Morgunblaðið - 30.01.2005, Qupperneq 50
50 SUNNUDAGUR 30. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
DAGBÓK
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Krossgáta
Lárétt | 1 gosdrykkurinn,
8 gjalds, 9 venja, 10 kjöt,
11 gæfa, 13 peningar,
15 stilltar, 18 vondan, 21
ríkidæmi, 22 kalviður, 23
sigruðum, 24 matarskrína.
Lóðrétt | 2 leyfi, 3 röska, 4
sjúga, 5 lykt, 6 þvotta-
snúra, 7 at, 12 spil, 14
reyfi, 15 ræma, 16 greppa-
trýni, 17 hunda, 18 svelg-
inn, 19 láðs, 20 að undan-
teknu.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt | 1 gaufa, 4 hælum, 7 uggur, 8 lætur, 9 sót, 11 aumt,
13 árar, 14 ókátt,15 hagl, 17 alur, 20 áta, 22 fánýt, 23 gætin,
24 romsa, 25 agnir.
Lóðrétt |1 gaupa, 2 ungum, 3 aurs, 4 holt, 5 letur, 6 múrar,
10 ófátt, 12 tól, 13 áta,15 hafur, 16 gónum, 18 látin, 19 Rún-
ar, 20 átta, 21 agga.
Sögufélag efnir til málþings næsta þriðju-dag milli kl. 13.30 og 16.30 vegna útgáfu áþriggja binda ritverki, Stjórnarráð Ís-lands 1964–2004, sem kom út í fyrra í til-
efni af aldarafmæli heimastjórnar á Íslandi.
Ákvörðun um samningu ritsins var tekin af stjórn-
völdum árið 1999. Ritstjórn skipuðu Björn Bjarna-
son (formaður), Heimir Þorleifsson og Ólafur Ás-
geirsson, en ritstjóri er Sumarliði R. Ísleifsson
sagnfræðingur. Ritið er hugsað sem framhald á
tveggja binda verki Agnars Kl. Jónssonar, Stjórn-
arráð Íslands 1904–1964, sem kom út árið 1969. Í
bókunum er m.a. rakin þróun Stjórnarráðsins, litið
yfir sögu ráðuneyta, fjallað um stjórnarmyndanir
og samskipti innan ríkisstjórna auk stjórn-
málaþróunar og fleiri hluta sem snerta íslenska
stjórnmálasögu.
Fjögur erindi verða flutt á málþinginu og síðan
verða umræður um verkið. Helga Jónsdóttir borg-
arritari fjallar um 1. bindi, Svanur Kristjánsson
prófessor um 2. bindi og Kristín Ástgeirsdóttir
sagnfræðingur um 3. bindi. Þá flytur Guðni Th. Jó-
hannesson, sagnfræðingur og formaður Sagnfræð-
ingafélags Íslands, erindi um verkið í heild sinni.
„Þetta er opinber saga hins opinbera, en ekki
kannski mikið um sérstakar opinberanir í því,“
segir Guðni um ritverkið. „Hins vegar er verkið
auðvitað kærkomið fyrir þá sem hafa áhuga á sögu
og samtíð Íslands og mikill fengur að því að fá
svona rannsókn á umsvifum og vexti ríkisvalds-
ins.“
Hvaða atriði standa upp úr á síðustu fjörutíu ár-
um stjórnarráðsins? „Vöxtur hins opinbera hefur
auðvitað verið mjög mikill. Stjórnarráðið árið 2004
er svo miklu umsvifameira en það var við upphaf
þess tímabils sem er til umfjöllunar. Það er
kannski eitt það helsta sem stendur upp úr. Í þessu
sambandi má til dæmis nefna að einum manni,
Agnari Kl. Jónssyni, var treyst til að skrifa sögu
stjórnarráðsins 1904–1964 en til þessa seinna
verks voru ráðnir sex höfundar. Það segir sitt.“
Hvað lærdóm getum við dregið af sögunni?
„Einhver sagði – gott ef það var ekki Napóleon –
að engir hefðu breytt gangi sögunnar jafnmikið og
sagnfræðingarnir. Við erum alltaf að læra eitthvað
nýtt og með nýjum tímum koma nýjar áherslur og
nýjar túlkanir.
Hvað sögu stjórnarráðsins varðar sérstaklega,
þá er kannski helst hægt að draga þann lærdóm að
um leið og velmegun hefur aukist á Íslandi hafa
umsvif ríkisins aukist. Hitt er svo annað mál hvort
það hefur gerst vegna aukinna umsvifa ríkisins eða
þrátt fyrir það.“
Stjórnmálasaga | Málþing um þriggja binda ritverk um sögu Stjórnarráðs Íslands
Opinber saga hins opinbera
Guðni Th. Jóhann-
esson er fæddur í
Reykjavík árið 1968.
lauk stúdentsprófi frá
MR og tók BA-próf í
sagnfræði og stjórn-
málafræði frá Warwick
University á Englandi
1991. Hann stundaði
síðan nám í rússnesku
og lauk MA-prófi í sagn-
fræði frá HÍ 1997. Þá
lauk hann doktorsnámi frá Queen Mary, Uni-
versity of London árið 2003. Guðni hefur
starfað sem fréttamaður og kennari í sagn-
fræði. Hann er nú formaður Sagnfræðinga-
félags Íslands. Guðni er kvæntur Elizu Reid og
á hann eina dóttur.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Gættu þess hverju þú klæðist, fólk veitir
þér athygli þessa dagana. Þú ert í sviðs-
ljósinu. Fólk hlustar líka á það sem þú
hefur fram að færa.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Láttu það eftir þér að læra eitthvað nýtt.
Þig langar til þess að víkka sjóndeild-
arhringinn og fara í ferðalag. Hvernig
væri að færa aðeins út kvíarnar?
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú ert fullur af ástríðum upp á síðkastið,
tvíburi góður. Rómantíkin liggur í loftinu.
Þú lifir líka af ástríðu um þessar mundir.
Þig langar til þess að fylgja eðlishvöt-
unum.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Gættu þess hvernig þú tjáir þig við þína
nánustu. Þú átt gott með að læra af sam-
skiptum þínum við aðra. Fylgstu líka með
því hvernig þeir fara að því að gera sig
skiljanlega.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Leggðu þig fram við að bæta skipulagið í
lífi þínu. Þú finnur þig knúinn til þess að
henda reiður á hlutunum um þessar
mundir og hefur kraft til þess að fylgja
því eftir.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Komandi vikur verða lifandi og skemmti-
legar. Vertu viss um að hafa tíma til þess
að lyfta þér upp. Afþreying með börnum
veitir þér sérstaka gleði núna.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Umhverfi þitt hefur mikil áhrif á þig, þess
vegna er heimilið þér afar mikilvægt. Þú
þarft að eiga þér athvarf þar sem hlut-
irnir eru í jafnvægi. Samræmi í litavali og
mjúk handklæði eru gott dæmi.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þig langar til þess að upplýsa einhvern
um eitthvað sem er þér mikilvægt. Talaðu
við náungann. Ekki síst systkini þín og
ættingja.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Fylgdu eftir þínum snjöllu viðskipta-
hugmyndum. Þig þyrstir sífellt í að auðg-
ast á einni nóttu. Skyndiríkidæmi, skyndi-
ævintýri og gleði!
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Sólin og venus eru í þínu merki núna og
þar af leiðandi áttu gott með að laða að
þér fólk og tækifæri. Notaðu þetta hag-
stæða andrúmsloft þér til framdráttar.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Virtu þörf þína fyrir aukna einveru. Þú
nýtur þín í félagsskap vina en þarft samt
sem áður að taka það rólega á næstu vik-
um. Láttu það eftir þér.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Trúðu nánum vini fyrir innstu draumum
þínum og þrám, viðbrögðin gætu komið
þér á óvart. Aðrir geta lagt þér lið við að
ná takmarki þínu. Vertu opinn fyrir því.
Stjörnuspá
Frances Drake
Vatnsberi
Afmælisbarn dagsins:
Þú kannt að leiða, leiðbeina, hafa áhrif,
skemmta, kenna og útskýra fyrir öðrum.
Þú hefur góða tjáskiptahæfileika, hefur
líka gaman af því að sjá eitthvað verða
að veruleika og býrð yfir framsýni.
Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár
af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
❖ Opið virka daga 10-18
❖ Laugardaga 10-16
Nýbýlavegi 12
Kópavogi
s. 554 4433
Útsala
aukaafsláttur
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Verslunarferð í Hag-
kaup Skeifunni 2. febrúar kl. 10, kaffi í
boði Hagkaupa, rúta frá Aflagranda og
Grandavegi 47.
Breiðfirðingafélagið | Félagsvist í Breið-
firðingabúð kl. 14, fyrsti dagur í fjögurra
daga keppni.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Dans-
leikur kl. 20. Hljómsveitin Klassík leikur
fyrir dansi. Færeyjarferð 24. maí til 2.
júní. Ekið verður til Seyðisfjarðar. Siglt
verður með Norrænu til Færeyja. Ekið
um eyjarnar. Gist á Hótel Klaksvik og
Hótel Hafnia. Nokkur sæti laus.Skráning
í s. 588–2111.
Félagsstarf aldraðra, Garðabæ | Ferð í
Borgarleikhúsið að sjá Híbýli vindanna
kl. 20, Rútan fer frá Garðabergi kl.
19.30.
Félagsstarf Gerðubergs | Á þriðjudög-
um er m.a. postulínsnámskeið og perlu-
saumur án leiðsagnar. Á fimmtudögum
eftir hádegi er leiðsögn í myndlist og
fjölbreytt föndur. Allar upplýsingar á
staðnum, s.575 7720 og www gerdu-
berg.is.
Hæðargarður 31 | Félagsstarfið er öllum
opið. Þorrablót verður 4. febrúar kl. 17.
Fordrykkur í anddyri. Myndlistarsýning
Listasmiðju Hæðargarðs opnuð form-
lega. Sigrún Hjálmtýsdóttir og Guðný
Anna Guðmundsdóttir. Minni kvenna.
Minni karla. Söngur, dans og harm-
ónikkuspil. Sölu miða lýkur 2. feb. Upp-
lýsingar í síma 568-3132.
Vesturgata 7 | Þorrablót verður föstud.
11. febrúar. Sigurgeir v/flygilinn, þorra-
hlaðborð, veislustjóri Árni Johnsen. Örn
Arnarsson skemmtir v/undirleik Jónasar
Þóris. Fjöldasöngur. KKK syngja v/
undirleik Sigrúnar Þórsteinsd. Danssýn-
ing. Hljómsveit Hjördísar Geirs leikur
fyrir dansi. Happdrætti, skráning og
uppl. 5352740.
Kirkjustarf
Akureyrarkirkja | Sunnudagaskóli kl. 11.
– Æskulýðsfélag kl. 20.
Bessastaðasókn | Sunnudagaskólinn í
sal Álftanesskóla kl. 11.
Grafarvogskirkja | Bænahópur kl.
20.00. Tekið er við bænarefnum alla
virka daga frá kl. 9–17 í síma 587–9070.
Háteigskirkja | Aðalfundur verður
þriðjudaginn 1. febrúar kl. 20 í Setrinu.
Venjuleg aðalfundarstörf. Munið fé-
lagsgjaldið. Spilum bingó.
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía | Almenn
samkoma kl. 16.30. Ræðumaður Vörður
Leví Traustason. Gospelkór Fíladelfíu
leiðir lofgjörð. Aldursskipt barnakirkja á
meðan samkomu stendur. Hægt er að
horfa á beina útsendingu á www.gosp-
el.is eða hlusta á fm. 102.9. Einnig er
samkoma sunnud. áður á Ómega kl. 20.
Allir velkomnir.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Ljósmynd/Örn Þórarinsson
Unaðsdalskirkja.
Spekingarnir tala.
Norður
♠G8532
♥6
♦ÁD8754
♣3
Eitt er að kunna kerfið sitt, annað að
velja réttu sögnina. Oft og iðulega
koma tvær eða fleiri sagnir til álita og
þá er fróðlegt að heyra álit meist-
aranna. Dæmið að ofan er út tímaritinu
The Bridge World. Þetta er sveita-
keppni og allir eru utan hættu. Vestur
er gjafari og vekur á Standard-laufi.
Hvað myndi lesandinn segja með spil
norðurs?
Eitt og annað kemur til greina, en
augljósu möguleikarnir eru einn tígull
eða einn spaði. Af 30 spekingum í TBW
völdu 18 einn tígul, en aðeins 3 einn
spaða. Sex spekingar vildu stökkva
hindrandi í tvo tígla. Nokkrir vildu
segja þrjá tígla eða jafnvel passa.
Heyrum rökin að baki:
Nick Nickell: Einn tígull. Þetta eru
mikil sóknarspil ef makker á „fitt“ og
því borgar sig ekki að hindra með
tveimur tíglum. Ég hyggst melda spað-
ann næst þótt andstaðan sé komin upp
í fjögur hjörtu.
Howard Weinstein: Einn tígull. Ég á
lengri og betri tígul en spaða, en ætla
að melda spaðann ef ég fæ tækifæri til.
Robert Wolff: Einn tígull. Látum
Marshall Miles um það að segja einn
spaða. Sjálfur sé ég enga ástæðu til að
þegja yfir tíglinum.
Marshall Miles: Einn spaði. Eina
vonin í geim liggur í því að makker eigi
fjórlit í spaða og því er best að koma
litnum strax á framfæri. Ég er ekki
nógu sterkur til að segja spaðann á síð-
ari stigum.
Al Roth: Tveir tíglar. Til að byrja
með, en ég væri vís til að melda spað-
ann síðar.
Rétt og rangt?
Það er ekki til, sem betur fer.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson
Staður og stund á mbl.is.
Nánari upplýsingar um viðburði
dagsins er að finna á Staður og
stund undir Fólkið á mbl.is
Meira á mbl.is
SÝNINGUNUM Carnal knowledge
og Gengið niður Klapparstíg lýkur í
dag, en þær hafa verið uppi í Ný-
listasafninu síðan í desember. Carn-
al Knowledge er samsýning átta
listamanna frá Norðurlöndunum og
Perú. Díana Storåsen sýningar-
stjóri lýsir þessum hópi sem sam-
ansafni listamanna sem tjá sig ljóð-
rænt af ævintýralegum feminísma
sem á margan hátt túlkar styrkinn í
konunni. Gengið niður Klapparstíg
er nýr hluti yfirgripsmikillar mynd-
verkaraðar sem heitir Ímynd borg-
ar. Í heildarverkinu er reynt að
sýna fjölbreytta mynd borgarinnar
sem rýmis með aðferðum kvik-
myndunar og ljósmyndunar.
Nýlistasafnið er opið frá kl. 13 til
17 í dag.
Sýningum
lýkur í Nýló