24 stundir - 09.07.2008, Side 38

24 stundir - 09.07.2008, Side 38
Eftir Viggó I. Jónasson viggo@24stundir.is „Það er bara frábært að fara aftur á svið og kýla þetta aftur í gang,“ segir Einar Egilsson, meðlimur hljómsveitarinnar Steed Lord, en sveitin mun halda tónleika á Q-Bar hinn 19. júlí. Tónleikarnir eru þeir fyrstu sem sveitin heldur eftir að hljómsveitarmeðlimir lentu í al- varlegu umferðarslysi þann 9. apríl á Reykjanesbrautinni. Einar og Eðvarð bróðir hans fóru einna verst út úr bílslysinu en Einari var um tíma haldið sofandi í öndunarvél. Hann segir þó að hann sé á batavegi. „Heilsan er bara ágæt. Ég er að skríða saman en er ekki alveg orðinn heill. Þetta er ekki alveg komið.“ Hann bætir við að hann geti al- veg beitt sér til daglegra verka en verði þó að passa sig að ofreyna sig ekki. „Maður er ekkert að fara í körfubolta og hoppa um. Bara það eitt að fara út í göngutúr tekur á.“ Bara að harka af sér Þrátt fyrir eymsli og sársauka mun sveitin harka af sér og stíga á stokk á Q-Bar til að safna fyrir væntanlegri tónleikaferð sveit- arinnar um Ameríku. „Þetta eru hálfpartinn söfnunartónleikar því við erum að fara á Ameríkutúr þannig að við erum að safna okkur smá-pening til að geta farið í þenn- an túr.“ Forsala á tónleikana 19. júlí fer fram á Q-Bar en húsið verður opn- að kl. 20 með grilli og góðri músík. Lífsreynsla sem breytir fólki Aðspurður hvort bílslysið hafi eitthvað breytt hljómsveitinni eða meðlimum hennar segir Einar svo vera. „Það eru bara miklu meiri til- finningar í tónlistinni. Við erum búin að semja fullt af nýjum lögum og við erum að frumflytja nýtt efni á tónleikunum.“ Einar segir að það sé vissulega tilfinningalegur léttir að stíga aftur á sviðið eftir að hafa lifað af svona þolraun en sveitin hefur nú ákveð- ið, vegna mikillar eftirspurnar, að hefja tónleikahald á nýjan leik eftir að hafa þurft að fresta ótal tón- leikum. „Við ákváðum bara að kýla á þetta í staðinn fyrir að lifa í einhverri hræðslu og bíða og bíða. Við hvetjum bara alla til að koma á tónleikana og styðja okkur í því.“ Fyrstu tónleikar Steed Lord eftir alvarlegt bílslys Við viljum ekki lifa í hræðslu Hljómsveitin Steed Lord heldur tónleika á Q-Bar þann 19. júlí. Tónleikarnir eru þeir fyrstu sem sveit- in heldur eftir að hljóm- sveitarmeðlimir lentu í al- varlegu bílslysi. Bíta á jaxlinn Með- limir Steed Lord eru enn að jafna sig eftir bílslysið en láta það ekki stoppa sig. Mynd/Saga Sigurðardóttir Einar Lofar góðum tónleikum á Q-Bar. 38 MIÐVIKUDAGUR 9. JÚLÍ 2008 24stundir „Sá fyndnustu frétt ársins áðan á mbl.is þar sem segir frá því að bin Laden-fjölskyldan vilji kaupa Newcastle fyrir einhverja 46 milljarða. Stuðningsmenn New- castle eru víst æfir og er engan að furða við því. Svo býr eigandinn í helli þar sem meirihluti mann- kyns vill myrða hann.“ Ómar Örn Ólafsson omar.eyjan.is „Ekkert er ógeðslegra en ómerki- leg kona! Ekki veit ég hverjir búa til svona tilvitnanir og setja í páskaegg en þetta kom úr páska- eggi fyrir mörgum árum. Þetta passar einhvern veginn ekki í páskaeggi samt, þó þetta eigi við rök að styðjast. Guðmundur Óli Scheving blogg.visir.is/gudmunduroli „Þjálfara HK var sagt upp, þar sem árangur liðsins er undir væntingum. Sem knattspyrnu- áhugamaður fullyrði ég að Gunn- ar er ekki versti þjálfari Lands- bankadeildar, árangurinn er ekki til að hrópa húrra fyrir en HK er ekki stjörnum prýtt lið eins og sum sem eru lítið eitt ofar.“ Sigurður Þórðarson siggith.blog.is BLOGGARINN HEYRST HEFUR … Mugison andar eflaust aðeins léttar eftir slæma dóma í danska dagblaðinu Extra Bladet þar sem hann fékk aðeins 2 stjörnur fyrir spilamennsku sína á Hróarskeldu. Önnur blöð voru að fíla hann betur og hæst fékk hann 5 stjörnur í Jyllandsposten en blaðamaður hélt ekki vatni yfir ærslafullu rokkinu. Næst fékk hann 4 stjörnur í Fyens-blaðinu og svo 3 stjörnur í Politiken. bös Nýjasta mynd Baltasars Kormáks, Run for her life, sem verið er að taka upp í Nýju-Mexíkó, fær stóran sess í Kastljósinu í vikunni, en Þórhallur Gunn- arsson sendi Ragnhildi Steinunni út af örkinni, til að tala við þotuliðið og skyggnast bakvið tjöldin, á þessari stærstu íslensk-amerísku Hollywood-mynd sem gerð hefur verið. Ragnhildur er vel til verksins fallin, enda ekki ókunn hvíta tjaldinu sjálf. tsk Dr. Gunni hefur tvístrað Eurobandinu í tvennt og leitt Friðrik Ómar og Regínu í blóðuga baráttu gegn hvort öðru. Í Popppunkti hans á Rás 2 í dag fæst nefnilega úr því skorið hvor Eurovision-farinn er betri að sér í poppfræðum. Þar keppa Euro- drengir við Euro-stelpur og eru því Regína og Frið- rik hvort í sínu liðinu. Með Regínu keppir Sigga Beinteins en Eyfi keppir með Friðriki. bös „Það eru þrjár sjónvarpsstöðvar á landinu, ein þeirra hefur afsalað sér áhuganum og hent sviðsmynd- inni, þannig að það eru tvær eftir, sem báðar hafa sýnt þættinum áhuga,“ segir Dr. Gunni aðspurður hvort hinn sívinsæli popppunktur sé ekkert á leiðinni á skjáinn, eftir þriggja ára hvíld. Hver býður betur? „Eftir fjögur tímabil hjá Skjá- Einum voru fáar hljómsveitir eftir til að fá í þáttinn. En síðan 2005 hefur orðið mikil endurnýjun í tónlistarlífinu og ekkert mál að byrja aftur,“ segir doktorinn og gerist diplómatískur aðspurður hvort þetta sé ekki spurning um hver býður betur. „Ja, þetta er bara spurning um hver sýnir meiri áhuga.“ Áhuginn fyrir hendi „Við höfum rætt saman, en það er ekkert fast í hendi ennþá. En áhuginn er til staðar,“ segir Þór- hallur Gunnarsson, dagskrárstjóri RÚV. Svipaða sögu er að segja af kollega hans hjá Stöð 2, Pálma Guðmundssyni, sem segir vel mögulegt að breyta sniði þáttarins. „Við Gunni töluðum saman og þetta er ein af mörgum góðum hugmyndum sem við erum að skoða. Hugmyndin er að vera með þátt í anda Popppunkts, þátt sem byggir á hans grunni.“ Aðspurður hvort Stöð 2 noti ekki bara amerískar fyrirmyndir að þáttum sínum, sagði Dr. Gunni: „Er ekki batnandi mönnum best að lifa?“ traustis@24stundir.is Stöð 2 og RÚV keppast um Dr. Gunna Kapphlaupið hafið um Popppunkt Vinsæll og veit af því Dr. Gunni er væntanlegur á skjáinn aftur. Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum frá 1-9 lárétt og lóðrétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis. Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar. Su doku 6 2 1 7 3 5 4 8 9 5 3 9 4 6 8 1 7 2 4 7 8 9 1 2 3 5 6 7 6 5 3 4 1 2 9 8 9 1 2 8 7 6 5 4 3 3 8 4 5 2 9 6 1 7 8 5 3 6 9 4 7 2 1 2 9 7 1 5 3 8 6 4 1 4 6 2 8 7 9 3 5 Veistu að það eru tólf á síðan við sluppum í gegn hjá hraðkassanum. a Ekki fokk’í Sæma rokk! Sæmi, þú hefur engu gleymt? Lögregluþjónninn fyrrverandi, Sæmundur Pálsson, betur þekktur sem Sæmi rokk, yfirbugaði árásarmann sem réðst að hon- um með hníf á lofti. Árásarmaðurinn er 26 ára en Sæmi er 72 ára. FÓLK 24@24stundir.is fréttir www.ynja.is Útsölustaðir: Nana Hólagarði, Esar Húsavík, Smart Vestmannaeyjum, Pex Reyðarfirði, Efnalaug Vopnafjarðar, Heimahornið Stykkishólmi Opnunartími Mán.-fös. 11-18, lau. 11-14 Hamraborg 7 Kópavogur Sími 544 4088 Ný sending frá Vanity Fair Fæst í hvítu, svörtu, gylltu og dökk rauðu Verð 5.490 Frábær verð og gæði – Persónuleg þjónusta

x

24 stundir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.