24 stundir - 09.07.2008, Side 12
12 MIÐVIKUDAGUR 9. JÚLÍ 2008 24stundir
Allt að 11 ára framleiðslu-
ábyrgð á bílskúrshurðum
REK ehf · Akralind 6 · 201 Kópavogur · Sími 5334000 · rek@rek.is · www.rek.is
BÍLSKÚRS- OG
IÐNAÐARHURÐIR
Gæði á góðu verði
24stundir
Útgáfufélag:
Ritstjóri:
Fréttastjórar:
Ritstjórnarfulltrúi:
Árvakur hf.
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
Björg Eva Erlendsdóttir
Magnús Halldórsson
Þröstur Emilsson
Elín Albertsdóttir
Auglýsingastjóri: Gylfi Þór Þorsteinsson Ritstjórn & auglýsingar: Hádegismóum 2, 110 Reykjavík
Aðalsími: 510 3700 Símbréf á fréttadeild: 510 3701 Símbréf á auglýsingadeild: 510 3711
Netföng: frettir@24stundir.is, auglysingar@24stundir.is, 24stundir@24stundir.is,
Prentun: Landsprent ehf.
Í nýlegri blaðagrein sagði Árni Johnsen, þingmaður Sjálfstæðisflokks-
ins, hæstaréttardómurum og ákæruvaldinu til syndanna. Sagði hann
starfsmenn sinna störfum sínum af „vanþekkingu“ og „vanhugsun“. Svo
bætti hann við í útvarpsviðtali að hér á Íslandi væri ekki „réttarríki“ held-
ur „bavíanalýðveldi“. Þessi harðorða gagnrýni Árna á dómstóla – og
reyndar réttarkerfið allt – hefur einangrað hann enn meira innan þing-
flokks Sjálfstæðisflokksins, ef mið er tekið af viðbrögðum ýmissa Sjálf-
stæðismanna við skrifum hans.
Einangrun Árna í þingflokknum er ekki það sem er athyglisverðast við
orð hans. Það að hann skuli leyfa sér að tala niður til hæstaréttardómara
og starfa þeirra, eftir allt sem á undan er gengið hjá honum sjálfum, er það
sem stendur upp úr. Hálf-óhugnarlegt er til þess að hugsa að Árni, sem
dæmdur hefur verið í óskilorðsbundið tveggja ára fangelsi fyrir mútu-
þægni og umboðssvik í opinberu starfi, finni ekki til neinnar siðferðis-
legrar skyldu til þess að sýna Hæstarétti og ákæruvaldinu virðingu og
traust þegar hann vinnur við að setja lög. Orð hans sýna skýrt að hann
treystir ekki dómskerfinu til þess að tryggja réttláta meðferð laga. Sem bet-
ur fer er sjaldgæft að þingmenn geri grein fyrir viðhorfum sem þessum
með jafn-afdráttarlausum hætti. Það myndi setja löggjafarvinnu í upp-
nám ef þingmenn treystu ekki þeim sem dæma um þýðingu laganna. Án
traustsins á því að lögum verði rétt fram fylgt stendur lítið eftir af grunn-
inum sem þingmenn vinna á. Svo mikilvægur hluti er það af löggjafar-
vinnunni.
Á meðan Árni lýsir viðlíka viðhorfum og hann færði í orð í fyrrnefndri
blaðagrein, er því miður uppi vafi um hvort hann er hæfur til þess að
vinna við lagasetningu. Ekki bara vegna þess að hann
treystir ekki þeim sem eiga að tryggja réttláta máls-
meðferð, heldur ekki síst vegna þess að hann virðist
skorta siðferðisþrek til þess að skilja til fulls hvað felst
í því að vera kjörinn á þing og vera hluti af löggjafar-
valdinu. Í hans tilfelli verða kjósendur að geta gert þá
lágmarkskröfu að hann ávinni sér traust að nýju með
heiðarlegri framgöngu.
Telji Árni sig skynja einkenni „bavíanalýðveldis“
innan stjórnkerfisins er honum hollt að leita ástæðu
þess með frumspekilegum spurningum. Hver er ég?
Hvað hef ég gert? Af hverju er ég hér? og svo fram-
vegis. Þannig ætti hann að nálgast smátt og smátt
hugmyndina sem fólk almennt hefur um „bavíana-
lýðveldið“ Ísland.
Bavíanalýðveldi?
Jesús Kristur hefur fengið sér
umba. Prestarnir Jóna Hrönn
Bolladóttir og Bjarni Karlsson
tóku það að sér.
Þau upplýsa, að
Jesús krefjist
rýmis á Íslandi
fyrir Paul Ram-
ses, konu hans og
barn. Þá geta
menn hætt að
deila um það.
Skipun er komin að ofan. Alveg
eins og George W. Bush og Tony
Blair eru umbar fyrir guð almátt-
ugan. Hann segir þeim, hvað þeir
og við eigum að gera. Þá þarf ekki
að rífast meira um það. Tilkynn-
ingar frá Jesú birtast framvegis á
Eyjan.is. Þar eru fyrir fleiri sér-
stæðir karakterar. Rúmlega þriðj-
ungur bloggara …
Jónas Kristjánsson
jonas.is
BLOGGARINN
Umbar Jesú
En kannski er ekki ástæða til að
örvænta. Í greininni kom fram að
krónan hefur ekki reynst jafnveik
og túrkmenska ma-
natið, en það hefur
fallið um 65,78%.
Þar er sem kunnugt
er Gúrbangúlí Ber-
dímúhammedoff
tekinn við stjórn-
artaumunum í kjöl-
far fráfalls Nýasofs
Túrmenbasha í fyrra, en spilling
og flokksræði einkenna sem fyrr
allt þjóðlífið. Neðst á listanum í
Børsen yfir veika gjaldmiðla er svo
simbabveski dollarinn, sem fallið
hefur um 100 prósent. Allir þekkja
þær stjórnarfarslegu hörmungar
sem gengið hafa yfir hina simbab-
vesku þjóð undanfarin ár og skýra
hrun þess samfélags.
Árni Páll Árnason
arnipall.is
Krónan góða
Líklega hef ég verið of jákvæður í
svörum mínum við spurningum
blaðamanna um þá ákvörðun
Ingibjargar Sól-
rúnar Gísladóttur
utanríkisráð-
herra, að sendi-
fulltrúi Íslands í
Róm skyldi vekja
máls á stöðu
Pauls Ramses við
ítölsk yfirvöld, því
að hvergi hef ég heyrt eða séð neitt
haft eftir mér um þetta framtak.
Í stuttu máli fagnaði ég því. Ég tók
einnig fram, að Franco Frattini,
utanríkisráðherra Ítalíu, hefði
fram á þetta ár farið með Schen-
gen-málefni sem einn af fram-
kvæmdastjórnarmönnum ESB og
varaforseti framkvæmdastjórn-
arinnar.
Björn Bjarnason
bjorn.is
Fagnaðarefni
Markmið okkar jafnaðarmanna er að
tryggja landsmönnum bestu heilbrigðis-
þjónustu sem völ er á án tillits til efnahags.
Í frétt í 24 stundum í gær kemur fram að Hjartamiðstöð
Íslands hafi lýst áhuga á að gera hjartaþræðingar á
Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg. Nú fara hjarta-
þræðingar eingöngu fram á Landspítalanum. Bið hefur
verið eftir hjartaþræðingum, en hún hefur styst – færri
bíða nú en áður og á næstunni verður opnuð þriðja
hjartaþræðingarstofan fyrir gjafafé Jónínusjóðsins og
Hjartaheilla.
Löng bið eftir aðgerð sem ógnað getur lífi sjúklings er
óviðunandi. Ef Landspítalinn getur ekki annað þörfinni
fyrir ákveðin læknisverk á viðunandi tíma er eðlilegt að
gerðar verði ráðstafanir til að stytta bið. Læknisverk, s.s.
augnaðgerðir, hafa verið boðin út til að stytta biðlista og
það gefist ágætlega.
Þegar það er gert er að ýmsu að hyggja. Það verður að
tryggja að gæðin séu ekki síðri en hjá opinberum að-
ilum, öryggi sjúklingsins tryggt og kostnaður hins op-
inbera sé ekki meiri en ella og að sjúklingar geti ekki
borgað sig fram fyrir aðra í röðinni. Það er heldur ekki
viðunandi að t.d. LSH sitji uppi eingöngu með erfiðu
og flóknu læknisaðgerðirnar. Tryggja verður að dýrar
fjárfestingar í skurðstofum og tækjabúnaði spítalans
nýtist sem best og einnig þarf að meta hvort það sé
þjóðhagslega hagkvæmt að vera með dýran tækjabúnað
á tveimur stöðum, því á endanum greiðir ríkið kostn-
aðinn. Mikilvægt er að á spítalanum séu gerðar það
margar aðgerðir að starfsfólk haldi bestu færni í því
verki og viðhaldi faglegri þekkingu á stofnuninni.
Án efa er hægt að gera einfaldar hjartaþræðingar úti í
bæ. En ég hef efasemdir um hag-
kvæmni þess við núverandi aðstæður.
Með nýrri sjúkratryggingastofnun sem
tekur til starfa í vetur, að norrænni
fyrirmynd, verður hægt að meta þessa
hluti betur, kalla eftir útboðum og síð-
an meta hvar, hvort og hvenær ástæða
er til að fela einkaaðilum læknisverk
að teknu tilliti til ofangreindra atriða.
Það yrði þá gert með þjónustusamn-
ingi og virku eftirliti með honum.
Höfundur er alþingismaður
Hjartaþræðingar úti í bæ?
ÁLIT
Ásta R. Jó-
hannesdóttir
Magnús
Halldórsson
magnush@24stundir.is