Morgunblaðið - 06.02.2005, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. FEBRÚAR 2005 49
ALLT SEM fiÚ fiARFT!
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
1
1
7
2
5
www.s1.is
LAW & ORDER
kl. 21:00
STERKIR SUNNUDAGAR – á SKJÁEINUM
09:30 The Simple Life 2
10:00 The Bachelorette – lokafláttur
Pari› hamingjusama hittist og ræ›ir framtí› sína í sjónvarpssal og svara ágengum spurningum
frá áhorfendum. Sá sem ekki var valinn l‡sir vonbrig›um sínum og næsti piparsveinn ver›ur kynntur.
11:00 Sunnudagsflátturinn – bein útsending
Illugi tekur á móti Árna Snævarr og fleir ræ›a um meint einelti gagnvart Framsókn og hvort fréttaflutningur
af Íraksmálinu standi undir nafni sem fréttir e›a flokkist frekar sem áró›ur. Gu›mundur og Ólafur Teitur
tala vi› Ástu R. Jóhannesdóttur og Hannes Hólmstein Gissurarson um átökin innan Framsóknar og
Samfylkingar. A› auki hyggst Ólafur Teitur færa rök fyrir flví a› ni›ursta›a útvarspréttarnefndar um
enskar l‡singar í Enska boltanum sé ólögleg. Jóhanna Sigur›ardóttir og Ögmundur Jónasson ræ›a
skattamál og Katrín spjallar vi› Kristin H. Gunnarsson um leyndarmál Framsóknar.
12:30 Judging Amy
13:25 Yes, Dear
18:00 Innlit/útlit
19:00 Yes, Dear
20:00 Bingó – bein útsending
Villti tryllti Villi lætur gamminn geysa og gle›ur bingóspilara um land allt me› óútreiknanlegum vinningum.
A›sto›arma›urinn lenti í slagsmálum og nefbrotna›i og var› bara ennflá sætari. Heppin bingófjölskylda
getur unni› 2ja vikna fer› til hinnar fögru Mallorku svo fla› eins gott a› spila me›. Kviss bamm búmm...
20:35 According to Jim
Skemmtilegir flættir um hinn íturvaxna Jim. Dana og Jim ágirnast bæ›i sóknarprestinn. Hún vill eiga
rómantískar stundir me› honum, hann vill fá hann í keiluli›i› sitt.
21:00 Law & Order: SVU
Vanda›ir spennuflættir bygg›ir á sönnum sakamálum. Barn finnst láti› og vir›ist hafa veri› bari› til
bana. Stabler og Cragen leita a› árásarmanninum sem flau telja utana›komandi en fljótlega beina
flau fló sjónum sínum a› nánustu a›standendum barnsins.
21:50 Rocky
Hnefaleikarma›urinn Rocky Balboa fær tækifæri lífs síns er honum b‡›st a› berjast vi› heimsmeistarann
í boxi, Apollo Creed. Rocky sem hefur hálft í hvoru gefi› upp á bátinn drauma um fræg› og frama í
hnefaleikum fyllist eldmó›i og hefur stífar æfingar, flví hann hefur í hyggju a› láta meistarann hafa
fyrir hlutunum. Sylvester Stallone fer eftirminnilega me› hlutverk Rockys.
23:45 The Handler – lokafláttur
Spennuflættir um flugusveit innan FBI. Elena fer í me›fer› til a› komast a› flví hva› var› um fimm
milljónir dala sem hurfu úr vörslu eiturlyfjaeftirlitsins. Darnell flykist vera leigumor›ingi til a› koma í
veg fyrir mor›tilraun.
01:15 Óstö›vandi tónlist
09:00 Still Standing
13:55 Southampton - Everton – bein útsending
16:00 Chelsea - Manchester City – bein útsending
19:30 The Awful Truth – n‡tt á dagskrá!
Michael Moore er frægur fyrir flest anna› en sitja á sko›un sinni og fla› gerir hann heldur ekki í hinum
frábæru fláttum The Awful Truth. fiættirnir eru gagnr‡nar en há›skar heimildamyndir um atbur›i
lí›andi stundar og Moore er snillingur í a› velta upp fleirri hli› mála sem a›rir reyna a› for›ast.
00:30 Blow Out
Æsispennandi flættir um har›an heim hárs og tísku.
Íkvöld klukkan 20 verður heimildarmynd um Ragn-ar í Smára frumsýnd í Sjónvarpinu. Leikstjóri erGuðný Halldórsdóttir. Ragnar í Smára byggist á
blöndu viðtala, frásögnum Ragnars sjálfs og marg-
víslegs myndefnis. Auk þess er rætt við ættingja Ragn-
ars og vini; m.a. þau Ernu Ragnarsdóttur, Gylfa Gísla-
son, Thor Vilhjálmsson, Kristján Davíðsson, Matthías
Johannessen og Önnu Sigríði Pálsdóttur. Einnig eru
atriði úr ævi Ragnars sviðsett og er það Björn Jör-
undur Friðbjörnsson sem fer með hlutverk Ragnars.
Ragnar var einn helsti athafnamaður síðustu aldar
hvað viðkemur menningarlífi og hafði gríðarleg áhrif á
vöxt og þróun hérlends listalífs, hvort heldur í formi
tónlistar, myndlistar og bókmennta og gekk Ragnar
alla tíð skörulega fram í því að koma hreyfingu á hlut-
ina.
Guðný Halldórsdóttir leikstjóri segir að henni hafi
fundist tími kominn á „myndarlegan bautasteinn“ til
heiðurs Ragnari.
„Hann opnaði glugga út til Evrópu hvað varðar
menningu og listir. Ég efa að menningarlífið á Íslandi
væri jafn blómlegt og það er í dag ef ekki væri fyrir
Ragnar í Smára. Drifkrafturinn í honum var rosaleg-
ur.“ Vinna við myndina tók um eitt ár.
„Við byrjuðum í fyrra, um það leyti sem hann hefði
orðið 100 ára. Það fór mikill tími í að grafa upp mynd-
efni og það verður að nefna það að æviferill Ragnars
var það margbrotinn að við hefðum þess vegna getað
gert fimm myndir.“
Eins konar kabarett
Erna Ragnarsdóttir er dóttir Ragnars og kemur
fram í myndinni. Hún rekur tilurð myndarinnar til þess
að haldið var upp á 100 ára fæðingarafmæli Ragnars í
fyrra. „Við sem unnum að undirbúningi afmælisins
fannst að gaman væri að gera heimildarmynd. Guðný
var vel fallin til verksins enda þekkti hún föður minn
vel persónulega. Mér finnst myndin algert afrek; fynd-
in og stórbrotin, sterk og sannfærandi persónulýsing.
Yfirhöfuð er það alveg í stíl við þann anda sem ein-
kennt hefur framlag alls þess dásamlega fólks sem kom
að undirbúningi afmælisins – ég er hreinlega í skýj-
unum yfir þessu öllu! Mig langar því mikið að nota
tækifærið og þakka þessu yndislega fólki, gömlu vin-
unum og öllum hinum sem hver á sinn hátt með tónum,
með orðum, útgáfum, sýningum, framkvæmdum, fjár-
stuðningi og bara einskærri skemmtilegri nærveru
sinni, hjálpuðust að við að heiðra minningu pabba og
með þvílíkri hlýju, gleði og glæsibrag.“
Erna segir föður sinn hafa verið drifinn áfram og
hafa búið yfir mjög ákveðinni og sterkri lífssýn. „Og
hann framfylgdi henni og gaf aldrei eftir. Á sama tíma
dáist maður að grallaranum Ragnari, sem mér finnst
kvikmyndin sýna ágætlega. Pabbi var eins konar kab-
arett finnst mér. Óhefðbundinn, þó tengdur uppruna
sínum, alþýðlegur en passaði alls staðar.“
Framleiðandi myndarinnar er Halldór Þorgeirsson
fyrir Kvikmyndafélagið Umba, tónlist semur Ragnhild-
ur Gísladóttir og handritshöfundar eru Sigurður Val-
geirsson, Guðný Halldórsdóttir og Halldór Þorgeirsson.
Kvikmyndir | Ragnar í Smára sýnd í Sjónvarpinu í kvöld
Listavinurinn góði
Guðný Halldórsdóttir leikstjóri segir að sér hafi
fundist tími kominn á „myndarlegan bautastein“
til heiðurs Ragnari í Smára.
Heimildarmyndin Ragnar í Smára er sýnd í Sjónvarpinu í
kvöld klukkan 20.00.
Fréttir í tölvupósti