24 stundir - 09.07.2008, Side 24
- kemur þér við
24 MIÐVIKUDAGUR 9. JÚLÍ 2008 24stundir
Eftir Kristjönu Guðbrandsdóttur
dista@24stundir.is
Tókýó er ein magnaðasta stórborg
heimsins og þar er ótal margt að
sjá. Höfuðborgarsvæði Tókýó er
það stærsta í heimi en rúmlega 33
milljónir manna eiga heima þar
og af þeim eiga 12 milljónir heima
í sjálfri borginni og mannmergðin
er þó miklu meiri þar sem mikill
fjöldi ferðast til borgarinnar vegna
vinnu og ferðalaga.
Tókýó er borg þar sem mögnuð
sjónáreiti fylla öll skynfæri. Borg-
in hefur enda þurft að endurnýja
sig algerlega tvisvar sinnum á
tuttugustu öldinni. Fyrst í jarð-
skjálfta sem jafnaði borgina nán-
ast við jörðu og síðar varð borgin
fyrir miklum skaða í sprengju-
árásum seinni heimsstyrjaldar ár-
ið 1945, sennilega þeim mesta
sem borg hefur orðið fyrir. Með
eyðilegginguna og endurnýjun
borgarinnar í huga er því flestum
ógleymanleg upplifun að koma til
borgarinnar.
Einn síns liðs
Ómar fór til Tókýó einn síns
Litið í myndaalbúm Ómars Haukssonar
Gjörsamlega dýrka Japan
„Ég fór til Tókýó sumarið
2006 og eyddi þar mán-
uði við að gera ekki
neitt,“ segir Ómar Hauks-
son sem leyfir okkur að
gægjast í myndaalbúm
sitt.
3.Flauelsklefinn
2.Ultraman!
1.Ronald McDonald
4.Keðjuglæpon
liðs og segir það fyrirkomulag hafi
hentað sér vel. „Ég á nokkra vini í
Tókýó og skemmti ég
mér með þeim
Einnig kynntist ég fullt af fólki
sem var á hostelinu sem ég gisti í.“
Ómar hefur farið tvisvar áður
til Japans og þá í þeim tilgangi að
spila með hljómsveitinni Quar-
ashi. „Ég sá ekki mikið af borginni
vegna þess að ég var
alltaf á ferðinni. Ég gjörsamlega
dýrka Japan og ég vona að ég
komist þangað sem fyrst aftur.“
Myndaalbúm Ómars:
Mynd 1: Konum í Japan finnst
ég ógeðslegur.Mynd 2: Í Ultram-
an-pósu með hóp af skólastúlk-
um. Fyrir aftan er félagi minn,
Martin Paris frá Nýja-Sjálandi.
Hann er svo mikið hippster hot
boy að þær voru æstar í að sitja á
mynd með honum.
Mynd 3: Ótrúlegasti bar sem ég
hef farið á. Örugglega ekki meira
en 10 fm en á tveimur hæðum.
Gjörsamlega þakinn rauðu flaueli,
barokkveggskrauti og marglita
kristalsljósakrónum. Nafnið á
honum var svo Chandelier bar:
Piano lounge. Það var ekkert pláss
fyrir píanó. Ég sit við hinn endan
á barnum þegar ég tók þessa
mynd með engum aðdrætti.
Mynd 4: Skilti sem varar fólk
við að kaupa miða á svartamark-
aði. Dýrka að gaurinn sé með
pimpkeðju um hálsinn. Það er
sennilega alþjóðlega táknið fyrir
miðahöstlera.
Eflaust dreymir marga sem fara í
minni fjallgöngur og dagsferðir að
fara í alvörubakpokaferð. Íslenskir
fjallaleiðsögumenn bjóða upp á
nokkrar slíkar í sumar og þann 12.-
16. júlí verður gengið sunnan
Vatnajökuls.
„Þetta er krefjandi gönguferð í
ævintýralegu landslagi,“ segir Elín
Sigurðardóttir framkvæmdastjóri.
„Hún er krefjandi að því leyti að í
göngunni er farið yfir ár og bornar
vistir fyrir þá daga sem gengið er.
En annars er gönguhraða stillt í hóf,
ekki er mikil hækkun á þessari
gönguleið og því er hægt að njóta
náttúrunnar. Gönguleiðin er frá
Laka í Núpsstaðarskóg og ég held
að fáar gönguleiðir bjóði upp á
jafnstórbrotið landslag,“ bætir hún
við.
Elín segir að byrjað sé hægt og
gengið styttri vegalengdir fyrstu
dagana. Við förum yfir eitt af stærri
jökulvötnum landsins, Hverf-
isfljótið og göngum sunnan jökuls-
ins og upp að svonefndum Hágöng-
um, þá er gengið úr stórbrotnu og
hrikalegu landslagi jökulsins niður
hlýlegt umhverfi Núpsstaðarskóga.
Aðspurð um hvað fólk megi ekki
gleyma að taka með segir hún vað-
skóna vera nauðsynlega, auk
hlýrra nærfata og þægilegs bakpoka.
„Í þessari göngu þarf líka húfur og
vettlinga auk hefðbundins göngu-
fatnaðar, bætir hún við.
dista@24stundir.is
Langar þig í bakpokaferð?
Ósnert fegurð og ævintýralegt landslag Magnað gönguland sem fáir
hafa heimsótt enda er það fjarri öllum skarkala mannanna og vegum.
Núpsá Í göngunni gefst
tækifæri á að njóta ein-
stakrar náttúru.
Í Beinadal
Ægifagurt
landslag.
Gengið sunnan Vatnajökuls