Morgunblaðið - 30.01.2005, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. JANÚAR 2005 19
Um hva› snúast stjórnmál?
Kynntu flér máli› í Stjórnmálaskóla Sjálfstæ›isflokksins í Valhöll
mánudags-, flri›judags- og fimmtudagskvöld frá 9. til 25. febrúar.
Valhöll
Háaleitisbraut 1
105 Reykjavík
sími 515 1700
www.xd.is
Dagskráin ver›ur kynnt á heimasí›u Sjálfstæ›isflokksins, www.xd.is.
Skráning og nánari uppl‡singar í síma 515 1700/515 1777 og á netfangi disa@xd.is
- borgarmálin
- listina a› hafa áhrif
- flokksstarfi›
- menntun og menningarmál
- heilbrig›isfljónustu
- umhverfismál
- listina a› vera lei›togi
- efnahagsmál
- utanríkismál
- sjávarútvegsmál
Fyrirlestrar og umræ›ur, m.a. um
Ky ntu þ álið í Stjórnmálaskól Sjálfstæðisflokksins í Valhöll
frá 31. janúar til 24. febrúar. Námskeiðið fer fram á þriðjudags- og
fimmtudagskvöldumen auk þeirra verða tvö mánudagskvöld
(tvær fyrri vikurnar) nýtt fyrir námskeiðið.
Bor r lin
listina að hafa áhrif
flokksstarfið
menntun og menningarmál
heilbrigðisþjónustu
ferða- og samgöngumál
listina að vera leiðtogi
efnahagsmál
umhverfismál
utanríkismál
sjávarútvegsmál
sjónvarpsþjálfun
Dagskráin er á heimasíðu Sjálfstæðisflokksins, www.xd.is á hnapp Stjórnmálaskólans.
Skráning og nánari upplýsingar í síma 515 1777/515 1700, einnig á netfangi disa@xd.is
V
ið erum tengd sterkum
blóðböndum en þar sem
við búum hvort á sínu
landshorni eru sam-
skiptin fátíð. Við erum
líka mjög ólík. Hann er samkvæm-
isljón og unir sér best á vettvangi
dagsins. Ég er bókaormur á stöðugu
flakki milli fortíðar og framtíðar. En
á einum stað á leiksviði lífsins tölum
við sama mál. Við segjum sögur, för-
um með vísur og
hlæjum. Þannig
snertum við gleði-
strenginn hvort hjá
öðru.
Ég skemmti mér
alltaf jafn vel þegar
hann segir frá hestamanninum sem
starði opinmynntur á frægt málverk
eftir Jón Stefánsson og spurði síðan
með austfirskri hrynjandi: „Er þetta
ekki Blesi frá Bjarnarnesi?“ Og ekki
er hún síðri sagan af Austfirð-
ingnum sem sagðist með for-
kostulegu handapati hafa drepið í
sér náttúruna með því að hafa aldrei
fengið tækifæri til að nota hana.
Þessi slyngi sögumaður tekur líka
alltaf bakföll af kátínu þegar ég rifja
upp frásögnina af rónanum sem grét
út úr mér nokkra þúsundkalla í
áföngum vegna skyldleika okkar aft-
ur í ættir. Hvorugt okkar getur
heldur varist hlátri þegar við minn-
umst enn og aftur sögunnar af henni
alnöfnu minni sem í eigin nafni sendi
skeyti til fyrrverandi forsætisráð-
herra Breta eftir háðulegar hrakfar-
ir hans í kosningum og hafði það svo-
hljóðandi „Sr. Winston Churchill.
I’m with you.“
Samskipti okkar eru hjartastyrkj-
andi. Það reyndi ég í erfiðum veik-
indum. Að vísu áttu sögurnar hans
ekki eins greiðan aðgang að mér og
áður og ég fúlsaði ónotalega við tví-
ræðri vísu. En þegar honum þóttu
umræðuefni mín svo afspyrnu leið-
inleg að hann gat ekki leynt því varð
mér á að hlæja og sagði svo: „Þú tal-
ar bara eins og Skafti Þóroddsson í
Njálu, sem vildi ekki fá vandræði
annarra í híbýli sín.“ Þetta sýndust
honum ótvíræð batamerki enda var
raunin sú.
Og nú, þegar ólukkans veikindi
eru farin að gera honum skráveifur,
nota ég sama ráð og hann. Ég segi
sögur. Kannski eru þær ekkert sér-
lega merkilegar en ég vona að þær
létti honum lund. Og hafi ég engar
nýjar sögur, dusta ég rykið af ýms-
um gömlum bröndurum eða vísum
sem ég þykist vita að hitti í mark
þótt talsverð vandræði hafi nú ratað
í híbýli hans. Og hin „fagra gleði,
guða logi,“ eins og þeir Schiller og
Matthías kváðu, skín okkur báðum
um stund.
HUGSAÐ
UPPHÁTT
Eftir Guðrúnu
Egilson
Á gleðistreng
miklu í okkar störfum. Þrátt fyrir þá
stefnu að fara eftir launasamningum
í hverju landi þá gilda mörg okkar
réttindamála, til dæmis lífeyrisrétt-
indi og tryggingar, um starfsmenn
úti um allan heim. Einnig hafa komið
nýir hlutir inn í kjaramál okkar eftir
einkavæðingu bankanna, svo sem
kaupréttarákvæði og árangurs-
tengdar greiðslur. Þá verða einstak-
lingsbundnir samningar sífellt al-
gengari og okkar hlutverk er þá að
gæta þess að menn fari ekki fram úr
sér í þeim efnum og afsali sér ekki
sjálfsögðum réttindum. Okkar starf
er því orðið nokkuð flóknara og um-
fangsmeira en áður. En fyrirmynd
slíkra samninga kemur erlendis frá
og við höfum notið þess að vera í
nánu samstarfi við samtök banka- og
tryggingamanna á Norðurlöndum og
fáum þaðan góða aðstoð og upplýs-
ingar.“
Fjölskyldumálin verkefni framtíðar
Og Friðbert telur að í nánustu
framtíð verði áherslan í starfi SÍB
áfram á mennta- og fræðslumál en
einnig eigi fjölskyldumálin eftir að
vega sífellt þyngra. „Auðvitað eiga
stéttarfélög stöðugt að gæta hags-
muna sinna umbjóðenda og það verð-
ur alltaf hlutverk þeirra að standa
vörð um þau réttindi sem þegar hafa
áunnist. En verkefni framtíðarinnar
verða eflaust að tryggja þeim sem
þess óska meiri sveigjanleika á
vinnumarkaðnum, til dæmis með því
að gefa fólki sem er að koma sér upp
fjölskyldu möguleika á hlutastörfum
eða að hverfa tímabundið af vinnu-
markaði. Þessi þróun er hafin á
Norðurlöndum og þetta á eflaust eft-
ir að færast í vöxt. Á sama hátt sé ég
fyrir mér að svipaður háttur verði
hafður á þegar fólk eldist, að því verði
gefinn tími til að laga sig að því að
hætta að vinna, til dæmis með því að
minnka smám saman við sig í vinnu.“
Friðbert nefnir einnig að eitt af
verkefnum framtíðarinnar sé að
bæta líðan starfsmanna í vinnuum-
hverfi sínu. „Firringin og hraðinn í
þjóðfélaginu er farinn að leiða tals-
vert inn á vinnumarkaðinn. Í könnun
sem gerð var meðal okkar félags-
manna kom í ljós að 8% starfsmanna
hefur orðið fyrir einhverskonar áreiti
í starfi, bæði frá samstarfsmönnum
en einnig af hendi viðskiptavina.
Verkalýðshreyfingin og atvinnu-
rekendur þurfa að sameinast um að
koma því til skila að fólk láti ekki
óánægju sína bitna á hinum almenna
starfsmanni,“ segir Friðbert
Traustason formaður SÍB.
Þess má geta að SÍB hætti við að
halda afmælishátíð vegna 70 ára af-
mælis samtakanna og gaf í stað þess
andvirði hátíðar í söfnun Rauða
krossins til styrktar förnarlömbum
hamfara í Asíu.
hema@mbl.is
Skógarhlí› 18 • 105 Reykjavík
Sími 595 1000 • Fax 595 1001 • www.heimsferdir.is
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
/
N
M
14
82
5
Mallorca
Gífurlega vinsæl
* M.v. hjón með 2 börn, Aparthotel Brasilia, vikuferð með sköttum og
10.000 kr. afslætti 22. júní, netverð.
10.000 kr. afsláttur af fyrstu 300 sætunum eða meðan íbúðir eru lausar.
Aðeins takmarkaður fjöldi sæta í hverju flugi á afslætti.
Gildir ekki um flugsæti eingöngu. M.v. bókun og staðfestingu fyrir 7. febrúar 2005
eða meðan afsláttarsæti eru laus.
Paguera
Alcudia
Playa de Palma
frá því í fyrra
35%
verðlækkun
Fyrstu 300 sætin
10.000 kr.
afsláttur á mann.
Bókaðu núna og tryggðu þér
lægsta verðið og vinsælustu
gististaðina á Mallorca.
28.590kr. Flug báðar leiðir, með sköttum, netverð
*Frá 33.895kr.
Heimsferðir bjóða fjórða sumarið í röð beint flug til Mallorca
og stórlækka verðið til þessa vinsælasta áfangastaðar Spánar.
Mallorca hefur verið ókrýnd drottning ferðamanna undan-
farin 40 ár enda getur
enginn áfangastaður
státað af jafn heillandi
umhverfi og fjölbreyttri
náttúrufegurð. Að auki
eru strendurnar gull-
fallegar og aðstaða fyrir
ferðamenn glæsileg. Á
Mallorca er frábært að
lifa lífinu og njóta þess
að vera í fríi.