Morgunblaðið - 06.02.2005, Qupperneq 51

Morgunblaðið - 06.02.2005, Qupperneq 51
TILBOÐ Á ALLAR MYNDIR KLUKKAN 2 - AÐEINS 400 KRÓNUR Nýr og betri www.regnboginn.is Hverfisgötu ☎ 551 9000 Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.30. B.i. 14 ára SIDEWAYS „Sideways er eins og eðalvín með góðri fyllingu. Hún er bragðgóð, þægileg og skilur eftir sig fínt eftirbragð“ Þ.Þ. FBL   „Fullkomlega ómissandi mynd“ S.V. MBL. Óskarsverðlauna Tilnefningar til Óskarsverðlauna þ.á.m. besta mynd, leikstjóri og handrit 5 Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. LEONARDO DiCAPRIO Tilnefningar til Óskarsverðlauna þ.á.m. Besta mynd, besti leikstjóri, besti leikari-Leonardo Dicaprio, bestu aukaleikarar-Cate Blanchett og Alan Alda. 11  Sýnd kl. 3.20, 5.40, 8 og 10.20.  Frá framleiðanda Training Day Þeir þur fa a ð st and a sa man til a ð ha lda lífi! Fráb ær s pen nutr yllir! Sýnd kl. 1.50, 3.50, 5.55, 8 og 10.15. Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.30. Stórkostleg sannsöguleg mynd um baráttu upp á líf og dauða. Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.30. B.i. 16. tilnefningar til Óskarsverðlauna þ.á.m. besta mynd, leikari og handrit 7  MMJ kvikmyndir.com  Ó.H.T. Rás 2  Ó.Ö.H. DV SV Mbl. H.L. Mbl. Baldur Popptíví V.G. DV  Ó.H.T Rás 2 2 TILNEFNINGAR TIL ÓSKARSVERÐLAUNA, þ.á.m.besta erlenda myndin FRÁ LEIKSTJÓRA THE OTHERS Golden Globe sem besta erlenda myndin l l l i Ein vinsælasta grínmynd allra tíma þrjár vikur á toppnum í USA! Frumsýnd 11. Febrúarr . r r Frumsýning Frumsýning Kvikmyndir.is Frumsýnd kl. 2 og 4 Ísl tal ATH! VERÐ KR. 500 Sýnd kl. 2 Ísl tal ATH! VERÐ KR. 400 Frumsýning   MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. FEBRÚAR 2005 51 TÍSKUVIKA í New York hófst með sýningu hönnuðarins Kenneths Cole á föstudag. Gestir á sýningunni fögnuðu vel þegar söngvarinn og mannvinurinn Harry Belafonte birtist skyndilega á göngubrúnni íklæddur klassískum svörtum ullarfötum, hvítri skyrtu, með silkibindi og í leðurfrakka. Belafonte, sem nýlega var á ferð á Íslandi á vegum UNICEF, er kunn- ur fyrir að vera vel klæddur. Tískuvikunni lýkur með sýningu Jennifer Lopez á nýrri fatalínu sinni, Sweetface, föstudaginn 11. febrúar. Tíska | Frægur gestur á sýningu Kenneth Cole í New York Belafonte tollir í tískunni AP Belafonte tók sig vel út á sýningarpallinum. Vestan hafs hafa menn sín Grammy-verðlaun og í þeim eru 105 flokkar, 105 verðlaun eru veitt. Nú er tónlistarlíf þar talsvert fjölskrúðugra en hér heima, til að mynda varla hægt að verðlauna hér fyrir bestu polkaplötu eða gera greinarmun á besta gospel-flutningi eða besta soul gospel-flutningi. Þrátt fyrir það þykir manni nokkuð ljóst er litið er yfir verðlaunaheitin 105 að þar séu menn frekar að þjóna markaðslegum þörf- um en að heiðra tónlistarmenn. Verðlaunabólgan Það má kalla þessa þróun verð- launabólgu – sífellt er fjölgað verð- launaflokkum til að menn geti sett miða á plöturnar sínar, „tilnefnd til …“ fyrir jól til að auka söluna þá og svo verðlaunamiða eftir jól til að plötusalan taki kipp. Allt sem eykur veg íslenskrar tónlistar er mér að skapi, en mér sýnist þetta þó helst til þess fallið að rýra gildi verðlaunanna. Hvaða áhrif hefur það á plötukaup- endur þegar önnur hver plata er með tilnefningarmiða? Hvaða heiður er að því að fá verðlaun þegar þriðja hver plata fær verðlaun? Hver er til að mynda munurinn á poppplötu ársins og dægurtónlistarplötu ársins? Ef munurinn er einhver í huga þeirra sem komu þessari skiptingu á geta þeir vonandi fundið betri leið til að greina á milli en að nota orð sem fyrir flestum eru samheiti. Sitthvað fleira má tína til, nefni sem dæmi að í verðlaunaveitingunni 2005 fær Björk í fyrsta sinn ekki verðlaun þó að hún hafi gefið út plötu á árinu. Þegar við bætist að sú plata hefur vakið athygli um allan heim fyrir frumleika og djörfung og að Björk söng fyrir fleiri áheyrendur en dæmi eru um fyrir íslenskan tónlist- armann og reyndar fáir tónlist- armenn almennt sem geta státað af öðru eins: áætla má að hálfur fimmti milljarður manna hafi horft á hana syngja við opnun Ólympíuleikanna í Aþenu, jamm: 4.500 milljónir manna. (Vitanlega er þetta nöldur sprottið af því að minn maður / mínir menn fengu ekki verðuga viðurkenningu. Mugison átti að fá öll verðlaun sem í boði voru. Líka fyrir plötu ársins í sí- gildri tónlist. Og djassflokknum.)

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.