24 stundir - 09.07.2008, Page 20
20 MIÐVIKUDAGUR 9. JÚLÍ 2008 24stundir
Eftir Björn Braga Arnarsson
bjornbragi@24stundir.is
„Við erum búin að hertaka alla
gististaði fyrir löngu. Hótelið, far-
fuglaheimili, báða skólana og
hvert skúmaskot sem við höfum
fundið til að troða fólki í. Svo er-
um við náttúrlega með tjald-
svæði,“ segir Aðalbjörg Lóa Borg-
þórsdóttir, ein af
framkvæmdaaðilum LungA-
listahátíðarinnar, sem haldin verð-
ur á Seyðisfirði í næstu viku.
Hópurinn er í óðaönn að leggja
lokahönd á undirbúning hátíð-
arinnar, en LungA hefst mánudag-
inn 14. júlí með listasmiðjum og
uppákomum af ýmsum toga og
lýkur svo með heljarinnar tón-
leikahelgi.
Á meðal þeirra sem troða upp
eru Trentemoller, Kasper Bjørke,
Bang Gang, Dísa, FM Belfast og
Bloodgroup.
Mikill áhugi listamanna
Margir góðir listamenn verða
með smiðjur í ár. Má nefna Hug-
leik Dagsson sem verður með
teiknimyndasögusmiðju, Björn
Stefánsson úr hljómsveitinni Mín-
us verður með Stomp-námskeið,
Gísli Galdur og Curver Thorodd-
sen munu kenna fólki að þeyta
skífum og vinna með hljóð og
óvenjuleg hljóðfæri og Sara María
Eyþórsdóttir, fatahönnuður úr
Nakta apanum, verður með nám-
skeið í fatahönnun og tísku.
Aðalheiður segir að margir hafi
lýst yfir áhuga á því að taka þátt í
hátíðinni og sýna listir sínar, en
færri komist að en vildu. „Fólk er
mjög spennt fyrir þessu og það er
alltaf að aukast aðsókn listamanna
í að fá að komast að með sýna
list,“ segir hún.
Vantaði eitthvað að gera
LungA var haldið í fyrsta skipti
árið 2000 og er þetta því níunda
hátíðin sem haldin er. Aðalheiður
segir að fyrirkomulag hátíðarinnar
hafi verið nokkurn veginn það
sama frá upphafi, en hugmyndin
kviknaði upphaflega við eldhús-
borðið heima hjá henni.
„Hugmyndin kom upp við eld-
húsborðið heima hjá mér þegar
dóttir mín var að kvarta yfir því að
það væri ekkert um að vera hérna.
Henni leiddist eitthvað og við
ákváðum að gera eitthvað í því,“
segir Aðalheiður og hlær. „Við fór-
um af stað með þetta með nokkr-
um ungum krökkum. Okkur lang-
aði að gera eitthvað fyrir unga
fólkið sem tengist menningu og
listum.“
Það er óhætt að fullyrða að hug-
myndin hafi verið góð því aðsókn-
in hefur aukist stöðugt með hverju
árinu. „Það er yfirleitt fjölmennast
á laugardeginum en við eigum von
á um 3-4 þúsund manns í vik-
unni,“ segir Aðalheiður.
24stundir/Pétur Kristjánsson
Ungir listamenn Myndin er frá fyrstu LungA-hátíðinni, sem haldin var árið 2000.
Listahátíðin ungs fólks á Austurlandi fer fram í næstu viku
Hugmyndin kviknaði
við eldhúsborðið
➤ Föstudagstónleikar hátíð-arinnar hafa alltaf verið sér-
staklega vinsælir. Að þessu
sinni koma fram á þeim Benni
Hemm Hemm, Borgó, Morð-
ingjarnir og Reykjavík!
➤ Nánari upplýsingar má nálg-ast á heimasíðu hátíðarinnar,
www.lunga.is.
➤ Aðstandendur halda einnigúti MySpace-síðu, sem má
nálgast á www.myspace.com/
lungafest.
LUNGALungA er stytting á
Listahátíð ungs fólks á
Austurlandi. Hátíðin fer
fram á Seyðisfirði og
hefst á mánudaginn. Bú-
ist er við að um fjögur
þúsund manns leggi leið
sína á Seyðisfjörð í vik-
unni.
Sunnudagur 13. júlí
Leiðbeinendur koma á staðinn
og lokahönd lögð á opnunar
athöfn. Kvöldverður og hóp
urinn hristur saman.
Mánudagur 14. júlí
16.00 - 18.00: Innritun
20.30: Opnunarathöfn -
leiðbeinendur kynna sig.
Þriðjudagur 15. júlí
07.30 - 09.00: Morgunmatur
09.00 - 12.00: Listasmiðjur
12.00 - 13.00: Hádegismatur
13.00 - 16.00: Listasmiðjur
Miðvikudagur 16. júlí
07.30 - 09.00: Morgunmatur
09.00 - 12.00: Listasmiðjur
12.00 - 13.00: Hádegismatur
13.00 - 16.00: Listasmiðjur
20.00 – 22:00: Kvikmyndasýning
Fimmtudagur 17. júlí
07.30 - 09.00: Morgunmatur
09.00 - 12.00: Listasmiðjur
12.00 - 13.00: Hádegismatur
13.00 - 16.00: Listasmiðjur
17.00 – 20:00: Bókbindi
námskeið
21.00: Hönnunarsýning
LungA 2008
Föstudagur 18. júlí
07.30 - 09.00: Morgunmatur
09.00 - 12.00: Listasmiðjur
12.00 - 13.00: Hádegismatur
13.00 - 16.00: Listasmiðjur
20.00 – 00:00: Kimi records –
Benni Hemm Hemm, Morð
ingjarnir, Borkó og Reykjavík!
00.30 - 04.00: Rokkabillí, 90́s
og 80́s.
Laugardagur 19. júlí
Mæting mismunandi eftir
smiðjum.
14.00 - 16.00: Uppskeruhátíð
16.00 - 18.00: Carnivalstemning
og Loppumarkaður LungA
+ partí hjá Jökli
18:00 - 23.30: Tónlistarveisla
LungA
00.30 - 04.00: Eftirpartí LungA
Sunnudagur 20. júlí:
12.30 - 13.30: Messa eftir Hjalta
Jón í Seyðisfjarðarkirkju
13.30 - 14.00: Opnun ljós
myndasýningar, samstarf LungA
og Viktors Péturs
14.00 - 15.00: Pylsupartí, knús,
kossar og kveðjustund.
Mikil fjölbreytni og allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi
Fjölbreytt dagskrá LungA 2008
Ef barnið þitt er á leið eitt í flug-
ferð er mikilvægt að merkja bæði
barnið og farangur þess í bak og
fyrir. Hafir þú áhyggjur af því að
senda barnið eitt skaltu reyna að
halda þeim niðri því barnið getur
skynjað slíkt og sjálft orðið
stressað. Pakkaðu niður bók eða
afþreyingu fyrir barnið og
kannski smá súkkulaði eða ávöxt-
um líka sem það getur nartað í.
Uppáhaldsleikfangið getur líka
róað barnið og hjálpað við svefn.
Bók, súkkulaði
og bangsi
Þeir sem geta ekki lifað af daginn án þess að
fá sér rjúkandi heitt og gott te og fyllast áhyggj-
um þegar hugsað er um te í vegasjoppum ættu
að vera ánægðir með þennan fallega ferðapoka.
Hann kemur frá bresku fyrirtæki og eru í hon-
um sex litlar dósir sem hver um sig inniheldur
telauf í mismunandi bragðtegundum en einnig
fylgir filter með í pokanum og má síðan fylla á
hann eftir þörfum. Með þessu má slá upp te-
boði úti í móa með prímus og ketil við höndina. Pokinn var hannaður af
franska hönnunarfyrirtækinu Les Petites Emplettes og má kaupa á
www.leafshop.co.uk
maria@24stundir.is
Góð lausn fyrir teþyrsta ferðalanga
Teboð úti í móa
eða á ferð og flugi
LÍFRÆNIR SAFAR
Fæst í heilsubúðum og helstu
matvöruverslunum landsins
Vallý s.510 3728
Böddi s.510 3726
atvinna@24stundir.is
PANTIÐ GOTT PLÁSS Í TÍMA
ATVINNUBLAÐIÐ
Nýkomin
sending af púslum og myndum
til að mála eftir númerum.
Tómstundahúsið. Nethyl 2, sími 587-0600, www.tomstundahusid.is