Morgunblaðið - 06.02.2005, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 06.02.2005, Blaðsíða 38
38 SUNNUDAGUR 6. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Sigurgeir Jóns-son fæddist á Ísafirði 11. apríl 1921. Hann lést á LSH í Fossvogi 26. janúar síðastliðinn. Foreldrar hans voru Jón Arinbjörnsson, f. 29. okt. 1891, d. 21. nóv. 1974, og Hrefna Sigurgeirs- dóttir, f. 19. júlí 1892, d. 2. júní 1956. Systir Sigurgeirs er Steinunn Jónsdóttir, f. 27. des. 1923 á Ísa- firði. Eiginmaður hennar var Sigfús Halldórsson, f. 7. sept. 1920, d. 1996. Sigurgeir kvæntist 9. nóv. 1946 Hrafnhildi Kjartansdóttur Thors, f. 30. sept. 1919. Foreldrar henn- ar voru Kjartan Thors, f. 26. apríl 1890, d. 4. ágúst 1971, og k.h. Ágústa Björnsdóttir Thors, f. 14. febr. 1894, d. 17. des. 1977. Börn þeirra eru: 1) Hrefna, 1947, maki: Guðjón Jónsson, f. 1944. Þeirra börn: a) Jón, f. 1965, d. 1966. b) Snorri, f. 1967, maki: Ingibjörg Sandholt, f. 1970. Þeirra börn eru Sæunn, f. 1992, Baldur, f. 1996, d. 1996, og Lovísa, f. 1997. c) Alma, f. 1972, maki: Gunnar Hreinsson, f. 1972. Þeirra synir eru Davíð, f. 1996, og Arnór, f. 2000. d) Har- ars Páls eru: a) Jónas Haukur, f. 1980, sambýliskona Laufey Karit- as Einarsdóttir, f. 1982. Þeirra dætur eru Silvana Ósk, f. 2003, og Camilla Rún, f. 2004. b) Hrafn- hildur, f. 1984. c) Helgi, f. 1993. Synir Friðriks eru: a) Svavar, f. 1973, sambýliskona Sólveig G. Sigurðardóttir, f. 1983. Þeirra dóttir er Sigríður Birna, f. 2004. Sonur Svavars er Viðar Snær, f. 1995. b) Sigurjón Viðar, f. 1984, sambýliskona Tinna Rögnvalds- dóttir, f. 1985. Sigurgeir varð stúdent frá MR 1939. Hann stundaði nám í við- skiptafræði við Viðskiptaháskóla Íslands 1939–40 og lögfræði við Háskóla Íslands 1940–45, cand. juris þaðan 30. maí 1945. Hann var hjá lögreglu New York-borg- ar fyrri hluta ársins 1949 til að kynna sér lögreglurannsóknir. Hann varð hdl. 15. sept. 1948, hlaut löggildingu til saksóknar í opinberum málum 14. des. 1951, og varð hrl. 1. júlí 1986. Sigurgeir var fulltrúi í dóms- og kirkju- málaráðuneytinu frá 1. sept. 1945 til 10. ágúst 1955. Hann var skip- aður bæjarfógeti í Kópavogi frá 10. ágúst 1955 til 31. júlí 1979, og hæstaréttardómari 9. júlí 1979 frá 1. ágúst s.á. Hann var kjörinn varaforseti Hæstaréttar 27. des. 1984 frá 1. jan. 1985 til 30. júní 1986. Honum var veitt lausn frá embætti að eigin ósk 15. maí 1986 frá 30. júní s.á. Útför Sigurgeirs var gerð frá Kópavogskirkju 4. febrúar sl. í kyrrþey að hans ósk. aldur, f. 1973, maki Sigríður Jónsdóttir, f. 1973. Þeirra dóttir er Hrefna Magndís, f. 2003. Börn Sigríðar eru: Sunna Guðrún, f. 1993, og Jón Flosi, f. 1997. 2) Kjartan, f. 1948, maki Þórdís Guðrún Bjarnadóttir, f. 1950. Þeirra börn eru: a) Margrét, f. 1970. b) Kjartan Þór, f. 1975. c) Bjarni, f. 1976, sambýliskona Ástríður Elsa Þor- valdsdóttir, f. 1978. Hennar sonur er Þorvaldur, f. 1999. 3) Jón, f. 1951, maki 1: Her- borg Auðunsdóttir, f. 1952, þau slitu samvistir. Maki 2: Sigríður Harðardóttir, f. 1950. Synir Jóns og Herborgar eru: a) Sigurgeir Örn, f. 1974, maki Elín Marta Pét- ursdóttir, f. 1963. Þeirra dætur eru Unnur Ósk, f. 1996, og Sandra Dögg, f. 1999. Sonur El- ínar er Pétur Þór, f. 1991. b) Auð- unn, f. 1982, sambýliskona Sús- anna Kristín Knútsdóttir, f. 1981. Fóstursonur Sigríðar er Kristján Einar Guðmundsson, f. 1983. 4) Hrafnhildur, f. 1956, maki: Einar Páll Jónasson, f. 1954, d. 1999. Sambýlismaður: Friðrik Hafberg, f. 1954. Börn Hrafnhildar og Ein- Sigurgeir Jónsson. Hann var heiðursmaður. Hans er saknað. Sólveig og Þráinn. Yfirleitt er andlátsfrétt óvænt, þótt vitað sé, að hún sé á næsta leiti. Þannig varð mér alltént við, þegar frétt barst af láti kærs vinar um áratuga skeið. Sigurgeir Jónsson lögfræðingur lést 26. janúar síðastliðinn nær áttatíu og fjögurra ára að aldri. Eftir störf í dómsmálaráðuneytinu og um skeið í Framkvæmdabanka Íslands var hann skipaður bæjar- fógeti við nýstofnað embætti í Kópavogi í ágúst 1955. Því starfi gegndi hann þar til sumarið 1979, er hann var skipaður dómari við Hæstarétt Íslands. Við fráfall hans leita á ýmsar minningar. Reikar hugurinn víða um liðna tíð og staldrar svo við upphaf sjöunda áratugar síðustu aldar. Sá sem þetta ritar var í ársbyrjun 1961 ráðinn fulltrúi við bæjarfógetaemb- ættið í Kópavogi. Stendur mér enn ljóslifandi fyrir hugskotssjónum fyrsti fundur með bæjarfógetanum. Sigurgeir var þá í blóma lífsins, á fertugasta aldursári, hávaxinn og grannur, einarðlegur og bar sig vel. Hann var hressilegur í fasi og af honum stafaði bæði öryggi og festa. Samvinna okkar næstu nærri 19 ár var náin og góð alla tíð. Oft hef ég hugleitt síðar á lífsleiðinni, hve mikil gæfa það var fyrir ungan lögfræðing, að byrja starfsferilinn undir stjórn og leiðsögn Sigur- geirs, en hann var af mörgum tal- inn með allra bestu embættismönn- um landsins á sinni tíð. Á ég honum mest að þakka allra minna lærifeðra. Hafði ég hann ætíð sem fyrirmynd í öllu sem að embætt- isstörfum laut. Í störfum sínum var Sigurgeir afar farsæll. Treysti samstarfs- mönnum sínum fyrir verkefnum, fylgdist vel með, hafði góða yfirsýn og var ávallt tilbúinn að hlusta og veita ráð, ef til hans var leitað. Hann bar ríka réttlætiskennd í brjósti og hafði mikla samúð með þeim sem stóðu höllum fæti. Hrein- skiptinn var hann og talaði tæpi- tungulaust. Allir fengu þá úrlausn sinna mála sem hæfði. Hann stóð þétt að baki sínum starfsmönnum í öllum málum, en brýndi þá til góðs verklags, jafnframt því að gangast við ábyrgð, ef eitthvað færi úr- skeiðis. Minnisstæð er sú regla, sem hann orðaði eitthvað á þessa leið: „Við erum ekki að leita eftir vinsældum í þessu starfi, heldur að vinna skyldustörf.“ Fullyrða má, að Sigurgeir var bæði vinsæll og mjög vel virtur í embætti og margir sáu eftir honum, er hann lauk störfum í Kópavogi, eftir nær aldarfjórðung. Og margir stóðu í þakkarskuld við hann. Sigurgeir Jónsson var gæfumað- ur í einkalífi sínu, það fór ekki framhjá kunnugum, hve kærleiks- ríkt var milli þeirra Hrafnhildar konu hans. Börnin fjögur og heim- ilið hafði alltaf forgang og segja má, að hann hafi vakinn og sofinn hugað að velferð Hrafnhildar og barnanna til hinstu stundar. Skapmaður var Sigurgeir og stóð fast á sínu, en hlustaði alltaf á SIGURGEIR JÓNSSON Innilegar þakkir færum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og hýhug vegna andláts EINARS HANSEN frá Hólmavík. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á Hrafnistu í Hafnarfirði. Guðmunda Guðmundsdóttir, Sigurður Einarsson, Ásta Kristjánsdóttir, Kristín Einarsdóttir, Tómas Sigurbjörnsson, Elsa Hansen, Torsten Gunnarsson, barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, HILDUR B. KÆRNESTED, lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni 2 mánu- daginn 31. janúar. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík þriðjudaginn 8. febrúar kl. 13.00. Anton Örn Kærnested, Ágústa Bjarnadóttir, Ásthildur Birna Kærnested, Sigrún Gróa Kærnested, Grétar Mar Hjaltested, Sigríður G. Kærnested, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, JÓNA JÚLÍA VALSTEINSDÓTTIR, sem lést á Sólvangi að morgni laugardagsins 29. janúar, verður jarðsungin frá Hafnarfjarðar- kirkju þriðjudaginn 8. febrúar klukkan 13.00. Henning Þorvaldsson, J. Steinunn Alfreðsdóttir, Birna Friðrika Þorvaldsdóttir, Jón Ragnar Jónsson, Valdís Ólöf Þorvaldsdóttir, Steinar Harðarson, Sigurbjartur Á. Þorvaldsson, Sveinsína Björg Jónsdóttir, Guðmundur Páll Þorvaldsson, Helga Aðalbjörg Þórðardóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Okkar ástkæri, ODDUR HALLDÓRSSON, Hrafnistu, Hafnarfirði, áður Smyrlahrauni 7, sem andaðist föstudaginn 28. janúar, verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju á morgun, mánudaginn 7. febrúar kl. 13.00. Þorlákur Oddsson, Jóna Birna Harðardóttir, Rafn Svanur Oddsson, Gerður Jóelsdóttir, Halldór Örn Oddsson og afabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÁSGERÐUR SVEINSDÓTTIR, Þrastarási 1, Hafnarfirði, lést miðvikudaginn 26. janúar. Jarðsett hefur verið í kyrrþey. Einar Sigurjónsson, Margrét Halldórsdóttir, Dóra Sigurjónsdóttir, Kristján Helgason, Hrefna Sigurjónsdóttir, Hafþór Þorbergsson, Kolbeinn Sigurjónsson, Kristín Lúðvíksdóttir, Halla Sigurjónsdóttir, Vilhjálmur Agnarsson, barnabörn og langömmubarn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma, SÓLVEIG EYJÓLFSDÓTTIR, Brekkugötu 5, Hafnarfirði, sem lést mánudaginn 31. janúar, verður jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju þriðjudaginn 8. febrúar kl. 15.00. Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á Slysavarnadeildina Hraunprýði og Slysavarnafélagið Landsbjörgu. Kristín V. Haraldsdóttir, Eyjólfur Þ. Haraldsson, Guðbjörg Edda Eggertsdóttir, Eggert Eyjólfsson, Haraldur Sveinn Eyjólfsson. Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, SIGURÐUR BALDURSSON hæstaréttarlögmaður, Meistaravöllum 11, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni miðviku- daginn 9. febrúar kl. 15.00. Lilja Bernhöft, Baldur Sigurðsson, Eva Benediktsdóttir, Gísli Sigurðsson, Guðrún Hólmgeirsdóttir, Brynja Baldursdóttir, Hólmfríður Anna Baldursdóttir, Sigurður Baldursson, Jónína Þorbjörg Saswati Gísladóttir, Anna Pratichi Gísladóttir. Ástkær faðir okkar, GUÐMUNDUR TRYGGVASON, áður til heimilis á Miklubraut 60, lést á hjúkrunarheimilinu Eir fimmtudaginn 3. febrúar. Jarðarförin auglýst síðar. Börn hins látna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.