Morgunblaðið - 30.01.2005, Blaðsíða 8
8 SUNNUDAGUR 30. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Er Maddaman lögð í einelti??
Flugleiðir/Icelandairhafa ráðið 41 flug-mann til starfa nú
nýlega en af þeim hópi
hafa tæplega 30 þegar lok-
ið þjálfun eða eru að ljúka
henni. Þá hefur Flugfélag
Íslands ráðið 12 flugmenn
til starfa hjá félaginu á síð-
astliðnum vikum.
Kjartan Norðdahl
framkvæmdastjóri Félags
íslenskra atvinnuflug-
manna, FÍA, sagði flug-
menn jafnan ráðna á þess-
um tíma til að þeir yrðu
tilbúnir til starfa næsta
vor. „Það er byrjað
snemma því það tekur
langan tíma að þjálfa menn,“
sagði hann. „Það er uppsveifla hjá
okkur, sem betur fer. Mér sýnist
að ráðningar nú séu heldur fleiri
en áður og það er bjartara fram-
undan, aukin verkefni og fólk að
jafna sig eftir 11. september. En
þessar ráðningar hafa legið fyrir
um tíma, það var útlit fyrir aukið
flug næsta sumar en við vonum
bara að þetta sé öruggur upp-
gangur,“ sagði Kjartan.
Halldór Þ. Sigurðsson formað-
ur FÍA sagði að til stæði að auka
áætlunarflug Flugleiða, m.a. yrði
byrjað að fljúga til San Francisco
og þá yrði ferðum til annarra
borga í Bandaríkjunum fjölgað.
Að auki yrðu fleiri ferðir til ým-
issa borga í Evrópu, m.a. til Lund-
úna. „Þannig að þetta verður tölu-
verð aukning í áætlunarflugi og
það er jákvæð þróun,“ sagði Hall-
dór. Einkum í ljósi þess að æv-
inlega ríkti nokkur óvissa varð-
andi leiguflug, þar væru hlutirnir
ekki fastir í hendi. „Það er aldrei á
vísan að róa hvað það varðar.“
Halldór gat þess jafnframt að
aukning væri í innanlandsflugi og
þannig hefði ferðum til og frá Eg-
ilsstöðum fjölgað og þá einkum í
tengslum við virkjunarfram-
kvæmdir sem stæðu yfir á Aust-
urlandi og eins hefði ferðamönn-
um fjölgað. Aukning hefði líka
orðið hjá Íslandsflugi, m.a. varð-
andi fragtflug til Evrópu og víðar.
„Þannig að eins og staðan er nú
má segja að það sé mikill upp-
gangur í greininni og ekki annað
að sjá en hann vari næstu miss-
eri.“
Á nýliðnu ári voru farþegar
með Icelandair, dótturfélagi Flug-
leiða rúmlega 1,3 milljónir talsins,
um 200 þúsund fleiri en árið á
undan og nemur aukningin um
18%. Framboð sæta var 12,5%
meira á liðnu ári en því á undan og
var sætanýting um 75%. Farþeg-
um Flugfélags Íslands fjölgaði um
13,7% milli áranna 2003 til 2004 og
fraktflutningar Flugleiða-Frakt
voru um 26% meiri á liðnu ári en
árinu á undan.
Alls eru rúmlega 500 manns í
Félagi íslenskra atvinnuflug-
manna, þar af um 410–20 virkir fé-
lagsmenn, um 60 aukafélagar og
þá er nokkur hópur félagsmanna á
eftirlaunum. Halldór sagði fé-
lagsmönnum hafa farið fjölgandi á
liðnum misserum. Viðræður
standa yfir að sögn Halldórs milli
FÍA og Frjálsa flugmannafélags-
ins um sameiningu og er stefnt að
því að sameina félögin tvö í eitt
síðar í vetur.
Halldór sagði umskipti hafa
orðið í atvinnugreininni, en ekki
væri mjög langt síðan menn tók-
ust á við niðursveiflu og uppsagnir
í kjölfar hennar. Þannig hefðu síð-
ustu menn sem lentu í uppsögnum
verið að koma inn að nýju í lok síð-
astliðins árs. „Menn eru loksins
búnir að ná sínu fyrra starfi á ný
og við vonum auðvitað bara að
þeir haldi því,“ sagði Halldór.
Hann nefndi að í fluginu væru
ætíð árstíðasveiflur, langmest
væri að gera yfir sumarmánuðina,
en frá nóvember og fram í mars
væri minnst að gera í áætlunar-
fluginu. Þeim væri mætt með
auknu leiguflugi á þeim tíma, sem
þó væri ekki gott að stjórna að
öllu leyti. „Það er alltaf ríkjandi
nokkur óvissa með leiguflugið,“
sagði Halldór.
Farþegum fækkaði umtalsvert
eftir árásirnar 11. september
2001, en Halldór sagði menn vera
að jafna sig eftir það bakslag, en
þó væri staðan sú að fjöldi ferða-
manna frá Bandaríkjunum væri
enn ekki sá sami og var fyrir
hryðjuverkin. „Annars staðar í
heiminum hefur farþegafjöldinn
náð sinni fyrri tölu, en einhver
samdráttur varð í kjölfar fugla-
flensunnar í Asíu,“ sagði Halldór.
Hann sagði að á næstu tveimur
til þremur árum gæti komið til
þess að það vantaði flugmenn.
„Það gæti farið að vanta flug-
menn,“ sagði Halldór og benti á að
mönnum þætti reglugerðar-
ákvæði á Íslandi, svonefnt JAR-
umhverfi sem gilti í Evrópu, vera
þungt í vöfum. „Það er allt orðið
þyngra í sniðum en var, bæði hvað
varðar flugnám og rekstur flug-
skóla, þannig að það hefur dregið
úr aðsókn,“ sagði Halldór og
nefndi að kostnaður við flugnám
hefði aukist umtalsvert á liðnum
árum. Ef aukning í flugi, bæði
áætlunarflugi og leiguflugi hjá ís-
lensku flugfélögunum, yrði í sama
mæli og verið hefði gæti sú staða
því vissulega komið upp að vant-
aði flugmenn til starfa í framtíð-
inni, á næstu tveimur til þremur
árum.
Fréttaskýring | Aukning í flugi leiðir til
uppsveiflu hjá flugmönnum
Áfram búist
við uppgangi
Gengið frá ráðningum nýrra flugmanna
til að mæta aukningu í flugi í vor
Aukning hefur verið í flugi síðustu misseri.
Ferðamannastraumur frá
Japan aukist um 51%
Fjöldi ferðamanna frá Japan
til Íslands hefur tvöfaldast frá
árinu 2001. Um 2.500 japanskir
ferðamenn komu að jafnaði ár-
lega til Íslands áratuginn 1990 til
2000, en ríflega 6.000 ferða-
langar komu þaðan til Íslands í
fyrra að því er fram kemur í
fréttabréfi FÍA. Milli áranna
2003 til 2004 jókst ferða-
mannastraumur frá Japan um
51% sem skilar þjóðarbúinu um
500 milljónum króna í viðbót-
arveltu.
maggath@mbl.is
FÉLAGSFUNDUR var haldinn í
Veiðifélagi Mývatns, einkum til að
ræða tilmæli frá Veiðimálastofnun
um friðun Mývatns fyrir silungs-
veiði, en þau tilmæli eru fram komin
vegna viðvarandi veiðileysis á und-
anförnum árum í vatninu. Á fund-
inum var eftirfarandi samþykkt gerð
einróma:
„Fundur í Veiðifélagi Mývatns
haldinn í Skjólbrekku 28. janúar
2005 samþykkir þau tilmæli til fé-
lagsmanna að framlengja frið-
unartímabilið nú í vetur til 6. mars.
Verði sá tími notaður til viðræðna
við Veiðimálastofnun, landbúnaðar-
og umhverfisráðuneyti og aðra þá
aðila sem við teljum að geti orðið að
liði við að fá aukið fjármagn og
sérfræðiaðstoð til silungsrannsókna.
Á aðalfundi sem haldinn skal eigi
síðar en 6. mars verði svo ákveðið
hvernig brugðist verður við til-
mælum Veiðimálastofnunar um frið-
un Mývatns.“
Veiðifélag Mývatns er 100 ára á
þessu ári og mun vera elsta veiði-
félag á landinu.
Formaður þess er Arngrímur
Geirsson í Álftagerði. Það mun vera
einstakt við þetta veiðifélag að fé-
lagsmenn þess nýta alfarið sjálfir
veiðiréttinn, en svo er nú komið fyrir
þeirri fornfrægu matarkistu Mý-
vatni, að veiðihlunnindi eru nær að
engu orðin vegna viðvarandi veiði-
brests.
Morgunblaðið/Birkir Fanndal
Veiðibændur á félagsfundi í Skjólbrekku: Kári í Garði, Jón Ingi í Vogum, Halldór í Garði, Arngrímur í Álftagerði,
Leifur í Vogum, Gunnar Rúnar í Vogum, Jóhann í Álftagerði, Örnólfur á Skútustöðum og Gylfi á Skútustöðum.
Ákveðið að framlengja
friðunartímabil í Mývatni
Mývatnssveit. Morgunblaðið.
Morgunblaðið/BFH
Viðvarandi veiði-
brestur í vatninu