Morgunblaðið - 06.02.2005, Blaðsíða 6
6 SUNNUDAGUR 6. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Kínversk áramót
Miðvikudaginn 9. febrúar nk. mun Íslensk-kínverska
viðskiptaráðið halda upp á kínversk áramót, en þá gengur í garð
ár hanans samkvæmt kínversku tímatali. Áramótafagnaðurinn
verður haldinn á veitingastaðnum Kínahofinu, Nýbýlavegi 20,
Kópavogi, og hefst kl.19:00. Boðið verður upp á fimm rétta
máltíð.
Þátttökugjald er 2.800 kr.
Gestir kvöldsins eru þrír: Þórdís Sif Sigurðardóttir, Þóra
Margrét Þorkelsdóttir og Þórarinn Hjörleifsson, öll
viðskiptalögfræðingar útskrifaðir frá Viðskiptaháskólanum á
Bifröst. Þau eiga það sameiginlegt að hafa verið í skiptinámi
við Shanghai University í Shanghai í Kína. Þau munu segja frá
dvöl sinni og sýna myndir þaðan.
Félagsmenn eru hvattir til þess að fjölmenna og taka með sér
gesti. Vinsamlega tilkynnið þátttöku á skrifstofu ráðsins sem allra
fyrst í síma 588 8910 eða netfang lindabara@fis.is
FAGNAÐURINN ER ÖLLUM OPINN.
ÍSLENSK KÍNVERSKA VIÐSKIPTARÁÐIÐ
Í FYRRINÓTT, aðfaranótt laugar-
dags, fóru níu fíkniefnalögreglu-
menn inn á nærri 10 skemmtistaði í
Reykjavík og leituðu að fíkniefnum á
nokkrum tugum gesta. Þetta er um-
fangsmesta aðgerð lögreglu af þessu
tagi en kveikjan að henni eru m.a.
upplýsingar sem hafa komið fram
um aukna fíkniefnaneyslu og fíkni-
efnasölu á skemmtistöðum borgar-
innar.
„Það gengur ekki að menn geti
labbað inn á skemmtistaði með fulla
vasa af fíkniefnum og farið að selja
eða taka fíkniefni. Þeir mega að
minnsta kosti alltaf eiga von á því að
lögreglumaður banki á öxlina á
þeim,“ segir Ásgeir Karlsson, yfir-
maður fíkniefnadeildarinnar í
Reykjavík, sem stjórnaði aðgerðinni
á vettvangi.
Morgunblaðið fylgdist með að-
gerðinni sem hófst um miðnætti,
talsvert áður en skemmtanalífið í
miðborginni komst á fulla ferð, og
stóð fram til um klukkan þrjú. Á
þessum þremur klukkutímum komu
upp 14 fíkniefnabrot og voru menn
ýmist teknir með kókaín, amfetamín,
eða kannabisefni, einkum sterku
efnin. Þegar lögregla hætti aðgerð-
um voru enn um 2-3 klukkutímar þar
til skemmtistaðirnir lokuðu.
Allt fór þetta friðsamlega fram,
nema í einu tilviki en þá sáu þrír lög-
reglumannanna þegar fíkniefnavið-
skipti fóru fram úti á Tryggvagötu,
og stukku þegar af stað til að koma í
veg fyrir viðskiptin. Þrír menn tóku
til varna en átökin urðu hvorki lang-
vinn né blóðug, mennirnir áttu aldrei
mikla möguleika gegn ofureflinu.
Þrír voru færðir á stöðina og látnir
gista fangageymslur. Lagt var hald á
7-8 g af amfetamíni.
Ekki má leita á hverjum sem er
Varla þarf að taka fram að fíkni-
efnalögreglumennirnir voru allir
óeinkennisklæddir en þeir, líkt og
blaðamaður Morgunblaðsins, féllu
misjafnlega vel inn í þann hóp sem
fyrir var á skemmtistöðunum. Fljót-
lega eftir að lögreglumennirnir
komu sér fyrir inni á stöðunum hófu
þeir að taka menn afsíðis og óska eft-
ir að fá að leita á þeim. Leitað var í
fatnaði, veskjum og töskum. Að-
spurður segir Ásgeir að lögregla hafi
ekki heimild til að leita á hverjum
sem er. „Það er ekki hver sem er tek-
inn, rökstuddur grunur verður að
vera fyrirhendi. Við reynum til dæm-
is að fylgjast með útliti fólks og hvort
það sé hugsanlega undir áhrifum,“
segir Ásgeir. Einnig megi leita á
fólki ef ábending hafi borist um að
það sé með fíkniefni. Ef menn neita
sé yfirleitt farið með þá upp á stöð og
síðan óskað eftir dómsúrskurði um
heimild til leitar. Fæstir vilji standa í
því.
Það kom í ljós í fyrrinótt að það
spyrst fljótlega út ef lögreglumenn
eru komnir inn á skemmtistaði, lík-
lega ekki síst meðal þeirra sem lög-
regla er helst á höttunum eftir,
þ.e.a.s. sölumönnunum. Ásgeir segir
að lögregla hafi í fyrri aðgerðum séð
menn kasta frá sér efnunum en aðrir
reyni að koma sér út. Sumum tekst
það, aðrir eru of seinir. „Þetta spyrst
fljótlega út og þá förum við bara á
aðra staði. Og komum síðan jafnvel
aftur,“ segir Ásgeir.
Ásgeir segir að svona eftirlit sé
auðvitað ekki gallalaust en það séu
heldur ekki margir kostir í stöðunni.
Það sé t.a.m. ekki mögulegt að loka
skemmtistöðunum og leita á hverj-
um einasta gesti, slíkt sé einfaldlega
ekki heimilt samkvæmt lögum. Að-
spurður segir hann að það komi til
greina að nota fíkniefnaleitarhunda
við leit á skemmtistöðum en þeir
hafa t.d. verið notaðir til að leita á
gestum á popp- og rokktónleikum.
Ásgeir segir að leit að fíkniefnum
inni á skemmtistöðunum sé liður í
því að fylgja eftir þeirri umræðu sem
hefur verið í gangi í tengslum við
neyslu fíkniefna við skemmtanalíf.
Það sé klárt mál að eftirlitið sé nauð-
synlegt og það verði að vera alveg
ljóst að menn séu ekki óhultir með
fíkniefni á sér. „Við ætlum að taka á
þessu vandamáli af öllu afli.“
Aðspurður segir hann ekki útilok-
að að gripið verði til svipaðra að-
gerða á næstunni. Þá minnir hann á
að fimm lögreglumenn í Reykjavík
vinni við svokallað götueftirlit. Þeir
hafi m.a. verið við eftirliti inni á
skemmtistöðunum og muni beina at-
hygli sinni í auknum mæli að
skemmtistöðunum. Aðgerðin í fyrri-
nótt er sú umfangsmesta af þessu
tagi sem ráðist hefur verið í. Níu lög-
reglumenn úr fíkniefnadeildinni fóru
inn á staðina og þrír biðu átekta fyrir
utan, tilbúnir til að veita aðstoð ef á
þyrfti að halda. Alls eru 16 manns í
deildinni og því voru þrír af hverjum
fjórum fíkniefnalögreglumönnum í
Reykjavík við störf þessa nótt.
Níu fíkniefnalögreglumenn fóru milli skemmtistaða í miðborginni aðfaranótt laugardags
Leitað að fíkniefnum á tugum gesta
Morgunblaðið/Júlíus
„Það gengur ekki að menn geti labbað inn á skemmtistaði með fulla vasa af fíkniefnum og farið að selja eða taka
fíkniefni,“ sagði Ásgeir Karlsson, yfirmaður fíkniefnadeildarinnar í Reykjavík, sem stjórnaði aðgerðum.
LÖGREGLUMÖNNUM líst vel á
hugmyndir um fækkun og stækkun
lögregluembætta á landinu. Þeir eru
þó ekki endilega sammála öllum til-
lögum verkefnisstjórn um nýskipan
lögreglumála, s.s. um hversu mörg
embættin eigi að vera. Þetta er mat
Óskars Bjartmarz, formanns Lands-
sambands lögreglumanna.
Á formannafundi Landssambands
lögreglumanna í gær kynnti Stefán
Eiríksson, formaður verkefnisstjórn-
arinnar, þær niðurstöður sem settar
eru fram í skýrslu verkefnisstjórnar-
innar. „Viðtökurnar voru bara góðar.
Það var ekki annað að heyra en að
mönnum litist vel á hugmyndir um að
fækka embættum og stækka,“ sagði
Óskar Bjartmarz. Margir lögreglu-
menn hefðu lengi verið þeirrar skoð-
unar og almennt teldu þeir að lög-
gæslan yrði skilvirkari og öruggari
með þeim hætti. Á hinn bóginn hefðu
menn ýmsar hugmyndir um hversu
stór embættin skyldu vera. Þá teldu
sumir, þ. á m. hann sjálfur, að rétt
væri að skilja á milli sýslumannsemb-
ætta og lögreglunnar. Þess í stað yrðu
skipaðir sérstakir lögreglustjórar,
líkt og gert hefur verið í Reykjavík.
Aðspurður um kosti þess sagði Óskar
að þeir væru m.a. þeir að lögreglu-
stjórar væru menntaðir til sinna
starfa en sýslumenn hefðu ekki fengið
sérstaka menntun til að vera lög-
reglustjórar. „Það er ekkert í lög-
fræðideildum háskólanna sem snýst
um það að kenna mönnum að verða
lögreglustjórar,“ sagði hann.
Formannafundurinn í gær var
einnig kjaramálaráðstefna en samn-
ingar lögreglumanna eru lausir í lok
apríl. Óskar sagði að gert væri ráð
fyrir að hefja samningaviðræður í lok
þessa mánaðar.
Skýrsla um nýskipan lögreglumála kynnt á formannafundi LL
Líst vel á hugmyndir
um fækkun og stækkun
NEI, ekki er hún Karen Sigurðardóttir í 7.
bekk, Grunnskólans í Grímsey, ein í heim-
inum í orðsins fyllstu merkingu. En ein er
hún í sjöunda bekk og ein er hún að þreyta
samræmt próf, því enginn fjórði bekkingur
er í skólanum þetta árið. Svona geta hlut-
irnir æxlast í smáskólum. Alls eru skóla-
börnin 12 og skiptast í þrjár deildir. Mest
af kennslunni er því einstaklingskennsla en
auðvitað í bland við samkennslu.
Spennandi vika er framundan hjá skóla-
börnunum í Grímsey, því hér er bolludagur
í hávegum hafður. Börnin leggja af stað til
að bolla á bæjunum þegar fer að morgna,
milli 5 og 6 að nóttu. Svona til að ná í skott-
ið á sjómönnunum og bolla þá rækilega áð-
ur en þeir halda á sjóinn. Þetta er áratu-
gagamall siður og vinsæll. Öskudagur er
stór líka, en þá fara skólabörnin syngjandi
á alla vinnustaði eyjarinnar. Heilmiklar æf-
ingar hafa átt sér stað undanfarið, bæði í
söng og gítarundirleik. Mikið er í húfi, því
veitt er vel í sætindum og drykkjum sem
verðlaun fyrir góða skemmtun. Öskudags-
gleðin endar svo í Félagsheimilinu Múla
þar sem kvenfélagskonur í Baugi veita
verðlaun fyrir frumlegustu og fallegustu
búningana.
Karen „ein í
heiminum“!
Grímsey. Morgunblaðið.