24 stundir - 09.07.2008, Qupperneq 13
24stundir MIÐVIKUDAGUR 9. JÚLÍ 2008 13
Dyggir viðskiptavinir Háa-leitisútibús Landsbank-ans eru
ósáttir við lokun
útibúsins sem nú
verður flutt í Kópa-
vog. Fastakúnnar í
hverfinu eru margir
og sumir nokkuð
við aldur og oft fullt út úr dyrum
í útibúinu. Fólkið telur sig illa
svikið og vill að bankastjórarnir
Sigurjón Árnason og Halldór J.
Kristjánsson upplýsi hvort bank-
anum sé sama um það og meti
annað meira. Ein af hugmynd-
unum sem sögð er hafa komið
upp innan bankans er að leigja
bankarútu til að flytja tryggu
kúnnana reglulega í bankann í
Kópavogi, en hugmyndin sló ekki
á óánægju viðskiptavina.
Sumir prestar eru illir en aðriránægðir vegna umfjöllunarum afstöðu þeirra til stað-
festrar samvistar samkyn-
hneigðra. Þeir
hörðustu láta í sér
heyra á innri vef
kirkjunnar og
stuðningslið þeirra
telur að 77% presta
hafi nú látið presta-
eiðinn fjúka, yfirgefið Biblíuna –
og hallað sér að þjónustu í Só-
dómu og Gómorru. – „Það er að
sjálfsögðu nauðsynlegt að fólk fái
vitneskju um þetta, það getur þá
valið sér prest eftir sínum smekk
þurfi það á viðtali við prest að
halda,“ segir Eva S. Einarsdóttir í
bréfi til blaðsins. Líklegt er að
Gunnar í Krossinum taki heils-
hugar undir með Evu en fyrir
Karl Sigurbjörnsson, biskup Ís-
lands, er málið heldur snúnara.
Keníamaðurinn Paul Ram-ses er stærsta áhugamálþjóðarinnar þessa daga.
Lærðir og leikir blogga og standa
mótmælastöður við
dómsmálaráðu-
neytið á hverjum
degi. Í gær mættu
200. Björn Bjarna-
son dómsmála-
ráðherra virtist í
gær vera að mildast í afstöðu
sinni. Hann sagðist ekki hafa vit-
að um ákvörðun Útlendinga-
stofnunar og það undrast blogg-
arar. En í gær kvað við nýjan tón,
eftir að staglast hafði verið á
nauðsyn þess að fara eftir Dyfl-
innarsamningnum. Leikir Björns
í málinu vekja furðu, en það gerir
líka sú skilgreining Geirs Haarde
sem lítur svo á að ekki sé ágrein-
ingur milli ríkisstjórnarflokkanna
um málið. beva@24stundir.is
KLIPPT OG SKORIÐ
Fáir kunna sig í góðu veðri heim-
an að búa segir íslenskt máltæki.
Þegar Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
og Geir Hilmar Haarde áttu ítrek-
aða fundi á Þingvöllum fyrir rúmu
ári áraði vel. Þau ákváðu að mynda
ríkisstjórn á grundvelli hugmynda
um áframhaldandi velsæld. Ákvæði
stjórnarsáttmálans um aðgerðir í
efnahags- og atvinnumálum voru
því rýrar. Samt sem áður var tekið
fram í stjórnarsáttmálanum að eitt
brýnasta verkefni ríkisstjórnar væri
að tryggja stöðugleika í efnahagslíf-
inu í þágu heimila og atvinnulífs.
Jafnframt að markmið hagstjórnar
væri að tryggja litla verðbólgu og
lágt vaxtastig. Loks að tryggja að ís-
lensk fyrirtæki byggju við bestu
samkeppnis- og rekstrarskilyrði sem
völ væri á.
Nú, ári síðar, stendur ríkisstjórn-
in frammi fyrir öðrum veruleika.
Takmörkuð fyrirheit stjórnarsátt-
málans í efnahags- og atvinnumál-
um hafa ekki gengið eftir. Stöðug-
leiki hefur ekki verið tryggður í
atvinnulífinu. Raunar segir forsætis-
ráðherra að mikilvægt sé að hafa ís-
lensku krónuna til að geta beitt
auknum sveigjanleika við efnahags-
stjórn. Það þýðir raunar ekki annað
en að stöðugleikanum skuli fórnað.
Samfylkingin sér það ráð til að
skapa stöðugleika að sækja um aðild
að Evrópusambandinu og taka upp
evru. Ekki er samstaða um það inn-
an ríkisstjórnarinnar hvernig á að
haga gjaldmiðilsmálum og með
hvaða hætti á að ná því markmiði
stjórnarsáttmálans að skapa stöðug-
leika. Stöðugleikinn sem stjórnin
stefndi að í þágu heimila og at-
vinnulífs er því ekki fyrir hendi og
sú takmarkaða efnahagsstjórn sem
er í landinu á vegum ríkisstjórnar-
innar miðar ekki við að skapa stöð-
ugleika.
Markmið ríkisstjórnarinnar um
að tryggja litla verðbólgu og lágt
vaxtastig hefur ekki gengið eftir.
Verðbólgumet hafa verið slegin
hvert af öðru á vor- og sumarmán-
uðum þessa árs. Ríkisstjórnin og
Seðlabankinn tala um að verðbólga
muni ganga niður. Engin markviss
efnahagsstjórn er þó fyrir hendi af
hálfu ríkisstjórnarinnar. Ríkisstjórn-
in er ekki samstiga um aðgerðir og
veit raunar ekki sitt rjúkandi ráð.
Seðlabankastjóri þjóðarinnar, Davíð
Oddsson, hefur þó það vopn að
halda stýrivöxtum Seðlabankans í
Evrópumeti til þess að freista þess
að halda við hágenginu og jafnvel
hækka gengi íslensku krónunnar
sem gæti orðið til þess tímabundið
að draga úr verðhækkunum vegna
gengisfalls krónunnar.
Vegna hárra stýrivaxta búa fyrir-
tækin við vond samkeppnisskilyrði.
Markmið stjórnarsáttmálans um að
skapa íslenskum fyrirtækjum bestu
samkeppnis- og rekstrarskilyrði sem
völ væri á hafa því ekki gengið eftir.
Íslensk fyrirtæki búa nú við slæm
samkeppnis- og rekstrarskilyrði.
Þessi fyrirheit stjórnarsáttmálans
eru fokin út í veður og vind.
Það sem vantaði í stjórnarsátt-
málann var að gera ráð fyrir því að
jólin stæðu ekki allt kjörtímabilið.
Ekki er fjallað um raunhæfa efna-
hagsstjórn vegna breyttra aðstæðna
jafnvel þótt þær aðstæður hefði
mátt sjá fyrir.
Nú, ári frá stjórnarmyndun, er
ekki samstaða um annað í efnahags-
málum innan ríkisstjórnarinnar en
að taka stórt erlent lán einhvern
tímann til einhvers. Þingmenn og
ráðherrar ríkisstjórnarinnar deila í
dagblöðum. Ríkisstjórnin veit ekki
hvert hún á að stefna í efnahags-
málum. Úrræðaleysið er bagalegt og
það sem meira er ríkisstjórnin er
ósamstæð. Innan ríkisstjórnarinnar
er ekki samstaða um nauðsynlegar
úrbætur í efnahagsmálum. Þegar
svo er komið getur ríkisstjórn gert
borgurum sínum þann bestan
greiða að hætta og gefa svigrúm til
að mynduð verði ríkisstjórn flokka
og fólks sem getur átt samstöðu um
skynsamlegar aðgerðir í efnahags-
málum fyrir fólk og fyrirtæki. Það er
ekki hægt að horfa upp á að eignir
fólks haldi áfram að brenna upp
vegna ráðlausrar og sundurlyndrar
ríkisstjórnar.
Höfundur er alþingismaður.
Innan ríkisstjórnarinnar
er samstaða um?
VIÐHORF aJón Magnússon
Nú, ári frá
stjórnarmynd-
un, er ekki
samstaða um
annað í efna-
hagsmálum
innan rík-
isstjórn-
arinnar en að taka stórt
erlent lán einhvern tím-
ann til einhvers.
Verið velkomin í Nettó
Mjódd - Salavegi - Akureyri - Höfn - Grindavík
79kr/stk
TILBOÐIN GILDA 9. - 13. JÚLÍ
CHICAGO TOWN XL M/SKINKU
SUNKIST ORANGE
w
w
w
.m
ar
kh
on
nu
n.
is
Betri tilboð
XL SPECIALE
PIZZUR
499 kr
OSTAFYLLTUR KANTUR!
ATVINNUBLAÐIÐ
atvinna@24stundir.is
alltaf á laugardö
gum
Pantið gott pláss t
ímanlega