Eintak - 01.11.1993, Blaðsíða 36
Páll H. Hannesson og Friðrik Þór Guðmundsson
skrifa um þær gagngeru breytingar sem gerðar hafa veríð
á Hagkaupsveldinu á undanförnum misserum, áform
erfingja Pálma Jónssonar um útvíkkun starfseminnar,
kynslóðaskiptin, forstjóraskiptin og aðrar breytingar sem
hafa átt ser stað í þessu stærsta fyrirtæki landsins í fullri
eigu eínnar fjölskyldu.
Það er dæmigert fyrir stöðu eigenda Hag-
kaupsveldisins, afkomendur Pálma heitins
Jónssonar, að á næsta ári flytja þeir Ikea-versl-
un sína í fyrrverandi húsakynni síns stærsta
keppinautar, Miklagarðs í Holtagörðum, sem
varð gjaldþrota um mitt þetta ár. Ekki síður er
það til marks um sterka stöðu þeirra á matvöru-
markaðnum að fyrir um ári keyptu þeir upp
hclminginn í sínum næststærsta keppinauti,
Bónus-keðjunni, sem rann þar með inn í Hag-
kaupsveldið. Markaðshlutdeild þeirra á mat-
vörumarkaðnum á höfuðborgarsvæðinu er nú
nálægt 40 af hundraði. Samanlögð velta Bónus
og Hagkaups/Ikea var á síðasta ári 16 milljarðar
króna á núvirði. Það þýðir að samsteypan er
fimmta stærsta fyrirtæki landsins þegar mið er
tekið af veltu með virðisauka.
Undanfarin tvö ár, eða frá því að frumkvöð-
ullinn Pálmi Jónsson dó, hafa átt sér stað mikils-
verðar skipulagsbreytingar hjá Hagkaup, meðal
annars til að tryggja að kynslóðaskiptin meðal
eigenda fýrirtækisins gangi slysalaust fyrir sig. I
raun er verið að færa Hagkaup sjálft aftur til fyrra
horfs, þótt umbúðirnarnar og stíllinn sé núorðið
í öðrum og dýrari klassa en þegar Pálmi hóf versl-
un fyrir aldarþriðjungi. Á níunda áratugnum
jókst margbreytileikinn í umsvifum fyrirtækisins
og það fjarlægðist það hratt að vera einföld mat-
VELTA HAGKAUPS frá 1979 tll 1992
15 10 5 0
1980 1985 1990 Á rúmum áratug fór veltan úr tæplega 2,5 miljarði í rúma 13 milljarða.
vöruverslun. Undir hatt Hagkaups var komin
húsgagnaverslun, kjötvinnsla, bygging og rekstur
Kringlunnar, þróunar- og rekstrarfyrirtæki ásamt
fleiru. I dag einbeita stjórnendur Hagkaupsversl-
ananna sér eingöngu að rekstri þeirra og stíl; bók-
hald, lager- og dreifing er undir eignarhaldsfélagi
Fjölskyldunnar, Hof sf., og búið er að gera aðra
hluta í fyrirtækinu að sjálfstæðum einingum.
JÓN ÁSBERGSSON OG
ÞORSTEINN PÁLSSON HÆTTIR
Á tiltölulega skömmum tíma var stofnað eign-
arhaldsfélagið Hof sf. og fleiri fyrirtæki og félög
fylgdu í kjölfarið; Þyrping hf. var stofnað utan
um fasteignareksturinn, Þarfaþing hf. utan um
viðhald og aðra verktakastarfsemi og Baugur sf.
utan um innkaup og dreifingu. Fjárfestingafélag-
ið Þor hf. hefur það hlutverk að annast minni-
hlutaeign fýrirtækisins í hlutdeildarfyrirtækjum
(vatnsútflutningur, Dómínós-pizza og fleira) og
framundan er stofnun sérstaks hlutafélags utan
um kjötvinnsluna, Ferskar kjötvörur hf.
Þessum breytingum hefur verið stjórnað af
systkinum sjálfum undir forystu Sigurðar Gísla
Pálmasonar. Þau fengu sér til aðstoðar Isac Ad-
ezes, júgóslavneskan rekstrargúru sem búsettur
er í Bandaríkjunum. Byrjað var á endurskipu-
lagningu stjórnunarstrúktursins frá toppi. Þá hef-
36
EINTAK NÓVEMBER