Morgunblaðið - 06.02.2005, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 06.02.2005, Blaðsíða 12
12 SUNNUDAGUR 6. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ Ertu að grínast? Er hátíð til heiðursBob Marley í Eþíópíu – af öllumstöðum?“ spyr ég gapandi í flugvél-inni á leið til höfuðborgarinnar, Add-is Ababa. Þetta hafði ég ekki hug- mynd um. „Já, Eþíópía og Bob Marley voru nátengd. Það hefur meira að segja verið rætt hvort grafa eigi hann upp og flytja þangað,“ segir viðmæl- andi minn. Hann er frá Jamaíka og á leið til Eþíópíu ásamt vini sínum til að heiðra Marley. „Leiðtogi Marleys og rastafaranna var eþí- ópískur. Þú þekkir rastafarana, er það ekki?“ spyr vinurinn brosandi. Báðir eru með stóra og mikla hárgreiðslu. Ég humma og hæja. Umla síðan að ég hafi hreinlega ekki átt von á risa- stórri hátíð í Eþíópíu. Svo bít ég mig í tunguna. Af hverju skyldi slíkt ekki vera þar? Jafn réttur allra Andlegur leiðtogi hinna svokölluðu rastafara var Haile Sellasie I, fyrrum konungur í Eþíóp- íu. Eþíópía og Líbería voru einu löndin í Afríku sem ekki lutu stjórn vestrænna ríkja á ný- lendutímanum. Sellasie barðist fyrir frelsi Afr- íkuríkja undan nýlenduherrum sínum og lagði áherslu á rétt svartra. Sellasie gekk einnig undir nafninu Ras Taf- ari. Hann fór í fræga heimsókn til Jamaíka árið 1966. Þá var Bob Marley ellefu ára gamall. Hann var fæddur á Jamaíka. Á nýlendutím- anum voru margir þrælar frá Afríku fluttir þangað. Bob Marley varð fyrir áhrifum af hugmynd- um Sellasies. Eins og Sellasie lagði hann áherslu á rétt svartra – og raunar jafnan rétt allra. Honum brann fyrir brjósti þrælatakan og nýlendustefnan. Marley dó síðan úr krabba- meini árið 1981, 36 ára að aldri. Einn heimur „Hugsjónir Bob Marleys snerust um frelsi,“ segir heimamaður sem ég ræði við. „Hann tal- aði um mikilvægi þess að þeir sem teknir hefðu verið í burtu gætu snúið aftur til Afríku. Hann lagði líka áherslu á jafnan rétt kynjanna og fleira. Marley vann ötullega að því að breiða reggítónlist og hugsjónir rastafara – hann var einn af þeim – um heim allan. Ég sjálfur og margir aðrir sjáum í tónlistinni ákveðna frels- un. Auðvitað eigum við að leggja áherslu á einn heim, „one world, one love“ eins og Marley sagði.“ Maðurinn strýkur sér hugsi um höfuðið og leggur áherslu á að Marley sé miklu meira en einungis tónlistarmaður. Hann sé hetja – hetja með hugsjónir og boðskap sem vert sé að taka eftir. Meira en einungis hungur og fátækt Á aðaltorginu í Addis Ababa er búið að setja upp stórt og mikið tónleikasvið. Yfir því hangir borði þar sem á hefur verið letrað Africa Unite. Þetta er yfirskrift hátíðarinnar, samnefnd frægu lagi Marleys. Texta þess vann hann upp úr ræðu Selassies. Tugir verkafólks brjóta niður grjót og hellu- leggja torgið. Sólin skín skært en hitastigið er passlegt, engin molla hér. Addis Ababa, eða Addis eins og borgin er venjulega kölluð, er meira en 2.000 metra yfir sjávarmáli. „Bob Marley gerði margt fyrir okkur og það er mikill heiður fyrir Eþíópíubúa að fá að halda þessa hátíð,“ segir maður sem virðir fyrir sér sviðið. Hann heitir Kassu Fantaye, er þrítugur Eþíópíubúi og býr úti á landi. Hann kom sér- staklega til höfuðborgarinnar til að taka þátt í hátíðahöldunum. „Margir halda að í Eþíópíu sé ekkert annað en hungursneyð og fátækt. Með þessari hátíð sér heimsbyggðin kannski að Eþíópía er eitt- hvað annað og meira en bara það,“ segir Kassu og hlær. Áttræð móðir Bob Marleys Afmæli Bob Marleys er haldið hátíðlegt ár hvert á Jamaíka. Þetta er hins vegar í fyrsta skipti sem fjölskylda hans skipuleggur hátíða- höld annars staðar en þar. Eþíópía þótti kjörin fyrir sextugsafmælið – nokkurs konar gamall draumur. Fögnuðurinn hófst seinasta þriðjudag þegar Cecella Marley Booker, áttræð móðir Marleys, tróð upp. Herlegheitin munu síðan standa í mánuð, með tónleikahaldi, kvikmyndasýning- um, fyrirlestrum og fleiru. Hápunkturinn er útitónleikar sem standa allan sunnudaginn. Þar koma fram þrjú af börnum Bobs og konu hans Ritu Marley, ásamt tónlistarfólkinu Quincy Jones, Baaba Maal, Youssou N’Dour, Angelique Kidjo og fleirum. „Við búumst við gríðarlegum mannfjölda,“ segir kona á skrifstofu Africa Unite, sem sett hefur verið upp aftan við sviðið. „Skemmtunin er ókeypis. Heimamenn eru mjög spenntir og koma því væntanlega í hópum. Auk þess er fjöldi erlendra gesta hér sérstaklega vegna þessa.“ Konan hefur rétt fyrir sér þegar hún segir að heimamenn séu spenntir. Í verslunum og á kaffihúsum hljómar Bob Marley-tónlist og ég þarf ekki að segja annað en nafn hans til þess að þeir ljómi upp. „Við í Eþíópíu elskum Bob Marley!“ segir af- greiðslumaður í búð þegar ég kaupi vatns- flösku. Í blaði les ég að þátttakendur á sunnu- dag gætu orðið 250.000. Einn af aðstandendum hátíðarinnar hvíslar að mér að þeir verði örugglega fleiri. Kannski hálf milljón. Í Eþíóp- íu eru að minnsta kosti yfir sjötíu milljónir íbúa. Þetta er næstfjölmennasta Afríkuríkið. Tveggja daga rútuferð Á kaffihúsi sem stúdentar reka, eru þrjár ungar konur í skrautlegum fötum. Þær komu til Addis í tilefni afmælis Marleys. Tvær voru tvo daga að komast til höfuðborgarinnar með rútu. „Ég var bara nokkrar klukkustundir,“ segir sú þriðja. Inn kemur önnur stúlka sem er slösuð. Bíll- inn hennar valt á leiðinni til Addis. Hún fer á sjúkrahús og verður vonandi orðin góð fyrir sunnudaginn. Stelpurnar þrjár segja að lagið „No woman, no cry“ sé uppáhaldslagið þeirra. „En „Africa Unite“ er líka mjög gott. „Það er svo fallegur boðskapur í því. Auðvitað eiga Afr- íkubúar að vera sameinaðir.“ Úti á götu dansar ung stúlka. „Get up, stand up – stand up for your rights!“ syngur hún og brosir breitt. Síðan bætir hún við. „Bob Marley … er frábær.“ Við elskum Bob Marley Bob Marley hefði orðið sextugur í dag, 6. febrúar. Af því tilefni fara fram hátíðahöld víða um heim. Að- alhátíðin er hins vegar ekki á Jam- aíka, Bretlandi eða annars staðar í Evrópu – heldur í Eþíópíu. Þangað flykkjast pílagrímar í þúsunda tali og þar er einnig fjölskylda Marleys. Sigríður Víðis Jónsdóttir ræddi við langt aðkomna ferðamenn og heyrði tónlist Bob Marleys hljóma um eþíópísk stræti. Bob Marley hefði orðið sextugur í dag. Hann dó árið 1981, en minning hans lifir. Ljósmynd/Sigríður Víðis Kassu Fantaye kom sérstaklega til Addis Ababa til að vera viðstaddur hátíðina: „Bob Marley gerði margt fyrir okkur og það er mikill heiður fyrir Eþíópíubúa að fá að halda þessa hátíð.“ Ljósmynd/Sigríður Víðis „Get up, stand up – stand up for your right!“ söng þessi eþíópíska stúlka. Hún og vinir hennar þekktu tónlist Bob Marleys vel. ’ Það er ekki mín sterkasta hlið aðbera uppi heilt lið, eins og mér finnst vera ætlast til af mér.‘Ólafur Stefánsson handknattleiksmaður þegar flautað hafði verið til leiksloka í síðasta leik Íslands á HM. ’ Ég á fjórar eiginkonur og ætti því aðhætta að reykja.‘Jigme Singye Wangchuck, konungur í Bútan í Him- alajafjöllum, á blaðamannafundi í lok sex daga op- inberrar heimsóknar hans í Dehlí í Indlandi. ’ Ég var oft þvinguð til að kjósa þegarSaddam Hussein réð ríkjum. Í dag kom ég af fúsum og frjálsum vilja og kaus þá frambjóðendur sem ég vildi.‘Mahdeya Saleh, áttræð kona í Najaf, eftir fyrstu raunverulegu þingkosningarnar í Írak í hálfa öld. ’ Þetta snýst um sjálfræði og virðingufyrir einkalífi fólks.‘Björgvin G. Sigurðsson, þingmaður Samfylking- arinnar, á Alþingi í framhaldi af fyrirspurn hans um fjölda aldraðra í tvíbýli. ’ Hvað gerist þegar enginn er lengur álífi sem lifði af veruna í fangabúðunum. Þeir verða að vera áfram hluti af tilveru okkar. Við megum ekki gleyma frásögn- um þeirra og vitnisburði.‘Horst Köhler, forseti Þýskalands, í ræðu á ísr- aelska þinginu, Knesset, í opinberri heimsókn hans í Ísrael. ’ Stundum hef ég það á tilfinningunniað fulltrúar sjálfstæðismanna í stjórn Orkuveitunnar séu fremur hags- munagæslumenn Símans en fulltrúar Reykjavíkurborgar.‘Alfreð Þorsteinsson, stjórnarformaður OR, í viðtali í Morgunblaðinu. ’ Milljónir manna í fátækustu löndumheims eru enn í prísund, ánauð og hlekkjum. Þær eru lokaðar inni í fang- elsi fátæktar. Það er kominn tími til að frelsa þær.‘Nelson Mandela, fyrrverandi forseti Suður-Afríku, í ræðu á Trafalgartorgi í London. ’ Það er búið að hræða líftóruna úrfólki og fráhrindikrafturinn er mikill.‘Ólöf Guðmundsdóttir, forstöðumaður Svæðisvinnu- miðlunar Austurlands, um ástæður þess að ekki bárust fleiri umsóknir frá Íslendingum um störf hjá Impregilo. ’ Það er alltaf sama sagan þegar páf-inn er lagður inn á spítala.‘Læknir á Gemelli-sjúkrahúsinu í Róm þegar fjöldi fjölmiðlamanna hafði safnast saman við innganginn til að afla frétta af líðan Jóhannesar Páls II páfa, sem lagður var inn á sjúkrahúsið eftir að hafa fengið flensu. ’ Lögin eiga að vernda íslenska tunguen það er hálfgerð þversögn þegar heimilt er að útvarpa allan sólarhring- inn á útlensku en ekki gera það í tvo klukkutíma.‘Magnús Ragnarsson, framkvæmdastjóri Skjás eins, eftir að útvarpsréttarnefnd beindi því til Skjás eins að hætta útsendingum á knattspyrnuleikjum sem ekki fylgir tal eða texti á íslensku. ’ Takmarkið að mynda tvö lýðræð-isríki, Ísrael og Palestínu, hlið við hlið í sátt og samlyndi, er innan seilingar – og Bandaríkjamenn munu aðstoða þjóð- irnar að ná þessu markmiði.‘George W. Bush Bandaríkjaforseti í stefnuræðu sinni. ’ Hún [Siv] mætti seint til aðalfundarFreyju og hafði sig þar mjög í frammi, en hún var sú eina á fundinum sem ekki er félagi í Freyju.‘Úr yfirlýsingu frá félagskonum, sem mynduðu meirihluta á aðalfundi Freyju, félags framsókn- arkvenna í Kópavogi. Ummæli vikunnar Morgunblaðið/RAX
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.