Morgunblaðið - 06.02.2005, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. FEBRÚAR 2005 33
UMRÆÐAN
!
"#
!"# $%$ && '(# $%$ && FYRIR STOFNANIR FÉLAGASAMTÖK EÐA EINSTAKLINGA
Nýtt sumarhús að Sölvaslóð 4, Arnarstapa
Til sölu mjög vandað, nýtt og fallegt sumarhús á Arnarstapa.
Húsið er 55 m2 + 15 m2 svefnloft. Bústaðurinn stendur á einni
af glæsilegustu útsýnislóðunum á Arnarstapa með útsýni út á
Faxaflóa, Stapafell, Sölvahamar og Snæfellsjökul. Húsið er reist
á steyptum sökkli með skriðkjallara (lagnakjallara). Húsið er
fullfrágengið að utan með þakkanti, rennum og drenlögn í
kringum sökkul. Búið er að taka inn rafmagn og vatn og er
vegur heim að húsinu og bílastæði frágengið. Verið er að
ganga frá palli ca 70 fm og rotþró. Húsið verður afhent fullbú-
ið að utan með palli, fokhelt að innan með einangruðu gólfi, að- og fráveitulagnir fullbúnar og lóð
grófjöfnuð með veg og bílaplani. Verð: 7 milljónir.
Fullgerður, verð 10,5 milljónir. Möguleiki á afhendingu fyrir hvítasunnuhelgina!
AUSTURSTRÖND - ÞAK-
ÍBÚÐ Falleg 6 herb. um 125 fm íb. á 6.
hæð ásamt sólstofu. Íbúðin skiptist m.a. í 4
svefnh., stórar stofur, eldhús, baðherbergi,
sjónavarpsherb. og sólstofu. Stæði í bíla-
geymslu fylgir. 4746
SKIPHOLT - LAUS STRAX
Góð 5 herbergja 120 fm upprunaleg íbúð á
efstu hæð í fallegu húsi. Eignin skiptist
þannig: Stofa, borðstofa, þrjú herbergi, eld-
hús, þvottahús, baðherbergi, gangur og hol.
Sérgeymsla fylgir á 1. hæð. Suðursvalir og
sérbílastæði á lóð. V. 18,4 m. 4743
FUNALIND - GLÆSILEG
Glæsileg þriggja herbergja íbúð á þriðju hæð
í góðu fjölbýlishúsi við Funalind í Kópavogi.
Eignin skiptist m.a. í hol, tvö herbergi, bað-
herbergi, sjónvarpshol, stofu/borðstofu, eld-
hús og þvottahús. Sérgeymsla í íbúð. Mikið
var lagt í þessa íbúð í upphafi. Öll ljós geta
fylgt. V. 21,4 m. 4734
KAMBASEL - GLÆSILEG 3ja
herb. mjög falleg endaíbúð á 2. hæð sem
skiptist í forstofu, baðherbergi, innra hol,
hjónaherbergi, barnaherbergi, eldhús, sér-
þvottahús og stóra stofu. Friðsælt umhverfi.
V. 15,7 m. 4737
ÞINGHÓLSBRAUT -
SÉRINNG. Falleg 72 fm 3ja herbergja
íbúð með sérinng. á jarðhæð. Nýjar innr. og
gólfefni. Flísalagt baðherbergi. Íbúðinni fylgir
52 fm óinnréttað rými sem hægt væri að
innr. til útleigu með sérinng. og gluggum.
Heildarstærð er 124 fm. Áhv. er ca
10.000.000 lán frá KB-banka á 4,2% vöxt-
um. V. 14,5 m. 3683
AUSTURSTRÖND - M. BÍL-
SKÝLI Glæsileg 2ja herbergja íbúð á 5.
hæð (2. hæð frá inngangi í húsið þ.e.a.s. frá
Nesvegi) í sex hæða fjölbýlishúsi. Íbúðin
skiptist þannig: Stofa, eldhús, herbergi,
baðherbergi og hol. Sérgeymsla fylgir á 2.
hæð. Sameiginlegt þvottahús með vélum er
á hæðinni. Sameiginleg hjólageymsla er á 3.
hæð. Merkt stæði í bílageymslu fylgir íbúð-
inni. V. 13,5 m. 4670
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali
HRÍSMÓAR - M. BÍLSKÚR - LAUS STRAX
Falleg og rúmgóð 3ja herbergja 93 fm endaíbúð á 3. hæð í litlu fjölbýli ásamt bílskúr.
Fallegt útsýni. Stórar svalir. Íbúðin skiptist í forstofu, hol, stofu, borðstofu, eldhús, bað-
herbergi, sérþvottahús (í íbúð) og 2 svefnherbergi. Sérgeymsla er á jarðhæð ásamt
hjólageymslu. V. 19,9 m. 4738
ÞINGÁS - VEL STAÐSETT EINBÝLI
Hér er um að ræða 177,3 fm einbýlishús ásamt 32,7 fm bílskúr og óskráðu rislofti.
Húsið skiptist þannig: Á neðri hæðinni er forstofa, hol, borðstofa og stofa, eldhús
ásamt vinnuherbergi og snyrtingu. Á efri hæðinni eru fjögur svefnherbergi, sjónvarps-
hol og baðherbergi. Í risi er eitt svefnherbergi. Lóðin er malarborin fyrir framan bílskúr
en fullfrágengin baka til, afgirt og hellulögð ásamt timburverönd með heitum potti. V.
42,5 m. 4741
Suðurlandsbraut 4a • 108 Rvk. • Fax 533 4811 • midborg@midborg.is
533 4800
Björn Þorri hdl., lögg. fastsali, Karl Georg hrl., lögg. fastsali.
Laugavegur 182 • 105 Rvík • Fax 533 481 • midborg@midborg.is
225 fm stórglæsilegt einbýli á þremur hæðum
við Skipasund, sem skiptist í 123,4 fm
glæsilega efri sérhæð og ris, 65 fm séríbúð í
kjallara og 36 fm bílskúr. Hæðin og risið skiptist
í forstofu, hol, eldhús, snyrtingu, tvær stofur,
fjögur herbergi, baðherbergi og eldhús. Í
kjallara er sameiginlegt þvottahús. Mögulegt er
að útbúa tvær íbúðir. Eldhúsið er allt
nýuppgert, með nýjum tækjum, graníti á
borðum og innréttingar sérsmíðaðar. Öll hæðin
er með eikarparketi nema snyrtingin og
forstofan sem eru með graníti á gólfi. Lýsing er
hönnuð af Lúmex. Íbúðin í kjallara skiptist í
eldhús, baðherbergi, hol, herbergi og stofu.
Viðbyggingarmöguleikar eru fyrir hendi á
hæðinni. Falleg og gróinn lóð. Húsið lítur mjög
vel út að utan og hefur verið vel viðhaldið.
Verð 49,5 millj. 5170
Skipasund 45
mbl.issmáauglýsingar
FJÁRMÁLARÁÐHERRA lagði
áherslu á það á Alþingi nú í vikunni
að skattsvik yrðu ekki liðin. Loðin og
óskýr svör fengust samt við því
hverjum af þeim 24 tillögum sem
fram koma í skýrslu skatt-
svikanefndar hann myndi fylgja eftir
til að sporna við skatt-
svikum.
Misnota frelsið
Skattsvikaskýrslan
varpar glöggu ljósi á
hvernig skipulögð skatt-
svik hafa aukist og nýjar
skattsvikaleiðir bæst
við. Hún sýnir líka að
skattalöggjöfin er að
sumu leyti gloppótt og
býður bókstaflega upp á
að fyrirtæki geti komist
undan eðlilegum skatt-
greiðslum til samfélags-
ins. Í skýrslunni er því t.d. blákalt
haldið fram að íslenskir skattaðilar
nýti sér skattaparadísir og ýmiskon-
ar lágskattasvæði til að koma undan
tekjum sem sæta eigi skattlagningu
hér á landi. Það er auðvitað graf-
alvarlegt og við því verður að bregð-
ast ef fyrirtæki eru að misnota frels-
ið og þá bættu samkeppnisstöðu sem
þeim hefur verið búin í alþjóðlegu
samkeppnisumhverfi. Skýrslan sýn-
ir líka vel hve mikill ávinningur er af
öflugu skatteftirliti þegar áætlað er
að allt að 35 milljarðar tapist af
skattfé landsmanna vegna skatt-
svika, en það er samsvarandi fjár-
hæð og fer til að reka allt skólakerfið
í landinu, framhaldsskóla, grunn-
skóla og háskóla.
Aðgerðir strax
Þegar þarf að grípa til aðgerða og
bæta skattalögin og alla skattafram-
kvæmd. Hér verða aðeins nefndar 6
mikilvægar tillögur af þeim 24 sem
koma fram í skattsvikaskýrslunni og
nauðsynlegt er að hrinda þegar í
framkvæmd :
1. Afnema þarf heimild til að
fresta skattlagningu á sölu-
hagnaði ef frestunin fæst með
því að fjárfesta í erlendum fé-
lögum, oft í skattaparadísum,
en með því skapast möguleiki til
að komast að fullu undan skatt-
lagningu á söluhagnaði. Margar
þjóðir skattleggja uppsafnaðan
hagnað í eignum sem fluttar eru
úr landi.
2. Skattleggja á vexti sem greidd-
ir eru úr landi, en Ísland er eitt
örfárra landa sem ekki gera
það. Að öðrum kosti þarf að
skilyrða skattfrelsið við lönd
sem við höfum tvískött-
unarsamninga við og gefa allar
upplýsingar til skattyfirvalda
um tekjur og eignir í félögum
erlendis í eigu íslenskra aðila.
Þessi gloppa í skattkerfinu nýt-
ist m.a. vel þeim sem stofnsetja
dótturfyrirtæki í
skatta-
paradísum,
leggja í þau fé og
lána síðan ís-
lenska móðurfyr-
irtækinu. Vext-
irnir dragast frá
skattstofni ís-
lenska fyrirtæk-
isins og lækka
skattgreiðslur
þeirra.
3. Lögfest verði
skylda fjár-
málastofnana til
að láta í té allar upplýsingar um
eignir í vörslu þeirra en í skatt-
svikaskýrslunni kemur fram að
Ísland er í hópi 10 ríkja af rúm-
lega 30 sem ekki krefjast sjálf-
krafa skýrslugjafar fjár-
málastofnana til skattyfirvalda.
Vegna staðgreiðslunnar snýr
vandamálið ekki að vaxta-
tekjum af bankainnistæðum,
heldur einkum af verðbréfum,
s.s hlutabréfum. Þegar Svíar
tóku upp þessa upplýs-
ingaskyldu bötnuðu skattskil
vegna fjármagnstekna um 20-
30%.
4. Færa saksókn og ákæruvald í
skattsvikamálum til embættis
skattrannsóknarstjóra og máls-
forsvar í dómsmálum um
ágreining í skattamálum til
embættis Ríkisskattstjóra, en
meðferð skattsvikamála verður
með því hraðari og skilvirkari.
5. Koma á fót sérstökum sérhæfð-
um eftirlitsdeildum sem hafi
skatteftirlit með stórfyr-
irtækjum, ekki síst fjármálafyr-
irtækjum með mikil erlend um-
svif.
6. Bæta þarf skattaframkvæmd-
ina til að koma í veg fyrir að eig-
endur fyrirtækja séu að færa
einkaneyslu sína sem kostnað á
fyrirtækin og ekki síður að hluti
launa, t.d. bónus eða kaup-
réttur, sé ekki gefnn upp til
skatts og hluthöfum veitt vaxta-
laus lán sem ekki eru gerð upp.
Tugir milljarða í húfi
Þetta eru m.a. þær tillögur í skatt-
svikaskýrslunni sem ég tel að leggja
eigi megináherslu á. Í húfi eru tugir
milljarða króna sem skattgreið-
endur hljóta að gera kröfu til að skili
sér til að bæta lífskjör og velferð í
landinu. Það eru fyrst og fremst ein-
staklingar sem bera meginþungann
af skattgreiðslum til ríkisins eða um
90%. Hlutur fyrirtækja er því ekki
mikill fyrir, þó ekki bætist við að þau
hafi óeðlilegar undankomuleiðir til
að færa hagnað sinn úr landi til að
komast hjá skattgreiðslum.
Falið fé
Jóhanna Sigurðardóttir
fjallar um skattsvik
’Í húfi eru tugir millj-arða króna sem skatt-
greiðendur hljóta að
gera kröfu til að skili sér
til að bæta lífskjör og
velferð í landinu.‘
Jóhanna Sigurðardóttir
Höfundur er alþingismaður.
Úrslitin í ítalska boltanum
beint í símann þinn