24 stundir - 23.05.2008, Síða 48
24stundir
? Sigríður Björnsdóttir og ÞorsteinnÓlafsson gengu í heilagt hjónaband íHvalseyjarkirkju á Grænlandi í sept-ember 1408. Brúðkaupið var síðastiskráði viðburðurinn í sögu norrænnamanna á Grænlandi, sögu sem hófstfjórum öldum fyrr á því að óstýriláturribbaldi stefndi bátaflota úr Breiðafirði á
vit ævintýra.
Hvernig dó samfélagið á Grænlandi
sem Eiríkur rauði setti á laggirnar? Ísöld,
segja sumir, aðrir veðja á plágu eða
hungursneyð. Féll fólkið í átökum við
inúíta, var því rænt af portúgölskum sjó-
ræningjum, eða tók það einfaldlega sam-
an pjönkur sínar og flutti burt?
Þetta er ein af ráðgátum sögunnar.
Kirkjan í Hvalsey stendur ennþá, 600 ár-
um síðar, svo listilega var hún hlaðin. Og
Sigríður og Þorsteinn hurfu ekki af
spjöldum sögunnar, þau voru bæði frá
Íslandi og skiluðu sér heim, svo nú geta
flestir Íslendingar rakið ættir sínar til
þeirra. Grænland býr yfir mörgum
heillandi ráðgátum. Grænlenska þjóðin
er sex sinnum fámennari en sú íslenska,
en hefur 20 sinnum stærra land til um-
ráða. Við gleymum því stundum að
Grænlendingar eru næstu nágrannar
okkar, en sú staðreynd er þeim jafnan
ofarlega í huga enda líta þeir á Íslendinga
sem bestu vini sína. Það eru forréttindi
að eiga nágranna sem bjóða upp á ægi-
fagra náttúru, spennandi sögu og marg-
brotna menningu. Ferð til Grænlands
auðgar andann: Við getum staðið í spor-
um brúðhjónanna í Hvalsey og glímt við
gátuna um samfélagið sem hvarf.
Sagan sem endaði í brúðkaupi
YFIR STRIKIÐ
Hefurðu
komið til
Grænlands?
Hrafn Jökulsson
skrifar um ráðgátu
og góða vini
24 LÍFIÐ
Gagnrýnandi blaðsins varð fyrir
sárum vonbrigðum með fjórðu
myndina um Indiana
Jones. Tvær stjörnur.
Harrison Ford
klikkar sem Indy
»42
Hinn tilraunaglaði Ben Frost nýtir
Eurovision-pásuna vel og býður
upp á sargandi glaðn-
ing á barnum í kvöld.
Gítarsúpa á Kaffi-
barnum í kvöld
»46
Liðsmenn Sigur Rósar neita við-
tölum og bjóða blaðamönnum
frekar að mæta á æf-
ingu.
Sigur Rós nennir
ekki að fara í viðtöl
»46
● Geðveikt
„Þetta var alveg
rosalegt hjá þeim
og við erum í skýj-
unum. Þau voru
fullkomin,“ sagði
Júlíus Júlíusson á
Dalvík eftir flutn-
ing íslenska lags-
ins í Eurovision-keppninni í gær-
kvöldi og var þegar farinn að
undirbúa hátíðarhöld laugardags-
ins. Um 240 manns voru sam-
ankomnir í félagsheimilinu til að
horfa á Friðrik Ómar og Regínu og
stemningin var frábær. Bæjarbúar
fóru í skrúðgöngu frá ráðhúsinu
að félagsheimilinu með blöðrur og
fána.
● Koddu í sleik,
ekki stríðsleik!
„Sagan sýnir að
tónlist og pólitík
fara ansi vel sam-
an,“ segir Auður
Lilja Erlings-
dóttir, formaður
ungra Vinstri
grænna, er standa fyrir tónleikum í
kvöld gegn hernaði á Organ. „Þess-
ir hlutir hafa alltaf verið nátengdir,
sérstaklega þegar kemur að hern-
aði. Þetta er okkar leið til þess að
sýna að yngri kynslóðir í dag eru
enn á móti stríði.“
Fram koma Æla, <3 Svanhvít,
Múgsefjun og Hraun. Blazroca var
auglýstur en aflýsti vegna lungna-
bólgu. Fjörið hefst um kl. 21.00.
● Hef trú á Fram-
sóknarflokknum
„Enginn á að fara í
pólitík til að leita
eftir völdum. Ég
vil hafa áhrif og
hef trú á gildum
og hugsjónum
okkar framsókn-
armanna og því býð ég mig fram til
formanns,“ segir Bryndís Gunn-
laugsdóttir sem býður sig fram
til formanns Sambands ungra
framsóknarmanna.
„Það hafa verið erfiðir tímar hjá
flokknum og ég ætla mér að vinna
að uppgangi hans. Framsókn-
arflokkurinn líður ekki undir lok.“
Ritstjórn
Sími: 510 3700
ritstjorn@24stundir.is
Auglýsingar
Sími: 510 3700
auglysingar@24stundir.is
Hvað ætlar þú að
gera í dag?
- kemur þér við