Morgunblaðið - 06.02.2005, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 06.02.2005, Blaðsíða 4
Guðmundur Guðjónsson, verkefnastjóri gróðurkortagerðar á NÍ, Einar Gíslason, gróðurkortagerðamaður, og Sigrún Jónsdóttir hafa samanlagt 120 ára starfsreynslu við gróðurkortagerð. Einar 50 ár, Sigrún 40 ár og Guðmundur 30 ár. 120 ára starfsaldur EINAR Gíslason, gróðurkortagerðarmaður, hefur í hálfa öld unnið við gerð gróðurkorta og er enn í fullu fjöri kominn á níræðisaldur. Sl. átta ár hefur hann starfað hjá Náttúrufræðistofnun Íslands við að teikna gróður upp af gömlum loftmyndum. „Ég er nú að- allega að vinna við að yfirfæra gróðurkortagerðina yf- ir í tölvu,“ segir Einar og bætir því við að það gangi ágætlega. Hann fór ásamt þeim Birni Jóhannessyni, Steindóri Steindórssyni og Ingvari Þorsteinssyni í fyrstu ferð- ina til þess að kortleggja gróður rigningasumarið 1955. Einar segist hafa starfað lengstum á Rannsókn- arstofnun landbúnaðarins eða þar til hann varð sjö- tugur fyrir 11 árum. Aðspurður segist Einar hafa fengið þjálfun í teikningu í Bandaríkjunum árið 1951, en för hans til Bandaríkjanna var liður í Marshall- hjálpinni. Hann segir ekki marga vera með þá þekkingu sem hann hafi við gerð gróðurkorta í dag. Því hafi NÍ viljað nýta starfskrafta hans sem væri hið besta mál. „Þetta er ágætisfólk. Hér er góður andi og gott að vinna hér,“ segir Einar. Enn í fullu fjöri við að teikna gróðurkort 4 SUNNUDAGUR 6. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Budget bílaleiga: 2 verð einfalt val. Tíminn er dýrmætur, ekki flækja málin. Fólksbílar 3.900 krónur á dag frá Toyota Yaris upp í Kia Magentis. Jeppar 6.900 krónur á dag frá Toyota Rav4 upp í Toyota Land Cruiser. Innifalið í verði er ótakmarkaður akstur og kaskótrygging. Budget bílaleiga, Sími 562 6060, Dugguvogi 10, 104 Reykjavík, www.budget.is Budget bílaleiga er á eftirfarandi stöðum á landinu: Reykjavík, Keflavík, Akureyri, Egilsstöðum, Reyðarfirði, Vestmannaeyjum, Þórshöfn, Þorlákshöfn og Bakka. Ákvarðanir eru erfiðar. Þær eru auðveldari þegar möguleikarnir eru bara 2. C o nc ep t Á ÞESSU ári er hálf öld liðin frá því að hafin var gerð gróðurkorta á Íslandi á vegum búnaðardeildar at- vinnudeildar Háskóla Íslands. Nú hafa liðlega tveir þriðju hlutar landsins verið kortlagðir í mæli- kvarða frá 1:20.000 til 1:40.000, þar af hefur allt miðhálendið verið kort- lagt. Um þriðjungur kortlagða svæðisins hefur verið endurkort- lagður á stafræn myndkort og lögð er mikil áhersla á að ljúka því verki. Gróðurkortin eru nú notuð sem grunnur að vistgerðakortum og er því mikilvægt að gera áætlun um að ljúka kortlagningu alls lands- ins sem fyrst. „Það sem við stefnum að er að koma öllu sem búið er að kortleggja á tölvutækt form og gera markvissa áætlun að klára að kortleggja land- ið. Vegna þess að þessi gróðurkort eru mun ýtarlegri og nákvæmari en önnur náttúrufarskort sem hafa verið gerð,“ segir Guðmundur Guð- jónsson, verkefnisstjóri gróður- kortagerðar Náttúrufræðistofnunar Íslands. Hann hélt opinn fyrirlestur á miðvikudag á vegum NÍ um gróð- urkortagerð í hálfa öld. Þar rakti hann upphaf og þróun gróðurkorta- gerðarinnar, lýsti stöðunni í dag og þeim notum sem höfð hafa verið af gróðurkortunum. Kortagerðin hófst að frumkvæði Björns Jóhannessonar jarðvegs- fræðings sem um nokkurra ára skeið hafði unnið að jarðvegskorta- gerð í þremur landbúnaðarhéruð- um. Björn taldi gagnlegt að kort- leggja gróðurinn með það í huga að meta beitargildi úthaga. Guðmundur segir að unnið hafi verið nær óslitið að gróðurkorta- gerð í 50 ár, lengstum á vegum Rannsóknarstofnun landbúnaðar- ins. Starfsemin var svo flutt árið 1995 til Náttúrufræðistofnunar Ís- lands. Hann bendir á að Einar Gíslason, sem hafi farið með Birni Jóhannssyni að kortleggja árið 1955, sé enn að og starfi hjá NÍ kominn á níræðisaldur. „Hann situr alla daga við tölvuskjáinn og teikn- ar gróður upp af gömlum loftmynd- um á ný myndkort,“ segir Guð- mundur. Guðmundur segir að á gróður- kortum sé gróið land flokkað í um 100 gróðurfélög og bersvæðisgróð- ur sé flokkaður í 10 flokka eftir landgerðum. Út frá gróðurkortum megi lesa margvíslegar óbeinar upplýsingar um náttúrufar landsins t.d. jarðvegsgerð, rakastig og gróð- urþekju. „Þetta hentar mjög vel lögboðnu hlutverki Náttúrufræði- stofnunar, þ.e. að afla gagna um náttúrufar á Íslandi. Gróðurinn segir svo mikið til um aðra um- hverfisþætti,“ segir Guðmundur. Hálf öld liðin frá upphafi gróðurkortagerðar á Íslandi Hyggjast koma kort- um á stafrænt form Morgunblaðið/Golli BRESKA verðbréfafyrirtækið Teather & Greenwood sem Landsbanki Íslands hefur gert yfirtökutilboð í hefur víðtæk viðskipta- tengsl í Bretlandi og mun samvinna félag- anna tveggja færa báðum aukinn styrk á markaði. Þetta kom fram í máli Halldórs J. Kristjánssonar, bankastjóra Landsbankans, á aðalfundi bankans í gær. Alls starfa 17 manns innan greiningar- deildar félagsins sem birtir reglulega grein- ingar á 230 félögum sem eru skráð í kaup- höllinni í London. Félagið er fastráðinn aðalmiðlari fyrir 114 fyrirtæki sem eru skráð í kauphöllinni og vann að 19 nýskráningum á síðasta ári auk þess sem félagið aflaði yfir 100 milljóna punda, sem samsvarar tæplega 11,8 milljörðum króna, í hlutafé á árinu. Það er því eftir miklu að slægjast að sögn Hall- dórs. Í máli Halldórs kom ennfremur fram að kaupin væru í þá stefnu sem Landsbank- inn hefur markað sér og að bankinn stefndi á frekari sókn á alþjóðamarkaði á þessu ári og að stefnt væri að því að kaupa fleiri fyr- irtæki. Þar sé annars vegar um að ræða verð- bréfafyrirtæki með fyrirtækjatengsl en við þjónustu þeirra geti Landsbankinn bætt út- lánastarfsemi og fyrirtækjaráðgjöf, til dæm- is T&G, og hins vegar sé um að ræða lána- stofnanir með fyrirtækjatengsl þar sem megi bæta við verðbréfaþjónustu og fyrirtækja- ráðgjöf. Einnig sagði Halldór J. Kristjánsson að stefnt væri á að halda áfram að auka innri vöxt í dótturfélögum Landsbankans á al- þjóðamörkuðum. 27% af eignum erlendis Í árslok 2002 voru 6% af heildareignum Landsbankans erlendis. Um síðustu ára- mót var hlutfallið 27%. Stefnt á frekari sókn á alþjóðamarkaði Forráðamenn Landsbanka Íslands segja óþrjótandi tækifæri til sóknar erlendis Halldór J. Kristjánsson Björgólfur Guðmundsson LANDSBANKINN er í dag íslenskt fyrirtæki í öflugri sókn á alþjóðamörkuðum, með sterka stöðu á Íslandi, rætur samofnar íslenskri at- vinnu- og menningarsögu og með höf- uðstöðvar sínar hér á landi,“ sagði Björgólfur Guðmundson, stjórnarformaður bankans m.a. í ræðu sinni á aðalfundinum. Hann sagði það ætlun forráðamanna Landsbankans að svo verði áfram, „beri stjórnvöld gæfu til að skapa starfsumhverfi hér á landi sem er samkeppn- ishæft við það sem best þekkist í nærliggjandi löndum.“ Ennfremur sagði Björgólfur að ljóst væri að í því alþjóðlega starfsumhverfi, sem stjórn- málamenn hafi af framsýni skapað á síðustu tólf árum myndi öll meiriháttar þjónustu- og framleiðslustarfsemi á Íslandi verða í höndum alþjóðlegra fyrirtækja. Þá sagði Björgólfur að yfirtakan á verðbréfafyrirtækinu Teather & Greenwood yrði að veruleika. „Er það mér mikil ánægja að upplýsa að með því að ekkert hafi komið fram við lokun markaða í London í gær lá fyrir staðfestur stuðningur meirihluta hluthafa í Teather & Greenwood við tilboð okkar.“ Áfram með höfuð- stöðvar á Íslandi FORMAÐUR BHM segir að eftir að svör fengust frá samninganefnd rík- isins varðandi nýja launatöflu, sé ennþá grundvöllur til samningavið- ræðna. Fundi miðstjórnar BHM sem halda átti 31. janúar sl. var frestað vegna óræðrar stöðu í samningaum- leitunum 24 aðildarfélaga bandalags- ins sem vilja semja sameiginlega við ríkið. Svör fengust frá samninga- nefnd ríkisins í síðustu viku og því var miðstjórnarfundurinn haldinn sl. fimmtudag. Voru kjaramál þar efst á baugi. Var það m.a. niðurstaða fund- arins að stéttarfélögin 24 yrðu áfram í samfloti í samningaviðræðum. „Við fengum ákveðnari svör en við höfðum fengið áður og fékk viðræðu- nefndin áframhaldandi umboð til að halda áfram,“ segir Halldóra Frið- jónsdóttir, formaður BHM. „Þó að svör þeirra séu ekki alveg í samræmi við væntingar var ákveðið að þetta væri nóg til þess að halda áfram.“ Í tilboði sem BHM hefur lagt fram er lægsta tala í nýrri launatöflu 225 þúsund. Halldóra segir svör ríkisins, sem óskað var eftir, einmitt snúast um þessa tölu. Hún sé þó verulega lægri en krafa BHM. „Við teljum að það sé mikið hagræði fyrir ríkið að fá einn samning fyrir öll þessi félög, það geri þeim auðveldara fyrir,“ segir Halldóra. „Okkur fannst við því eiga skilið ákveðna umbun fyrir það en fannst við ekki alveg vera að fá hana.“ Halldóra segir að fundað hafi verið með samninganefnd ríkisins á föstu- dag og að næsti fundur verði á mið- vikudag. Hún segir að enn sé vonast til að ná samningum fyrir lok mán- aðarins. Samninganefndir ríkisins og BHM Ákveðið að halda viðræðum áfram
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.