Morgunblaðið - 11.03.2005, Side 9

Morgunblaðið - 11.03.2005, Side 9
Fréttasíminn 904 1100 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. MARS 2005 9 FRÉTTIR Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16 • Engjateigi 5 • Sími 581 2141 Sportlegur fatnaður í páskafríið Eddufelli 2 Bæjarlind 6 sími 557 1730 sími 554 7030 Nýjar vörur Hverafold 1-3 • Foldatorgi Grafarvogi • Sími 577 4949 Opnunartími mán.-fös. kl. 11-18 & lau. kl. 11-14 Glæsilegur fatnaður fyrir ungar sem eldri Yfirhafnir á hálfvirði þessa viku Mörkinni 6, sími 588 5518. Vattúlpur, ullarkápur, dúnúlpur, húfur og hattar Sumarskyrtur og léttir jakkar Kringlunni - sími 581 2300 Skólavörðustíg 10 Sími 561 1300 Í tilefni af 30 ára afmæli verslunar Láru gullsmiðs bjóðum við 30-50% afslátt af völdum vörum vikuna 5.-12. mars Allt á að seljast Vörur á ótrúlegu verði Metravara • Blússur • Peysur og margt fleira Opið kl. 13-18 vika daga, einnig laugardaga og sunnudaga kl. 13-18 VERSLUNIN HÆTTIR Ásgeir G. Gunnlaugsson og co., Skipholti 9, sími 551 3102 LADIES GOLF WEEK HIMMERLAND - DANMÖRKU Hin vinsæla kvennagolfferð verður 12.-18. júní 2005 Frábær vika til þess að auka færnina í golfi, spila golf ásamt því að skemmta sér konunglega, borða góðan mat og hvíla sig frá daglegu amstri hér heima. Nokkur sæti laus. Golfleikjaskólinn ehf gsm 691 5508 golf@golfleikjaskolinn.is www.golfleikjaskolinn.is Íslandsmót kaffibarþjóna ÍSLANDSMÓT kaffibarþjóna verður nú haldið í sjötta sinn um helgina og hefst í dag, föstudag, kl. 12 í Smáralind. Á morgun hefst keppnin kl. 12, á sunnudag hefst keppnin kl. 14 og verðlaunaafhending er kl. 17. Á fyrsta og öðrum degi mótsins keppa 25 kaffibar- þjónar í undanúrslitum, en úr- slitin fara fram á þriðja degi. Þeir sex kaffibarþjónar sem komast í úrslit mynda lands- liðið og keppa þeir um Íslands- meistaratitilinn. Hver kepp- andi fær 15 mínútur til að útbúa þrjá kaffidrykki fyrir hvern dómara en þeir eru fimm talsins. AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111 ALLS höfðu borist rúmlega 70 at- hugasemdir í gærkvöldi vegna til- lögu að breytingu á svæðisskipulagi miðhálendisins til ársins 2015 m.a. vegna Norðlingaölduveitu. Einnig bárust nokkrir undirskriftalistar með allt frá 3 til 4 nöfnum og allt upp í 20 til 30 undirskriftir. Nær allar at- hugasemdirnar snúa að Norðlinga- öldulóni. Við aðalskipulag Skeiða- og Gnúp- verjahrepps bárust athugasemdir frá 174 aðilum vegna Norðlingaöldu- veitu, þrjár vegna virkjunaráforma í neðri Þjórsá og fimm vegna annarra atriða í skipulaginu. Gera má ráð fyrir að enn eigi athugasemdir við skipulagstillögurnar eftir að berast í pósti en frestur til að skila athuga- semdum rann út í fyrradag. Voru til- lögurnar auglýstar í kjölfar sam- komulags sem náðist sl. sumar milli Landsvirkjunar og Skeiða- og Gnúp- verjahrepps um tilhögun Norðlinga- ölduveitu í Þjórsárverum. Tillögurnar fela m.a. í sér að nátt- úruverndarsvæðum er breytt í iðn- aðar- og orkuvinnslusvæði. Gert er ráð fyrir Norðlingaöldulóni í allt að 567,5 m y.s. og setlóni með veitu við Þjórsárjökul, við friðlandsmörkin austan við Arnarfell. Samkvæmt tillögunum verður lónhæð Norðlingaöldulóns miðuð við að gúmmílokur á stíflu verði í 566 metra hæð yfir sjó að sumarlagi en í hæstu stöðu 567,8 m y.s. að vetr- arlagi. Rekstrarhæð lónsins að vetr- arlagi verður hins vegar 30 cm lægri, eða í 567,5 metrum. Í tillögu að aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps er ennfremur gert ráð fyrir Núpsvirkjun í Neðri- Þjórsá, með Hagalóni og tilheyrandi orku- og veitumannvirkjum. Þá er gert ráð fyrir miðlunarlóni vegna Urriðafossvirkjunar í Neðri-Þjórsá. Á hálendinu er auk Norðlingaöldu- lóns valkostur um Þjórsárjökulslón, í allt að 620,5 m hæð og Vestur- kvíslalón, í 612 m hæð. Sð sögn Fríðu Bjargar Eðvarð- sdóttur, starfsmanns samvinnu- nefndar um miðhálendi Íslands, voru komnar rúmlega 70 athuga- semdir. Hefur nefndin nú átta vikur til að fara yfir athugasemdir og skila end- anlegri tillögu til Skipulagsstofnun- ar. Mun nefndin lögum samkvæmt skila öllum þeim sem gera athuga- semdir rökstuðningi nefndarinnar og afstöðu til efnisatriða athuga- semdanna. Eftir fjórar vikur mun nefndin koma saman og fara yfir at- hugasemdirnar. Hreppsnefnd Skeiða- og Gnúp- verjahrepps mun taka athugasemd- irnar til umfjöllunar á næstu vikum og væntanlega til afgreiðslu á hreppsnefndarfundi 5. apríl nk. Frestur til athugasemda við svæðisskipulag miðhálendis er útrunninn Yfir 70 athuga- semdir bárust       

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.