Eintak - 01.11.1993, Síða 78

Eintak - 01.11.1993, Síða 78
Og brýnirðu það fyrir börnunum? EB: Já, ég geri það. Það er alveg hægt að gera sér glaðan dag og skemmta sér innan um fólk þótt maður sé ekki að drekka áfengi. Þú hefur ekki einfaldlega fengið ógeð á áfengi eftir að hafa horft upp á hvernig það fór með líf þitt og þeirra sem þér þótti vænst um? EB: Jú, maður fær ógeð á því hvort sem maður neytir þess eða ekki. En Súsanna, þú drekkur? SS: Ég hef ekkert á móti áfengi. Maðurinn var alkóhólisti. Áfengi fór svona í hann. En það fer ekki svona í mig. Ég drekk rnjög í hófi. Áfengi fer ekki svona í neinn mann sem ég þekki, sem á annað borð drekkur í hófi. Það er því ekki við áfengið að sakast. Það eru mennirnir sem hafa komið óorði á áfengið. Eins og einkunnarorð bandarísku rifflasamtakanna: Byssur drepa ekki fólk. SS: Já, ég er byssubófi. Ég hef aldrei fengið ógeð á áfengi, en auðvitað hef- ur það áhrif á mig eins og annað fólk. Það hefur komið fyrir að ég hef ekki bragðað áfengi í langan tíma, þegar ég hef farið í gegnum erfið tímabil. Maður þarf að vera í góðu jafnvægi þegar maður fær sér í glas. Nú var ykkar drykkja ekkert vanda- mál. Eftir sem áður voruð þið sýkt- ar. Það má segja að þið hafið borið sjúkdómseinkenni af sjúkdómi ann- arrar manncskju. SS: Sá sem tekur þátt í þessum leik á móti alkóhólistanum er jafnþjáður af afneitun og dómgreindarleysi og alkóhólistinn sjálfur. Kannski giffist hann alkóhólistanum vegna þess að hann hafði þessi sjúkdómseinkenni fyrir. Einstaklingar smella saman vegna þess að lífsýn þeirra og hugs- anakerfi falla saman. Áttu við að þið hafið verið orðnar kóarar áður en þið funduð alkana ykkar? Að þið hafið leitað ykkur að tcmmilegum aumingja til að hlúa að? SS: Nei, alls ekki. Það stígur enginn á stokk og segist ætla að leita sér að aumingja - fyrir utan það að alkóhól- istar eru ekki aumingjar. Það er eng- inn sem velur sér þetta hlutskipti, hvorki að verða alkóhólisti né kóari. Við segjum ekki þegar við erum börn: Ég ætla að verða alkóhólisti og brjóta og týna öllu og öllum í kring- um mig. Það segir heldur enginn: Ég ætla að verða kóari þegar ég er orðin stór og safna í kringum mig veikgeðja fólki svo ég líti alltaf betur út en hin- ir. Svo ég geti blásið upp lélegt sjálfs- mat með því að vera svo helvíti snyrtilegur miðað við hina. Þetta er tilfinningalegur sjúkleiki sem enginn vill hafa. Hvenær áttaðirðu þig á að þú værir tilfinninga- lega sjúkur aðstandandi alkóhólista? SS: Það var ofboðslega stuttur tími sem ég var aðstandandi. Ég áttaði mig ekki á að maðurinn væri alkóhólisti fyrr en eldri dóttir okkar fæddist. Þá vorum við búin að vera gift í rúmt ár. Þegar við giftum okkur sagði ég: Svona er þetta á mínu heimili - börn og drykkja fara eJdci saman - svona vil ég hafa þetta og þú verður að virða það. Og hann hlýddi. En eftir að fyrri dóttur okkar fæddist byrjaði alkóhólismi hans að ágerast og það gerðist mjög hratt. Ég skildi ekkert hvað var að gerast. Það komu sprengjur. Ég reifst, grét og barmaði mér. Og hann grét ennþá meira yfir að hafa komið svona frarn við mig og barmaði sér ennþá meira. En ég gekkst aldrei inn á að ástæð- an fyrir þessari hegðun hans lægi hjá mér. Mér fannst það alltaf dálítið sérkennileg fullyrðing af hans hálfu. Það getur aldrei verið öðrum að kenna hvernig maður hegðar sér. Hvers konar aðstandandi varst þú? SS: Ég talaði. Við vorum sífellt að ræða málin. Ég hef enn þann dag í dag ofnæmi fyrir setningun- um „þurfum við ekki að ræða saman" og „eigunt við ckki að ræða málin“. Þetta eru tvær setningar sem ég þoli ekki. Þetta var algjörlega tilgangslaust tal. Ég var svo heppin að Inga Bjarnason rétti mér bókina Konur sem elska of mikið og sagði mér að lesa hana. Ég las bókina á einni nóttu, áttaði mig á að ég bjó með alkóhólista og var komin á Alanon-fund kvöldið eftir. Og hvað gerðirðu þegar þú áttaðir þig á þessu? Sagðirðu manninum að þú létir ekki bjóða þér upp á þetta og skildir við hann? SS: Nei, drottinn minn dýri, það vildi ég ekki. Reyndirðu að þurrka hann? SS: Nei, ég reyndi það aldrei. Ég reyndi að ræða við hann á þeim nótum að hann vildi það sjálfur. Gekk það? SS: Nei, engan veginn. Það var algjörlega von- laust. Varst þú jafnfljót að átta þig, Edda? EB: Nei, nei. Ég féll í allar þær gryfjur sem hægt er að falla í. Ég notaði öll tiltæk ráð til að fá hann til að hætta að drekka og gerði bókstaflega allt til þess. Ég hélt að það væri á mínu valdi. Ég var bú- in að reyna skilnað og sjá að það vildi ég ekki. Ég vildi halda þessu hjónabandi. Loks áttaði ég mig á því að það var nákvæmlega sama hvað ég gerði, ég gat ekki stjórnað þessari drykkju. Ég gat ekki látið þennan mann hætta. Ég þurfti hjálp til þess að átta mig á því og mér var bent á hvar ég gat fengið hana. Sú fræðsla sem ég fékk og bjargaði mér var á fjölskyldu- námskeiði hjá SÁÁ. Ég vil hvetja alla til að leita þangað ef þeir vilja hjálp. Alkafræðin hafa hugtök yfir ýmsar týp- ur af aðstandendum, píslarvottar, hetj- ur... EB: Það er mjög algeng tegund, hetjan. Sú sem ber sorg sína í hljóði og alls eldci út á torg. SS: Já, það er ntjög mikið af hetjum á Is- landi. EB: Það er svo aðdáunarvert. Eða hvað? SS: Og það felst í því svo rnikil umbun. Tvímælalaust var ég hetja þegar ég stóð í þessu og ég held að Edda hafi verið það líka. Svo er spurning hvort maður sé svona píslarvotta-hetja eða gribbu-hetja. Hvor varst þú? SS: Gribbuhetja, biddu fyrir þér. Þú gætir ekki orðið píslarvottur? SS: Nei, ekki að ræða það. Ég er dálítil öfgamanneskja. Ef mér er mikið niðri fýrir, þá er ntér mjög rnikið niðri fyrir. Þegar ég ætlaði að stjórna lífi mannsins var það örugglega með sterkari vopnum en tárum. Ég get ekki setið úti í horni og grátið. Þú ert sem sagt ekki sérstaldega eftir- sóknarverður aðstandandi fyrir alka? SS: Nei, guð minn góður. Það ntundi hvaða alkóhólisti gefast upp á mér. EB: Og drekka sig í hel í hvelli. SS: Nei, bara forða sér því í dag tek ég ekki að mér að stjórna lífi annarra. Ég pakkaði stjórnseminni inn í mjög fínar umbúðir og áleit mig bara mjög gefandi manneskju. En þegar maður er svona sjúklega gefandi fer maður að gefa hluti sem maður á ekki til. Fólk fer hreinlega að nærast á manni. Maður missir allan þrótt og hefur ekki lengur orku til að sinna börnunum eða vinna. Ég valdi því á milli mín og alkóhólismans. Nú hefur alkóhólismi leikið ykkur dálít- ið grátt. Er leikritið ykkar ekki eintóm- ur harmur? EB: Nei, það er svo margt fýndið sem maður sér eftir á. Við getum grenjað úr hlátri yfir því sem við vorum hér áður fyrr algjörlega í klessu yfir. Okkar leið er að gera grín að okkur prívat og persónulega, draga upp myndir og fólk til að lifa þær með okkur. Við erum að reyna að deila reynslu og fá fólk til að hlæja og hugsa nteð okkur. Leiðin að tilfinningunum liggur nefnilega ekki í gegnum grátur. Hann er lokandi. Leiðin að tilfinningun- um liggur í gegnum hlátur. Leikritið Gúmmiendur syndn ekki verður sýnt í skói- um og á vinnustöðum, en gert út frá Borgarleikhús- inu. Súsanna og Edda skrifuðu það saman og Edda leikstýrir. Leikarar eru Eggert Þorleifsson, Margrét Ákadóttir og Ragnhildur Tryggvadóttir. Edda Björgvinsdóttir „Loks áttaði ég mig á því að það var nákvæmlega sama hvað ég gerði, ég gat ekki stjórnað þessari drykkju. Ég gat ekki látið þennan mann hætta." 7 8 EINTAK NÖVEMBER
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124

x

Eintak

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eintak
https://timarit.is/publication/309

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.