Morgunblaðið - 30.01.2005, Side 2

Morgunblaðið - 30.01.2005, Side 2
2 SUNNUDAGUR 30. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR ÚTRÁS 66º NORÐUR Eigendur 66º Norður áforma að opna tugi verslana í Skandinavíu og víðar í Evrópu á næstu tveimur ár- um. Greint er frá útrás fyrirtækisins á Bandaríkjamarkaði á forsíðu við- skiptahluta bandaríska dagblaðsins The Wall Street Journal á föstudag. Lög um hringamyndun Halldór Ásgrímsson forsætisráð- herra segir að frumvarp viðskipta- ráðherra um endurskipulagningu Samkeppnisstofnunnar og lög um hringamyndun verði vonandi lagt fyrir alþingi á næstu dögum. Kosningar í Írak Fyrstu lýðræðislegu þingkosning- arnar í Írak í hálfa öld verða í dag, sunnudag, en óvíst er um kjörsókn vegna ástandsins í landinu. Rúmlega 14 milljónir manna eru á kjörskrá. Hryðjuverkamenn hafa hótað að að ráðast á kjörstaði og sagt að fólk sem notfæri sér kosningaréttinn sé að ganga erinda Bandaríkjamanna og því réttdræpt. Heilsársskóli á Bifröst Viðskiptaháskólinn á Bifröst mun frá og með næsta háskólaári bjóða nemendum upp á heilsársskóla þannig að stúdentar sem það vilja geti lokið BS gráðu á tveimur árum í stað þriggja með því að leggja stund á nám allt árið. Þetta kom fram í máli Runólfs Ágústssonar, rektors skólans, við útskrift á Bifröst í gær. Mengun í Barentshafi Norskir vísindamenn segja að mengun vegna eiturefna geti vaxið á næstu árum í Barentshafi og svo geti farið að setja verði reglur um hámarksneyslu á fiski og kjöti frá svæðinu. Óttast útflytjendur að þetta geti eyðilagt ímynd hreina og óspillta fisksins frá Norðurhöfum. 12,1% raunávöxtun LV Raunávöxtun eigna Lífeyrissjóðs verslunarmanna (LV) var 12,1% í fyrra sem og árið 2003. Y f i r l i t Í dag Sigmund 8 Auðlesið 46 Ummælin 11 Myndasögur 48 Hugsað upphátt 19 Dagbók 48/50 Þjóðlífsþankar 29 Víkverji 48 Sjónspegill 30 Staður og stund 50 Listir 31,51/53 Leikhús 52 Forystugrein 32 Af listum 53 Reykjavíkurbréf 32 Fólk 54/61 Umræðan 34 Bíó 57/61 Bréf 36 Sjónvarp 62 Hugvekja 40 Veður 63 Minningar 40/44 Staksteinar 63 * * * Kynningar – Morgunblaðinu fylgir auglýsingablaðið Ferðaáætlun 2005 frá Útivist. Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@mbl.is Skarp- héðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is LÍKLEGT er að fjöldi manns muni fara fram á bætur vegna slyssins við Ingólfstorg á Hinsegin dögum í ágúst 2002, þegar skyggni féll á stór- an hóp áhorfenda, á grundvelli dóms sem féll í Hæstarétti þar sem Reykjavíkurborg var dæmd til að greiða konu sem slasaðist 2,5 millj- ónir króna. Ríflega 30 manns voru fluttir eða leituðu á slysadeild í kjölfar slyssins. Meiðsli þeirra voru misjafnlega al- varleg en fram kom í Morgunblaðinu á sínum tíma að ein stúlka brákaðist á tveimur hálsliðum og önnur hlaut samfall á hryggjarliðum. Tjón vegna slyssins fellur á Sjóvá- Almennar sem var tryggingarfélag Reykjavíkurborgar. Ekki fengust upplýsingar hjá félaginu um hversu margir hefðu leitað til þess vegna slyssins og talið sig eiga rétt á bót- um. Stefán Geir Þórisson hrl. sem flutti málið f.h. konunnar sagðist vita af því að a.m.k. tveir ætluðu að óska eftir bótum en væntanlega yrðu þeir mun fleiri. „Það er klárlega von á fleiri bótakröfum,“ segir hann. Hann segir dóminn leggja töluvert ríkar skyldur á Reykjavíkurborg og þar með á aðra sem bjóða fram aðstöðu fyrir útiskemmtanir. Stefán segir að mál sem er í gangi í Danmörku vegna banaslysa á Hróarskelduhá- tíðinni fyrir nokkrum árum, reyni í raun á sömu meginreglur. Málin snúist um ábyrgð þeirra sem halda hátíðirnar og þeirra sem leggi til að- stöðuna. Slysið á Hinsegin dögum „Klárlega von á fleiri bóta- kröfum“ Yfir 30 manns fóru á slysadeild PLAN B er nafn nýrrar hljómplötuútgáfu sem Einar Bárðarson er að hleypa af stokkunum. Meðal verkefna á fyrsta starfsári fyrirtækisins verður útgáfa á fyrstu sólóplötu tenórsöngv- arans Garðars Cortes yngri og ný plata með hljómsveitinni Skíta- móral. Þá stefnir Plan B á að vinna hljómplötu stelpnabandsins Nylon brautargengi erlendis. Í viðtali við Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur í Tímariti Morgunblaðsins í dag segir Einar frá uppvexti sínum og aðdraganda að því að hann hellti sér út í „tónlistarbransann“ en næst- komandi miðvikudag stýrir hann verð- launaafhendingu Ís- lensku tónlistarverð- launanna í fjórða og jafnframt sitt síðasta sinn. Meðal samstarfs- aðila hans í nýja hljómplötufyrirtæk- inu eru tónlistar- mennirnir Friðrik Karlsson og Nigel Wright, en hann er meðal annars þekkt- ur fyrir að hafa verið tónlistarstjóri Idol- keppninnar hér heima og „hirðtónlistarstjóri“ söng- leikjahöfundarins Andrew Lloyd Webbers. Fyrsta platan frá Plani B Einar Bárðarson VARÐSKIPIÐ Týr megnaði ekki að draga Dettifoss Eimskipafélagsins, sem varð stýrisvana austur af Eystrahorni, til Eskifjarðar í fyrri- nótt vegna illviðris og stærðarmun- ar á skipunum. Beðið var því um að- stoð varðskipsins Ægis og var það sent á vettvang í gærmorgun. Varð- skipsmönnum á Tý sem kallaðir voru til aðstoðar kl. 20.25 á föstu- dagskvöld hafði tekist að koma taug í Dettifoss en hún slitnaði kl. 23.37. Reynt var aftur með góðum árangri og var þá ákveðið að halda kyrru fyrir með taugina á milli skipanna. Að sögn Halldórs V. Guðmundsson- ar skipstjóra á Dettifossi þótti ekki ráðlagt að hafast meira að um sinn þar sem Dettifoss var of þungur í drætti fyrir Tý í suð-suðvestan- stormi, 18–23 m/s. Því var ákveðið að halda sjó og bíða komu Ægis sem væntanlegur var um klukkan 11. „Við erum það stórir að það þarf að hafa taug í báðum endum til að stýra okkur,“ sagði Halldór. „Það hefur verið leiðinda vindur af landi og við höfum því varla færst neitt úr stað en við reynum að fara með gætni.“ Þrettán manns í áhöfn Þrettán manns eru í áhöfn Detti- foss og höfðust þeir allir vel við að sögn Halldórs, þrátt fyrir leiðinda velting. „Það er haugasjór en að öðru leyti er allt í lagi,“ sagði hann. Dettifoss sem er 14.664 brúttó- tonn að stærð var fulllestaður af gámum sem Halldór sagðist vonast til að færu ekki að velta til í lestinni. Týr er hins vegar ekki nema rúm 900 brúttótonn að stærð og jafnstór systurskipinu Ægi. Vegna stormsins var 3–4 mílna rek á Dettifossi en með því að keyra vélar og vera bundinn við Tý aðfara- nótt laugardags hélt Dettifoss sömu staðsetningu sinni nokkrum sjómíl- um austan við Eystrahorn. Gert var síðan ráð fyrir því að gera aðra til- raun við að taka skipið í tog til Eski- fjarðar þegar aðstoðin frá Ægi kæmi. Dettifoss var of þungur í drætti fyrir varðskipið Tý Héldu kyrru fyrir með taug á milli í haugasjó Varðskipið Ægir sent til aðstoðar                                      !   "  #   $      %   $  "  „HEYRÐU, það er frekar tregt, fé- lagi, ansi tregt,“ sagði Hörður Harðarson á dögunum þegar fréttaritari innti hann eftir afla- brögðum. Smári ÞH 59, bátur Harðar, var þá að leggjast að bryggju á Húsavík eftir netaróður á Skjálfanda. Hörður sagði gæftaleysi hafa verið fram eftir janúarmánuði hjá smærri bátum á Húsavík. „Við lögð- um ekki netin fyrr en um miðjan mánuð og aflabrögðin hafa verið lé- leg til þessa,“ sagði Hörður. Hörður gerir bátinn út í félagi við Randver Sigurðsson. Hann var keyptur frá Djúpavogi sl. haust og eru þeir tveir í áhöfn og leggja upp afla sinn hjá saltfiskverkun GPG á Húsavík. Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson Hörður Harðarson tilbúinn með landfestar í stafni Smára eftir netaróður. Húsavík. Morgunblaðið. Tregt í netin hjá Smára VÖRUBÍLL með gáma fauk út af veginum til móts við býlið Dverga- stein rétt norðan Akureyrar um kl. 7.30 í gærmorgun. Samkvæmt upp- lýsingum lögreglunnar á Akureyri hlaut bílstjórinn minniháttar meiðsl en var fluttur með sjúkrabíl á slysa- deild. Nokkur erill var hjá lögreglunni á Akureyri í fyrrinótt og gærmorgun vegna fjúkandi hluta. Munu þakplöt- ur hafa losnað á einum stað, en ekki er vitað um verulegt tjón. Flutningabíll fauk út af TVEIR menn sem voru stöðvaðir fyrir hraðakstur í umdæmi lög- reglunnar í Borgarnesi á föstu- dagskvöld reyndust við nánari skoðun eiga fíkniefnabrotaferil að baki. Í ljós kom að þeir voru með 4,5 grömm af ætluðu amfetamíni í fórum sínum og voru handteknir. Eftir yfirheyrslur á lögreglustöð var þeim sleppt og telst málið upp- lýst. Tóku 4,5 grömm af amfetamíni ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.