24 stundir - 23.05.2008, Side 32
32 FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 2008 24stundir
LÍFSSTÍLLHELGIN
helgin@24stundir.is a
Þau hafa sungið í kvöldguðsþjónustum í vetur
og það eru ekki færri en 200-300 manns sem
mæta. Það er ekki presturinn sem trekkir að.
Eftir Einar Jónsson
einarj@24stundir.is
Gospelkór Jóns Vídalíns heldur
vortónleika í Fjölbrautaskólanum
í Garðabæ sunnudaginn 25. maí
kl. 20. Einnig koma fram hljóm-
sveitirnar Exodus og 11. boðorðið.
Allur ágóði af tónleikunum renn-
ur til verkefnisins Blátt áfram og
til verkefnis Hjálparstarfs kirkj-
unnar sem gengur út á að leysa
börn á Indlandi úr þrælaánauð.
Söngurinn fyllir kirkjuna
Um 30 ungmenni eru í gospel-
kórnum sem er samstarfsverkefni
kirkjunnar og Fjölbrautaskólans í
Garðabæ. Kórinn hefur tekið virk-
an þátt í safnaðarstarfi kirkjunnar
undanfarin tvö ár. „Þau mæta á
æfingar í hverri viku og koma
fram í helgihaldi safnaðarins í
hverjum mánuði,“ segir Jóna
Hrönn Bolladóttir sóknarprestur.
„Þau hafa sungið í kvöldguðsþjón-
ustum í vetur og það eru ekki færri
en 200-300 manns sem mæta. Það
er ekki presturinn sem trekkir að,“
segir Jóna Hrönn og hlær.
Jónu Hrönn finnst mikið gleði-
efni að ungmenni á framhalds-
skólaaldri séu farin að fjölmenna í
kirkjuna. „Við höfum sett okkur
það markmið í stefnumótun safn-
aðarins að ná inn þessum aldurs-
hópi og búa þeim vettvang. Þetta
er hópur sem sést annars mjög lít-
ið í kirkju. Það verður bara að
horfa á það eins og það er,“ segir
Jóna Hrönn.
Gefa vinnu sína
Henni finnst einnig jákvætt að
unga fólkið hugsi út fyrir en sjálft
sig og styðji börn sem búa við erf-
iðar aðstæður. „Þau eru búin að
leggja á sig ofboðslega vinnu og fá
sjálf ekkert í vasann nema gleðina
og tónlistarþjálfunina. Þau eru
ekki á neinum launum heldur gefa
þau allt, fyrst og fremst gefa þau
tíma sinn og hæfileika og það er
eitt af því dýrmætasta sem þau
eiga,“ segir Jóna Hrönn Bolladótt-
ir að lokum.
Framhaldsskólanemar í Garðabæ heillast af gospelsöng
Flykkjast í kirkjuna
Ungmenni í Garðabæ
flykkjast í kirkju þegar
skólafélagar þeirra sjá
um tónlistina. Gospelkór
Jóns Vídalíns er sam-
starfsverkefni Fjölbrauta-
skólans og kirkjunnar.
Fyrir gott málefni Fé-
lagar í Gospelkór Jóns Ví-
dalíns láta gott af sér leiða
með söng.
➤ Stjórnandi Gospelkórs JónsVídalíns er Þóra Gísladóttir.
➤ Stjórnendur hljómsveitannaeru Andri Björnsson og Ár-
mann Gunnarsson.
➤ Miðaverð er 1.000 kr. fyrirfullorðna og 500 kr. fyrir 16
ára og yngri.
STYRKTARTÓNLEIKARNIR
Dagur barnsins verður haldinn
í fyrsta sinn hér á landi sunnu-
daginn 25. maí. Sveitarfélög, skól-
ar, félög og samtök halda upp á
daginn með ýmsum hætti en yf-
irskrift dagsins er gleði og sam-
vera.
Blásið verður til sérstakrar há-
tíðardagskrár í Ráðhúsi Reykjavík-
ur kl. 13:50 þar sem afhent verða
verðlaun í samkeppni um merki
og stef dagsins.
Í tilefni dagsins verður efnt til
barnamessu í Árbæjarkirkju kl. 11
og fjölskylduhátíðar. Fjölskyldu-
guðsþjónusta verður haldin í Ví-
dalínskirkju í Garðabæ kl. 11 og
slegið upp grillveislu að henni
lokinni.
Seltjarnarnesbær býður fjöl-
skyldufólki frían aðgang að sund-
laug bæjarins í tilefni dagsins og
eru forráðamenn hvattir til að
eiga góða samverustund með
börnunum. Dagskrá í fleiri sveit-
arfélögum má nálgast á vefsíðunni
www.dagurbarnsins.is.
Börnin fá sinn dag
Landsmenn safnast víða saman í
heimahúsum og fylgjast með
Söngvakeppni evrópskra sjón-
varpsstöðva (Eurovision) á laug-
ardag. Páll Óskar heldur upp-
teknum hætti og blæs til mikillar
Eurovision-veislu á skemmti-
staðnum Nasa við Austurvöll að
lokinni söngvakeppninni.
Að venju fær Páll Óskar nokkrar
íslenskar Eurovision-hetjur til
að stíga á svið og rifja upp gamla
takta. Gestir Páls Óskars að
þessu sinni eru Selma Björns-
dóttir, Eyjólfur Kristjánsson,
Haffi Haff, Birgitta Haukdal,
Helga Möller, Pálmi Gunnarsson
og Telma Ágústsdóttir. Húsið
verður opnað kl. 23 og stendur
partíið fram undir morgun. Að-
gangseyrir er 2.500 kr.
Logan í bænum
Þeir sem vilja taka forskot á
Eurovision-sæluna geta brugðið
sér á Broadway í Ármúla í kvöld
þar sem írska Eurovision-hetjan
Johny Logan treður upp ásamt
hljómsveit. Hann flytur sína
helstu smelli auk laga úr smiðju
annarra. Tónleikarnir hefjast kl.
22 og er miðaverð 3.490 kr.
Einnig er hægt að snæða kvöld-
verð fyrir tónleikana. Borð-
haldið hefst kl. 19.30 og er miða-
verð 7.490 kr.
Eurovision-gleði í bænum
FATAMARKAÐUR
LAUGAVEGI 95
50-80% AFSLÁTTUR
KOMDU OG GERÐU FRÁBÆR KAUP!
OPIÐ ALLA HELGINA
Saga til næsta bæjar er yfirskrift
keppni sagnamanna sem hefst í
Landnámssetrinu í Borgarnesi
sunnudaginn 25. maí. Keppt verð-
ur í fjórum riðlum og verður fyrsta
kvöldið helgað ýkjusögum. Síðar
verður keppt í draugasögum, lífs-
reynslusögum og gamansögum.
Sigurvegarar fyrri kvölda keppa
loks til úrslita sunnudaginn 22.
júní.
Kynnir og stjórnandi er sjón-
varpsmaðurinn góðkunni Gísli
Einarsson. Aðalsögumenn fyrsta
kvöldið eru Bjarni Harðarson, Ingi
Hans Jónsson, Arnar Jónsson og
Ásgrímur Ingi Arngrímsson. Að-
gangseyrir er 1.800 kr. en 4.500 kr.
með kvöldverði.
Sögustund í
Borgarnesi
Áhugamenn um Spán, spænska
menningu og ferðalög ættu að
leggja leið sína í Kringluna í dag
eða á morgun. Þar verða haldnir
„Spænskir dagar“ og því reynt að
skapa ósvikna spænska stemn-
ingu á Blómatorginu. Meðal ann-
ars verður boðið upp á flamenco-
danssýningu, gítarspil og kynn-
ingu á ferðamöguleikum á Spáni.
Þá verður efnt til teiknisam-
keppni fyrir yngstu kynslóðina og
teiknimyndasamkeppni.
Spænskir dagar
í Kringlunni