Morgunblaðið - 11.03.2005, Síða 10

Morgunblaðið - 11.03.2005, Síða 10
       ! " #   !               $  ! STEFNT er að þróun og uppbyggingu nýs miðbæjar í Garðabæ á næstu mán- uðum, og hefur samkomulag þess efnis náðst milli fjárfestingarfélagsins Klasa hf. og bæjaryfirvalda. Svæðið sem um ræðir afmarkast af Hafnarfjarðarvegi í vestri um land Sveinatungu að Garða- torgi til austurs, Vífilsstaðavegi til suðurs og Goðatúni til norðurs. Gert er ráð fyrir 500 manna íbúðahverfi með verslunum og veitingastöðum, þjónustu og menning- arstarfsemi. Fjármögnun verkefnisins, sem er metin hátt í 10 milljarða króna, er í höndum Klasa, sem valinn var úr hópi þriggja aðila að undangenginni sam- keppni um eflingu miðbæjarins. Hin tvö félögin voru Þyrping hf. og Eignarhalds- félagið Kirkjuhvoll ehf. Að sögn Ásdísar Höllu Bragadóttur bæjarstjóra mun á næstu vikum hefjast víðtækt samráð og samvinna um verk- efnið sem kynnt verður íbúum og hags- munaaðilum og er stefnt að því að því að deiliskipulag fyrir nýjan miðbæ liggi fyr- ir í haust og að framkvæmdir geti hafist á næsta ári. Áætlaður framkvæmdatími er 2–4 ár. Verslunarkjarni rísi við Hafnarfjarðarveg Nokkrar hugmyndir liggja fyrir um skipulag miðbæjarins. Þá eru framundan samningaviðræður milli Garðabæjar og Klasa um uppbyggingu og rekstur svæð- isins. Að mati forsvarsmanna Klasa fel- ast mikil fjárfestingartækifæri í nýju skipulagi miðbæjar. Mikil uppbygging hafi átt sér stað í bænum, m.a. í tengslum við uppbyggingu Sjálands, nýs strandhverfis Garðbæinga, og framundan sé áframhaldandi uppbygging. Tillögurnar sem Klasi hefur kynnt bæjaryfirvöldum verða, sem fyrr segir, útfærðar nánar á næstu mánuðum. Að mati forsvarsmanna Klasa munu þær styrkja grundvöll fyrir verslun og þjón- ustu í miðbænum, auk þess að skapa sterkt og einkennandi miðbæjarsvæði í Garðabæ. Lagt er til að lunginn af dag- vöruverslun verði færður niður að Hafn- arfjarðarvegi og að ný miðbæjargata verði gerð sem tengist Garðatorgi með tilheyrandi verslun og þjónustu á jarð- hæð. Garðatorgssvæðið verði aftur á móti meira tengt stjórnsýslu og menn- ingu. Hugmyndir um að rífa húsnæði Hagkaupa og Vistor Meðal annars er gert ráð fyrir að þar verði torg, með veitingastöðum í næsta nágrenni og að byggt verði nýtt skrif- stofuhúsnæði og sýningaraðstaða undir Hönnunarsafn Íslands. Á efri hæðum við nýja verslunargötu og á hluta Garða- torgssvæðisins er gert ráð fyrir allt að 200 íbúðum. Hugmyndir Klasa gera ráð fyrir að 10–15 þúsund fermetra versl- unarkjarni rísi við Hafnarfjarðarveg, sem fyrr segir, og að stærstur hlutinn fari undir matvöruverslun og aðra tengda dagvöruverslun. Þá er áformað að hús- næði undir aðra þjónustu á svæðinu verði allt að 5–10 þúsund fermetrar. Að sama skapi eru uppi hugmyndir um að rífa byggingar til að rýma fyrir nýju skipulagi, með fyrirvara um samkomulag við eigendur. Rætt er um að rífa bygg- ingu þar sem lyfjafyrirtækið Vistor er til húsa og Hagkaup við Garðatog, og auk þess svonefnt Nýbarðahús og Sveina- tungu, en tvö síðastnefndu húsin eru í eigu bæjarins. Garðabær og Klasi hf. í samstarf um uppbyggingu nýs miðbæjar fyrir 10 milljarða Stefnt að því að framkvæmdir hefjist 2006 Hér sést hvaða hús rætt er um að víki fyrir nýju skipulagi. 10 FÖSTUDAGUR 11. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR ÞINGMENN úr öllum flokkum stjórnarandstöðunnar fóru fram á það á Alþingi í gær að Markús Örn Antonsson útvarpsstjóri endur- skoðaði ákvörðun sína um að ráða Auðun Georg Ólafsson í starf fréttastjóra Útvarpsins. „Í þágu Ríkisútvarpsins og almannahags fer ég fram á það úr þessum ræðu- stóli hér að sá maður sem brást í stöðu sinni sem þjónn almennings í landinu, útvarpsstjórinn Markús Örn Antonsson, endurskoði ákvörðun sína eða axli ábyrgð á mistökum sínum og undanslætti við flokksræðið á Ríkisútvarpinu og segi af sér störfum,“ sagði Mörður Árnason, þingmaður Sam- fylkingarinnar og málshefjandi umræðunnar í upphafi þingfundar í gær. Ögmundur Jónasson, þingmaður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, tók undir þá áskorun að útvarpsstjóri endurskoðaði afstöðu sína. Það sama gerði Guðjón A. Kristjánsson, formaður Frjáls- lynda flokksins. Menntamálaráðherra, Þorgerður K. Gunnarsdóttir, var ekki við- stödd umræðuna, vegna lögmætr- ar fjarvistar. Stefnt er að því að utandagskrárumræða fari fram um fréttastjóramálið, að ráðherra við- stöddum, í byrjun næstu viku. Fréttastofurnar niðurlægðar Þingmenn úr öllum flokkum tóku þátt í umræðunni í gær. Magnús Þór Hafsteinsson, þing- maður Frjálslynda flokksins, sagði að með ráðningunni í fréttastjóra- starfið hefðu fréttastofurnar á Ríkisútvarpinu verið niðurlægðar. Gengið hefði verið framhjá mörg- um af virtustu frétta- og útvarps- mönnum landsins. Birgir Ármannsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, sagði hins vegar með ólíkindum hvernig stjórnar- andstaðan reyndi að gera málið tortryggilegt. „Ég bendi á að þær dylgjur sem hafðar hafa verið í frammi um pólitík í þessu máli, meint pólitísk tengsl nýráðins fréttastjóra, hafa ekki verið studd- ar neinum rökum.“ Ásta R. Jóhannesdóttir, þing- maður Samfylkingarinnar, kallaði eftir nánari upplýsingum. Til að mynda hver hefði verið niðurstaða verktakafyrirtækisins, sem lagði mat á umsóknirnar um frétta- stjórastöðuna. „Hver var niður- staða þess? Hverjir voru taldir hæfastir?“ Steingrímur J. Sigfússon, for- maður Vinstri grænna, sagði að hingað til hefði flokksskírteini í Sjálfstæðisflokknum nánast verið skilyrði fyrir ráðningu í yfir- mannsstöður hjá útvarpinu. Nú væri hins vegar komið að Fram- sókn. „Það er með öllu ólíðandi að menn skuli hegða sér svona frammi fyrir opnum tjöldum.“ Þá sagði Helgi Hjörvar, þingmaður Samfylkingar, að öllum almenningi blöskraði þessi augljósa misbeiting valds. Ekki í Framsóknarflokknum Dagný Jónsdóttir, þingmaður Framsóknarflokks, sagði eins og Birgir að málflutningur stjórnar- andstöðunnar væri með ólíkindum. Því væri haldið fram að hinn ný- ráðni fréttastjóri væri í Framsókn- arflokknum, en svo væri ekki. „Ég ræddi við framkvæmdastjóra Framsóknarflokksins í morgun. Þessi maður hefur aldrei verið skráður í flokkinn.“ Að lokum sagði Pétur H. Blön- dal, þingmaður Sjálfstæðisflokks, að Ríkisútvarpið væri eign ríkisins en ekki þjóðarinnar. Á því væri mikill munur. „Allt tal um það að menn eigi RÚV, að það sé eign þjóðarinnar, er náttúrlega alveg út í hött. Ef menn eiga eitthvað geta þeir gert eitthvað við það, selt það eða veðsett. Það geta þeir ekki með Ríkisútvarpið. Þess vegna verður RÚV alltaf pólitískt. Það er pólitík í ríkinu sem er stjórnað af ríkinu og ríkið á RÚV.“ Ráðning í stöðu fréttastjóra Útvarpsins rædd á Alþingi Vilja að útvarpsstjóri endurskoði ákvörðun sína Stjórnarþingmenn segja ekki um pólitísk tengsl að ræða ÞAÐ MUN kosta að minnsta kosti 40 milljónir króna á ári að halda úti sólarhringsvöktum á skurð- og svæfingarsviði Heilbrigðisstofnun- ar Suðurnesja. Ráðast þyrfti í um 500 milljóna króna framkvæmdir við endurbætur á spítalanum fyrst. Ráðherra segir að ekki sé búið að tryggja fjármuni til fram- kvæmdanna ennþá, en unnið sé að því. Þetta kom fram í svari heilbrigð- isráðherra í utandagskrárumræðu á Alþingi í gær við spurningum málshefjanda, Jóns Gunnarssonar, þingmanns Samfylkingarinnar, varðandi framtíðaruppbyggingu bráðaþjónustu á Heilbrigðisstofn- un Suðurnesja. Benti Jón Gunn- arsson á að þjónustusvæði Heil- brigðisstofnunarinnar væri 17 þúsund íbúa byggð og flugvöllur- inn í Keflavík; starfsmenn og ferðamenn. Sagði hann að nefnd sem heil- brigðisráðherra skipaði árið 2003 hefði komist að þeirri niðurstöðu að byggja þyrfti upp heildstæða al- menna sjúkrahúsþjónustu sem stæði til boða allan sólarhringinn. „Ekki er enn til staðar samfelld og stöðug vaktþjónusta á skurðstofu,“ benti Jón Gunnarsson á. „Það hlýt- ur að vera nauðsynlegt til að geta veitt örugga og fullkomna bráða- þjónustu að svo sé, enda segir svo í helstu niðurstöðum skýrslu nefnd- arinnar.“ Sagði hann ráðherra hafa staðfest þá framtíðarsýn sem kom- ið hefði fram í tillögum nefndar- innar. Spurði hann ráðherra hver væri viðbótarkostnaður við að reka samfellda vaktþjónustu á skurð- og svæfingarsviði allan sólarhringinn. Einnig spurði hann ráðherra hvort hann teldi nauðsynlegt að þessi þjónusta væri rekin á stofnuninni og ef svo væri hvenær mætti vænta að slík þjónusta kæmist á. Í svari heilbrigðisráðherra kom fram að fyrir lægi framtíðarsýn um uppbyggingu sjúkrahússins, líkt og Jón Gunnarsson hefði sjálf- ur bent á. Sú stefnumörkun fæli m.a. í sér uppbyggingu og end- urnýjun á skurðstofum stofnunar- innar, „sem er að mínu mati for- senda fyrir framtíðarþróun spítalans,“ sagði Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra. „Það er hins vegar rétt að það hefur dregist lengur en ég hefði óskað að full- vinna kostnaðar- og framkvæmda- áætlun sem liggur í tillögunum. Hönnun er nú komin af stað og henni gæti lokið á miðju þessu ári. Það er forgangsverkefni hjá okkur að skapa svigrúm til útboðs og framkvæmda við heilbrigðisstofn- unina.“ Benti ráðherra á að heildarfram- lög til Heilbrigðisstofnunar Suð- urnesja hefðu verið 680 milljónir árið 2001 en væru 1.100 milljónir á þessu ári. Fjárframlögin hafi auk- ist verulega umfram verðlags- breytingar. Rætt um uppbyggingu bráðaþjónustu á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 40 milljónir þarf til að halda úti sólar- hringsvöktum OKKUR finnst mikilvægt að hugsa skipulagsmál í stórum heildum og að það gefist betur fyrir skipulag og uppbyggingu samfélags að taka stærri svæði undir í einu í stað þess að skipuleggja hvert frímerkið á fætur öðru sem kannski hangir ekki nægilega vel saman,“ segir Ásdís Halla Bragadóttir, bæjarstjóri Garðabæjar, um hugmyndir um nýtt skipulag miðbæjar Garðabæjar. „Garðabær er mjög vaxandi samfélag sem er að byggjast upp hratt þessi misserin og það er ekki eftir neinu að bíða að búa til glæsilegan og skemmtilegan miðbæ í Garðabæ með öflugri verslun og iðandi lífi. Til þess að ná því markmiði þá mátum við það svo að það væri best að gera þetta með þessum hætti, þó að þetta sé bæði djarft og róttækt,“ segir hún. Unnið í nánu samstarfi við hagsmunaaðila Að sögn hennar var ákveðið að ganga til samninga við Klasa vegna þess að þeir hafi trú á staðnum og burði til að ráðast í verkefnið af mikilli alvöru. Ásdís Halla segir aðspurð um hugmyndir um að rífa Hag- kaup við Garðatorg og byggja verslunarkjarna við Hafnarfjarðarveg, að mikilvægt sé fyrir dagvöruversl- un að vera nær fjölmennum gatnamótum, ætli hún að bjóða upp á fyrsta flokks þjónustu og úrval. Verslun Hagkaupa við Garðatorg sé of lítil til að hún geti haft það úrval sem fólk virðist sækjast eftir. Að sögn Ásdís- ar er markmiðið að vinna hugmyndir að nýju skipulagi í nánu samstarfi við rekstraraðila, eigendur fasteigna og aðra hagsmunaaðila og íbúa. Fyrstu opnu fundir um nýtt skipulag verða í apríl nk. og er stefnt að því að deiliskipulag fyrir nýjan miðbæ liggi fyrir í ágúst. Að sögn Ásdísar Höllu er full eining meðal bæjarfulltrúa um þetta fyrirkomulag um skipu- lag bæjarins, en fulltrúar bæði meiri- og minnihluta áttu sæti í samráðhópi sem valdi tillögu Klasa. Íbúar Garðabæjar eru nú rúmlega níu þúsund og er gert ráð fyrir að þeir verði um 10 þúsund á næsta ári og á bilinu 20–30 þúsund innan nokkurra ára, gangi áætlanir um uppbyggingu í bænum eftir, að sögn Ás- dísar Höllu. Ásdís Halla Bragadóttir bæjarstjóri „Mikilvægt að hugsa skipulag í stórum heildum“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.