Morgunblaðið - 11.03.2005, Síða 4
4 FÖSTUDAGUR 11. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
„ÝMSIR möguleikar eru á útflutn-
ingi sérfræðiþekkingar og reynslu
okkar á nýtingu endurnýtanlegra
orkugjafa,“ sagði Valgerður Sverr-
isdóttir, ráðherra orkumála, á árs-
fundi Orkustofnunar í gær. „Ríkis-
stjórnin hefur nýlega samþykkt að
auka mjög þróunaraðstoð landsins
og verður verulegum hluta þeirrar
aukningar varið til að styðja rann-
sóknir og framkvæmdir við jarðhit-
anýtingu í þróunarríkjum.“
Sagði hún að á þessum vettvangi
væri nauðsynlegt að koma á fót öfl-
ugu samstarfi Þróunarsamvinnu-
stofnunar Íslands og Orkustofnunar,
Jarðhitaskóla Sameinuðu þjóðanna
og fyrirtækisins ENEX, sem er sam-
eiginlegt útrásarfyrirtæki orku- og
ráðgjafarfyrirtækja um útflutning á
íslenskri orkuþekkingu.
Nefndi hún að ESB væri í farar-
broddi þeirra sem gert hafa kröfu á
stóraukna hlutdeild endurnýtan-
legra orkugjafa. „Með nýlegri
stækkun Evrópusambandsins til
austurs, opnast möguleikar til útrás-
ar fyrir íslenska þekkingu og reynslu
á nýtingu jarðhitans en þar er víða
að finna mikil vannýtt jarðhita-
svæði,“ sagði Valgerður. „Stjórnvöld
í nokkrum þessara ríkja hafa lýst
áhuga á samstarfi við Íslendinga á
þessu sviði og tel ég að þarna opnist
verulegir möguleikar íslenskra orku-
og ráðgjafarfyrirtækja fyrir aukna
útrás jarðhitaþekkingar og reynslu
ef vel er að verki staðið.“
Í erindi sínu ræddi Valgerður
einnig um orkumál samgangna og
benti á að um 90% olíunotkunar Ís-
lendinga væri vegna olíunotkunar í
samgöngum og vegna fiskiskipa og
þessi olíunotkun orsakaði um 70% af
losun gróðurhúsalofttegunda hér á
landi. „Því er afar mikilvægt að unn-
ið verði að því að draga úr olíunotkun
á þessu sviði og nýta innlendar orku-
lindir til samgangna strax og það
þykir tæknilega mögulegt og hag-
kvæmt.“ Sagði hún að m.a. í þessum
tilgangi hefði sérstakri skrifstofu um
vistvænt eldsneyti verið komið á
laggirnar hjá Orkustofnun.
Tvö frumvörp í farvatninu
Í ræðu sinni kom Valgerður einnig
inn á rammaáætlun um virkjanir en
fyrsta áfanga hennar lauk fyrir ári.
Sagði hún vinnu við annan áfanga
áætlunarinnar nýlega hafna og að
stefnt væri að því að ljúka henni árið
2009. Sagði Valgerður að sú vinna
myndi að verulegu leyti beinast að
rannsóknum á jarðhitasvæðum
landsins.
„Á þeim vettvangi ber hæst svo-
kallað djúpborunarverkefni, en unn-
ið hefur verið að undirbúningi þess í
nokkur ár. Nú er komið að þeim
áfanga að leita eftir fjármagni til
frekari rannsókna og borana og þá
ekki síst úr erlendum rannsóknar-
sjóðum,“ sagði Valgerður. „Ákveðið
hefur verið að ríkið verði formlegur
aðili að þessu verkefni og þá í gegn-
um Orkustofnun, sem lögum sam-
kvæmt ber að sinna grunnrannsókn-
um á jarðhita. Tryggt hefur verið
fjármagn til verkefnisins á þessu ári
og unnið er að því að skoða fjár-
mögnun á hluta ríkisins fyrir fyrsta
áfanga verksins næstu tvö ár.“
Valgerður minntist í erindi sínu á
smíði laga er snertu orkumál og
sagði hún nú hafna að nýju lagasmíði
um hitaveitur.
„Engin heildstæð lög eru til um
þennan mikilvæga málaflokk og er-
um við eina landið á Vesturlöndum
sem ekki býr við sérstök lög um hita-
veitur og er stefnt að því að leggja
frumvarp fram til kynningar á nú-
verandi þingi sem fari til umsagnar
hagsmunaaðila næsta sumar fram að
haustþingi,“ sagði Valgerður.
Valgerður Sverrisdóttir á ársfundi Orkustofnunar
Morgunblaðið/Þorkell
Valgerður: „Með nýlegri stækkun Evrópusambandsins til austurs opnast möguleikar til útrásar fyrir íslenska
þekkingu og reynslu á nýtingu jarðhitans en þar er víða að finna mikil vannýtt jarðhitasvæði.“
Ýmsir möguleikar
á sviði útflutnings
MÁLÞING Samtaka foreldra og að-
standenda samkynhneigðra (FAS) og
Prestafélags Íslands, sem haldið var í
gær, hefur lagt til að stjórnir Presta-
félagsins og FAS skipi þriggja manna
starfshóp en hlutverk hans verði að
gera hjónavígsluritúal sem gildir
jafnt fyrir vígslu allra hjóna óháð því
hvort um gagnkynhneigða eða sam-
kynhneigða er að ræða. Niðurstaða
þessarar vinnu á að liggja fyrir innan
þriggja mánaða.
Í ávarpi á málþinginu, sem bar yf-
irskriftina „Getur íslenska þjóð-
kirkjan haft forystu í málefnum sam-
kynhneigðra?“ sagði Harpa Njáls,
formaður FAS, að hún efaðist ekki
um að kirkjan gæti, ef hún hefði kjark
og þor, stigið skrefið og tekið forystu
á meðal þjóða í málum samkyn-
hneigðra.
Ingibjörg S. Guðmundsdóttir,
varaformaður FAS, sagði að enn
skorti talsvert á að afstaða kirkj-
unnar varðandi viðhorf og þjónustu
til samkynhneigðra væri skýr og skil-
greind. „Hefur hin íslenska, lúterska
kirkja sem um leið er þjóðkirkja
landsins efni á að missa frá sér stóra
hópa kristins fólks vegna einstreng-
ingslegrar afstöðu staðnaðra við-
horfa... [-] Óskar kirkjan sér þess
hlutskiptis að almenningur velji þá
leið að segja sig úr þjóðkirkjunni
vegna stefnuleysis hennar í mál-
efnum samkynhneigðra? [-] Er það
eðlilegt að um leið og einstaklingur
viðurkennir samkynhneigð sína sé
hann að velja að vera ekki virkur og
viðurkenndur einstaklingur í þjóð-
kirkjunni og kristnu samfélagi þjóð-
arinnar?“ spurði Ingibjörg.
Sr. Sigfinnur Þorleifsson fjallaði í
erindi sínu um hvort ástæða væri til
að endurskoða hjónavígsluritúalið
þannig að það þjónaði bæði samkyn-
hneigðum og gagnkynhneigðum.
Einfalt að breyta ritúalinu
Sigfinnur minnti á að kirkja sem
burðaðist með klafa fortíðarinnar og
væri kengbeygð inni í mannskilningi
þess liðna verði ekki aðeins viðskila
við manneskjurnar sem hún þjóni
heldur fari hún sem stofnun að við-
halda sjálfri sér og eigin völdum, lífs-
safinn þverri og hún þorni upp og
visni.
Sr. Sigfinnur benti á að í raun væri
mjög einfalt að umorða hjóna-
vígsluritúal íslensku þjóðkirkjunnar
svo hið sama gilti fyrir alla óháð því
hver ætti í hlut. Með því móti væri
ekki hastað á neinn af kirkjunnar
hálfu heldur væri hún opin öllum
mönnum, körlum og konum, sem
kæmu fram fyrir Drottinn til að
þiggja blessun. Sigfinnur sýndi
hversu auðveldlega mætti breyta
ritúalinu: „Fyrir því skal maðurinn
yfirgefa föður og móður og bindast
maka sínum og þær tvær skulu verða
einn maður. Þannig eru þær ekki
framar tvær heldur einn maður.“
Starfshópur skipaður í framhaldi af málþingi um kirkjuna og samkynhneigða
Hjónavígsluritúal fyrir alla
Morgunblaðið/Árni Torfason
Harpa Njáls: Efast ekki um að kirkjan geti, ef hún hefur kjark og þor, tekið
forystu á meðal þjóða í málum samkynhneigðra.
HÆSTIRÉTTUR vísaði í gær frá
dómi máli unglingspilts sem í
fyrrasumar var dæmdur í tveggja
mánaða skilorðsbundið fangelsi
fyrir kynferðisbrot gegn 13 ára
stúlku.
Pilturinn var dæmdur af Hér-
aðsdómi Reykjaness fyrir að hafa
haft samræði við stúlkuna, sem er
fædd 1990, að minnsta kosti fjór-
um sinnum þegar hún var 13 ára
en hann 15 ára.
Í dómi Hæstaréttar segir hins
vegar að málatilbúnaður ákæru-
valdsins hafi verið með þeim hætti
að óhjákvæmilegt hafi verið að
vísa málinu sjálfkrafa frá héraðs-
dómi. Hefði þess ekki verið gætt
að leita skýringa stúlkunnar á ým-
iss konar misræmi sem fram kom í
framburði hennar og dagbókum
hennar sem fyrir lágu í málinu.
Ekki hefði hún heldur verið
spurð nánar vegna atriða sem
fram komu í framburði piltsins og
hefðu átt að gefa fullt tilefni til
nánari eftirgrennslunar, enda neit-
aði pilturinn því ætíð að hafa átt í
kynferðissambandi við stúlkuna.
Ekki var aflað
sérfræðilegrar álitsgerðar
Í málinu lá heldur ekki fyrir
greinargerð sérfræðings á sviði
sálfræði eða læknisfræði um
þroska og andlegt ástand stúlk-
unnar. Þá hefði ekki verið aflað
sérfræðilegrar álitsgerðar um and-
legan og líkamlegan þroska pilts-
ins á þeim tíma sem skipti máli, en
hann var nýlega orðinn 15 ára
þegar ætluð brot hans áttu að hafa
verið framin.
Málið dæmdu hæstaréttardóm-
ararnir Markús Sigurbjörnsson,
Garðar Gíslason, Guðrún Erlends-
dóttir, Gunnlaugur Claessen og
Hrafn Bragason. Örn Höskuldsson
hrl. og Steinunn Guðbjartsdóttir
voru verjendur ákærða og sækj-
andi Sigríður Jósefsdóttir frá rík-
issaksóknara.
Kynferðisbrota-
máli unglings
vísað frá dómi
Skipverji
missti
fótinn
UNGUR skipverji af mótor-
bátnum Hauki EA-76 missti
fótinn við ökkla í alvarlegu
vinnuslysi um borð í bátnum
um 12 mílur vestur af Stafnesi á
Reykjanesi í gær. Hann var
sóttur af þyrlu Varnarliðsins á
Keflavíkurflugvelli og fluttur á
Landspítalann þar sem hann
gekkst undir aðgerð.
Skipverjinn mun hafa
klemmst um borð í bátnum með
fyrrgreindum afleiðingum og
var óskað eftir þyrlu til að
sækja hann. Neyðarlínan hafði
samband við stjórnstöð Land-
helgisgæslunnar kl. 13.13 og
tilkynnti slysið. Hvorug þyrla
Landhelgisgæslunnar var flug-
hæf í gær og hafði því stjórn-
stöð Gæslunnar samband við
varnarliðið. Var varnarliðsþyrl-
an búin að hífa hinn slasaða upp
úr bátnum kl. 14.30 og lenti við
Landspítalann kl. 14.50.
Samkvæmt upplýsingum
Landhelgisgæslunnar er minni
gæsluþyrlan TF-SIF í 500 tíma
skoðun og því ekki tiltæk.
Stærri þyrlan TF-LIF var hins
vegar biluð.