Morgunblaðið - 06.02.2005, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. FEBRÚAR 2005 41
AUÐLESIÐ EFNI
SAMÚEL Jón
Samúelsson og
hljóm-sveitin Jagúar og
tónlistar-maðurinn
Mugison unnu mörg
verðlaun þegar
Íslensku
tónlistarverðlaunin fyrir
árið 2004 voru veitt í
Þjóðleikhúsinu á
miðvikudag.
Fengu Samúel og
Jagúar verðlaun bæði
fyrir popptónlist og
djasstónlist. Sigraði Jagúar í
flokknum dægurlagaflytjandi
ársins. Mugison fékk
verðlaun fyrir lag ársins og
poppplötu ársins. Mugison
var líka valinn vinsælasti
flytjandinn í símakosningu
meðan á útsendingu frá
verðlaunahátíðinni stóð í
Sjónvarpinu.
Hljómsveitin Hjálmar fékk
verðlaun í flokknum
rokkplata ársins. Páll
Rósinkrans var valinn
dægurlagasöngvari ársins.
Ragnheiður Gröndal var valin
dægurlagasöngkona ársins.
Ragnheiður átti líka plötu
ársins í flokknum
dægurlagaplata ársins. Í
sígildri tónlist fékk Bryndís
Halla Gylfadóttir, sellóleikari,
tvenn verðlaun. Hún var valin
flytjandi ársins. Plata hennar
og Eddu Erlendsdóttur,
píanóleikara, var valin plata
ársins.
Helga Ingólfsdóttir,
semballeikari, fékk
heiðursverðlaun Íslensku
tónlistarverðlaunanna. Ágúst
Einarsson, prófessor, fékk
hvatningarverðlaun fyrir
bókina Hagræn áhrif
tónlistar. Barði Jóhannsson
fékk útflutningsverðlaun
Loftbrúar Reykjavíkur.
Íslensku tónlistarverðlaunin
Samúel og Mugison
sigursælir
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ragnheiður Gröndal var valin
söngkona ársins.
MANCHESTER United sigraði
Arsenal í ensku
úrvals-deildinni í fótbolta á
þriðjudaginn var. Leikurinn
fór 4:2. Þar með komst
Manchester United í annað
sæti deildarinnar. Arsenal er
í þriðja sæti.
Bæði liðin eru þó langt á
eftir Chelsea sem er í fyrsta
sæti. Chelsea sigraði
Blackburn 1:0 á miðvikudag
og náði ellefu stiga forskoti.
Fyrir leikinn á móti Man.
United lék Arsenal 33 leiki á
heimavelli en þess að tapa.
Man. United
sigraði Arsenal
Reuters
Leikmenn Manchester United fagna marki á móti Arsenal.
Þeir heita Rio Ferdinand (til vinstri) og Cristiano Ronaldo.
FLUTNINGA-skipið Dettifoss
bilaði fyrir utan Austurland fyrir
viku. Stýrið skemmdist þannig
að ekki var hægt að stjórna
skipinu. Tvö varðskip, Týr og
Ægir, komu til að hjálpa
Dettifossi. Það gekk ekki vel því
veðrið var mjög vont. Varðskipin
ætluðu að draga Dettifoss en
hann er svo stór að vírinn
slitnaði þrisvar sinnum. Loksins
þegar veðrið batnaði tókst að
draga Dettifoss til Eskifjarðar.
Nú er verið að draga
Dettifoss alla leið til Hollands.
Þar á að laga stýrið.
Dettifoss bilaði
Ljósmynd/Landhelgisgæslan
Hér sést vel hvernig stýrið skemmdist.
KOSNINGAR fóru fram í Írak á
sunnudaginn var. Þær þóttu
takast vel. Lítið var um árásir
á kjörstaði.
Uppreisnar-menn höfðu þó
hótað miklum árásum til að
spilla fyrir kosningunum. Þeir
sögðust Ætla að drepa alla
sem kysu.
Kjörsóknin var meiri en
búist var við.
Þjóðar-leiðtogar víða um
heim fögnuðu kosningunum
og hrósuðu Írökum. Þeir
sögðu Íraka hafa sýnt mikið
hugrekki með því að flykkjast
á kjörstaði við þessar
aðstæður. Þeir sögðu
kosningarnar vera áfall fyrir
hryðju-verka-menn.
Kjörsóknin var mest meðal
Kúrda og sjíta.
Margir súnní-arabar kusu
þó ekki. Þeir eru múslímar
eins og sjítar. Saddam
Hussein er súnní-arabi.
Súnní-arabar sögðust vera
á móti kosningunum. Þeir
vilja að allir erlendir hermenn
fari frá Írak.
Forsætis-ráðherra
landsins hvatti Íraka til að
sameinast eftir
kosningarnar.
Nýja þingið á að semja
stjórnarskrá. Hún verður
borin undir þjóðar-atkvæði
síðar á árinu. Að lokum
verður nýtt þing kosið, ekki
síðar en 15. desember.
Reuters
Konur í bið-röð við kjörstað nálægt Bagdad, höfuð-borg Íraks.
Kosningar í Írak
þóttu takast vel
SKJÁR einn má ekki sýna
fótbolta-leiki með enskum
þulum. Allir leikir verða að
vera með íslenskum
lýsingum.
Útvarps-réttar-nefnd segir
að Útvarpslög banni
enskar lýsingar frá
fótbolta-leikjum.
Framkvæmda-stjóri
Skjás eins er ekki
ánægður með þetta.
Hann segir að kannski
verði leikirnir sýndir með
engum þulum. Í
útvarpslögum segir að
það þurfi ekki lýsingu eða
texta á íslensku ef um
endur-varp er að ræða.
Mörgum erlendum
sjónvarps-stöðvum er
endur-varpað hér á landi,
t.d. CNN, Eurosport og
Cartoon Network.
Vilja
íslensku
í enska
boltann