24 stundir - 23.05.2008, Side 42

24 stundir - 23.05.2008, Side 42
42 FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 2008 24stundir 24LÍFIÐ 24@24stundir.is a Þess á milli líður myndin fyrir slæman leik Fords, sem skilar línum sínum eins og hann sé undir áhrif- um sterkra verkalyfja, og kauðalegs handrits. eins og beint upp úr nýju Star Wars-myndunum. Það sem lyftir myndinni upp er Shia Labeouf og hin frábæra Cate Blanchett sem hefði mátt fá meira rými til að skína. Og guð minn góður, hefði ekki verið hægt að gera eitthvað frumlegra en að kynna geimverur inn í heim Indy? Niðurstaða. Hasaratriðin eru ekta Indy, restin er eins og slæm- ur þáttur af Young Indiana Jones Chronicles. Hefði kannski virkað ef Ford hefði sleppt því að opna muninn til að tala. Kvikmyndir biggi@24stundir.is Einhvern tímann um miðjan síðasta áratug gerðist hið ómögu- lega. Harrison Ford missti kúlið. Ég leyfði mér að vona að ástæðan væri slæmar ákvarðanatökur hans um hlutverkaval en því miður. Ford er veikasti hlekk- urinn í nýju Indiana Jones- myndinni! Aldrei fyndin eða töff Þegar kemur að hreyfigetu stendur Ford sig eins og hetja. Hasaratriðin í þessu fjórða æv- intýri um fornleifafræðinginn knáa eru þau einu sem láta áhorfandann líða eins og hann sé á Indiana Jones-mynd. Þess á milli líður myndin fyrir slæman leik Fords, sem skilar línum sín- um eins og hann sé undir áhrif- um sterkra verkalyfja, og kauða- legs handrits. Farin er ákveðnin og stað- festan í hrokafullum tilsvörum Jones sem gerði persónuna svo litríka. Hann er aldrei fyndinn eða töff. Samtöl snúast of mikið um að koma upplýsingum til skila um hvað Indy hafi verið að sýsla síðustu ár. Öll sú kauðalega forsaga (pabbi og Marcus dánir, var í CIA, stríðshetja, njósnari og ég veit ekki hvað?!) er of mikið hlass og þar af leiðandi nær Indy aldrei að skína í þeim aðstæðum er hann lendir í. Þetta verður einnig til þess að persóna Marion Ravenwood, sem er ein litríkasta og skemmtilegasta kvenpersóna kvikmyndasögunnar, þarf að sætta sig við samtöl sem hljóma Indy Það er eins og leiklistarhæfileikar Ford hafi dvínað með árunum. Ekki hægt að kenna aldrinum um, Sean Connery og Michael Caine eru t.d. eldri. Dofinn og dapur Jones Samkvæmt kvikmyndaritinu Variety hafa leikararnir Viggo Mortensen, Andy Serkis og Ian McKellen allir skrifað undir bráða- birgðasamninga þess efnis að þeir muni leika í myndunum tveimur sem byggðar verða á bókinni The Hobbit eftir rithöfundinn J.R.R. Tolkien. Allir leikararnir munu fara aftur í hlutverk sín úr Hringa- dróttinssögu-þríleiknum. „Ég er alveg fylgjandi því að not- ast áfram við leikarana sem sköp- uðu þessar persónur, svo lengi sem þeir geta og vilja það,“ sagði leik- stjórinn Guillermo del Toro en hann hefur verið fenginn til að leikstýra myndunum tveimur. Fyrri myndin mun fylgja eftir söguþræði hinnar upprunalegu Hobbit-bókar en seinni myndin mun fjalla um þá atburði sem gerðust frá því að sögu Hobbitans lauk og þangað til Hringadrótt- inssaga tók við. Handritsvinna við myndirnar er skammt á veg komin en reiknað er með því að handritið verði að mestu skrifað af þeim stöllum Philippu Boyens og Fran Walsh en þær gerðu einmitt handritið fyrir Hringadróttinssögu-þríleikinn, ásamt Peter Jackson. „Við munum öll vera viðloðandi handritið á einhvern hátt, en það verður gengið frá þessu öllu í næstu viku,“ sagði Guillermo del Toro í viðtali við Variety. Viggo Mortensen, Andy Serkis og Ian McKellen Aftur í ævintýraheim Tolkiens MYNDASÖGUR Leikstjóri: Steven Spielberg Leikarar: Harrison Ford, Cate Clanchett, Shia LaBeouf Indiana Jones IV HAFNAFJARÐARLEIKHÚSINU Falleg, fyndin,sönn og kvenleg” V.G Bylgjunni Í KVÖLD ÖRFÁ SÆTI LAUS SUN 24. MAÍ ÖRFÁ SÆTI LAUS FIM 29. MAÍ NÆST SÍÐASTA SÝNING SUN 1. JÚN SÍÐASTA SÝNING 4 SÝNINGAR EFTIR ÍS L E N S K A /S IA .I S /H S K 4 22 03 0 5/ 08 MENNTAVÍSINDASVIÐ www.khi.is Umsóknarfrestur er til 5. júní / Skráning og upplýsingar á www.khi.is Alþjóðlegt nám í menntunarfræði B.A. Nám fyrir þá sem vilja starfa í alþjóðlegu skóla- umhverfi á Íslandi eða í öðrum löndum. Lögð er áhersla á hnattvæðingu, mannréttindi, fjölmenningarsamfélög og sjálfbæra þróun. - kemur þér við AUGLÝSINGASÍMI: 510 3744 íþróttir útivist pólitík heilsa fréttir fé&frami golf 24fólk veiði neytendavaktin golf dagskrá menning viðtöl ferðalög viðskipti garðurinn grill 24lífið bílar neytendur umræða Aðþrengdur Afsakið að ég er til! ÉG VIRÐ IS T MJÖG MÁTTLÍ T I LL SVONA EN ÉG SKAL SEGJA ÞÉR EI TT - ÉG HEYRI ÞEGAR DÓS OPNAST Í NÆSTA HVERFI ÞÚ VEÐUR HÉRNA INN, ALLSBER, HEIMTANDI HÆRRA KAUP OG BETRI VINNUAÐSTÖÐU? VAKNAÐU UPP, ÞETTA ERU DRAUMÓRAR. Bizzaró NEMENDAHIRÐIR

x

24 stundir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.