Eintak - 01.11.1993, Blaðsíða 84
Síwwwiri
deyfu fyrir eyrun. Hún lætur manninn gnísta
með tönnunum, fljúga með höndunum, æða
með fótunum. Hún skekur og hristir allan líkam-
ann og aflagar, svo sem þegar hafið er blásið upp
af stórviðri. Og í einu orði að segja: Hún gjörir
manninn að ófreskju og að holdgetnum djöfli í
augum þeirra, sem heilvita eru. Og ef hún af-
skræmir ásýnd mannsins fyrir öðrum mönnum,
hverninn mun hún þá ekki afmynda sálina í guðs
augliti? Segið mér, hvílíkur djöfull mun þar inni
búa, sem álit mannsins verður hið ytra svo af-
skræmt, hvílíkur eldur mun vera í því hjarta, er
hann lystir sig þaninn út í hvern einn lið og lim?“
En jafnaðargeðið og guðsóttinn sem miðalda-
kirkjan heimtaði af almenningi hefur varla verið
á margra manna færi, ef þá nokkurra í praxís. ís-
lendingar virðast til dæmis ekki hafa tekið þenn-
an siðaboðskap mjög alvarlega, heldur dundað
sér við steypa þeim sem heilagastir sýndust af
stalli, eins og eftirfarandi saga af Jóni Vídalín ber
með sér: „Einu sinni - sumir segja eftir það hann
var orðinn biskup - reri hann fyrir Landeyja-
sandi. Drógu aðrir um daginn, en hann varð ekki
lífs var þangað til seint og síðar meir hann dró
eina ýsu. Varð hann þá svo reiður að hann barði
hana upp til agna á borðstokknum; en er í land
kom beiddi hann Guð og skipverja grátandi fyrir-
gefningar og bað þá varast að gjöra slíka glópsku
eftir sínu dæmi.“
Og í lokin er rétt að minnast aðeins á guð sem
aldrei er mannlegri en einmitt þegar hann verður
virkilega reiður. Tökum til dæmis brottrekstur-
inn úr Eden og syndaflóðið. í báðum tilfellum
verður guð svo mannlegur að jafnvel hann sjálfur
stígur niður til jarðar. í hið fyrra sinni rekst hann
á Adam og Evu þar sem hann er á vappi í aldin-
garðinum í kveldsvalanum og í hið síðara kemur
hann eins og kallaður, til að læsa örkinni á eftir
Nóa og dýrunum.
fVlammon
Ágirnd
eítir Sigurð A. Magnússon
Af dauðasyndunum sjö, sem Dante skilgreindi
í Purgatorio, er græðgin sennilega skæðust og af-
drifaríkust fýrir velfarnað einstaklingsins. Leti,
ofneysla, reiði og saurlífi eru vissulega hvimleiðir
lestir en varla tiltakanlega mannskemmandi.
Dramb og öfund eru að sönnu ekki geðslegar eig-
indir, en þessum löstum má vísast halda í skefj-
um með góðum vilja, ef ekki beinlínis bæla þá
niður. Er reyndar hnýsilegt að Dante skuli gera
greinarmun á ofneyslu og annars konar græðgi,
en það á sér skýringu eins og síðar skal vikið að.
Nokkir íslenskir málshættir íjalla um græðg-
ina, til dæmis „Mikið vill mikið“ og „Mikið vill
meira“ eða „Ágirnd vex með eyri hverjum" og
„Aldrei verður ágirnd södd“. Andspænis þeim
standa orðskviðir eins og „Hverjum er nægjan
nóg“ og „Nóg hefur sá sér nægja lætur“. Seinni
máltækin tvö tjá viðhorf sem lengi var í heiðri
haft hérlendis. Nægjusemi var til skamms tíma
talin vera höfuðkostur á hverjum manni, en í því
efni hefur tíðarandinn breyst svo um munar, og
má raunar segja það um ýmsar fleiri gamlar og
góðar dygðir. Er ekki fjarri sanni að græðgi sé í
seinni tíð orðin eitt helsta auðkenni Islendinga,
enda hefur sálarlaust og lausgeðja hugarfar uppa
um sinn ráðið ríkjum í landinu.
Halldór Laxness hefur manna best lýst við-
horfi nægjuseminnar, ekki síst í Brekkukotsann-
áli, Kristnihaldi undir Jökli
og Dúfnaveislunni. Björn í
Brekkukoti, séra Jón
Prímus og Pressarinn eru
nokkurs konar holdgerv-
ingar þeirra viðhorfa
nægjuseminnar sem stund-
um eru kennd við taó. Þau
lýsa sér í fullkominni sátt
við Guð og menn, friði í
sálinni og hlutlausu sam-
þykki við veröldinni eins
og hún er á sig komin. Slík
viðhorf vekja að vísu ekki
upp umbótamenn eða
heimsfrelsara, en þau
leggja áherslu á að maður-
inn sé óaðskiljanlegur hluti
náttúrunnar og alheimsins,
hafi sitt tiltekna og afmark-
aða hlutverk eins og liljur
vallarins og fuglar himins-
ins.
Græðgin (að líkamlegri
ofnautn frátalinni) er með
þeim ósköpum náttúruð,
að henni verður aldrei
fullnægt, og má einu gilda
hvort rætt er um fégræðgi,
valdafíkn eða lífsþæginda-
græðgi. Sennilega er hér
um að ræða einu ástríðu
mannsins sem engin leið er
að svala. Af þeim sökum
jaðrar hún einatt við
geðveiki. Til sanns vegar
má færa að valdamiklir menn á borð við Alex-
ander mikla, Tamerlein, Dsénghis Khan,
Napóleon, Stalin Hitler og Mússólini hafi um
það er lauk verið fullkomlega vitskertir, og sömu
sögu er reyndar að segja um marga minni spá-
menn. Það er ekki einasta að völd spilli mönnum
og alger völd gerspilli mönnum, heldur svipta
þau þá að jafnaði vitinu. Við eigum fá kunn
dæmi um græðgi sem nálgist geðveiki, en verðug-
ur kandídat í það ókræsilega hlutverk er vitaskuld
settur framkvæmdastjóri Ríkissjónvarpsins. Fé-
græðgi hans og valdafíkn virðast ekki eiga sér tak-
mörk, enda sagði einn af kunningjum hans í mín
eyru: „Það verður ekki stjórnlaus frekjan heldur
fégræðgin sem kemur honum á kné.“
I Alexanders sögu segir frá því að Skýþar
sendu erindreka á fund Alexanders mikla til að
telja um fyrir honum þegar hann hugðist leggja
undir sig Indland. Meðal þess sem sendiboðinn
sagði voru þessi minnisverðu orð: „Þig mun
skorta æ því meir sem fleira fer undir þig.“ Alex-
ander lét ekki segjast, og er saga hans skóladæmi
um græðgi sem engin leið var að seðja, þótt
margt væri vel um hann sem mann og menning-
arfrömuð.
Lífsþægindagræðgi Islendinga hefur komið
þeim á kaldan klaka efnahagslega, sem er kannski
síður ísjárvert en hitt að hún hefur spillt hugar-
fari þeirra og gersamlega ruglað þá í ríminu varð-
andi eiginleg lífsgildi og lífsgæði. Það er útbreidd
skoðun að lífsþægindi jafngildi lífsgæðum, og
mun fátt vera íjær veruleikanum. Lífsgæði felast
ekki í eignum eða öðrum hégóma sem menn
sanka að sér, heldur í góðum vinum, ástríkri
sambúð, mannvænlegum afkvæmum, andlegu
jafnvægi, sátt við lífið, óttaleysi við framtíðina,
hugarró hvort heldur er í basii eða búsæld. Lífs-
gæði eru afrakstur andlegs þroska eins og fyrr-
nefndar söguhetjur Laxness leiða eftirminnilega í
Ijós. Þau sannindi eiga Islendingar eftir að læra
upp á nýtt, eigi þeim vel að farnast.
Græðgi sprettur af innri ófullnægju, einhverri
sálrænni vöntun sem reynt er að breiða yfir eða
vega upp á móti með hóflausri söfnun ytra gling-
urs (fé og völd eru ekki annað en forgengilegt
glingur) sem talið er mega notast „sem uppfylling
í eyður verðleikanna". Einkaneysla Islendinga er
hrollvekjandi vitnisburður um kolruglaðan lýð
sem hefur haft hausavíxl á sýnd og reynd, með af-
leiðingum sem enginn sér fyrir endann á. Senni-
lega eiga uppvaxandi kynslóðir í landinu eftir að
bíða mestan skaða af gegndarlausri græðgi kyn-
slóðanna sem létu glepjast af stríðsgróðanum og
sukkinu sem honum fylgdi.
eftir Þórarin Eldjárn
Sumum finnst letinni gert of hátt undir höfði
þegar fullyrt er að hún sé verst af dauðasyndun-
um sjö þar sem hún feli allar hinar í sér: Letin er
lastanna móðir.
Og rétt er það, í fljótu bragði getur þessi upp-
hefð letinnar virst nokkuð einkennileg og óverð-
skulduð. I hópi syndanna sýnist hún fljótt á litið
meðal hinna ómerkilegri. Það er ekki töff að vera
latur, maður sér fyrir sér værukæran vesaling sem
liggur á meltunni og gerir svo sem engum neitt
nema sjálfum sér. Hann er ekki hættulegur á
nokkurn hátt, fyrst og fremst metnaðarlaus og
kannski dálítið fyrirlitlegur ef manni finnst það
þá ómaksins vert að fyrirlíta greyið. Leti er yfir-
leitt ekki talin merki um stórmannlegan brest í
skapgerðinni, en það finnst sumum að losti, reiði,
óhóf, öfund, hroki og græðgi geti verið. Lostinn,
reiðin og óhófið stafi af skapsmunum sem eru
stærri í sniðum en hjá meðalmanninum. Öfund,
84
EINTAK NÓVEM BER