Morgunblaðið - 11.03.2005, Page 20
20 FÖSTUDAGUR 11. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
ÁTÖKIN í Lýðveldinu Kongó, Úg-
anda og Súdan eru þrjár helstu
„gleymdu hörmungarnar“ í heim-
inum og manntjónið af völdum þeirra
er miklu meira en af völdum nátt-
úruhamfaranna við Indlandshaf.
Sjaldan er þó fjallað um þessar
stríðshörmungar í fjölmiðlunum.
Þetta er niðurstaða könnunar
Reuters sem leitaði álits yfir hundrað
sérfræðinga á sviði neyðaraðstoðar.
Skýrt er frá niðurstöðunni á frétta-
vefnum AlertNet sem Reuters held-
ur úti og er helgaður umfjöllun um
ýmsa hörmungaratburði, hung-
ursneyðir og farsóttir í heiminum.
Á vefnum kemur meðal annars
fram að stríðið í Lýðveldinu Kongó
hefur kostað minnst tíu sinnum fleiri
mannslíf en náttúruhamfarirnar við
Indlandshaf í desember þótt lítið sé
fjallað um stríðshörmungarnar í fjöl-
miðlum utan Afríku. Áætlað er að um
þrjár milljónir Kongóbúa þurfi á að-
stoð að halda en fái hana ekki vegna
átaka sem geisa enn í austanverðu
landinu.
John O’Shea, framkvæmdastjóri
írsku hjálparstofnunarinnar GOAL,
lýsti ástandinu í Kongó sem „mesta
harmleik mannkynsins frá helförinni
gegn gyðingum“.
Sérfræðingarnir nefndu einnig al-
næmisfaraldurinn og aðrar skæðar
farsóttir, t.a.m. malaríu og berkla,
sem valda milljónum dauðsfalla á ári
hverju.
Einn sérfræðinganna sagði að
manntjónið af völdum hörmunganna
og farsóttanna í Afríku væri svo mik-
ið að líkja mætti því við að nátt-
úruhamfarir á borð við flóðbylgj-
urnar í Indlandshafi gengju yfir
álfuna á hálfs mánaðar fresti.
Á fréttavefnum er ennfremur
greint frá því að náttúruhamfarirnar
við Indlandshaf fengu meiri umfjöll-
un í fjölmiðlum á sex vikum en allar
tíu helstu „gleymdu hörmungarnar“ í
heiminum samtals á einu ári. Er
þetta niðurstaða rannsóknar á frétt-
um 200 dagblaða sem gefin eru út á
ensku víða um heim.
Hörmungarnar sem fjölmiðlarnir „gleyma“
3 8,+!
+=("
=/2=$ ,
+".!(!
#:+=%:+
"=
)%+.")
,"$,+6(
/
' 16)
++6:
$ +2($,
%@=,
)%
++%"+($:#!
6:$, 4
! %- (+,
$,"
,
( %!
)(=3=/,="
*=+/,'.!
=,3,:,,
)/+:(2$,++
*2
#! 5*6 A
++6:
$+)(+=( '+."
)%=",("+."+
)/("/=O";$?()
,")
++6:2.$+2 7).( A"
12".$++(=
)'%"
,
,($=2
)"
=A?="6)+6:;
+>(,+.=R2+.
8 )9!#6
S6))"##,.#@"$,O!$,"%!(++
(
+=(!
++6:$+!("##
T
/'"
$,",(9"$,(,@.. (%1)==(",($,##=%@+=)"(
5'* (6(.,@6'=%/')
$,
=2"'+."
,
,+."2
++6:."(++))
++6:
))
!
"
++6:.,@6
.,@62
))
-
#' *
"
++6:"
,
$
8CB;,"/2,1(6"==%"" $1,
++6:/$!(
"(+",
+."
8CB;
"("
$,":6'+
(=0=!
)C.+.
!)
6/#! /=""$+""
,=(
))""
; ,
%!( ;
++6:
+=(*+,.:" '+."
:,(
; < ,#6; 1
T
+
6=
+"
!
++(
$+2($,
%@=
,
="))%
++
6:$,!
"##,,
5 2) '#! # =>
6#/#! 9!#6!
5*6# ? , 2
@!
<'62) '#! # A 2 '#''( #!# <
!"#
$
ROBERT McNamara, sem var varn-
armálaráðherra Bandaríkjanna á sjö-
unda áratugnum, segir að Bandaríkin
og önnur kjarnorkuveldi hafi ekki
fullnægt ákvæðum í alþjóðlegum
samningum um bann við dreifingu
kjarnorkuvopna.
Hvorki Banda-
ríkjamenn né
Rússar hafi fækk-
að að ráði í vopna-
búrunum en
ákvæði eru í
samningunum um
slíkar aðgerðir.
McNamara,
sem er 88 ára að
aldri, sakaði
Bandaríkin, Rússland og Kína um að
fylgja í þessum efnum stefnu sem
væri „ólögleg og siðlaus“. Liðinn væri
áratugur frá lokum kalda stríðsins en
Bandaríkjamenn hefðu ekki enn
breytt stefnu sinni. Stjórnvöld í
Washington hefðu gert áætlanir um
að endurbæta þau kjarnavopn sem
fyrir hendi væru og smíða nýjar gerð-
ir sem hægt væri að nota til að ráðast
gegn neðanjarðarbyrgjum. Ennfrem-
ur væri rússneskum eldflaugum enn
beint að skotmörkum í Bandaríkjun-
um og í mörgum tilfellum væri bún-
aðurinn, sem nota ætti ef rússnesku
flaugarnar væru sendar af stað, löngu
úreltur.
„Það er brýnt að við losum okkur
við þessi vopn eða fækkum þeim svo
mikið að ekki sé gerlegt að nota þau
til að eyða ríkjum,“ sagði McNamara.
Ríkisstjórn George W. Bush
Bandaríkjaforseta reynir nú að koma
í veg fyrir að Norður-Kórea og Íran
komi sér upp kjarnorkuvopnum. Gert
er ráð fyrir að Condoleezza Rice utan-
ríkisráðherra muni ræða þessi mál í
heimsókn sinni til Suður-Kóreu en áð-
ur sækir hún heim Afganistan, Pak-
istan og Indland. Tvö síðastnefndu
ríkin hafa þegar komið sér upp
kjarnavopnum, hin kjarnorkuveldin
eru Bandaríkin, Rússland, Kína,
Bretland og Frakkland.
Kjarnorku-
stefnan
„ólögleg
og siðlaus“
San Francisco. AP.
Robert McNamara
RODNEY S. Melville, dómari í
Kaliforníu, gaf í gærmorgun út
handtökuskipun á hendur tónlistar-
manninum Michael Jackson þegar
hann mætti ekki í réttarsalinn í
Santa Maria á réttum tíma og hót-
aði að innkalla tryggingu sem sett
hefur verið til að Jackson þurfi ekki
að sitja inni. Nokkrum mínútum
eftir að frestur Jacksons til að koma
fyrir réttinn rann út kom hann á
staðinn og var veiklulegur að sjá.
Talsmenn hans sögðu að hann
hefði fengið meðhöndlun á sjúkra-
húsi vegna bakverkja. Cottage-
sjúkrahúsið í Santa Ynez staðfesti
að Jackson hefði verið meðhöndl-
aður á sjúkrahúsinu og fengið
vöðvaslakandi lyf.
Jackson, sem er 46 ára, er fyrir
rétti vegna ásakana um að hann
hafi átt kynferðislegt samneyti við
börn á búgarði sínum en gengur
laus eftir að hafa sett tryggingu,
þrjár milljónir dollara eða um 180
milljónir króna. Melville dómari
hafnaði beiðni verjanda Jacksons,
Thomas Mesereaus, um að ræða við
sakborninginn í síma á bráðadeild
sjúkrahússins. Síðar sagði dómar-
inn hins vegar að ljóst væri að Jack-
son væri veikur og hann yrði ekki
handtekinn þrátt fyrir að hann hefði
verið of seinn á vettvang.
Klámmyndir á Netinu
skoðaðar á Neverland
Talsmaður Jacksons sagði að tón-
listarmaðurinn hefði vaknað
snemma um morguninn til að búa
sig undir réttarhöldin en fengið
slæman bakverk. Ekki væri ljóst
hvers vegna meðferðin á sjúkrahús-
inu hefði tekið svona langan tíma,
þrjár stundir. Í febrúar varð að
fresta réttarhöldunum í viku vegna
þess að tónlistarmaðurinn fékk
flensu og fór á sjúkrahús.
Drengur, sem nú er fimmtán ára
að aldri, hefur sakað Jackson um
ósiðlegt athæfi og bar hann vitni í
gær. Var það í fyrsta sinn sem
drengurinn stóð augliti til auglitis
við Jackson síðan hann var gestur á
búgarði söngvarans, Neverland, í
mars 2003. Hann lýsti því hvernig
tónlistarmaðurinn hefði sýnt sér
klámfengnar myndir í svefnher-
bergi Jacksons. Hann var ekki
spurður í gær hvort hann og söngv-
arinn hefðu átt kynferðislegt sam-
neyti. En drengurinn sagði frá því
að hann hefði í fyrstu heimsókn
sinni á búgarðinn skoðað klámsíður
á Netinu ásamt Jackson og fleira
fólki eftir að söngvarinn hefði
stungið upp á því að drengurinn og
bróðir hans svæfu í svefnherbergi
gestgjafans um nóttina. Vitnið var
með krabbamein er þessir atburðir
áttu sér stað.
Bróðir 15 ára drengsins bar einn-
ig vitni og sagðist hafa séð Jackson
þukla eldri bróðurinn í febrúar eða
mars 2003. Hann sagðist einnig
hafa skoðað klámsíður á Netinu
aðra nóttina á Neverland en þá
höfðu foreldrar drengjanna sam-
þykkt að þeir svæfu í herbergi
söngvarans. Yngri drengurinn lýsti
efninu á klámsíðunum. „Það var
þarna stelpa sem hafði flett upp um
sig skyrtunni,“ sagði hann. Jackson
hefði hvíslað einhverju í eyrað á
ungum syni sínum, Prince Michael,
sagt að hann væri að missa af miklu
og notað síðan slang yfir kynfæri
kvenna.
Jackson er sakaður um að hafa
níðst kynferðislega á eldri drengn-
um og gefið honum áfengi. Einnig
er hann sagður hafa ráðgert að taka
fjölskyldu drengsins í gíslingu til að
þvinga hana til að andmæla heimild-
armynd í sjónvarpi þar sem sagt
var að söngvarinn leyfði börnum að
sofa í svefnherbergi sínu. Verjendur
Jacksons segja að fjölskyldan hafi
áður borið fram falskar ákærur til
að hagnast á því.
Dómari hótaði að láta
handtaka Jackson
Ung vitni segjast hafa skoðað klámmyndir með söngvaranum á búgarði hans
Santa Maria í Kaliforníu, AP, AFP.
Reuters
Michael Jackson kemur í dómshúsið í Santa Maria í gær í fylgd með föður
sínum, Joseph Jackson. Söngvarinn mætti of seint og þótti veiklulegur.