24 stundir - 09.07.2008, Qupperneq 28
28 MIÐVIKUDAGUR 9. JÚLÍ 2008 24stundir
Eftir Einar Jónsson
einarj@24stundir.is
Fjöldi dýra er svæfður eða lógað á
ári hverju vegna þess að enginn
fæst til að taka þau að sér. Dýra-
hjálp Íslands eru nýstofnuð samtök
sem koma dýrum í neyð í fóstur
eða finna þeim varanleg heimili.
Framtíðarmarkmið samtakanna er
að stofna dýraathvarf þar sem tekið
verður við öllum dýrum sem
þarfnast nýs heimilis. „Við erum að
gera viðskiptaáætlun um hvað það
kostar að reka alvörudýraathvarf á
Íslandi. Við viljum kanna hvað það
er mikil þörf fyrir það hér á landi
og hversu mörg heilbrigð dýr eru
svæfð á hverju ári,“ segir Sandra
Lyngdorf, formaður Dýrahjálpar
Íslands.
Þangað til hægt verður að stofna
slíkt athvarf nýta samtökin heima-
síðu sína til að koma dýrum í tíma-
bundið fóstur eða á varanlegt
heimili.
Fósturheimili á skrá
„Ef það er alger neyð þá erum
við með fósturheimili sem geta
tekið við dýrum. Það eru mjög
margir sem hafa haft samband við
okkur og eru tilbúnir að taka dýr í
fóstur tímabundið,“ segir Sandra
og bætir við að fósturheimilin séu
um land allt.
„Við erum líka með mikið af
fólki á skrá sem er tilbúið að ætt-
leiða hund. Það bíður jafnvel eftir
hundi af sérstakri tegund eða
stærð. Svo þegar ég fæ hund inn
sendi ég upplýsingarnar á þennan
lista,“ segir hún.
Dýrin tekin úr sambandi
Samtökin hyggjast einnig fræða
fólk almennt um meðferð dýra og
dýravernd. „Við viljum fara í her-
ferð fyrir því að fólk láti gelda dýr
og fá dýralækna til að tala um hve
mikilvægt það er,“ segir Sandra og
bætir við að það sé miklu betra fyr-
ir dýrið. „Ég er með kanínur sjálf
og þær verða miklu heilbrigðari.
Margar kvenkanínur fá krabba-
mein sem hægt er að koma í veg
fyrir með því að taka þær úr sam-
bandi. Það kostar svolítið en mað-
ur fær miklu betra og hamingju-
samara dýr,“ segir hún.
Fólk beið eftir þessu
Félagar í Dýrahjálp Íslands eru
um 70 og kostar ekki neitt að ganga
í þau. Sandra segir að mikil þörf
virðist vera á samtökum sem þess-
um af viðbrögðunum að dæma.
„Ég er búin að fá mikið af tölvu-
pósti frá fólki sem segist hafa verið
að bíða eftir þessu,“ segir hún.
Nánari upplýsingar um Dýra-
hjálp Íslands má finna á heimasíðu
samtakanna, www.dyrahjalp.org.
Bjargvættur dýranna
Sandra Lyngdorf og félagar í
Dýrahjálp Íslands koma dýrum
í neyð til hjálpar.
Dýrahjálp Íslands stefnir á að byggja dýraathvarf
Koma dýrunum til hjálpar
Dýrahjálp Íslands vinnur
að því að koma dýrum í
fóstur eða finna þeim
varanlegt heimili. Jafn-
framt hyggjast samtökin
fræða fólk um meðferð á
dýrum og dýravernd.
➤ Sandra Lyngdorf, formaðursamtakanna, kemur frá Sví-
þjóð og á fimm kanínur og
tvo hesta.
➤ Meðal þeirra dýra sem leitaað heimili eru hundar, kettir,
fuglar, kanínur og hamstrar.
➤ Á síðu samtakanna er aðfinna upplýsingar um ýmsar
dýrategundir, allt frá skordýr-
um upp í hesta.
DÝRAHJÁLP ÍSLANDS
Nú þegar verð hækkar á flestum
vörum getur borgað sig að kaupa
notaða hluti í stað nýrra. Góð
bók verður ekki verri við það að
einhver hafi lesið hana áður og
oft má fá gömul og sterkbyggð
húsgögn á góðu verði í forn-
munaverslunum. Það borgar sig
þó einnig að skoða vel ástand
hlutarins áður en veskið er dregið
upp til að maður kaupi ekki kött-
inn í sekknum. Það á ekki síst við
um raftæki, bíla og önnur tæki
sem eru gjörn á að bila af
minnsta tilefni.
Notaðir hlutir
í stað nýrra
Það borgar sig
einnig að fylgjast
vel með útsölum
og tilboðum í
verslunum og
nýta sér þau.
Gangið þó úr
skugga um að
fyrra verð á vöru
eða þjónustu komi fram áður en
þið gangið frá kaupunum.
Tilboð á vöru
eða þjónustu
Vörur í verslunum eiga að vera
verðmerktar. Full ástæða er fyrir
viðskiptavini að gera athuga-
semdir við starfsfólk ef mis-
brestur er á því. Einnig ætti fólk
að fara yfir innkaupastrimilinn
og bera saman kassaverð og hillu-
verð að innkaupum loknum.
Verðmerkingar
LÍFSSTÍLL
lifsstill@24stundir.is a
Ef það er alger neyð þá erum við með fóstur-
heimili sem geta tekið við dýrum. Það eru
mjög margir sem hafa haft samband við okkur og
eru tilbúnir að taka dýr í fóstur tímabundið. neytendur
24 stundir/G. Rúnar
Förum varlega í akstri um Ísland og höfum hugfast að ferðalagið er jafnmikil upplifun
og áfangastaðurinn. Mörgum hættir við að bruna framhjá markverðum stöðum og
aldrei að vita hverju þú missir af ef farið er um í óðagoti.
Ferðumst um landið – en förum okkur hægt og komum heil heim.
Ekki geysast í gegn!
TB
W
A
\R
EY
KJ
A
VÍ
K\
SÍ
A
90
80
33
9
40
60 80 100
120
30
Hrafnseyri
i flýta þér framhjá!