Morgunblaðið - 11.03.2005, Page 8

Morgunblaðið - 11.03.2005, Page 8
8 FÖSTUDAGUR 11. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Þetta er ekkert mál ef þú gengur í Frjálslynda flokkinn, Árni minn, viltu ekki líka fá hliðar- göng fyrir hrútana í úteyjar? Formenn skíðadeildaÍR og Víkings teljaað æfingaraðstaða skíðaíþróttafólks versni við flutninginn. Þeir segja að um helmingur reyk- vískra unglinga, sem æfa skíðagreinar, stundi æf- ingar í Henglinum. Of skammur fyrirvari Skíðadeild Víkings hef- ur haft aðstöðu í Sleggju- beinsskarði frá 1938. Að sögn Jensínu Magnúsdótt- ur, formanns skíðadeildar Víkings, hefur lokun skíðasvæðisins í Henglin- um verið yfirvofandi þetta kjörtímabil. Hún benti á að auk ÍR og Víkings hafi skíða- fólk úr öðrum félögum æft þar og eins fjöldi annarra skíðaiðkenda. Jensína taldi fyrirvara lokunar- innar of skamman, því ekki sé búið að byggja upp aðstöðu í Bláfjöllum til að taka við starfi félaganna af Hengilssvæðinu. Hún óttast að lokun Hengilssvæðisins muni fækka þeim dögum sem hægt er að æfa á skíðum á höfuðborgar- svæðinu. Þar er framleiddur snjór með tveimur snjóbyssum, sem veldur því að hægt hefur verið að hefja æfingar fyrr en annars stað- ar. Þá er veðurfar annað í Hengl- inum en í Bláfjöllum og í Skála- felli. Oft hafi verið opið á Hengilssvæðinu þegar hefur verið lokað vegna veðurs á hinum skíða- svæðunum tveimur. Að sögn Jensínu stunda um 90 manns æfingar á vegum skíða- deildar Víkings, auk ættingja keppnisfólksins og annarra sem gjarnan nýta svæðið. OR hefur falast eftir landi ÍR ÍR hefur haft skála í Hamragili frá vorinu 1956, að sögn Auðuns Kristinssonar, formanns skíða- deildar ÍR. Hann segir að um 40 börn og unglingar stundi reglu- lega skíðaæfingar á vegum ÍR, auk fylgdarfólks. Alls séu virkir skíðaíþróttamenn á svæðinu 100– 120 manns auk almennings. Auðunn tekur illa í lokun Heng- ilssvæðisins og nefnir sömu ástæður og Jensína, betra veður- far en í Skálafelli og Bláfjöllum, auk snjóframleiðslunnar. Telur Auðunn að 15–20 æfingadagar muni tapast á hverju ári við flutn- inginn og það séu mikilvægir dag- ar fyrir keppnisfólk. Þá sé snjó- framleiðslan mikilvæg. „Þetta er lykillinn að rekstri skíðasvæða í Evrópu og Ameríku í dag. Það er sagt að 80% af snjó á skíðasvæð- um í Evrópu sé framleiddur,“ sagði Auðunn. „Þetta lítur undarlega út þegar sagt er að það kosti a.m.k. 150–200 milljónir að flytja okkur upp í Blá- fjöll. Það er miklu til kostað til að spara rúmar 20 milljónir á ári og tapa æfingadögum,“ sagði Auð- unn. „Það læðist að manni grunur um að annað búi á bakvið. Orku- veitan hefur verið að falast eftir landi sem ÍR á þarna og þeir hafa verið að bora í kringum það. Það hafa verið hugmyndir um að leggja lagnir frá borholunum um landið okkar.“ Auðunn segir að OR hafi boðist til að kaupa landið af ÍR og á mörkum landsins sé afl- mikil borhola. Auðunn taldi einnig að setja mætti spurningarmerki við flutn- ing skíðaliðanna í Bláfjöll og frek- ari uppbyggingu þar. Bláfjöll séu á vatnsverndarsvæði sem t.d. valdi því að ekki megi dreifa þar áburði til uppgræðslu og aukin umferð geti verið varhugaverð út frá því sjónarmiði. Hagkvæmt að flytja Ingvar Sverrisson, varaformað- ur ÍTR og formaður stjórnar Skíðasvæða höfuðborgarsvæðis- ins, segir að samningum um flutn- inga aðstöðu ÍR og Víkings í Blá- fjöll ólokið. Hann telur kostnaðinn hlaupa á 50–100 milljónum, eftir því hve mikið verður flutt af tækj- um og húsum. Byggingarsvæði er til reiðu við hliðina á skálum Breiðabliks og Hauka og þar kem- ur til greina að ÍR og Víkingur fái aðstöðu, að sögn Ingvars. Honum finnst einnig koma til greina að skíðaskálar verði samnýttir í auknum mæli, því dregið hafi úr því að skíðafólk gisti í skálunum enda stutt að fara til borgarinnar. Ingvar segir viðræðunefnd ÍTR og íþróttafélaganna vera að ræða málið og eigi niðurstaða að liggja fyrir í maílok. Ingvar sér ekkert því til fyrirstöðu að ÍR og Víking- ur geti farið að æfa í Bláfjöllum á næsta æfingatímabili. Það sé nóg pláss í Bláfjöllum til að bæta við þessum tveimur skíðadeildum. Ingvar telur mikilvægi snjó- framleiðslu í Hengli ofmetið. Hún sé eingöngu fyrir barnabrekkur, en ekki æfingasvæði íþróttafólks. Í ár hafi einungis verið opið einum degi lengur þar en í Bláfjöllum. Að Skíðasvæðum höfuðborgar- svæðisins standa 12 sveitarfélög og reka þau Bláfjöll og Skálafell. Að sögn Ingvars vildu þau ekki bæta Hengilssvæðinu við, en ÍTR hefur annast rekstur þess hingað til. Ingvar segir rekstrarlegar ástæður ráða mestu um lokun Hengilssvæðisins. Eigi að halda rekstri þess áfram muni það kosta miklar endurbætur á tækjum og aðstöðu, m.a. hafi skíðalyftur í brekkum verið reknar á undan- þágum undanfarin ár. Fréttaskýring | Ráðgert að loka áratuga- gömlu skíðasvæði í Henglinum í vor Óhagkvæmur rekstur Formenn skíðadeilda ÍR og Víkings telja aðstöðuna versna við flutninginn Frá skíðasvæði Víkings. Æfingaraðstaðan verður flutt í Bláfjöll  Skíðasvæðinu í Henglinum verður lokað í vor. Skíðadeildum ÍR og Víkings, sem hafa haft æf- ingaraðstöðu í Hamragili og Sleggjubeinsskarði, verður boðið að flytja starfsemi sína í Bláfjöll. Tillaga R-listans þessa efnis var samþykkt í Íþrótta- og tóm- stundaráði Reykjavíkur 11. febr- úar síðastliðinn. Í bókun kemur fram að Hengilssvæðið sé ein- göngu notað sem æfingasvæði og kosti 22 milljónir á ári. gudni@mbl.is HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hefur dæmt rúmlega tvítugan mann í hálfs árs skilorðsbundið fangelsi fyrir nærri 20 afbrot sem flest voru framin í fyrra Ákærði var m.a. dæmdur fyrir innbrot og þjófnaði, fíkniefnabrot, nytjastuld, auðgunarbrot, hylmingu, gripdeildir og brot á umferðarlög- um. Í einu tilviki braust hann inn í íbúðarhús í Hafnarfirði ásamt öðr- um og stal munum að verðmæti um 1,5 milljónir kr. Einnig braust hann inn í íbúðarhús í Kópavogi í fyrra- sumar og stal haglabyssu, skart- gripum, fatnaði, myndavél og sjón- auka, samtals að verðmæti um 900 þúsund kr. Braust inní Blóðbankann Þá fór maðurinn seint í fyrrasum- ar í heimildarleysi inn í húsnæði Blóðbankans við Barónsstíg og stal ferðatölvu og þremur borðtölvum ásamt tölvuskjám og ýmsum öðrum fylgihlutum, samtals að verðmæti 486 þúsund krónur. Maðurinn var einnig sakfelldur fyrir hylmingu með því að hafa haft í vörslu sinni fartölvu að verðmæti 200 þúsund krónur þrátt fyrir að hafa verið ljóst að um þýfi væri að ræða. Ásgeir Magnússon héraðsdómari dæmdi málið. Verjandi var Jón Höskuldsson hdl. og sækjandi Dag- mar Arnardóttir frá lögreglustjór- anum í Reykjavík. Síbrotamaður dæmdur

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.