Morgunblaðið - 06.02.2005, Side 20

Morgunblaðið - 06.02.2005, Side 20
20 SUNNUDAGUR 6. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ Þ að var að vonum, að afleiðingar náttúru- hamfaranna við Ind- landshaf settu svip sinn á fundinn,“ seg- ir Davíð. „Taíland á sæti í framkvæmda- stjórninni og það var mjög merkilegt að heyra full- trúa þess gagnrýna eigin fram- kvæmd á björgunaraðgerðunum og lýsa því, hvað honum kom á óvart það lofsorð sem mörg vestræn ríki og Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin luku á frammistöðu taílenzkra stjórnvalda og almennings þar. Í hans máli kom einnig fram nokkur gagnrýni á störf Alþjóðaheilbrigð- ismálastofnunarinnar í Taílandi. Í taílenzku sendinefndinni var líka sá læknir sem stjórnaði málum á Phuket-eyju. Það er óhætt að segja, að mál hans hafi haft mikil áhrif á menn. Yfirmaður neyðaraðgerða á veg- um WHO kynnti vinnu stofnunar- innar á hamfarasvæðinu og fjallaði meðal annars nokkuð um gagnrýni fulltrúa Taílands og þann vanda sem Alþjóðaheilbrigðismálastofn- unin stendur frammi fyrir þegar grípa þarf til jafnumfangsmikilla aðgerða þegar í stað. Reiknað er með að kostnaður Alþjóðaheilbrigð- ismálastofnunarinnar geti orðið allt að 600 milljónir dollara á þessu ári og því verður að treysta að mestu á frjáls framlög. Ég átti samtal við hann stuttu eftir að hörmungarnar dundu yfir. Honum var þá augljós- lega verulega brugðið og sagði mér meðal annars, að að hans mati væri það aðeins á færi bandaríska hers- ins að fást við björgunarstörf við þær aðstæður sem sköpuðust við hörmungar af þessari stærð. Það var mjög áhrifaríkt þegar komið var á sjónvarpssambandi við flotafor- ingjann á Abraham Lincoln, flug- móðurskipinu sem lá við strendur Aceh á norðanverðri Súmötru og það var sérkennilegt að heyra hann lýsa, að björgunar- og hjálparstarf þarna væri það verk, sem honum hefði þótt vænzt um að vinna á sín- um hermennskuferli. Þetta mál litaði náttúrlega allan fundinn. Það var rætt á fyrsta degi, en ályktunin ekki samþykkt fyrr en þann síðasta; fundurinn stóð í 10 daga. Það kraumaði því alltaf undir og það voru miklar tilfinningar í gangi. Mál eru almennt þannig afgreidd að lögð er fram skýrsla frá forstjór- anum, sem er eins konar greinar- gerð með þeim tillögum, sem lagðar eru fram á stjórnarfundunum. Þeg- ar þær hafa verið afgreiddar fara þær til endanlegrar staðfestingar á þingi Alþjóðaheilbrigðismálastofn- unarinnar í maí næstkomandi. Í framkvæmdastjórn Alþjóðaheil- brigðismálastofnunarinnar sitja 32 fulltrúar, en áheyrnarfulltrúar mæta frá mjög mörgum aðildar- þjóðunum. Á þing stofnunarinnar mæta fulltrúar flestra þeirra 193 þjóða, sem eru aðilar að Sameinuðu þjóðunum. Kjarni ályktunar framkvæmda- stjórnarinnar um hjálparstarf í neyð og hamförum, með sérstakri skírskotun til jarðskjálftanna við Indlandshaf og flóðbylgnanna af þeirra völdum 26. desember 2004, er áskorun til alþjóðasamfélagsins um að halda hjálparstarfinu áfram af fullum krafti og sinna um leið af- leiðingum náttúruhamfara annars staðar í heiminum. Einnig felst í samþykktinni áskorun til einstakra landa um að þau taki þátt í hjálp- arstarfinu og skipuleggi svæðis- bundnar og alþjóðlegar áætlanir um viðbrögð við hamförum og heilsu- ógn.“ Flensur eru mesta ógnin – Eins og fuglaflensu? „Já, menn tala nú um hana, eða aðrar sambærilegar inflúensur, sem mestu ógnir, sem yfir okkur vofa. Það er eins og allir bíði með öndina í hálsinum eftir því, að það verði til veira, sem smitast ekki aðeins frá fuglum til manna, heldur milli manna og þar með brytist út heims- faraldur. Ef slík skæð flensa færi af stað, þá er dreifing faraldursins þannig, að hver sem smitast, smitar a.m.k. 3 og þannig koll af kolli. Þetta yrði því ekki minni faraldur en Spænska veikin var á sínum tíma, en hún lagði stóra hluta þjóða að velli. Dánartíðni fuglaflensunnar er skelfilega há, eða um 70%. Við sem búum á Vesturlöndum erum betur undir slíkan faraldur búin en fólk sem býr í fátækum löndum og því er lögð þung áherzla á það í ályktun Genfarfundarins að tryggja fátækum löndum ódýr lyf gegn flensunni. Slíkur faraldur myndi lama bæði heilbrigðis- og efnahagskerfi landanna. Menn frá Kanada hafa sagt mér að þeir séu enn ekki búnir að rétta úr kútnum efnahagslega eftir bráðalungn- abólguvandann, sem þeir lentu í ár- ið 2003. Það má segja að stjórn Alþjóða- heilbrigðismálastofnunarinnar hafi á fundinum nú komið inn á þessi mál í fjórum ályktunum: um ham- farirnar á Indlandshafi; um hamfar- ir og viðbúnað við þeim almennt; í ályktunum um bólusetningar og síð- ast en ekki sízt í sérstakri ályktun um hættuna á heimsinflúensu.“ Á þessum fundi framkvæmda- stjórnarinnar voru á dagskrá 17 heilbrigðismál, 7 mál tengd fjármál- um, 6 stjórnunarmál og 2 starfs- mannamál. Til upplýsinga voru 11 mál, þar af sex skýrslur sem gerðar voru sam- kvæmt fyrri samþykktum fram- kvæmdastjórnarinnar. Hvað af þessu telur Davíð vera helzt frá- sagnarvert? „Í raun eru öll þessi mál mjög mikilvæg heilsu fólks í heiminum. En til að nefna eitthvað þá var með- al annars samþykkt að festa 14. júní í sessi sem alþjóðlegan blóðgjafa- dag. Upplýsingatæknin í heilbrigðis- málum var líka á dagskrá og var samþykkt að efla hlut hennar eftir mætti, bæði í heilsugæzlunni sjálfri og í upplýsingaþjónustu inn á við sem út á við. Hér er ekki lengur ver- ið að ræða málið út frá sjónarhorni ríku þjóðanna, heldur ekki síður í þeim tilgangi að efla heilbrigðis- þjónustu fátækra þjóða. Þá má nefna ályktun um sérstak- ar aðgerðir til þess að tryggja eldra fólki heilbrigðari og hamingjusam- ari efri ár. Í þessari ályktun er sérstaklega minnt á áralangt framlag aldraðra til samfélags síns og haldið fram rétti þess til heilbrigðis- og fé- lagslegrar þjónustu.“ Bakteríur í barnamat „En það voru ekki bara hagsmun- ir þeirra eldri, sem voru til umræðu. Eitt málið var næring ungbarna, en þar er á ferðinni mál sem fjallar m.a. um bakteríur í mjólkurdufti. Það urðu nokkur átök um þetta mál. Frakkar lentu í stóru slysi vegna þessa og hér á Íslandi kom upp mál fyrir nokkrum árum, þar sem ekki var rétt farið með mjólkurduftið. Það sem margar þjóðir helzt vildu var að setja alþjóðlegar reglur um áletranir á umbúðir, þar sem varað væri við hættunni af bakter- íumengun í duftinu. Ágreiningur um málið snerist um það, hvort nægjanleg þekking væri fyrir hendi til að merkja mjólkur- duft með þessum hætti. Það hafðist ekki fram í þessari lotu að krefjast þess, að framleið- endur setji aðvaranir á umbúðirnar. Í ályktun fundarins er hvatt til þess að settar verði reglur um fram- leiðslu og meðferð á barnamat og þess sérstaklega krafizt, að menn flýti sér að ná landi með rannsóknir varðandi hættumörk örverumeng- unarinnar.“ – Getur það ekki reynzt þrautin þyngri að sætta menn, sem eru á öndverðum meiði í svona mál- um? „Það er ekki alltaf auðvelt! Venj- an er sú, að hver stjórnarmaður tal- ar einu sinni í fyrstu umferð og seg- ir þá hug sinn til þeirrar tillögu sem fyrir liggur. Þetta eru ákaflega kurteislegar umræður, menn eru ekkert að berja skónum í borðið til þess að undirstrika orð sín. Það er svo trikkið við formennsk- una að nota kaffihlé og matartíma líka, ef með þarf, til að tala menn til og fá þá til þess að enda í sama liði. Stundum þarf líka að fresta málum í nokkra daga meðan fundur stendur til að vinna tíma til sátta.“ Áfengið reyndist öðru snúnara –Var eitthvert eitt mál öðrum erf- iðara í þessum efnum? „Já. Áfengismálin urðu erfiðust úrlausnar!“ – Áfengismálin!? „Já. Fulltrúum Norðurlandanna var mikið í mun að fá samþykkta harðorða ályktun um áfengisbölið, en margir höfðu svolítið aðra sýn á málið. Það má eiginlega segja, að menn hafi skipzt í þrjá hópa; Norðurlönd- in, með sína ströngu áfengisstefnu og sérstakt drykkjumynstur, músl- imalönd, þar sem áfengisneyzla er bönnuð og þriðja hópinn skipuðu lönd, sem hingað til hafa ekki skil- greint mikla drykkju sem heilbrigð- isvanda. Í sumum löndum er svo til viðbótar þannig háttað að fram- leiðsla áfengis er aðalatvinnu- og útflutningsgreinin. Það gefur auga leið að svo mislitir hópar eiga erfitt með að ná saman. Sem dæmi má nefna heiti tillögunn- ar; fyrst hét það heilsuvandi af völd- um notkunar áfengis. Þá vildu menn taka orðið misnotkun inn, en það átti ekki upp á pallborðið hjá sum- um svo það var fellt út. Þá voru aðr- ir sem gátu ekki fellt sig við að talað væri bara um vanda af völdum áfengis. Á endanum sættust menn á orðalalagið heilsuvanda af völdum skaðlegrar notkunar áfengis! En Í skugga heimsflensuh Umræður um afleiðingar náttúruhamfaranna í Ind- landshafi lituðu allan fundinn. Þar voru menn þó á einu máli. Um önnur mál stóð mikill styr og mestum deilum olli til- laga um aðgerðir gegn skaðsemi áfengisneyzlu. Framkvæmdastjórn Al- þjóðaheilbrigðismála- stjórnarinnar, WHO, kom saman í Genf í janúar og í samtali við Freystein Jóhannsson rekur Davíð Á. Gunnarsson, formaður framkvæmdastjórnar- innar, það sem hæst bar á fundinum. Morgunblaðið/Golli Davíð Á. Gunnarsson: Það er eins og allir bíði með öndina í hálsinum eftir því, að það verði til veira, sem smitast ekki að- eins frá fuglum til manna, heldur milli manna og þar með brytist út heimsfaraldur. ’Fátækt er í raunstærsta heilbrigð- isvandamálið sem við glímum við.‘ ’Nú er reynt aðdraga sem mest úr notkun sýklalyfja og hafa menn talað um „skynsamlega“ neyzlu í því sam- bandi.‘

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.