Eintak - 01.11.1993, Blaðsíða 116

Eintak - 01.11.1993, Blaðsíða 116
PLOTUR Ární Johnsen: Vinir og kunningjar Inniheldur eitthvert forkostulegasta lag sem hefur heyrst í síðari tíð á íslandi, útgáfu Árna á þeim fræga slagara Cottonfields. Nema hvað Árni færir bómullarakrana úr ameríska suðrinu í íslenska suðrið, nefnilega í Pykkvabæinn þar sem þeir breytast í kartöflugarða. Þetta er svo ómótstæði- lega vitlaust og vont að útvarpsstöðvar hafa ekki getað stillt sig um að spila lagið oft á dag. Og Árni nær sjálfsagt að grafa einhver atkvæði upp úr kartöflu- görðunum í Þykkvabæ fyrir vikið, eða hvað? Að öðru leyti er Árni við sama heygarðshornið og fyrir næstum tuttugu árum síðan þegar hann gerði Halldóri Laxness þann óskunda að syngja Ijóð hans inn á plötu. Það sem vantar upp á raddgæðin reynir hann að bæta upp með því með því að teyga mikið loft ofan í lungun og blása því svo upp aftur. Sjálfsagt verður Árni áfram aufúsugestur með gítarinn sinn og lögin á samkomum Vísnavina, en þess er varla að vænta að honum verði tekið með fögnuði annars staðar. Maður sem syngur svona getur varla átt marga sanna vini eða kunningja. Þeir hefðu fyrir löngu ráðið honum heilt og sagt honum að nú væri mál að linni. 1999 krónur. Nirvana: In Utero Einu sinni felldu mæður tár þegar þær heyrðu vælið í gítarnum hans Jimi Hendrix. Þeim fannst það svo Ijótt. Nú er varla neitt sem getur grætt mæður okkar lengur; líklega eru þær aldar upp á rokki og kalla ekki allt ömmu sína í því efni. Þó mætti kannski prófa Nirvana. Því þetta er óþægileg músík og kannski er hún líka Ijót. Að minnsta kosti hljóma tappar eins og Johnny Lydon eins og vælukjóar miðað við klemmd þjáningaröskrin í Kurt Cobain, söngvara hljómsveitarinnar. En þetta er líka áleitin músík, ágeng, full af djöflum og púkum - og erum við það ekki líka, að minnsta kosti sum? 7 799 krónur. Vinir Bob Dylans: The Thirtieth Anniversary Collection Vinir Dylans halda honum konsert í tilefni af því að hann hefur sungið inn á plötur í 30 ár. Það er dæmigert að einn maður hvorki sér þá né heyrir - sjálfur Dylan sem situr í rútu utan við hljómleikahöllina. Birtist síðan i kortér og syngur Song for Woody Guthrie og It's allright ma, l'm only bleeding. Sem í Dylanfræðunum þýðir að þessa dagana er hann með hugann við fortíðina, en líka svolítið reiður. En Dylan er i ágætu formi og líka sumir vina hans; Eric Clapton rennir sér með glæsibrag í gegnum Don't think twice, Neil Young djöflast í gegnum All along the watchtower, en George Harrison fer mjúklega með Absolutely Sweet Mary. Þeir sem koma þægilegast á óvart eru soulsveitinn The O'Jays og öldungarnir Clancy- bræður sem syngja Dylan eins og hann væri írskt þjóðlagaskáld. Allur stjörnufansinn sameinast svo í My back pages, líflegri útgáfu á einhverju frábærasta Dylanlaginu. Maður hefur meira að segja á tilfinningunni að brugðið hafi fyrir gömlu brosi á andliti Dylans. 2999 krónur (2 diskar). Andrew Lloyd-Webber: The Music of Andrew Lloyd-Webber Sumir þola ekki þennan mann. Og hafa kannski að vissu leyti rétt fyrir sér. Roger Waters úr Pink Floyd segir að hann sé fábjáni. Hann malar gull; það er sagt að hann sé tekjuhæsti tónlistarmaður í heimi. Og hann kann að semja falleg lög; að minnsta kosti vefjast sykursætar melódíur ekki fyrir honum. Hann er líka fulltrúi svolítið glæsilegrar hefðar, gömlu söngleikjahefðarinnar sem átti sitt glæstasta skeið á Broadway um miðja öldina. Lloyd-Webber er í raun sá sem heldur í henni lífinu; flestir söngleikir sem núorðið eru á leiksviðum heimsins eru hans verk. Og hér eru lög úr þeim öllum. Flestir sem einhvern tíma hafa raulað Don't cry for me Argentina ættu að hafa nokkurt gaman af þessu. Lloyd- Webber er líka prýðilega stofuhæfur, enda gerðu þeir hann að sir, en kannski ekki alltaf fullkomlega smekklegur. Að minnsta kosti er tilfinningasemin stundum út í hróa. 2099 krónur (4 diskar). Þetta er skrítinn heimur. Pínulítíð óútreiknanlegur, Og kannski sem betur fer. Er til dæmis ekki allt í lagi að vera dálítið þakklátur fyrir duttlunga tískunnar? Hún er, þegar öilu er á þotninn hvolft, ein aðferð mannsins til að forðast fásínni og leiðindi. Það sem þótti hallæris- legt í gær þykir smart í dag og svo hversdagslegt á morgun að við tökum ekkí eftir því, I gömlu kommúnistaríkjunum var varla til nein tíska svo heitíð geti, enda voru þau vísast einhver leiðinlegustu samfólög sem hafa verið til á jörðinni, Allt var framleitt af verksmiðjum í eigu ríkisins, og ríkisforstjórarnir höfðu um annað að hugsa en að hlaupa á eftir einhverri tísku sem var ær og kýr kapítalistanna fyrir vestan, Þeir hugsuðu um afköst, en fannst neysluvörur hið mesta vand- ræðamál. Eiginlega óþarfi Af því leiddi að fatnaður og varningur í austan- tjaldsrlfyum var einsleitur og ótrúlega púkalegur, næstum dásamlega svo, eða það finnst að minnsta kosti þeim þrælum tískunnar sem aðeins fjórum árum eftir fall Berlínarmúrsins eru til í að greiða háar fjár- hæðír fyrir svokallað Austur-Evrópu-kits; alls kyns dót sem kommar prönguðu upp á almúgann undir því yfirskyni að Beirette-ljósmyndavél þarna væri nútímaleg og framsækin hátískuhönnun, Og af því að tískan er duttlungafull er hún næstum sammála; það sannast enn einu sinni að hórumbil ekkert er svo fráleitt að hún getí ekki tekið það upp á arma sína, Kannski á íslensk hönnun einhvern sóns? ^táSSSé Silca F-tannkrem 116 EINTAK NÓVEMBER
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124

x

Eintak

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eintak
https://timarit.is/publication/309

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.