Morgunblaðið - 30.01.2005, Qupperneq 58
58 SUNNUDAGUR 30. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Miðasala opnar kl. 15.30
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
ÍSLANDSBANKI
Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10. Sýnd kl. 2. Ísl tal kl. 3.45 og 8. B.i. 10 ára
VIÐSKIPTAVINIR
ÍSLANDSBANKA FÁ 20%
AFSLÁTT AF MIÐAVERÐI
I I I I
Í
I I
ÍSLANDSBANKI
VIÐSKIPTAVINIR
ÍSLANDSBANKA FÁ 20%
AFSLÁTT AF MIÐAVERÐI
I I I I
Í
I I
SIDEWAYS
kl. 2, 8 og 10.40.
Sýnd kl. 2, 5, 8 og 10.40. B.i. 14 ára
„skylduáhorf fyrir bíófólk,
ekki spurning!“
WWW.BORGARBIO.IS
ATH. miðaverð kr. 400.
„Sideways er eins og
eðalvín með góðri
fyllingu. Hún er
bragðgóð, þægileg og
skilur eftir sig fínt
eftirbragð“ Þ.Þ. FBL
Tilnefningar til
Óskarsverðlauna
þ.á.m. besta mynd,
leikstjóri og handrit
il f i r til
. . . t ,
l i tj ri rit
Óskarsverðlauna
„Fullkomlega
ómissandi mynd“
S.V. MBL.
5
T.V. Kvikmyndir.is
Ó.Ö.H. DV
“Þetta er stórkostleg
kvikmynd sem virkar
fyrir alla…”
tilnefningar til
óskarsverðlauna
þ.á.m. Besta mynd, besti
leikstjóri, besti
leikari-Leonardo
Dicaprio, bestu
aukaleikarar-Cate
Blanchett og
Alan Alda.
11
tilnefningar til
Óskarsverðlauna
þ.á.m. besta mynd, leikari
og handrit7
Sýnd kl. 4 og 8. Sýnd kl. 8 og10. B.i. 14 ára
Áður en hún finnur frið
verður hún að heyja stríð
Frá þeim sem færðu
okkur X-Men kemur
fyrsta stórmynd ársins
Svakalega flott
ævintýraspennumynd
með hinni sjóðheitu
og sexý Jennifer
Garner
l l
i
i i j i
i
Fædd til að berjast þjálfuð
til að drepa
Sýnd kl. 4 og 6.
Áður en hún finnur frið verður hún að heyja stríð
Fædd til að berjast þjálfuð til að drepa
Frá þeim
sem færðu
okkur X-
Men
kemur
fyrsta
stórmynd
ársins
i
f
-
f
i
Svakalega
flott
ævintýraspen
numynd með
hinni
sjóðheitu og
sexý Jennifer
Garner
Sýnd kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.10 B.i. 14 ára
Sýnd kl. 5.50 og 10.15.
MMJ kvikmyndir.com
Ó.Ö.H. DV
„Ein snjallasta mynd ársins...
Ógleymanleg...ljúf kvikmyndaperla“
SV Mbl.
Ó.H.T. Rás 2
Ó.H.T. Rás 2
Rokksveitin Vínyll sendir frá sér plötunaLP á fimmtudaginn í næstu viku. Verð-ur útgáfunni fagnað með ókeypis tón-
leikum og gleðskap á Gauki á Stöng um kvöldið.
Hljómsveitin er að verða þriggja ára gömul en
flest af ellefu lögum plötunnar eru þó samin á
tveggja ára tímabili. Þetta er fyrsta breiðskífa
sveitarinnar en hún sendi áður frá sér stuttskíf-
una EP. Á þeirri skífu voru fjögur lög sem nutu
nokkurra vinsælda. Þrjú þeirra eru í óbreyttri
mynd á plötunni, þar á meðal lagið „Nobody’s
Fool“, sem er fyrsta lagið sem hjómsveitin
samdi. Upphafslag breiðskífunnar er hinsvegar
fjórða lagið af EP, „Miss Iceland“ í algerlega
nýrri útgáfu.
Vínyl skipa fimm manns, Kristinn Júníusson
syngur og tvíburabróðir hans Guðlaugur er á
trommum, Egill Tómasson er á gítar, Arnar
Snær Davíðsson á bassa og Þórhallur Berg-
mann spilar á hljómborð.
Strákarnir segjast hafa viljað taka öll lögin af
EP upp aftur en ekki sé á allt kosið. Lögin falla
samt vel inn í plötuna þó greinilegt sé að hljóm-
sveitin hafi þróast nokkuð á þeim tíma sem hún
hefur starfað. „Þetta hefur þróast mikið frá
fyrstu hugmyndunum þegar við vorum að byrja
að spila saman,“ segir Egill. „Við vissum ekkert
hvað við vorum að fara útí,“ segir Kristinn en
fyrsta hljómsveitaræfingin var haldin í febrúar
árið 2002. „Við ákváðum að byrja að spila saman
og það tók okkur smátíma að ná jafnvægi í
bandið,“ segir Guðlaugur. „Síðastliðið eitt og
hálft ár erum við búnir að taka stökk eins og
með samspil og annað. Þetta er að verða
skemmtilegra og skemmtilegra,“ segir Egill.
„Við bara fórum í stúdíó og tókum þetta upp.
Við höfum húmor fyrir því sem við erum að
gera,“ segir Kiddi en upptökur gengu fljótt fyr-
ir sig. „Við erum ekki að taka okkur sjálfa alltof
alvarlega heldur leyfum okkur að gera ná-
kvæmlega það sem lögin bjóða uppá,“ sam-
sinnir bróðir hans.
Hljómsveit undir sama nafni var starfandi
fyrir nokkrum árum en Arnar og Egill voru
ekki með þá. „Vínyll í þessari mynd hefur ekk-
ert með gamla Vínyl að gera. Nafnið var til og
þegar við byrjuðum að spila þá var þetta bara
Vínyll,“ segir Egill. „Við nenntum bara ekki að
kynna nýtt nafn til sögunar,“ segir Kristinn.
Strákarnir hafa þó þekkst lengi en Egill, tví-
burabræðurnir og Addi kynntust átta ára gaml-
ir í Kópavogsskóla, þar sem fundir þeirra lágu
saman oftar en ekki á skrifstofu skólastjóra eða
yfirkennara.
Þórhallur er af Seltjarnarnesinu og kynntst
strákunum um sextán ára aldur en þá vantaði
hljómborðsleikara. „Við bönkuðum uppá ýmis
hús á Seltjarnarnesinu og leituðum að honum.“
Leitin bar árangur og eru strákarnir allir góðir
vinir. Kristinn, Egill og Arnar hafa m.a.s. búið
saman síðustu tvö ár.
Þórhallur er með burtfararpróf í píanóleik og
er sá eini í hljómsveitinni sem er menntaður í
tónlist. Hann er líka í lögfræðinámi og fer út til
Belgíu eftir útgáfutónleikana þar sem hann
mun leggja stund á nám fram á sumar. Það á þó
ekki að setja strik í reikninginn enda er Vínyll
hljómsveit sem vinnur vel í törnum. Þórhallur
fer líka út með hljómsveitinni á tónlistarhátíð-
ina SXSW í Texas í mars. Um er að ræða eina
allra stærstu tónlistarstefnu Bandaríkjanna þar
sem safnast saman tónlistarmenn og fulltrúar
útgáfufyrirtækja.
Þeir eru spenntir að fara að spila á þessari
tónlistarhátíð en sveitin hefur nokkrum sinnum
farið út áður og spilað á hátíðum sem þessum.
„Við erum á skjön við allt sem er að gerast
þarna úti tónlistarlega séð,“ segir Kristinn og
vill ekki samþykkja að þeir passi nákvæmlega
inn í einhverja ákveðna bylgju.
Hollt að spila í útlöndum
Þeir hafa fengið góð viðbrögð og segjast vel
geta staðist samanburðinn. „Við stefnum eins
hátt og við komumst,“ segir Guðlaugur. „Við
viljum selja þessa plötu og lifa eitttvað á þessu.
Við viljum fá tækifæri til að spila og ferðast,“
segir Kristinn.
„Það er hollt að spila í útlöndum fyrir fólk
sem veit ekki hver þú ert eða hvaðan þú kemur.
Gaman að fá hreinar og beinar skoðanir frá
fólki.“
Þeir segja að það sé ekki það sama að fara til
útlanda að spila og reyna „að meikaða“. Þetta
snúist um að spila á nýjum stöðum og hitta nýtt
fólk. Ekkert er enn ákveðið með útgáfu á plöt-
unni á erlendri grundu og á það allt eftir að
koma í ljós.
Strákarnir segja að stundum virðist bransinn
vera meira um útlitið en getu og segir að stand-
ardinn sé ekki alltaf hár úti. „Mörg íslensk bíl-
skúrsbönd myndu spjara sig vel þarna úti.“
Flottir búningar!
Þar með er ekki sagt að Vínyll hugsi ekki um
útlitið því hljómsveitin er þekkt fyrir að vera
snyrtilega til fara í jakkafötum á tónleikum.
Gekk það svo langt að eitt sinn þegar þeir komu
fram í Stöð 2 var sagt við þá – flottir búningar!
Vínyll er hjómsveit sem vill halda áfram að
ögra sjálfri sér og hefur ekki áhuga á að gera
sömu lögin og sömu plötuna aftur og aftur.
„Þetta er spurning um á hvaða forsendum ertu í
tónlist? Hvað viltu gera? Langar þig ekki að
prófa það sem þú getur prófað,“ segir Guð-
laugur. „Það er líka ákveðið kikk í því að ögra
umhverfinu, að fólk hafi skoðanir á því sem þú
ert að gera,“ segir Egill.
Þeir eru skráðir fyrir lögunum í sameiningu
nema Kiddi er skráður fyrir textunum. Þeir eru
sammála um að textarnir skipti miklu máli og
þeir verði að koma úr eigin reynsluheimi.
Einhverjir hafa tekið eftir líkindum með lag-
inu „Nobody’s Fool“ og „Vertigo“ með U2 en að
hluta til innihalda lögin sömu hljóma og sama
ryþma. Það gæti verið meira en tilviljun þar
sem umboðsmenn U2 fengu plötuna EP senda
fyrir margt löngu. Þeir ætla þó ekki að fara í
mál út af þessu. „Þetta er „long shot“ en maður
veit aldrei,“ grínast Egill.
Ef til vill þýðir þetta að tíminn sé réttur fyrir
Vínyl að koma með plötu og eru strákarnir viss-
ir um það. „Okkur finnst það. Fólk hefur verið
að mæta mjög vel á tónleika hjá okkur uppá síð-
kastið,“ segir Guðlaugur. „Á rúmlega ári er búin
að vera 200% aukning á tónleikaaðsókn hjá
Vínyl,“ segir Egill en þess má geta að hljóm-
sveitin hitaði upp fyrir Foo Fighters í Laug-
ardalshöll í ágúst 2003.
Mikil tónleikasveit
„Það er stór partur af því að vera í bandi að
geta spilað „live“ og látið það hljóma „live“,“
segir Kristinn en þeir eru allir sammála um að
Vínyll sé mikil tónleikasveit. „Ég held við séum
allir að hafa mest gaman af því að spila á tón-
leikum,“ segir Egill.
Hvernig er að vera starfandi rokkhljómsveit í
Reykjavík?
„Eins og staðan er núna er það mjög
skemmtilegt. Fólk er byrjað að átta sig á því að
tónlist skiptir það máli. Það er tónlistarvakning.
Fyrir þremur árum var það leiðinlegt og það
voru allir í jakkafötum með kreditkort,“ segir
Guðlaugur. „Að vera í hljómsveit á Íslandi í dag,
er að vera pínu dekraður, það er auðvelt fyrir
hljómsveitir að koma sér á framfæri. Miðlar eru
tiltölulega aðgengilegir. Tónleikastaðir eru að-
gengilegir,“ segir Egill en sveitirnar þurfa
vissulega að hafa eitthvað fram að færa. „Það er
öllum drullusama, það þarf enginn aðra hljóm-
sveit. En ef þú hefur eitthvað fram að færa er
fólk tilbúið að hlusta.“
Tónlist | Rokksveitin Vínyll sendir frá sér sína fyrstu breiðskífu sem ber heitið LP
Ögrandi hljómsveit
Ljósmynd/Ari Magg
Strákarnir í Vínyl eru sammála um að það sé ágætt að vera starfandi rokkhljómsveit í Reykja-
vík en líka sé nauðsynlegt að spila á fjarlægari slóðum og ná til nýrra hlustenda.
Platan LP með Vínyl kemur út fimmtudaginn
3. febrúar. Um kvöldið verða útgáfutónleikar
á Gauki á Stöng. Húsið verður opnað kl. 21 og
það er ókeypis inn.
ingarun@mbl.is