Eintak - 17.03.1994, Síða 7
Heldur fækkaði í
leiðbeinandaliði
World Class í síð-
ustu viku þegar þolfimi-
kennararnir Ágúst
Hallvarðsson og Anna
SlGURÐARDÓTTIR hættU
vinnu á líkamsræktar-
stöðinni og gengu tií liðs
við nýstofnaða þolfimi-
deild hjá Gallerí Sport.
Þar var fyrir kollegi þeirra
Magnús Scheving sem
kenndi einmitt í World
Class um árabil eða þar
til hann hætti síðastliðið
haust. Enginn vafi er á
því aö World Class mun
missa slatta af sínum
kúnnahóp yfir til Gallerí
Sports og bíða menn
innan líkamsræktargeir-
ans spenntir eftir því
hvernig stöðin hyggst
mæta þessarri sam-
keppni fyrrum liðsmanna
sinna...
Systurnar Ragn-
heiður og Berg-
LJÓT DavIðsdóttir
hafa sett á stofn fyrir-
tækið Stílbragð sem sér-
hæfir sig í greinaskrifum.
Meðal þess sem í boði er
er aðstoð við að skrifa
minningargreinar, blaða-
greinar, atvinnuumsóknir
og fleira því tengdu. Lík-
legt er að margir eigi eftir
að fagna þeim fregnum
þar eð margir virðast
eiga erfitt með að koma
hugsun sinni á blað rétt
eins og Víkverji benti svo
hnyttilega á þegar Vöku-
fólk drap niður penna í
Háskólakosningunum
um daginn...
17. tölublaði EINTAKS
var sagt frá hópi
sænskra lækna sem
kom til landsins að
sækja líffæri til ígræðslu í
Svíþjóð úr látnum Islend-
ingum. Haft var eftir
Ólafi Z. Ólafssyni,
svæfingalækni á Borgar-
spítalanum, að engin lög
væru til í landinu um líf-
færaflutninga og málið
væri í athugun hjá ein-
hverri nefnd sem væri
týnd í kerfinu. Páll
Ásmundsson, yfirlæknir
lyflækningadeildar Land-
spítalans, ritaði blaðinu
bréf en hann er formaður
téðrar nefndar sem hefur
meðal annars það hlut-
verk að miðla fræðslu
um líffæraflutninga. I
bréfinu kemur fram að í
mars 1991 hafi verið sett
lög um ákvörðun dauða
og önnur um brottnám
líffæra og í engu tilfelli
megi fjarlægja líffæri úr
látnu fólki án fyrirliggj-
andi samþykkis þess
eða nánustu aðstand-
enda viðkomandi.
HVERS VEGNA NOTAR ÞÚ
RAUTT EÐAL
GINSENG?
Gunnar Eyjólfsson, leikari og
skátahöfðingi:
Það eflir einbeitinguna.
Sigurður Sveinsson
handboltamaður:
Það er nauðsynlegt fyrir svona
gamla menn eins og mig til að
geta haldið endalaust áfram í
handboltanum.
Ásta Erlingsdóttir, grasalæknir:
Ég fmn að það gerir mér gott.
Dýrleif Ármann, kjólameistari:
Það gefur mér kraft og lífsgleði
við saumaskapinn.
Alda Norðfjörð, eróbikkkennari:
Það stóreykur úthald, þrek og þol.
Hildur Kristinsdóttir, klínikdama:
Til að komast í andlegt jafnvægi
og auka starfsþrek.
Rautt Eðal Ginseng
skerpir athygli
og eykur þol.
VOLVO 400 LÍNAN '94
ÞAÐ ER ÓTRÚLEGT EN SATT AÐ ÞÚ GETUR KEYPT
FRAMHJÓLADRIFINN VOLVO HLAÐINN BÚNAÐI Á
1.498.000 KR. KOMINN Á GÖTUNA.
Vökvastýri • samlæsing • veltistýri • rafknúnir speglar
2,0 lítra vél • plussáklæði • fellanlegt sætisbak
bílbeltastrekkjarar • sjálfvirk aðlögun belta • fjölmargar
stillingar á framsætum ásamt mörgu fleiru!
VOLVO
Á BETRA VERÐI FYRIR ÞIG!
FAXAFENI 8 • SIMI 91- 685870