24 stundir - 23.05.2008, Side 36
36 FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 2008 24stundir
Þeir sem lagt hafa leið sína í bíó
og séð sumarsmellinn Iron Man,
hafa varla komist hjá því að sjá að
minnsta kosti einn Audi-bíl í
myndinni. Í það heila eru þeir
reyndar fjórir og er ljóst að Audi
hefur borgað mikla peninga fyrir
plássið í myndinni.
Of góðir fyrir Hollywood
En eins og framleiðendur Iron
Man komust að þá er erfitt að leik-
stýra bílum. Í einu atriði, þar sem
Q7-fjölskyldujeppinn á að skransa
eftir nauðhemlun, þurfti að notast
við tölvutæknibrellur, því sama
hvað verkfræðingar kvikmynda-
versins reyndu, slétt og léleg dekk
eða ísilagt malbik, þá fékkst bíllinn
einfaldlega ekki til að skransa, sem
ætti að vera ansi góð viðurkenning
á skriðvörn Audi. „Þetta var ótrú-
legt. Við reyndum allt til þess að fá
hann til að skransa, en ekkert gekk.
Á endanum þurftum við að fiffa
þetta til í tölvuvinnslunni, sem
kostar alltaf mikla vinnu og auðvit-
að mikla peninga,“ sagði leikstjóri
myndarinnar, Jon Favreau.
Í öðru atriði átti hinn glænýi og
rennilegi sportbíll R8 að velta
nokkra hringi eftir harðan árekst-
ur. Það gekk þó ekki eftir. „Við
höfðum tvo nýja R8-bíla til taks.
Venjan er að nota eftirlíkingar, en
þar sem bíllinn er það nýr þá voru
slíkar eftirlíkingar ófáanlegar. Því
fengum við það ljúfsára verkefni að
eyðileggja einn slíkan. Við keyrð-
um honum upp á ramp á töluverð-
um hraða til þess að fá hann til þess
að velta. Það gekk hins vegar ekki
eftir, því að þyngdarpunkturinn er
svo lágur í þessum bílum, enda vél-
in staðsett í þeim miðjum. Því
þurfti aðra tilraun til og annan glæ-
nýjan R8. Við reiknuðum dæmið
upp á nýtt og keyrðum helmingi
hraðar upp á rampinn. En bílfjand-
inn vildi bara ekki velta! Okkur leið
því ekkert sérstaklega vel yfir að
hafa eyðilagt tvo svona bíla og ekki
náð tökunni!“ sagði leikstjórinn
pirraður, en fullur lotningar yfir
smíðinni á bílnum, sem kostar um
átta til níu milljónir króna.
Þess má geta að leikstjórinn á
sjálfur glænýjan Audi R8.
Járnmaðurinn Tony Stark hefur góðan smekk
Audi-bílar áberandi í
Iron Man-bíómyndinni
Eftir Trausta Salvar Kristjánsson
traustis@24stundir.is
Hálfdán Sigurjónsson er bíla-
áhugamaður með meiru og á hann
í fórum sínum forláta Ford Must-
ang frá því herrans ári 1971. Er bíll-
inn 375 hestöfl, knúinn uppruna-
legu 429 cid Super Cobra Jet Ram
Air vélinni, en aðeins 610 eintök
voru framleidd af þessum bíl.
Fornbílar góð fjárfesting
„Ég keypti hann 1987 og lét mála
hann 1990. Hann hefur verið að
mestu inni í skúr hjá mér undan-
farin ár, en ég tók hann út núna um
daginn til að leika mér á. Þetta er
stórskemmtilegur bíll og gaman að
eiga svona fágætan fornbíl. Verð-
gildið á honum er frekar hátt, því
hann er allur upprunalegur. Ætli
minn sé ekki metinn á um 3-5
milljónir, enda án alls aukabúnað-
ar, en ég veit til þess að einn slíkur
seldist á eBay um daginn fyrir tæp-
ar 13 milljónir. Þetta getur því ver-
ið ágætis fjárfesting, því að þeir eru
alls ekki að detta niður í verði,“
segir Hálfdán, sem hefur átt fleiri
en einn Mustang. „Ég keypti minn
fyrsta árið 1980 en ég hef átt um
fimm til sex fornbíla í gegnum ár-
in. Ég átti líka Camaro og Plymoth,
en Mustang er alltaf í uppáhaldi,“
segir Hálfdán og viðurkennir að
hafa kitlað pinnann. „Já, en það var
í kvartmílukeppni, 168 km/h á 400
metra spotta!“
Hóst hóst! Hálfdán
brennir gúmmíið í
kvartmílunni.
Hálfdán Sigurjónsson á gersemi í bílskúrnum
Fágætur forláta
Ford Mustang ’71
Sumarið er tími fornbíl-
anna. Þar þykir Ford
Mustang fremstur meðal
jafningja, en Hálfdán Sig-
urjónsson á einmitt einn
slíkan í upprunalegu
ástandi, sem aðeins var
framleiddur í 610 eintök-
um.
Lausafjárkreppan kemur ekki aðeins við kaunin á Íslendingum. Bresk-
ir bifreiðaeigendur hafa einnig þurft að draga saman seglin. Áætlað er
að um þriðjungur notaðra bíla, sem seldir voru í Bretlandi á fyrstu
þremur mánuðum þessa árs, hafi verið seldur með áhvílandi lánum. Er
þetta nokkur hækkun frá sama tímabili í fyrra. Þá fjölgaði tilfellum
þar sem upp komst að átt hafði verið við kílómetramæla á bifreiðum
úr fimm af hverjum 100 í sjö. Einnig vekur athygli að færst hefur í vöxt
að fólk skipti um númeraplötur á bifreiðum sem það hyggst selja með
það fyrir augum að dylja fortíð þeirra. Þetta kemur fram í rann-
sóknum HPI, en það eru samtök sem sérhæfa sig í að aðstoða og upp-
lýsa almenning um hvers kyns atriði er tengjast bílamálum. „Nú þegar
lausafjárkreppan herjar á neytendur hvarvetna um Bretland reynum
við að þrýsta á bifreiðakaupendur að vera varir um sig þegar kemur að
því að kaupa notaða bíla,“ sagði Daniel Burgess, stjórnandi hjá HPI.
Þriðjungur bíla í Bretlandi seldur
með áhvílandi lánum
LÍFSSTÍLLBÍLAR
lifsstill@24stundir.is a
Þetta er stórskemmtilegur bíll og gaman að
eiga svona fágætan fornbíl. Verðgildið á hon-
um er frekar hátt, því hann er allur upprunalegur.