Morgunblaðið - 06.02.2005, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 06.02.2005, Blaðsíða 30
30 SUNNUDAGUR 6. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN Jón bóndi í Ölfusi veit hvað hann syngur þegar kemur að sölu bújarða Ef þú ert að leita að bújörð þá ertu í traustum höndum með Jón þér við hlið Til þjónustu reiðubúinn í síma 896 4761 Jón tekur á móti viðskiptavinum Hóls samkvæmt samkomulagi á Skúlagötu 17. Franz Jezorski, hdl. og lögg. fasteignasali Hóll er landsþekkt fyrir fagleg vinnubrögð og úrvalsþjónustu í á annan áratug. Taktu enga áhættu með þína fasteign. Skiptu við heiðarlega og ábyrga fasteignasölu sem hefur hagsmuni þína að leiðarljósi. Skipholti 29a, 105 Reykjavík fax 530 6505 heimili@heimili. is Einar Guðmundsson, lögg. fast. Finnbogi Hilmarsson, lögg. fast. Bogi Pétursson, lögg. fast. sími 530 6500 HÚSIN Í BÆNUM KYNNA: BREIÐVANGUR 10 – HAFNARFIRÐI OPIÐ HÚS Í DAG FRÁ KL. 16-18 Um er að ræða 4ra her- bergja íbúð á fyrstu hæð auk bílskúrs. Þetta fjöl- býlishús er í gömlu og rótgrónu hverfi í Hafnar- firðinum. Stutt er í alla þjónustu og skóla. Komið er inn í rúmgóða forstofu með flísum á gólfi og góðum forstofuskáp, herbergisgangur með flísum á gólfi, 3 svefnherbergi eru og eitt þeirra með fataskáp. Plastparket á gólfum, stofa er björt og rúmgóð og er útgengt á suður- svalir, plastparket á gólfi, eldhús með dökkri viðarinnrétt- ingu (nýlegri) flísar á gólfi, þar innan af er þvottahús og geymsla, baðherbergi er flísalagt hólf og gólf, sturtuklefi og lítil dökk viðarinnrétting (nýlegt). Íbúðin er öll hin snyrtileg- asta og vel skipulögð. Bílskúr þarfnast lagfæringar. Páll sýnir. Nánari uppl. eru gefnar á skrifstofu í síma 535 0600 eða hjá Þóri í síma 664 6992. Hamraborg 5, 200 Kópavogi husin@husin.is 53 50 600 Fax 53 50 601 Sveinn Ó. Sigurðsson lögg. fasteignasali                                ! "#                !"# $%$ &&  ' (# $%$ &&   OPIÐ HÚS – LÆKJASMÁRI Glæsileg 4ra herb. 109,2 fm íbúð í nýlegu lyftuhúsi í Lækjasmára í Kópavogi. Frábær staðsetning og örstutt í alla þjónustu. Innréttingar og hurðir úr kirsuberjaviði. Parket og flísar á gólfum. Þetta er virkilega falleg íbúð í vönduðu viðhaldslitlu fjölbýli á einum besta stað í Kópavogi. Halldór, sölufulltrúi Nethúsa, tekur á móti gestum milli 14 og 15 í dag. Bjalla merkt 201. Sími 840 2100. Líkamsræktarstöð Húsnæði, sem er nýinnréttað undir 350m² líkamsræktarstöð vestan við miðbæ Reykjavíkur, til leigu og afhendingar strax. Tæki fylgja ekki en hægt er að útvega ný tæki á ca 1/2 virði. Ef um annars konar starfsemi er að ræða, þá er 4 m lofthæð í húsnæðinu og möguleiki á innkeyrslu- dyrum, auk aðg. að 200m² geymslukjallara í bónus (án aukagreiðslu). Áhugasamir hafi samband við Guðlaug, gsm 896 0747. Mánaðarleiga kr. 340.000. Sími 511 2900 Áhugasamir hafi samband við sölumenn Leigulistans. Í GREIN í Morgunblaðinu sl. föstudag furðar Jónas Elíasson pró- fessor sig á að íslensk nátt- úruverndarsamtök einbeiti sér ekki að verndun svartfugls norðan við land í stað þess að andæfa virkj- unum á hálendi Íslands. Segir Jónas að, „Engin af hinum óteljandi fé- lögum náttúruverndar, landverndar og um- hverfisverndar hafa snefil af áhuga á hels- veltum svartfugli eða annarri rányrkju á líf- ríki hafsins.“ Bendir hann m.a. á að skoða megi betur „ … hvaða áhrif það hefur á lífríki sjávar að botnvör- pungarnir brjóta alla kóralla, botnstrýtur og alla felustaði fyrir ung- viði botnfiska með því að valta yfir u.þ.b. 50.000 ferkílómetra af hafsbotni á ári með æ þyngri trollum …“ Ég vil þakka Jónasi fyrir að benda á það tjón sem nútíma- fiskveiðar valda, en um það hefur of lítið verið fjallað. Ég skil þó ekki hvers vegna hann skammar íslensk náttúruverndarsamtök fyrir að sinna þessu ekki. Væri ekki nær að hann beindi gagnrýni sinni að sjáv- arútvegsráðherra og Hafrann- sóknastofnun. Nema ef vera kynni að hann vildi benda á þessa ósvinnu til að afsaka og réttlæta eyðilegg- ingu á dýrmætri náttúru hálendis Íslands. „Svo skal böl bæta að benda á annað,“ söng Megas. Tilgangur Jónasar er að gagn- rýna kort gefið út af 10 nátt- úruverndarsamtökum sem sýnir hvaða vatnsföll á miðhálendi Íslands voru skoðuð í fyrsta áfanga Rammaáætlunar um nýtingu vatns- orku og jarðvarma. Markmið útgef- enda var að benda á að fyrirheit stjórnvalda um afhend- ingu orku til stóriðju samsvara virkjun allra vatnsfalla er féllu und- ir fyrsta áfanga Rammaáætlunar. Þessu reiðist Jónas og segir: „ … svartfuglinn má drepast eins og hann vill fyrir nátt- úruverndarmönnum, en ef Landsvirkjun vill leggja einhverja sand- auðn undir vatn þá telja þeir lífríkinu ógn- að og stofna til mála- rekstrar sem engan enda virðist ætla að taka.“ Hvort tveggja er rangt hjá Jón- asi. Í fyrsta lagi, að svo miklu leyti sem svartfuglsdauða má rekja til breytinga í lífríki sjávar vegna lofts- lagsbreytinga, þá hafa Nátt- úruverndarsamtök Íslands látið sig þann málaflokk miklu varða. Í öðru lagi er það rangt hjá Jónasi að lýsa baráttu náttúruverndarsamtaka sem svo að þau amist við því að Landsvirkjun vilji „ … leggja ein- hverja sandauðn undir vatn …“. Hann veit betur. Eyjabakkar, Þjórsárver og gróin svæði sem fara undir Hálslón eru ekki sandauðnir heldur gróðurvinjar sem eru ein- stakar á heimsvísu. Jónas veður áfram og segir að út- gefendur kortsins hafi „ … sleppt því að mála Þingvallavatn, Sogið og Elliðaárdalinn svört þótt allt séu þetta virkjunarsvæði með nákvæm- lega sömu umhverfisáhrifum og á öllum öðrum virkjunarstöðum.“ Rangt. Markmið útgáfunnar var að fjalla um þá virkjunarkosti sem Rammaáætlun tók til. Jónas veit manna best að þessar virkjanir féllu ekki undir Rammaáætlun. Að lokum þetta: Ekki verður ann- að af grein Jónasar skilið en að sem mest skuli virkja og að nátt- úruvernd felist í að framkvæmdir á miðhálendi Íslands „ … falli sem best að náttúrunni, bæði hvað skipulag og útlit varðar.“ Þeim sem eru á öðru máli lýsir Jónas með gíf- uryrðum sem ekki eru svara verð. Svo skal böl bæta … Árni Finnsson svarar Jónasi Elíassyni ’Nema ef vera kynni aðhann vildi benda á þessa ósvinnu til að afsaka og réttlæta eyðileggingu á dýrmætri náttúru há- lendis Íslands.‘ Árni Finnsson Höfundur er formaður Nátt- úruverndarsamtaka Íslands. Á PRESSUKVÖLDI sem haldið var sl. fimmtudag um ábyrgð frétta- manna og vinnubrögð fjölmiðla afhjúpaðist sá veggur tortryggni sem risið hefur á milli blaðamanna og forsæt- isráðuneytisins á und- anförnum vikum. Sú tortryggni hefur náð hámarki í umfjöllun um Íraksmálið og að- draganda þess að Ís- land fór á lista hinna viljugu þjóða sem studdu innrás Banda- ríkjamanna og Breta í Írak árið 2003. Ásak- anir ganga á víxl; aðstoðarmenn Halldórs Ásgrímssonar saka blaða- menn um einelti og óvönduð vinnu- brögð og blaðamenn saka Halldór og alla hans menn um að spinna óljósan vef sem ekkert skýrir. Þetta vantraust á báða bóga er engum til góðs. Það gerir starfsum- hverfi blaðamanna óvinveittara og torveldar upplýsingamiðlun til al- mennings. Það verður til þess að stjórnmálamenn takmarka upplýs- ingagjöf til blaðamanna sem elur af sér aukna óánægju og vissu um að verið sé að fela upplýsingar. Þessu verður að breyta. Blaðamanna- félag Íslands býður fram krafta sína til að bæta úr þeim sam- skiptavanda sem skap- ast hefur. Hverjum er um að kenna skiptir engu úr því sem komið er. Við getum unnið okkur út úr þessu máli með þeirri einu leið sem boðleg er í sam- félagi sem byggir á lýðræði og frjálsum skoðanaskiptum. Með því að tala saman. Ég legg til að skipuð verði nefnd með fulltrúum stjórnvalda og blaða- manna, sem hafi það hlutverk að finna leiðir til að bæta samskipti fjölmiðla og stjórnvalda í því skyni að auka gagnsæi í samfélaginu og eyða tortryggni, hvort sem það hef- ur grafið um sig á milli almennings og fjölmiðla, fjölmiðla og stjórn- valda eða almennings og stjórn- valda. Ýmsar leiðir eru færar til að bæta úr þeirri stöðu sem upp er komin. Hægt væri að halda vikulega blaða- mannafundi í stjórnarráðinu sem upplýsingafulltrúi stjórnarráðsins stýrir alla jafna en forsætisráðherra mæti sem oftast. Þetta yrði tæpast til að auka vinnuálag forsætisráð- herra heldur þvert á móti; draga úr stöðugri spurn blaðamanna eftir svörum sem hugsanlega gætu beðið til fundarins. Þetta er aðeins eitt dæmi um vinnubrögð sem strax gætu minnkað óánægju okkar blaðamanna með flæði upplýsinga úr stjórnarráðinu og aðgengi að for- sætisráðherra. Brýnt er að Íraksmálinu, sem leiddi okkur öll í þessar ógöngur, verði lokið hið fyrsta. Það er út- breidd skoðun meðal blaðamanna að málið hafi ekki verið nægilega skýrt. Forsætisráðherra verður að mæta þessari skoðun og mér þætti eðlileg- ast að það yrði gert með ítarlegum blaðamannafundi þar sem Halldór svarar spurningum fréttamanna. Þá hvet ég stjórnvöld jafnframt til þess að íhuga það gaumgæfilega að birta sem flest gögn málsins. Meginatriðið er að samskipti stjórnvalda og fjölmiðla og upplýs- ingamiðlun í samfélaginu séu með eðlilegum hætti, án þess skugga tor- tryggni, átaka og jafnvel óvildar sem yfir þau hefur brugðið síðustu vikur. Traust eða tortryggni? Róbert Marshall fjallar um samskipti stjórnvalda og fjölmiðla ’Þetta vantraust á báðabóga er engum til góðs. Það gerir starfsum- hverfi blaðamanna óvin- veittara og torveldar upplýsingamiðlun til almennings. ‘ Róbert Marshall Höfundur er formaður Blaðamannafélags Íslands.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.