt um tvo til fjóra sólar-
hringa eftir að hlut er skilað inn.
Hægt er að gefa hugmyndafluginu
lausan tauminn og mála það sem
hvern langar til en hjálp er innan
handar ef fólk þarf á að halda. All-
ar frekari upplýsingar má finna á
vefsíðunni keramik.is.
maria@24stundir.is
Keramiknámskeið fyrir krakka í sumar
Keramikið notað eins og strigi
24stundir/Frikki
Krakkarnir Læra undirstöðuatriði í teikningu og mála á
keramikið og nota það þannig eins og striga.
KYNNING
Í sumar mun Handknattleiksfélag
Kópavogs (HK) standa fyrir heilsu-
og ævintýranámskeiði í samstarfi við
Heilsuborg og H10. Um er að ræða
vikulangt heilsdagsnámskeið frá 9-
15 fyrir sex til tíu ára börn, en einnig
verður í boði gæsla í klukkutíma fyr-
ir og eftir námskeiðið. Námskeiðin
hefjast níunda júní og munu standa
þar til um miðjan ágúst en skráning
er nú þegar hafin á www.hk.is.
Læra að leika sér
Þetta er í fyrsta sinn sem nám-
skeiðið er haldið en hugmyndin er
sú að kenna börnunum að leika sér
upp á nýtt og sýna fram á að ekki
þurfi alltaf að leika sér eftir fyrirfram
ákveðnum reglum. Auk þess verða
kenndir lífshættir í mataræði og
hreyfingu sem á að vera þannig að
hún sé skemmtileg og gaman sé að
fara út. Hollt mataræði verður
börnunum hins vegar kennt ómeð-
vitað til að mynda með ratleikjum
þar sem setja á saman hollt mat-
aræði.
Gömlum leikjum viðhaldið
„Við ætlum að vera með öðruvísi
leiki á námskeiðinu t.d. víkingaleiki
sem er ákveðin tegund gamalla
leikja og ein þeirra sem okkur langar
til að endurvekja. Nýlega vorum við
á námskeiði í Gerlev í Danmörku
þar sem er leikjasafn og garður sem
byggir á því að viðhalda og endur-
lífga gamla leiki sem týnst hafa í
sögu þjóða víða um heim,“ segir
Fannar Karvel, annar leiðbeinandi
námskeiðsins. Inniaðstaða verður í
knattspyrnuhúsinu Kórnum þar
sem skýla má sér fyrir regni en ann-
ars segir Fannar að farið verði út í
flestu veðri og börnunum þannig
sýnt að það sé líka gaman að fara út
í rigningu og roki þegar hægt er að
drullumalla og hoppa í pollum.
maria@24stundir.is
Heilsu- og ævintýranámskeið HK í sumar
Útivera og hollt mataræði
Hressir krakkar Hafa gott og gaman af því að leika sér úti í öllum veðrum þótt sum-
arblíðan sé best.
24stundir/Ásdís
Á Miklatúni er búið að vinna mik-
ið í útivistarsvæðum og þegar
hlýna tekur í veðri er fólk á öllum
aldri þar við ýmsa iðju. Vel hefur
verið gengið frá körfuboltavöllum
og á túninu má finna hinn fínasta
blakvöll, leikvöll fyrir börn og fót-
boltavöll auk þess sem sjá má kylf-
inga æfa púttið á flötinni.
Nú er Miklatúnið komið í sum-
arbúninginn og sumarblómin far-
in að prýða beðin.
Blak með góðu
fólki á Miklatúni
Í Hvalfirði er mikil náttúrufegurð
og að keyra sem leið liggur upp í
Kjós getur orðið að skemmtilegri
fjölskylduferð. Þrátt fyrir að um-
ferð liggi ekki lengur um Hvalfjörð
heldur að mestu í gegnum jarð-
göngin er ferðaiðnaður í mikilli
uppsveiflu. Fylgist með upp ákom-
um í sumar á www.vesturland.is/
Skessuhorn en í fyrra var ýmislegt
skemmtilegt í boði svo sem
bændamarkaður og bryggjuball.
Fagra Vestur-
land heimsótt
Fátt er meira svalandi en fersk og
góð Sangria á hlýjum sum-
arkvöldum. Uppskriftirnar að
þessum svaladrykk eru mismun-
andi en einfalt er að skera niður
límónu, appelsínu, jarðaber og epli
setja í skál og hella yfir meðalgóðu
rauðvíni . Láta ávextina marinerast
yfir daginn og bæta síðan vodka,
Cointreau og sykri eftir smekk áð-
ur en borið er fram með Sprite og
klaka í bolluskál.
Fersk og góð
Sangria
Fyrir borgarbörn og pjattrófur
geta útilegur verið mjög spenn-
andi en um leið afar stressandi.
Hvernig á maður að klæða sig ef
það rignir? Verða klósettin í lagi
og verður hægt að flýja á hótel?
Hönnun Orlu Kiely ætti að geta
slegið nokkuð á slíkar áhyggjur
en hún hefur hannað fallega línu
af svefnpoka, tjaldi og vasaljósi í
stíl auk fleiri aukahluta sem
nauðsynlegir eru í smart útilegu.
Áhyggjulausar
pjattrófur
Geymsluskápar fyrir gashylki.
Hannaðir í samráði við og samþykktur af Brunamálastofnun.
Einangraðir útiskápar fyrir hita-
veituinntök og varmaskipta.
1,5 mm stál,
galvaniseraðir og
sprautulakkaðir.
Þriggja punkta læsing.
Upphengigrind fáanleg.
Til í tveim stærðum.
A. h 94, b 79, d 32,5 sm
B. h 150, b 75, d 45 sm.
Einangruð
PEX-hitaveiturör
í sumarhús, bændabýli og íbúðarhús.
Hámarks einangrun – lágmarks
hitatap. Sérstök framleiðsluaðferð
tryggir einangrunargildið í áratugi.
Framleitt samkvæmt ISO 9001
gæðastaðli.
ÍSRÖR ehf | S. 565-1489 | Hringhella 12 | 221 Hafnarfjörður
Henta fyrir sumarhús, íbúðarhús og húsbíla.
1,5 mm galvaníserað og duftlakkað stál.
Utanmál í mm: h: 850, b: 750 og d: 350.
Veggfestingar fáanlegar
Skápurinn er gerður fyrir tvær 11 kg gosflöskur
og er með læsingu. Hann fæst í tveimur litum,
grár og grænn.
Sumarhúsa- og landeigendur