24 stundir - 09.07.2008, Blaðsíða 8
LÆKKAÐ VERÐ
SUMARTILBOÐ ®
Skipholti 50b • 105 Reykjavík
8 MIÐVIKUDAGUR 9. JÚLÍ 2008 24stundir
„Þetta fór betur en við þorðum
að vona. Við erum ánægðir með
hvernig tiltókst,“ segir Jón S. Óla-
son yfirlögregluþjónn á Akranesi.
Lögreglan þar er ánægð með
hvernig skemmtidagskrá Írskra
daga fór fram. Tólf voru hand-
teknir með fíkniefni og tveir voru
staðnir að því að keyra bíl undir
áhrifum áfengis. Að sögn Jóns var
viðbúnaður lögreglu mikill og
voru með staðráðnir í því að láta
hlutina ganga vel fyrir sig. Síðustu
ár hefur unglingadrykkja verið
mikil á Írskum dögum og hefur
stundum farið illa. Slagsmál verið
algeng og talsvert um skemmdar-
verk.
Jón segir lögregluna hafa tekið á
öllum málum sem komu upp af
festu. „Það þýddi ekkert annað
sem leiddi til þess að allt gekk vel,“
segir Jón.
Aldurstakmark á tjaldstæði á
Akranesi var takmarkað við 23 ára
aldurinn. mh
Tólf voru teknir með fíkniefni á Akranesi
Ánægðir með hátíð
Ólafur Jóhann Ólafsson, rithöfundur og aðstoðar-
forstjóri Time Warner-fjölmiðlasamsteypunnar, tók
við hlutverki stjórnarformanns Geysis Green Energy
(GGE) á hluthafafundi í gær. Á fundinum tók Adam
Wolfensohn, framkvæmdastjóri Wolfensohn & Comp-
any, einnig sæti í stjórn GGE.
Ólafur Jóhann og bandaríska fjárfestingarfélagið
Wolfensohn & Company eru nýir hluthafar í GGE, en
Ólafur Jóhann á 2,6% í félaginu en bandaríska fjárfest-
ingarfélagið 3,9%. Félag þetta er m.a. í eigu James Wol-
fensohn, fyrrverandi bankastjóra Alþjóðabankans og
föður Adams Wolfensohn.
Í tilkynningu frá GGE segir að með innkomu nýrra
hluthafa eflist fjárhagur félagsins. „Á síðustu vikum
hefur eigið fé Geysis verið aukið um rúma fimm millj-
arða íslenskra króna, en þar af eru um tveir milljarðar
frá Ólafi Jóhanni og Wolfensohn.
Á hluthafafundinum kom fram að hlutafé félagsins
hefur verið aukið um sem svarar til 55 milljónum
bandaríkjadala, auk þess að við yfirtöku á dótturfélag-
inu Exorku International í Þýskalandi, var minni-
hlutaeigendum þar greitt með hlutabréfum í Geysi að
andvirði um 1.200 milljónir króna. Í undirbúningi er
enn frekari fjármögnum félagsins og sér fyrirtækjaráð-
gjöf Glitnis um þann þátt,“ segir í tilkynningunni.
hlynur@24stundir.is
Ólafur Jóhann og Wolfensohn & Company nýir hluthafar í GGE
Nýir stjórnarmenn í GGE
Eftir Ásu Baldursdóttur
asab@24stundir.is
„Ég varð vör við mikið þekking-
arleysi í samfélaginu varðandi
hvað það þýðir að vera heyrnar-
laus, en þekkingarleysi leiðir iðu-
lega til fordóma,“ segir Sigurlaug
Hauksdóttir félagsráðgjafi.
Hún telur að þetta geti átt við
um marga hópa sjúkra og fatlaðra
og að fordómarnir verði ákveðið
viðbótarálag í lífi þeirra. „Til að
takast á við fordóma þarf hver og
einn að reyna að setja sig í spor
annarra einstaklinga,“ segir hún.
Samfélag heyrnarlausra
„Fólki hættir oft til að dæma
aðra eftir því hversu góð tök þeir
hafi á tungumálinu,“ segir Sigur-
laug og bætir við að þetta geti haft
áhrif á sjálfsmynd heyrnarlausra
sem geta átt erfitt með að tileinka
sér íslensku.
„Þau skynja þessi viðhorf og
geta óttast að vera talin heimsk
eigi þau í erfiðleikum með að
skilja talað mál eða að tjá sig eins
og heyrandi fólk gerir.
,,Táknmál er móðurmál heyrn-
arlausra og þar sem táknmálið er
lítið notað hversdagslega í okkar
samfélagi er gríðarlega mikilvægt
að þeim standi til boða vel útbyggð
túlkaþjónusta,“ segir Sigurlaug og
bætir við að þannig sé hægt að
bæta aðgengi heyrnarlausra veru-
lega að þjónustu, menningu og
menntun sem samfélagið býður
öðrum þegnum sínum upp á.
HIV-jákvæðir einstaklingar
„Þeir sem greinast með HIV
eiga það á hættu að geta þróað
þunglyndi og framið sjálfsvíg,“
segir Sigurlaug og bætir við að oft
sé mikilvægt að þeir fái ríkulegar
upplýsingar og stuðning strax í
upphafi. Hún nefnir að HIV-já-
kvæðir mæti gjarnan skilningsleysi
umhverfisins, sérstaklega þegar
þeir mæti viðhorfum sem segja að
,,þeir geti nú bara sjálfum sér um
kennt hvernig komið sé fyrir þeim.
Þetta er viðbótarálag sem einstak-
lingar þurfa oft að kljást við, á
sama tíma og þeir reyna að aðlag-
ast sjúkdómnum. Slíkt viðbótará-
lag ætti að vera óþarft.“ segir hún.
„Því sýnilegri sem HIV-jákvæðir
eru því árangursríkari verður
vinnan gegn fordómum,“ segir
hún og bætir við að því miður sé
eins og fordómarnir séu ein helsta
ástæða einangrunar þeirra.
„Í raun hafa flest okkar ef ekki
öll tekið einhvern tímann áhættu í
kynlífi sem er meginsmitleið HIV,“
segir hún og bætir við að fólki
hætti oft á tíðum til að einfalda
heiminn svo mikið fyrir sjálfu sér
að það geti valdið öðrum miklum
óþægindum. „Í dag er t.d. meg-
inreglan sú að þeir stunda vinnu
eða eru við nám og margir eru
komnir í sambúð og eignast börn.
Lífslíkur fólks á HIV-lyfjum hafa
aukist mjög,“ segir hún og tekur
fram að í umgengni við fólk
með t.d. einhverja fötlun eða
sjúkdóma sé mikilvægt að við
gleymum okkur ekki bara við að
hugsa um þessa ákveðnu þætti í lífi
þeirra heldur tökum líka eftir öðru
mikilvægu eins og hvers konar
manneskju þau hafi að geyma.
Þekkingarleysi og
fordómar auka álag
Sigurlaug telur þekkingarleysi ríkja gagnvart HIV-jákvæðum og heyrnarlausum sem og
ýmsum öðrum minnihlutahópum Fordómar auka álag á sjúkdóma og fatlanir fólks
Sigurlaug Telur að
fordómar séu við-
bótarálag í lífi fólks➤ Sigurlaug vann með heyrn-arlausum á árunum 1989-
1997. Hún vinnur nú með al-
næmissmituðum og hefur
gert frá árinu 1997.
➤ Sigurlaug telur að HIV-jákvæðir sjálfir, aðstand-
endur, félög, hópavinna og
fólk með sérfræðiþekkingu
séu mikilvæg til að styrkja
einstaklinga til að byggja
upp jákvæða og sterka
sjálfsmynd.
FÉLAGSRÁÐGJÖF
24stundir/Árni Sæberg
„Markmiðið er að auka aðgengi
almennings að grunnþjónustu
heilbrigðiskerfisins,“ Steingrímur
Ari Arason, formaður samninga-
nefndar heilbrigðisráðherra, um
rammasamning sem gerður hefur
verið við Læknafélag Íslands um
þjónustu heimilislækna utan
heilsugæslustöðva.
Einkareknar heilsugæslustöðvar
Samningurinn miðast við að
þrír eða fleiri heimilislæknar vinni
saman að rekstri heilsugæslu- og
læknastöðva og verða gerðar sam-
bærilegar kröfur til þeirra og eru í
heilsugæslukerfi hins opinbera.
„Það er gert ráð fyrir að rekstur
einnar heilsugæslustöðvar verði
boðinn út í haust,“ segir Stein-
grímur Ari og bætir við: „. Reynsl-
an af því verður síðan metin áður
en lengra verður haldið.“ Stein-
grímur Ari segir að ekki sé ljóst
hvaða stöð það verður sem boðin
verður út.
Aukin sérhæfing
Steingrímur Ari segir að hver
heilsugæslustöð muni geta boðið
upp á sérhæfða þjónustu samhliða
grunnþjónustu. „Sérhæfð þjónusta
hefur verið byggð upp miðlægt og
hverri og einni stöð síðan uppálagt
að sækja hana tþangað,“ segir
hann. „Þarna er gert ráð fyrir að
ákveðin sérhæfing muni eiga sér
stað á hverri stöð og síðan yrði
ákveðin samvinna á milli stöðva.“
Steingrímur segir að dæmi um sér-
hæfða þjónustu sé skólaþjónusta,
öldrunarþjónusta og þjónusta
tengd ákveðnu sjúkdómum.
Ekki náðist í heilbrigðisráðherra
við vinnslu fréttarinnar.
elias@24stundir.is
Rammasamningur um þjónustu heimilislækna
Breytingar í grunnþjónustu
Á heimasíðu söngkonunnar
Bjarkar kemur fram að hún
hefur neyðst til að aflýsa
næstu tónleikum sínum sem
áttu að vera í Helsinki í Finn-
landi. Ástæðan er sögð vera
„læknisfræðileg vandræði"
með rödd hennar.
Tónleikagestir fá endurgreitt
og þakkar Björk aðdáendum
sínum skilning þeirra og
stuðning.
Í fréttatilkynningu kemur
fram að ekki sé reiknað með
að aðrir tónleikar falli niður.
Tónleikarnir áttu að vera und-
ir berum himni í Finlandia
Park á fimmtudaginn. mbl
Missti röddina
Björk aflýsir
í Finnlandi
Þrír klerkar frá Póllandi veltu
bíl skammt frá bænum
Sveins-
stöðum í
Vatnsdal
eftir há-
degi gær
en þeir
sluppu lít-
ið meiddir.
Lögreglan
á Blöndu-
ósi og sjúkrabíll þaðan komu
á staðinn og voru mennirnir
fluttir til aðhlynningar á
Blönduós. Eldur kviknaði í
bílnum eftir að hann valt en
hann var slökktur. mh
Bílvelta í Vatnsdal
Klerkar veltu
bíl í Vatnsdal