24 stundir - 09.07.2008, Side 32

24 stundir - 09.07.2008, Side 32
hann. Til að svo flókið reikn- ingsdæmi gangi upp þarf auðvit- að vel valið lið úr tónlist- arbransnum og eru meðlimir Memfismafíunnar engir nýgræð- ingar þegar það kemur að hljóð- færaleik. Allt er því til fyrirmyndar á þessari plötu og er nánast hægt að fullyrða að hún á eftir að selj- ast eins og heitar lummur næst- komandi jól og jólin þar á eftir líka. Eftir Björn Stefánsson bjornstef@24stundir.is Á fjórða áratug síðustu aldar var ekki auðvelt fyrir íslenskt tónlist- arfólk að komast í hljóðver. Það þótti heldur dýrt og lítið fram- boð var á góðri upptökuaðstöðu hér á landi. Hægt er að segja að þessi tími hafi verið mikill um- brotatími fyrir stórsöngvarann Hauk Morthens sem valdi oftast þann kost að fljúga til Danmerk- ur til að hljóðrita tónlist sína. Með nútímatækni er hægt að hljóðrita plötu nánast hvar sem er og jafnvel gefa hana út sam- dægurs á netinu. Þegar Sigurður Guðmundsson og Memfismafían voru við upptökur var allri staf- rænni upptökutækni ýtt til hlið- ar. Einblínt var á að skapa upp- tökuandrúmsloft líkt því sem skapaðist í hljóðverum fyrir um hálfri öld síðan. Við upptökurnar mættu allir gallvaskir til vinnu klæddir í sitt finasta púss og voru t.d. upp- tökustjórarnir klæddir í hvíta sloppa. Við þetta skapast mikil virðing gagnvart tónlistinni sem greinist vel er hlýtt er á gripinn. Á plötunni er að finna alls kyns frægar dægurlagaperlur, bæði íslenskar og erlendar, og því gott að skella gripnum í við öll tækifæri. Það sem þarf að hafa í huga þegar hlustað er á Oft spurði ég mömmu er að lögin eru hljóð- rituð í einni töku. Einn míkró- fónn var staðsettur í miðjum upptökusalnum og sveitinni síð- an raðað vandlega í kringum 24stundir/Halldór Siggi Guðmunds Siggi í Hjálmum hlóð utan um sig mafíu íslenskra tónlistarmanna og hljóðritaði á gamla mátann, allt spilað beint inn í einn míkrafón. Siggi í Hjálmum fer slóðir Hauks Morthens Sigurður Guðmundsson og Memfismafían Oft spurði ég mömmu „Allt til fyrirmyndar” 32 MIÐVIKUDAGUR 9. JÚLÍ 2008 24stundir Útfararþjónustan ehf. Stofnað 1990 Símar: 567 9110 & 893 8638 www.utfarir.is • runar@utfarir.is Alhliða útfararþjónusta Rúnar Geirmundsson Sigurður Rúnarsson Elís Rúnarsson Þorbergur Þórðarson Viðburðafirmað Live Nation hef- ur gert samning við kanadísku hljómsveitina Nickelback um að gefa út næstu þrjár plötur sveit- arinnar og standa að þremur tón- leikaferðum þeirra. Samningurinn er talinn gefa hljómsveitinni rúmlega 50 millj- ónir Bandaríkjadala í aðra hönd- ina, en sveitin hefur selt um 26 milljónir eintaka af plötum sín- um og hafa lögin Rock Star og Photograph notið sérstakra vin- sælda. Fyrir hjá Live Nation eru stór nöfn: Madonna, Jay-Z, U2 og Shakira, en Live Nation er þegar orðið eitt stærsta viðburðarfyr- irtæki heims, stofnað árið 2005. Firmað teygir anga sína víða og á til dæmis hlut í Glastonbury há- tíðinni í Englandi. Nickelback til Live Nation Grínistinn Sacha Baron Cohen, í gervi austuríska hommans Bruno, lagði sitt af mörkum til að stilla til friðar í Miðaust- urlöndum á dögunum. Cohen náði að bóka fyrrverandi ísr- aelskan njósnara og fræðimann frá Palestínu í viðtal þar sem um- ræðuefnið var átökin á milli þjóðanna. Eftir flóð af heimsku- legum spurningum áttuðu við- mælendurnir sig loksins á því að eitthvað væri bogið við viðtalið þegar Bruno fékk þá til að haldast í hendur og syngja saman um stríðsátökin. vij Samkynhneigði sáttasemjarinn Fyrrum aðalsöngvari hljómsveit- arinnar Village People, hvers frægðarsól reis hæst á áttunda ára- tugnum, er óðum að ná sér eftir aðgerð á raddböndum. Victor Willis, sem er 57 ára, neyddist til að fresta nokkrum tónleikum, en hann sneri aftur á svið í fyrra, eftir 27 ára hlé, með Victor Willis Dance Tour tónleika- ferðina. Hann hefur aðeins nýlega viljað taka gömlu slagarana YMCA og Macho Man á tón- leikum, sem hann samdi textana að. Geta því gagnkynhneigðir, sem samkynhneigðir, já og tvíkyn- hneigðir, tekið gleði sína á ný. Victor úr Village People batnað Ólympíuleikarnir í Peking verða notaðir sem risastórt fjölmiðla- rannsóknarverkefni fyrir NBC- sjónvarpsstöðina, sem á sýning- arréttinn af leikunum, sem byrja þann 8. ágúst. NBC mun sýna um 3600 klukkutíma af leikunum í sjón- varpi, en um 2200 klukkutímar verða gerðir aðgengilegir gsm- símum og lófatölvum, þar sem fólk getur niðurhalað efninu. „Þetta er einsog að fá aðgang að billjón dollara rannsóknarsetri. Þarna fáum við aðgang að fjöl- mörgum notendum tækninnar á einu bretti og getum rannskað hegðun þeirra, sem nýtist bæði auglýsendum, hugbúnaðarfyrir- tækjum, og fjölmiðlum,“ segir Al- an Wurtzel, sérfræðingur hjá NBC. Dreift verður þúsundum sér- stakra gsm-síma til áhorfenda leik- anna og mæld notkun þeirra á hin- um ýmsu þjónustum. Sjö milljónir miða hafa þegar verið seldir á leikana sem verða þeir stærstu hingað til. „Aldrei fyrr hefur gefist slíkt tækifæri fyrir fjölmiðil að prófa þjónustu sína með beinum hætti á kúnnanum. Þessi tækni er ný af nálinni og nú gefst okkur tækifæri á að þróa hana enn frekar. Við stefnum á að ná sama árangri á einum mánuði og tekur venjulega um eitt ár að þróa.“ Ólympíutilraunastarfsemi MYNADSÖGUR Aðþrengdur Afsakið að ég er til! ÉG GET ÞETTA EKKI LENGUR! SMYGLAÐU MÉR HÉÐAN ÚT Í SKJALASKÁP! „VILJIÐ ÞIÐ EKKI VERA ÖRLÍTIÐ SJÁLFSTÆÐARI?“ Bizzaró Þetta er miklu skemmti- legra en að mála útvarp ÚTSALA ÁSTAR- HREIÐUR SKIPULAGÐIR GLÆPAFORINGJAR Málaðu afruglara næst FÓLK 24@24stundir.is a Við upptökurnar mættu allir gallvaskir til vinnu klæddir í sitt finasta púss og voru t.d. upptöku- stjórarnir klæddir í hvíta sloppa. poppmenning

x

24 stundir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.