Morgunblaðið - 30.01.2005, Side 18
18 SUNNUDAGUR 30. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Samband íslenskra banka-manna var stofnað 30. jan-úar árið 1935 og fagnar því70 ára afmæli sínu í dag.Sambandið byggðist upp-
haflega á tveimur starfsmannafélög-
um, Starfsmannafélagi Landsbank-
ans sem var stofnað árið 1928 og
Starfsmannafélagi Útvegsbankans
sem var stofnað 1933. Að því er fram
kemur í bókinni „Með oddi og egg“
um sögu stéttarfélaga á Íslandi, hóf
SÍB þá þegar afskipti af hagsmuna-
málum félagsmanna. Þannig var
fyrsta málið sem kom til kasta þess
ráðning bakara í starf gjaldkera í Út-
vegsbankanum á Ísafirði.
SÍB hefur frá upphafi lagt mikla
áherslu á fræðslu- og menntamál og
hafði framan af ekki mikil afskipti af
kjaramálum. Sambandið mótmælti
þó hinu svokallaða dýrtíðarfrum-
varpi ríkisstjórnarinnar árið 1943 og
hóf á 6. áratugnum að gefa umsagnir
og koma að undirbúningi reglugerða
um störf og launakjör bankamanna.
Árið 1978 fékk sambandið fullan
samnings- og verkfallsrétt en sam-
bandið hefur aðeins einu sinni gripið
til verkfallsvopnsins. Það var í des-
ember árið 1980 þegar SÍB hóf verk-
fall til að mótmæla Ólafslögunum
svokölluðu sem felldu úr gildi 3%
launahækkun sem sambandið hafði
þá nýlega samið um. Verkfallið stóð í
fjóra daga, enda hafði sambandið þá
fengið aftur umsamda launahækkun.
Félagar SÍB eru starfsmenn allra
viðskiptabanka og sparisjóða í land-
inu og einnig þeirra félaga sem þessi
fyrirtæki eiga, s.s. Reiknistofu bank-
anna, Tölvumiðstöðvar Sparisjóð-
anna, verðbréfafyrirtækjanna og
fjármögnunarfyrirtækjanna. Þá eru
starfsmenn Seðlabankans aðilar að
SÍB og einnig starfsmenn Byggða-
stofnunar. Alls eru félagsmenn SÍB
um 3.900 talsins.
SÍB er ekki aðili að heildarsamtök-
um stéttarfélaga en tillaga þess efnis
hefur verið felld á tveimur þingum
sambandsins, síðast í fyrra. Friðbert
Traustason hefur gegnt formennsku
í SÍB frá árinu 1995. Hann segir sam-
bandið ekki hafa goldið þess að vera
utan heildarsamtaka stéttarfélaga.
„Okkur hefur farnast vel að vera
sjálfstæð og höfum fram til þessa
ekki haft neitt til heildarsamtaka að
sækja. Við erum í langflestum tilvik-
um með betri réttindi en önnur stétt-
arfélög og sumir félagsmenn eru
hræddir um að þau myndu skerðast
ef við gengjum til samstarfs við önn-
ur stéttarfélög. Auk þess hefur það
heldur ekki alltaf legið ljóst fyrir inn-
an hvaða samtaka SÍB ætti best
heima, þegar félagsmenn voru starfs-
menn bæði einkabanka og ríkis-
banka. Þetta væri þó ekki vafamál í
dag, enda eru félagsmenn allir starfs-
menn einkafyrirtækja og þess vegna
ætti SÍB eingöngu samleið með ASÍ
ef til þess kæmi.“
Standa vörð um réttindin
Friðbert segir að hlutverk stéttar-
félaga sé nú sem endranær fyrst og
fremst að standa vörð um réttindi
starfsmanna. Hlutverk og skyldur
stéttarfélags séu þó mun fleiri og fjöl-
breyttari. „Ég er þeirrar skoðunar að
stéttarfélög eigi að semja um kaup og
kjör fyrir hönd sinna félagsmanna
upp að vissu marki, þannig að tryggt
sé að kjör þeirra haldist í takt við
hagvaxtarþróun og vísitöluþróun.
Við höfum því lagt áherslu á að semja
um launataxta og um 75% okkar fé-
lagsmanna eru á launatöxtum.
En þegar búið er að ávinna rétt-
indin þarf stöðugt að standa vörð um
þau. Það verður sífellt algengara að
reynt sé að skerða réttindi starfs-
fólks og stéttarfélögin þurfa í aukn-
um mæli að standa á bak við sitt fólk
varðandi til dæmis lögfræðikostnað
og aðstoða það þegar það lendir í bar-
áttu við launagreiðanda.“
Menntunarmálin sífellt mikilvægari
Friðbert segir að SÍB hafi áunnið
mjög góð lífeyrisréttindi fyrir sína fé-
lagsmenn, sem og góðar líf- og slysa-
tryggingar. Þá hafi sambandið verið í
fararbroddi varðandi fæðingarorlof.
„En sí- og endurmenntun er senni-
lega sá þáttur í starfsemi stéttar-
félaga sem breyst hefur hvað mest á
undanförnum árum og áherslan á
þennan þátt fer stöðugt vaxandi. Við
erum til að mynda í mjög góðri sam-
vinnu við bankana í þeim efnum,
enda eru bankarnir sennilega þau
fyrirtæki sem leggja hvað mest í
menntamál. Um 2,5% af rekstrar-
kostnaði bankanna liggja í sí- og end-
urmenntun.
SÍB hvetur félagsmenn sína ein-
dregið til að nýta sér þá menntunar-
kosti sem í boði eru innan sem utan
fyrirtækjanna og styður fólk til
menntunar á öllum stigum. Við erum
til dæmis í samstarfi við Menntaskól-
ann í Kópavogi um sérstaka fram-
haldsskóladeild sem bæði er í stað-
námi og fjarnámi fyrir starfsmenn
fjármálafyrirtækja sem vilja sækja
sér sérhæfðar námseiningar á fram-
haldsskólastigi. Einnig erum við í
samstarfi við Háskólann í Reykjavík
og Viðskiptaháskólann á Bifröst fyrir
þá sem vilja sækja sér aukin réttindi
eftir stúdentspróf. Jafnframt erum
við í samstarfi við endurmenntunar-
stofnanir Háskóla Íslands og Háskól-
ans í Reykjavík. Við viljum með
þessu gera félagsmenn okkar hæfari
til að fást við þær öru breytingar og
framþróun sem á sér stað á vinnu-
markaðnum almennt, og jafnframt ef
aðstæður breytast eigi fólk fleiri
tækifæri á vinnumarkaðnum en ella.“
Sí- og endurmenntunarmál taka
þannig einna mestan tíma starfs-
manna SÍB um þessar mundir.
„Einnig hafa jafnréttismál verið fyr-
irferðarmikil í okkar starfi síðustu
misseri. Innan allra banka eru starf-
andi jafnréttisnefndir sem vinna í
nánu samstarfi við SÍB. Um 70% fé-
lagsmanna SÍB eru konur en hlutur
kvenna í stjórnunarstöðum innan
bankanna hefur ekki verið sem
skyldi, þrátt fyrir að innan bankanna
séu margar mjög vel menntaðar og
hæfar konur.“
Láta fara lítið fyrir sér
Aðspurður tekur Friðbert undir
það að ekki hafi farið mikið fyrir SÍB
í kjaraumræðunni á undanförnum
áratugum. Hann segir það reyndar
vera nokkuð meðvitað sem sam-
bandið reyni að láta fara lítið fyrir sér
án þess þó að gefa eftir í baráttunni
fyrir bættum kjörum sinna umbjóð-
enda. „Að mínu mati þarf að ríkja
traust á vinnumarkaði og gagnkvæm
virðing viðsemjenda. Við höfum aldr-
ei byrjað kröfugerð okkar á því gefa
upp fyrirfram ákveðnar kröfur og
festast síðan í skotgröfunum sem
leiðir oft til skítkasts áður en menn
setjast að samningaborðinu. Við höf-
um komist hjá því í gegnum tíðina og
þess vegna hafa kjarasamningar
okkar jafnan farið hljótt.“
Útrásin hefur áhrif
Íslenskur fjármálamarkaður hefur
tekið algerum stakkaskiptum á allra
síðustu árum og segir Friðbert að
þessar breytingar hafi einnig haft sín
áhrif á stéttarfélagið. „Útrás stóru
fjármálafyrirtækjanna hefur breytt
Forðast skotgrafirnar
Það er jafnan hljótt um kjarabaráttu bankamanna
en þeir njóta engu að síður einna bestu réttinda ís-
lenskra launþega. Samband íslenskra bankamanna
fagnar 70 ára afmæli sínu um þessar mundir og af
því tilefni ræddi Helgi Mar Árnason við formann
sambandsins, Friðbert Traustason.
Morgunblaðið/Silli
Gjaldkerastöður í bönkunum hafa alltaf verið skipaðar konum en konum í stjórn-
unarstöðum fjölgar hægt. Úr afgreiðslusal Landsbankans á Akureyri 1954.
Morgunblaðið/Þorkell
Friðbert Traustason, formaður Sambands íslenskra bankamanna.
„SAMSTARF bankamanna og stjórn-
enda bankanna hefur alla tíð verið
með ágætum og báðir aðilar notið
góðs af því,“ segir Sólon Sigurðsson,
fyrrverandi bankastjóri, sem gegndi
formennsku í Sambandi íslenskra
bankamanna á árunum 1975 til 1979
en segja má að á þessum árum hafi
sambandið orðið að alvöru verkalýðs-
félagi.
„SÍB varð í raun ekki stéttarfélag í
eiginlegum skilningi fyrr en árið 1977
þegar samningsréttur bankamanna
var viðurkenndur og staðfestur með
lögum. Jafnframt fengu bankamenn
um leið verkfallsrétt, rétt sem reyndar
hefur lítið verið notaður.“ Sólon segir
að lengst af hafi farið hljótt um starf-
semi félagsins og sjaldan slegið alvar-
lega í brýnu milli þess og viðsemjenda
þess. „Það er þó alls ekki þannig að
menn hafi alltaf verið sammála. En
jafnan hafa málin verið leyst í mikilli
sátt og í gegnum tíðina hafa banka-
menn átt velvilja stjórnenda bankanna
og mætt skilningi. Það er kannski
vegna þess að félagið er ekki ýkja stórt
og semur auk þess fyrir hönd starfs-
manna allra bankanna. Það hefur kom-
ið sér vel fyrir báða aðila, enda eru
bankamenn þeir launþegar sem njóta
hvað bestu réttindanna,“ segir Sólon.
Sólon Sigurðsson, fyrrverandi bankastjóri og fyrrverandi formaður SÍB.
Sjaldan slegið alvarlega í brýnu
Morgunblaðið/Golli
Í SÍÐUSTU kjarasamningum náðum við
fram fullum launum í fæðingarorlofi fyr-
ir okkar félagsmenn og erum afskap-
laga stolt af því,“ segir Helga Jóns-
dóttir, varaformaður Samtaka íslenskra
bankamanna og formaður Félags
starfsmanna Landsbanka Íslands hf.
Hún segir að allir bankamenn, konur
jafnt sem karlar, fái nú greiddan allan
mismun þess sem þeir fá úr fæðing-
arorlofssjóði og af fullum launum. Þar
að auki greiði bankarnir sérstakan fæð-
ingarstyrk, rúmar 40 þúsund krónur.
„Bankamenn hafa alla tíð haft mjög góð
kjör í fæðingarorlofi og hafa reyndar
verið í fararbroddi í þeim efnum. Við
tókum fyrst upp hina svokölluðu 80%
reglu í kjarasamningunum 1997 og í
reynd má segja að lög um fæðing-
arorlof sem síðar voru sett hafi byggst
á okkar samningi. Bankarnir hafa alla
tíð verið tilbúnir að koma til móts við
fólk í þessum efnum, til dæmis ef fólk
vill lengja fæðingarorlof sitt með því að
vinna í hlutastarfi.“
Helga segir að SÍB taki þátt í nor-
rænu jafnréttisstarfi og þar hafi verið
reynt að kortleggja fjölda kynjanna í yf-
irmannsstöðum í bönkum og fjár-
málastofnunum. Hún segir að staðan
sé svipuð á öllum Norðurlöndunum,
það er að konur séu jafnan í miklum
minnihluta í æðri stjórnunarstöðum.
„Samkvæmt lögum eru í gangi jafnrétt-
isáætlanir innan bankanna og þar
starfa jafnréttisnefndir í nánu samstarfi
við starfsmannafélögin og SÍB. Það
sem hefur áunnist í þessum málum á
seinni árum er að hlutfall kvenna í stöð-
um útibússtjóra hefur verið að aukast
og konum í stöðum millistjórnenda
fjölgar jafnt og þétt. Vonandi heldur
þessi þróun áfram þegar kemur að öðr-
um stjórnunarstöðum í bönkunum.
Reyndar er hlutfall karla og kvenna
nokkuð breytilegt innan einstakra sviða
bankanna því svo virðist sem konur
velji sér annars konar störf en karlar.
Þannig er eins og konur vilji síður starfa
þar sem vinnutími er óreglulegur, eins
og til dæmis í verðbréfadeildum.“
Helga segir að jafnréttisstarf SÍB
miði einnig að því að hvetja konur til að
sækja um yfirmannsstöður í bönk-
unum. „Konur hafa síður borið sig eftir
auglýstum stjórnunarstöðum og úr því
þarf að bæta. Hluti af því er að bjóða
upp á aukna menntamöguleika, til
dæmis með endurmenntun,“ segir
Helga.
Í fararbroddi með fæðingarorlof
Morgunblaðið/Jim Smart
Helga Jónsdóttir, varaformaður Sambands íslenskra bankamanna.